Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR Þórodd í bæjar- stjórn Hafnar- fjarðar UNDANFARIN miss- eri hefur gustað um bæjarstjómarmál Hafnarfjarðar í fjöl- miðlum. Þótt sú um- ræða hafi að miklu leyti _ borið keim af afþreying- ar- og æsifrétta- mennsku í gúrkutíðum má ekki gleyma því að bæjarstjórnarmál eru alvörumál. Akvarðanir bæjarstjórnar snerta íbúa bæjarins og því veltur mikið á að til setu í bæjarstjórn veljist fólk sem veldur ábyrgðinni sem henni fylgir. í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Hafnarfirði hefur gefið kost á sér Þóroddur Steinn Skapta- son. Þóroddur þekkir vel til þeirra mála sem Hafnfirðingar munu verða að taka á næstu árin - skóla- ^mála, skipulagsmála, félagsmála o.fl. Hann er ekki að uppgötva þessi mál fyrst núna, þegar líður að kosn- ingum, heldur hefur hann unnið að þeim að eigin frumkvæði og áhuga um árabil. Þóroddur hefur starfað ötullega í foreldrafélagi Víðistaðaskóla, í for- eldraráði Hafnarfjarðar, og m.a. gegnt þar formennsku. Þar hafði hann frumkvæði fyrir því að for- eldrar hefðu áheyrnarfulltrúa í skólanefndum, en í því hafði ekki verið farið að lögum í Hafnarfirði. ^Ennfremur hefur Þóroddur verið málsvari þeirrar skoðunar megin- þorra foreldra að kennsla unglinga haldi áfram í heildstæðum grunn- skólum hverfanna, en ekki verði byggðir sérstakir stórir unglinga- skólar sem taki við nemendum úr mismunandi hverfum bæjarins. Hjá Húsnæðisnefnd ReykjaUkur hefur Þóroddur starfað um árabil, þar sem hann er nú deildarstjóri. Með það veganesti hefur hann til að bera reynslu og þekkingu sem eng- inn núverandi bæjarfulltrúi býr að, til að takast á við þann tugmilljóna króna vanda sem húsnæðisnefnd bæjarins hefur safnað upp á liðnum árum. 'V En þótt fagleg reynsla og þekk- ing dugi ein sér til að veita Þóroddi brautar- gengi í bæjarstjórn vega persónuleg kynni mín af honum ekki síð- ur. Þóroddur gekk ekki fyrst til liðs við Sjálf- stæðisflokkinn þegar prófkjör var auglýst fyrir nokkrum vikum. Hann hefur starfað fyrir flokkinn allt frá ung- lingsárum, þegar Bjarni heitinn Benediktsson veitti honum forystu. Undanfarin ár hef ég starfað með Þóroddi í félagsstarfi Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði, þar sem við sitjum báðir í stjórn landsmálafélagsins Fram. Þórodd- ur vinnur ekki með hávaða eða glysræðum. En hann hlustar á sjónarmið annarra, myndar sér skoðanir með yfirveguðum hætti og Þóroddur á fullt erindi í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar, segír Ólafur Þór Gunnarsson, og hvetur Hafnfírðinga til að veita honum braut- argengi í komandi kosningum, fylgir þeim svo eftir af festu. Við- horf hans til manna og málefna markast af grundvallarhugsjónum sjálfstæðisstefnunnar, þar sem vilji einstaklinganna er hafður í fyrir- rúmi og þar sem menn „gera rétt og þola ei órétt“. Þóroddur á fullt erindi í bæjarstjórnarflokk sjálf- stæðismanna. Hann sækist eftir ör- uggu 4. sæti í prófkjöri flokksins í Hafnarfirði og þangað veiti ég hon- um stuðning minn heilshugar. Höfund nr er viðskiptafræðingur. Ólafur Þór Gunnarsson. N Á M S K E 1 1 Ð UM ÞURRKUN FISKAFURÐA Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við þurrkun fiskaf- urða og þeim sem hafa áhuga á að hefja slíku vinnslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði þess að þurrka saltfisk, harðfisk, skreið og þorskhausa. Áhersla verður lögð á: Eðliseiginleika lofts, uppbyggingu þurrkbúnaðar, orku- og massavægi, gæða- og örveru- breytingar, hráefnisval og geymsluþol. Leiðbeinendur verða Sigurjón Arason og Birna Guð- björnsdóttir Verð: 11.500. Námskeiðið verður haldið; föstudaginn 21. nóvember, frá kl. 10-16 í Borgartúni 6 Hægt er að skrá sig; í síma: 562 0240 á faxi: 562 0740 á netfangi: info@rfisk.is Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Rf og í síma 562 0240. http://www.rfisk.is/utgafa/namskeid Rannsóknarst Fiskiðnað Hafnarfjörður - Mannlíf og stjórnmál EITT er það sem gjarnan kemur sterkt upp í almennri umræðu með jöfnu millibili og er þá a.m.k. jafn mikið rætt og tíðarfarið - veðrið í gær og veður- horfur framundan. Það eru stjórnmál og stjórn- málamenn og það sem helst telst þá fréttnæmt eru deilur um málefni eða átök um völdin inn- an flokka og á milli þeirra. Umfjöllun fjölmiðla um Hafnarfjörð undan- farin misseri hefur lítið gengið út á annað en innanflokksátök og einstakar per- sónur, sem mest hafa tengst þeim átökum. Það var því ánægjuefni, þegar ég heyrði sl. fimmtudag í dægurmálaútvarpi Rásar 2 viðtöl við nokkra íbúa Hafnarfjarðar og spurt var hvernig væri að búa í Hafnarfirði. Reyndar hafði ég heyrt í kynningu á dagskrá að fjalla ætti um Hafnarfjörð, og hugsaði ég með mér að nú ætti eina ferðina enn að klifa á meirihlutasamstarfi Alþýðu- flokksins og tveggja af fjórum bæj- arfulltrúum sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn og meintum vandræðum innan þessara tveggja flokka vegna þessa sam- starfs. Skemmst er frá því að segja að allir viðmæl- endur Rásar 2 umrædd- an dag lýstu ánægju sinni með að búa í Hafn- arfirði og minntust þá lítið sem ekkert á stjórn- málin. Tilgreind voru ýmis atriði eins og feg- urð bæjarins, gildi þess að búa í sveitarfélagi með nokkuð öflugt at- vinnulíf til lands og sjáv- ar og að búa þar sem góðar forsendur eru fyr- ir persónulegum kynn- um við aðra bæjarbúa. Þannig sagði kona sem flust hafði í fjörðinn frá Isafirði að hún væri mjög sæl með að búa í Hafnarfirði þar eð hér kæmist hún næst því að finna sig heima annars staðar en þar sem rætur hennar eru. Því er ekki að leyna að mikil óvissa hefur verið um hvað framundan er í stjórnmálunum í Hafnarfirði, en þó er ljóst nú, að Sjálfstæðisflokkurinn er að snúa vörn í sókn með því að hafa prófkjör strax nú í nóvember og í beinu framhaldi af því hefja öfluga mál- Bæjarbúum verður' kynnt, segir Almar Grímsson, að besti kosturinn er að veita Sjálfstæðisflokknum umboð til að hafa for- ystu í bæjarstjórn í Hafnarfirði. efnavinnu. Þannig verður bæjarbú- um kynnt að besti valkosturinn er að veita Sjálfstæðisflokknum umboð til að hafa forystu í bæjarstjórn í Hafnarfirði eftir kosningarnar næsta vor. Eg vænti þess að ágreiningur innan flokksins verði nú lagður til hliðar og málefni, en ekki persónur verði höfð að leiðarljósi í öllu starfi sem framundan er. Það ber að þakka öllum þeim sem eru að leggja sitt af mörkum, til að svo megi verða. Höfundur er lyfjafræðingur og tek- ur þátt i prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði. Almar Grímsson Skólamálin í for- gang í Hafnarfírði FYRIR því ætla ég undirrituð að berjast, og er það ein aðalá- stæða þess að ég tek þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins vegna bæjarstjórnarkosning- anna vorið 1998. Eg óska eftir stuðn- ingi þínum í 3.-5. sætið í prófkjörinu þann 22. nóvember næst komandi og heiti að vinna að þess- um málefnum að alefli fái ég til þess stuðning. Skv. 3. gr. grunn- skólalaganna segir að hver grunnskóli^ skuli vera einsetinn. Akvæði 3. gr. skal að fullu vera komið til framkvæmda árið 2003. Það eru þau tímamörk sem sveitarfélögin glíma nú við að standast og gengur það misvel. Hafnarfjörður kemur næst á eftir Reykjavík hvað barnafjölda á grunnskólaaldri varðar. Af þeim sökum er ábyrgð bæjarstjórnar mikil að standa við skuldbindingar sínar í þessum málaflokki. Allir skólar tvísetnir Allir skólar í Hafnarfirði eru tví- setnir, og ekkert bæjar- félag á landinu á jafn langt í einsetningu grunnskólans og Hafn- arfjörður. Ljóst er að bæjaryfirvöld hafa brugðist skyldum sínum og þrátt fyrir mikla skuldasöfnun bæjar- sjóðs síðustu ár virðast þeir fjármunir hafa farið til annarra málaflokka en skólanna. Ef einsetning dregst er hætta á að hafnfirsk skólabörn verði með minna nám á bak við sig en önnur börn á landinu, vegna fjölgunar kennslu- stunda samhliða einsetningu fram til ársins 2001. Til þess að hægt verði að einsetja skólana þarf að byggja 70 kennslustofur auk annarrar kennsluaðstöðu svo sem íþróttahús- næðis og sundlauga. Ljóst er að þörfin er mikil og ekki seinna vænna að byi'ja á verkinu. Til dæmis má nefna að tveir árgangar í Hafnar- firði fá enga sundkennslu vegna að- stöðuleysis. Það eru 6 ára börn og 10. bekkur, lokapróf í sundi í Hafn- arfirði er því tekið í 9. bekk. Til við- Við Hafnfirðingar verðum að standa vörð um hagsmuni barna okkar, segir Steinunn Guðnadóttir, og tryggja að þau fái þá menntun sem þeim ber sam- kvæmt lögum. bótar við vanda grunnskólanna eru svo 24% barna á leikskólaaldri í Hafnarfirði á biðlistum. Við Hafnfirðingar verðum að standa vörð um hagsmuni barna okkar og tryggja að þau fái þá menntun sem þeim ber samkvæmt lögum, menntunin er þeirra fjárfest- ing. Setjum skólamál í forgang. Höfundur er í foreldraráðum í Hafnarfirði og tekur þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Steinunn Guðnadóttir Eign án endurgjalds Sálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði heldur prófkjör 22. nóvember nk. til að velja fram- bjóðendur á lista flokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningar í vor. Prófkjörið verður eingöngu opið fyrir fé- laga í Sjálfstæðis- flokknum í Hafnarfirði, og þessi staðreynd hef- ur gefið öfundarmönn- um tilefni til að lýsa því yfir að flokkurinn sé eign flokkseigenda- klíku. Auðvitað er þetta rétt mat á stöð- unni. Félagar í Sjálf- Ágúst Sindri Karlsson stæðisflokknum í Hafn- arfirði hljóta eðli máls samkvæmt að vera eig- endur flokksins, og þar af leiðandi flokkseig- endaklíka. En, ólíkt öðrum eignarréttind- um, þá er þessi auðlind sjálfstæðismanna ekki takmörkuð. Það eru ekki gefnir út neinir eignarkvótar í Sjálf- stæðisflokknum í Hafn- arfirði. Hver einasti Hafnfirðingur 16 ára og eldri, sem styður frelsi og framfarir, get- ur orðið félagi í flokkn- um og þar með flokks- Hver einasti Hafnfirð- ingur 16 ára og eldri getur orðið félagi í flokknum, segir Agúst Sindri Karlsson, og þar með flokkseigandi. eigandi. Það besta er að það kostar ekkert að ganga í flokkinn. Undirritaður tekur þátt í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Hafnar- firði og sækist eftir stuðningi flokkseigenda í annað eða þriðja sæti listans. Það er von mín að eig- endum í flokknum fjölgi mikið því það er betra að eiga lítinn hlut í stórum og öflugum flokki, eins og Sjálfstæðisflokknum, heldur en stóran hlut í félagi sérhagsmuna. Höfundur tekurþátt íprófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.