Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 63
FÓLK í FRÉTTUM
Stækkandi fjölskylda
hjá Rosie O’Donnell
ROSIE O’Donnell
er nýlega
orðin móðir
í annað sinn.
►LEIKKONUNNI og spjall-
þáttasljórnandanum Rosie
O’Donnell tókst að þegja yfir
leyndarmáli um einkálíf sitt en
það telst til tíðinda því hún þyk-
ir í meira lagi málglöð. Það var
svo í síðustu viku að Rosie sagði
frá því að hún hefði ættleitt
stúlkubarn sem fæddist 20. sept-
ember síðastliðinn. Dótturinni
hefur verið gefið nafnið Chelsea
Belle O’Donnell og að sögn
Rosie er hún yndisleg
„krúsídúlla".
Það var í þætti hjá Barböru
Walters að Rosie sagði frá
leyndarmálinu. Yfirlýsingin kom
samstarfsfólki og áhorfendum
Rosie á óvart en hún á fyrir son-
inn Parker sem er tveggja ára
og líka ættleiddur. Að hennar
sögn er dóttirin sköllótt og
með græn augu eins og
bróðir hennar. Það var
frænka Rosie sem stakk
upp á nafninu Chelsea
í liöfuðið á forseta-
dótturinni. Millinafnið
Belle var hins vegar hugmynd
Parkers litla sem er aðdáandi
söguhetjunnar í myndinni
„Fríða og Dýrið“.
Ættleiðingin var ekki í sam-
ráði við ákveðna móður heldur
fékk Rosie tilkynningu þegar
röðin var koinin að henni. Að
hennar sögn mun óvænt koma
Chelsea verða til þess að hún
leiki ekki í kvikmynd næsta
sumar eins og rætt hafði verið
um. Rosie, sem er einstæð móð-
ir, segist fá hjálp frá fjölskyldu
sinni og vinum við að samræma
starfið og móðurhlutverkið og
segist vilja fleiri böni í framtíð-
inni.
HIN 18 ára Robyn er nýjasta
poppstjarna Svía.
;
1
►SÆNSKA söngkonan Robyn
hefur undanfarið gert það gott á
vinsældalistum með lagið „Show
Me Love“ sem komst meðal
annars á topp tíu listann í
Bretlandi fyrir skömnrn. Robyu
er 18 ára gömul og samdi fyrsta
lagið sitt þegar hún var 11 ára
og foreldrar hennar skildu.
Þetta var lagið „In My Heart"
sem var fyrsta skrefið að ferli
liennar sem poppstjöruu. Þegar
Robyn var 15 ára heyrði
söngvari einn hana syngja lagið
sitt í frínn'nútum í skólanum og
lét hana fá símanúmer hjá
plötuútgefanda. „Ég hundelti
manninn þar tii hann féllst að
lokutn á að gera prufútöku með
mér. Ég hafði aldrei kotnið í
hljóðver áður og spurði hvorí ég
mætti ekki syngja fyrir hann á
skrifstofunni hans,“ sagði Robyn
sem fékk samning á staðnum og
sendi frá sér fyrstu plötuna
þegar hún var 16 ára. Það var
platan „Robyn Is Here“ sem varð
metsöluplata og færði henni
þrenn tónlistarverðlauu í
Svíþjóð. í kjölfarið bauðst henni
að hita upp fyrir Tinu Turner á
tónleikaferð hennar unt
Norðurlöndin. Nýjasta
smáskífan er „Show Me Love“
sent Robyn segir vera þá bestu
til þessa en hún stefudi á
Evrópu- og Bandaríkjamarkað
með útgáfu hennar.
Von um betri tíð
Ringo Starr og láta Rún-
ari sönginn eftir.
Eins og fyrr segir eru
fjögur lög eftir aðra en
sveitarmeðlimi. Nú er gam-
an hljómar eins og leiðin-
legt jólalag og ekki er
Svona eru konur kæri
skemmtilegra áheyrnar;
ófrumlegheitin ætla allt að
kæfa. Love Grows (Where
My Rosemary Grows)
þekkja flestir;' bráðskemmti-
legt lag sem Sixties nær að
eyðileggja með frámuna
gervilegu hljómborðshljóði og
lélegum enskuframburði
(„She“ er ekki borið fram „sí“.
Að gefa út „nýja“ útgáfu á lag-
inu Happy Together ér að
bera í bakkafullan lækinn; svo
oft hefur það hljómað í sjón-
varpi og útvarpi síðustu misseri
að góðu lagi er enginn greiði
gerður. Hljómborðshljómur í
því lagi er þó mun skárri en í
Love Grows.
Flutningur Sixties-manna er til
fyi-irmyndar, enda eru þeir afar góð-
ir hljóðfæraleikarar. Öll spila-
mennskan hefur skilað sér í afburða
þéttleika. Söngur Rúnars er öruggur
og útsetningar eru flestai' góðar,
þótt margar séu væmnai'.
Á þessari plötu má segja að
Sixties höggvi í sama knérann og áð-
ur, a.m.k. eru lögin enn jafn létt, en
þó glittir í frumlega hugsun í frum-
sömdu lögunum. Því er ljóst að liðs-
menn geta betur ef þeir reyna að
gleyma klisjunum eins og í fyrr-
nefndu Segðu! og Þú sem benda til
betri Sixties-tíma í framtíðinni.
Ivar Páll Jónsson
TONLIST
Geisladisknr
SIXTIES
Geisladiskur samnefndrar hljóm-
sveitar. Hana skipa: Rúnar Orn
Friðriksson, Guðmundur Guim-
laugsson, Andrés Þór Gunnlaugs-
son og Þórarinn Freysson. Upp-
tökusljórar voru Pétur Hjaltested
og Ólafur Halldórsson. Útsetningar
eftir Pétur, Ólaf og Sixties. Ekki er
getið um útgefanda í bæklingi.
1.999 kr. 35 mín.
LIÐSMENN Sixties hafa gert
það gott undanfarin ár með því að
flytja svokölluð „bítlalög". „Bítla-
lög“ þurfa ekki endilega að vera
eftir Bítlana sjálfa, heldur verður
textinn að vera einfaldur, fjalla
helst um ást unga mannsins á
ungu stúlkunni, auk þess sem lag-
línan verðm- að vera grípandi. Þessi
lög hafa Sixties-liðar flutt af færni og
lífsgleði og hlotið fyrh' vinsældir hjá
ungum sem öldnum.
Nú vii'ðist sem komið sé að tíma-
mótum hjá hljómsveitinni. Hún sætt-
ii' sig ekki lengur við að flytja ein-
ungis lög eftir aðra; tími lagasmíð-
anna er runninn upp. Fjögur lög af
tíu á nýju plötunni eru eftir sveitar-
meðlimi og að auki hafa þeir fengið
lánuð lög eftir Jóhann Helgason (Sól
mín og sumar) og Hlöðver Ellerts-
son (Leyndarmál). Hin lögin eru
gamlir smellh' (Love Grows (Where
My Rosemary Goes) og Happy To-
gether) og minna þekkt stuðlög
(Svona eru konur kæri og Nú er
gaman).
Lögin eru misjöfn að gæðum. Inni
á milli er fínasta popp; til að mynda
Sól mín og sumar eftir Jóhann Helga
sem er haganlega smíðað popplag
þótt það sé fullvæmið fyrir minn
smekk. Bestu lög plötunnar er
Segðu! eftir Andrés Þór gítarleikara
og Hlöðver Ellertsson og Þú eftir
Guðmund Gunnlaugsson og Hlöðver.
Hlöðver þessi á líka lagið Leyndar-
mál sem er hreint ágætt. Þórai'inn
bassaleikari reynir sig líka í laga-
smíðinni með lögunum Hey! og í alla
nótt. Bæði lögin eru ágætlega samin,
fylgja klisjunum fagmannlega, en
söngurinn í því síðarnefnda er fyi'ir
neðan allar hellur. Þórarinn verður
að viðurkenna að hann er enginn
Y-
r
BIOIN I BORGINNI
Sæbjöm Valdimarsson / Arnaldur Indriðason / Anna Sveinbjarnardóttir
BÍÓBORGIN
Marvin’s Room ★ ★★
Meryl Streep og Diane Keaton í
fínu formi í tilfinningadrama um
fjölskyldutengsl, ábyrgð og ást.
Air Force One ★★★
Topp hasarspennumynd með
Harrison Ford í hlutverki Banda-
ríkjaforseta sem tekst á við
hryðjuverkamenn í forsetaflug-
vélinni. Fyrirtaks skemnmtun.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★★★
Hugljúf teiknimynd frá Disney
um rómantískt hundalíf. Prýðileg
afþreying fyrir alla fjölskylduna
aem ber aldurinn vel, var frum-
sýnd árið 1955.
Contact ★★★,/2
Zemeckis, Sagan og annað ein-
valalið skapar forvitnilega, spenn-
andi og íhugula afþreyingu sem
kemur með sitt svar við eilífðar-
spurningunni erum við ein? Fost-
er, Zemeckis og Silvestri í topp-
formi og leikhópurinn pottþéttur.
Hollywood í viðhafnargallanum
og í Oskarsverðlaunastellingum.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Pabbadagurk'k
Tveir afburða gamanleikarar hafa
úr litlu að moða í veikburða sögu í
meðalgamanmynd um táning í til-
vistarkreppu og hugsanlega feður
hans þrjá.
Air Force One'k'k'k Sjá Bíóborg-
ina.
Conspiracy Theory kk'Æ
Laglegasti samsæristryllir. Mel
Gibson er fyndinn og aumkunar-
verður sem ruglaður leigubílstjóri
og Julia Roberts er góð sem
hjálpsamur lögfræðingur.
Perlur og svín ★★'/2
Óskar Jónasson og leikarahópur-
inn skapa skemmtilegar persónur
en töluvert vantar uppá að sögu-
þráðurinn virki sem skildi.
Volcano ★★
Allra sæmilegasta hamfaramynd,
á köflum fyndin og flott en sjald-
an sérlega ógnvekjandi eða skelfi-
leg.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★★★ Sjá Bíóborgin
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri
hans. Eini leikarinn sem virkilega
nýtur sín er Uma Thurman sem
náttúruverndarsinni. George
Clooney er hreint út sagt vonlaus
í aðalhlutverkinu.
HÁSKÓLABÍÓ
The Peacemaker ★★■/2
The Peacemaker er gölluð en
virðingarverð tilraun til að gera
metnaðarfulla hasarmynd um
kjarnorkuógnina og stríðshrjáða
menn.
Austin Powers ★★
Gamanmynd Mike Myers er lag-
legasta skemmtun þó erfiðlega
gangi að gera grín að James
Bond myndunum og myndin líði
fyrir ofuráherslu á neðanbeltis-
brandara.
Perlur og svín ★★‘/2
Óskar Jónasson og leikarahópur-
inn skapa skemmtilegar persónur
en töluvert vantar uppá að sögu-
þráðurinn virki sem skyldi.
KRINGLUBÍÓ
L.A. Confidental ★★★
Frambærilegri sakamálamynd en
maður á að venjast frá Hollywood
þessa dagana. Smart útlit, lagleg-
ur leikur og ívið fióknari sögu-
þráður en gerist og gengur.
Air Force One ★★★ Sjá Bíóborg-
in
Brúðkaup besta vinar míns ★★★
Sjá Stjörnubíó.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★★Sjá Bíóborgin
LAUGARÁSBÍÓ
The Peacemaker ★★'/2 Sjá Há-
skólabíó
Money Talks ★★
Fislétt formúlumynd um tvo ólíka
náunga - annar hvítur hinn
svartur - sem koma sér í marg-
víslegan vanda. Léttmeti af gam-
anspennuættum sem fær mann að
vísu sjaldan til að hlæja af öllu
hjarta en aldrei beint leiðinleg.
REGNBOGINN
Með fullri reisn ★★★
Einkar skemmtileg og fyndin
bresk verkalýðssaga um menn
sem bjarga sér í atvinnuleysi.
Allir segja að ég elski þig ★★★
Bráðskemmtileg mynd frá Woody
Allen þar sem ólíklegustu leikar-
ar hefja upp raust sína.
María ★★★
Lítil og ánægjuleg mynd sem
tekst í aðalatriðum að segja hálf-
gleymda örlagasögu þýsku flótta-
kvennanna sem komu til landsins
eftir seinna stríð.
STJÖRNUBÍÓ
Ráðabruggið ★V2
Undarleg mannránssaga og lítt
áhugavekjandi nema Benetio Del
Toro er ágætur.
Perlur og svín ★★% Sjá Háskóla-
bíó
Brúðkaup besta vinarmíns ★★★
Ástralinn J.P. Hogan heldur
áfram að hugleiða gildi giftinga í
lífi nutímakvenna. Þægileg grín-
mynd sem leyfír Juliu Roberts að
skína í hlutverki óskammfeilins
og eigingjarns matargagnrýn-
anda.