Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 57 I : i í i i 3 : I 1 I I I j i I i i I i i i I J 4 FRÉTTIR Dagbók lögreglunnar Fjórtán grun- aðir um ölvun 14. til 17. nóvember 1997 HELGIN gekk vel fyrir sig hjá lögreglu. Talsvert fjölmennt var í miðborginni einkum á laugar- dag. A annan tug ungmenna undir 16 ára aldri var ekið heim eða í athvarf sem lögreglan hefur sett á laggirnar ásamt íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur- borgar og Félagsmálastofnun. Foreldrar sækja síðan börnin sem flutt eru í athvarfið. Lögreglan vill brýna það fyrir foreldrum að virða reglur um útivist barna sinna. Umferðin Fjórtán ökumenn voru stöðv- aðir vegna gruns um ölvun við akstur um helgina. Höfð voru afskipti af 35 ökumönnum vegna hraðaksturs. Þá var lögreglu til- kynnt um 40 umferðaróhöpp en engin alvarleg slys urðu á fólki. Ástæða er til að minna ökumenn á taka tillit til aðstæðna við akst- ur ökutækja í skammdeginu. Innbrot Talsvert var brotist inn í öku- tæki um helgina og stolið þaðan verðmætum, einkum útvörpum og geislaspilurum. Á föstudag var karlmaður handtekinn eftir að hafa brotið rúðu í lyfjaverslun í austurborginni og reynt að fjar- lægja hluti sem voru í útstillingu. Hann var fluttur á lögreglustöð en gat enga skýringu gefið á athæfi sínu aðra en ölvunar- ástand sitt. Þá var brotist inn í bílskúr á miðbæjarsvæðinu á sunnudag og þaðan stolið tals- verðum verðmætum. Líkamsmeiðingar Karlmaður var fluttur á slysa- deild eftir að hafa fengið flösku í höfuðið í miðborginni. Þá kom til átaka milli tveggja karlmanna í miðborginni að morgni sunnu- dags. Flytja varð annan manninn á slysadeild með áverka á and- liti. I fórum hans fundust síðan ætluð fíkniefni. Að morgni sunnudags kom til átaka milli gests og starfsmanns í vínveit- ingahúsi er gesturinn reyndi að fá þjónustu með því að framvísa fölsuðu greiðslukorti. Eftir átökin varð að flytja gestinn á slysadeild en áverkar eru ekki taldir alvar- legir. Annað Eldur kom upp í viftu í glugga í þvottahúsi á laugardag. Einum var ekið á slysadeild með væga reykeitrun. Upplestrar- keppni meðal barna í 7. bekk grunnskóla DAGUR íslenskrar tungu, 16. nóv- ember, er formlegur upphafsdagur í upplestrarkeppni meðal barna í 7. bekk í nokkrum grunnskólum á Suður- og Suðvesturlandi. Keppn- inni lýkur í mars en þá verða bestu lesarar valdir í hverju byggðar- lagi. Keppnin er nú haldin í annað sinn. í fyrra var hún bundin við Hafnarfjörð og Álftanes en í ár var skólum á Suðurnesjum, í Garðabæ og Kópavogi, á Seltjarn- arnesi og Suðurlandi einnig boðin þátttaka. Nú hafa liðlega 20 skólar á þessu svæði skráð sig til keppn- innar og von er á fleirum. Markmið keppninnar er að stuðla að því að hlutur hins talaða máls, sjálfs framburðarins, verði meiri í skólum landsins og vitund þjóðarinnar en verið hefur. Það er ekki aðalatriði keppninnar að finna hinn hlutskarpasta heldur að fá sem flesta til að Ieggja rækt við lestur sinn, ekki síst þá sem hing- að til hafa orðið útundan í lestri eða eru illa læsir. Reynslan hefur sýnt að einmitt þeir geta komið á óvart þegar þeir fá góða leiðsögn og tækifæri til að undirbúa sig. Fræðslumyndband um vandaðan upplestur Dagur íslenskrar tungu markar upphaf þriggja mánaða tímabils þar sem gert er ráð fyrir að kenn- arar leggi meiri rækt en endranær við undirbúinn upplestur í skóla- stofunni. Aðstandendur vonast til að keppnin verði kærkomið tilefni til að koma saman og njóta þess að hlýða á vandaðan flutning góðra bókmennta. Undirbúningsnefndin hefur látið gera fræðslumyndband um vandaðan upplestur með stuðningi Lýðveldissjóðs, Málræktarsjóðs og Mjólkursamsölunnar. Námsgagna- stofnun sér um dreifingu. Afmælisfundur AL-ANON OPINN afmælis- og kynningarfundur AL-ANON samtakanna verður hald- inn þriðjudaginn 18. nóvember. Fundurinn verður í Bústaðakirkju og hefst kl. 20. Á fundinum munu koma fram og segja sögu sína fjórir félag- ar í AL-ANON samtökunum og einn félagi í AA-samtökunum. AL-ANON samtökin voru stofnuð á íslandi hinn 18. nóvember 1972 og verða því 25 ára 18. nóvember nk. AL-ANON er félagsskapur ætt- ingja og vina alkóhólista. AL-ANON samtökin hafa aðeins einn tilgang, að hjálpa aðstandendum alkóhólista. Kaffiveitingar verða að fundi lokn- um. Allir eru velkomnir. Námskeið í hitamælingum I KJÖLFAR mjög vaxandi mikilvæg- is hitamælinga í innra eftirliti fyrir- tækja í framleiðslu, sölu og dreifingu matvæla hefur FTC Framleiðslu- tækni ákveðið að efna til námskeiða í hitamælingum. Námskeiðið er ætlað aðilum í öllum greinum og á öllum stigum matvæla- iðnaðar; kjöt-, fisk- og drykkjarvöru- framleiðendum, aðilum í veitinga- rekstri, sölu- og dreifíngu matvæla, eftirlitsaðilum og ráðgjöfum, leiðbein- endum og öðrum þeim sem koma að eða hafa afskipti af eftirliti með hita- stigi með beinum eða óbeinum hætti. Námskeiðið fer m.a. fram með verklegum æfingum þar sem þátttak- endum gefst kostur á að kynnast af eigin raun hvaða aðferðir henta í mis- munandi mælingar og hvar og hvern- ig mismunandi tækni nýtist best. Full- trúar frá Iðntæknistofrmn, Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur og Heilbrigðiseftir- liti Akureyrar munu lýsa með raun- hæfum dæmum hvemig hægt er að nýta nýjar aðferir til að ná sem best- um árangri af hitaeftirlitinu. Námskeiðin verða haldin á Grand Hótel Reykjavík fímmtudaginn 27. nóvember kl. 13-17 og á Hótel KEA, Akureyri, mánudaginn 1. desember kl. 13-17. Skráning fer fram hjá FTC Framleiðslutækni. Útivist kenn- ir rötun Jólamerki Thorvaldsens- félagsins JÓLAMERKI Thorvaldsensfélags- ins em komin út. Að þessu sinni prýðir þau myndin Fæðing eftir list- málarann Helga Þorgils Friðjóns- son. Allur ágóði af sölu merkjanna rennur til styrktar veikum bömum. Merkin em seld af félagskonum, auk þess sem þau fást á flestum pósthúsum landsins og hjá Thor- valdsensbasamum í Austurstræti 4. Þar fást jafnframt mörg af eldri merkjum félagsins. Bamauppeldissjóður Thorvald- sensfélagsins þakkar landsmönnum stuðninginn og óskar þeim gleði- legrar hátíðar. Blaða- og fréttaljósmynd- arar ræða málin UMRÆÐUFUNDUR um stöðu og starf blaða- og fréttaljósmyndara verður í Hjáleigunni, fundarsal á efstu hæð Alþýðuhússins við Hverf- isgötu, í kvöld og hefst kl. 20.30. Meðal gesta við pallborð verða þeir Bjarni Eiríksson, lögfræðingur og gamalreyndur ljósmyndari, Ein- ar Falur Ingólfsson, myndstjóri á Morgunblaðinu, Einar Ólason, lausamaður í ljósmyndun til margra ára, Guðbrandur Benediktsson, sagnfræðingur og Guðmundur Ing- ólfsson í ímynd. Umræðustjóri verð- ur Kjartan Þorbjörnsson (Golli) ný- kjörinn formaður Norræna blaða- Ijósmyndarasambandsins. Fjallað um elri til landgræðslu NÆSTSÍÐASTA fræðslukvöld skógræktarfélaganna og Búnaðarbankans á þessu ári verður haldið í Mörkinni 6 í sal Ferðafélagsins þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20.30. Þorsteinn Tómasson, for- stöðumaður Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins heldur erindi um elri til landgræðslu. Elri er samheiti tegunda innan elri-ættkvíslarinnar og eru nú nokkrar tegundir í prófun á íslandi. Fræi hefur verið safnað víða, einkum þó á Norðurlönd- um, Alaska, Magadan og Kamt- sjatka. Tegundirnar eru mjög mismunandi og eru sumar runnakenndar en aðrar eru vöxtuleg tré. Elritegundir eru víða frumbýlingar í rýru landi sem skýrist af því að þær lifa í nánu sambýli við geislasvepp, sem gerir þeim fært að vinna köfnunarefni úr loftinu. Fyrstu niðurstöður af prófun elris benda til þess að það geti orðið mikilvægt í uppgræðslu hér á landi. í fyrirlestrinum verður sagt í máli og myndum frá ræktun elris á íslandi og víðar og reifaðir þeir möguleik- ar sem virðast felast I notkun þessara tegunda í Iandgræðslu- starfinu hér á landi. Upphaf fræðslukvöldsins hefst á óvæntri gestakomu þar sem þjóðkunnur áhugamaður, sem vakið hefur athygli á land- græðslumálum, lætur gamminn geisa. Allt áhugafólk um upp- græðslu er boðið velkomið. FERÐAFÉLAGIÐ Útivist stendur fyrir námskeiði í rötun þriðjudags- kvöldið 18. nóvember og fimmtu- dagskvöldið 20. nóvember. Nám- skeiðið er ætlað ferðalöngum og tekur sérstaklega mið af þörfum þeirra. Farið verður í fræðilega þáttinn í notkun áttavita og korta- lestur á tveimur kvöldum. Sunnu- daginn 23. nóvember verður svo verkleg æfing þar sem þátttakend- ur reyna sig í rötun með kort og áttavita að vopni. Æfingin fer fram í nágrenni Reykjavíkur. Námskeið sem þetta er öllum ferðalöngum nauðsynlegt, segir í fréttatilkynningu því þrátt fyrir að fullkomin staðsetningar- tæki séu nú í eigu fjölmargra ferðamanna, þá er kortalestur og kunnátta í meðferð áttavita öllum ferðalöngum nauðsynleg undir- staða. í framhaldi af námskeiðinu mun Útivist einnig standa fyrir námskeiði í notkun gps-staðsetn- ingartækja og verður það auglýst síðar. Frekari upplýsingar og skráning þátttakenda er á skrifstofu Úti- vistar að Hallveigarstíg 1 í Reykja- vík. Fundur um einkavæðingu Pósts og síma HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna heldur opinn fund um einkavæðingu Pósts og síma þriðju- daginn 18. nóvember kl. 20.30 í Valhöll. Frummælendur verða Halldór Blöndal samgönguráðherra, Ögmund- ur Jónasson alþingismaður og Kjartan Magnússon varaborgarfulltrúi. LEIÐRÉTT Bók um Everest för Á sunnudag birtist kafli úr vænt- anlegri bók þremenninganna sem klifu Everest fjall á liðnu vori. Það láðist að geta þess að bókin, sem kemur út á fimmtudag, er gefin út af Máli og menningu. Hún er 172 blaðsíður í stóru broti, með 230 lit- myndum og leiðbeinandi útsöluverð er 4.900 krónur. Nafn söluaðila féll niður í frétt um jólakort Svalanna í blaðinu á laugardag féll niður nafn eins söluaðilans. Er það Lífstykkja- búðin Laugávegi 4, sem hefur verið einn stærsti seljandi kortanna und- anfarin ár. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Rangt nafn Undir minningargrein um Þórunni Ágústu Árnadóttur sem birtist sl. sunnudag misritaðist eitt undir- skriftarnafnanna. Rétt er undir- skriftin Arndís, Hafdís og Þorgerður. Blað allra landsmanna! -kjarni málsins! * ■H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.