Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Sameining’
sveitarfélaga
samþykkt í
Skagafirði
Urslit í kosningum um sameiningu
sveitarfélaga í Skagafirði
TILLA.GA um sameiningu ellefu
hreppa í Skagafirði í eitt sveitarfélag
var samþykkt í öilum hreppunum í
kosningum á laugardaginn var. í
flestum hreppunum var sameiningin
samþykkt með miklum meirihluta.
Sameiningin var hins vegar naum-
lega samþykkt í Lýtingsstaðahreppi
með 50,6% atkvæða. í sveitarstjórn-
arkosningunum í vor verður því kjör-
in sameiginleg sveitarstjórn fyrir
Skagafjörð sem verður eitt sameinað
sveitarfélag ef undan er skilinn
Akrahreppur, en atkvæðagreiðsla
um sameiningu fór ekki fram í því
sveitarfélagi.
Bjarni Egilsson, oddviti Skefil-
staðahrepps og formaður sameining-
arnefndar, sagðist vera mjög ánægð-
ur með niðurstöðu atkvæðagreiðsl-
unnar, sem hefði verið afgerandi
nema í einum hrepp. „Þetta er sterk-
ur grunnur að byggja á,“ sagði
Bjarni.
Hann sagðist ekki hafa átt von á
svona afgerandi úrslitum, þótt hann
hefði átt von á að niðurstaðan yrði
með þessum hætti í megindráttum.
Mikið starf væri framundan varð-
SAMÞYKKT var með meirihluta
greiddra atkvæða að sameina sveit-
arfélögin þijú, Eskifjörð, Neskaup-
stað og Reyðaríjörð, í kosningu
sem fram fór sl. laugardag. Verða
þau sameinuð við næstu sveitar-
stjórnarkosningar. íbúar verða alls
tæplega 3.400 í stærsta sveitarfé-
lagi Austurlands.
í Neskaupstað var sameiningin
samþykkt með mestum meirihiuta
eða 82% á móti 16,1%. Þar greiddu
788 manns atkvæði sem eru 69%
þeirra sem á kjörskrá voru. Já
sögðu 646, 127 sögðu nei og auðir
og ógildir seðlar voru 14.
Á Reyðarfirði voru 470 á kjör-
skrá og kusu 389 eða 82,8%. Já
sögðu 276 eða 70,1%, nei 108 eða
andi undirbúning sameiningarinnar,
bæði hvað snerti að ljúka þeim mál-
um sem sneru að einstökum sveitar-
félögum áður en sameiningin tæki
gildi og búa þau í hendur á nýrri
sameiginlegri sveitarstjórn og eins
færu menn nú að huga að framboð-
um til nýrrar sveitarstjórnar.
Aðspurður hvort það breytti ein-
hveiju að Akrahreppur hefði ekki
tekið þátt í atkvæðagreiðslunni sagði
Bjarni svo ekki vera. Sveitarfélög í
Skagafírði hefðu leyst mjög mörg
mál sameiginlega. Farið yrði yfir þá
málaflokka og væntanlega gerðir
tvíhliða samningar við Akrahrepp
um þá málaflokka sem menn teldu
að þyrftu að vera sameiginlegir
áfram.
4.400 íbúar
Með sameiningunni verður til
sveitarfélag með rúmlega 4.400
íbúa, sem er ein landfræðileg heild.
Bjarni sagðist ekki eiga von á öðru
en sameiningin ætti eftir að ganga
vel fyrir sig. Niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar væri gott vegarnesti
og eitt sameiginleg sveitarfélag væri
27,8% og auðir og ógildir seðlar
voru 5.
Á Eskifirði voru 675 á kjörskrá
og kaus þar 561 eða 83,1% og var
þar mest kjörsókn. Þar voru 340
fylgjandi sameiningu eða 60,6%,
nei sögðu 216 eða 38,5% og var
því minnstur munur þar í sveitarfé-
lögunum þremur. Auðir og ógildir
seðlar á Eskifirði voru fimm.
Heppilegt vegna
framhaldsins
„Mér finnst sérstaklega
ánægjulegt að úrslitin skyldu vera
svona afdráttarlaus, ekki síst hér
á Eskifirði," sagði Sigurður Freys-
son, einn þriggja fulltrúa í sam-
starfsnefnd sveitarfélaganna um
miklu betur í stakk búið til þess að
leysa þau verkefni sem framundan
væru.
Aðspurður hvort nafn á nýja sveit-
arfélaginu vefðist fyrir mönnum eins
og hefur verið raunin í sumum tilvik-
um þegar sveitarfélög hafa samein-
sameiningu en aðrir í nefndinni
voru Smári Geirsson á Neskaup-
stað og Þorvaldur Aðalsteinsson á
Reyðarfirði. „Það er líka heppilegt
vegna framhaldsvinnunnar að nið-
urstaðan er svo skýr, málið hefði
allt verið erfiðara í framkvæmd
ef munurinn hefði aðeins verið fá
atkvæði. Þetta sýnir bara að fólk
trúir því að þetta sé framtíðin,"
segir Sigurður einnig.
Næstu skref segir hann verða
að stjórnmálaöflin á hverjum stað
hugi að framboðsmálum og
sveitarstjórnarmenn að fjárhagsá-
ætlunum næsta árs. „Ég geri ráð
fyrir að fjárhagsáætlanir verði
unnar í meiri nálægð en verið hef-
ur þótt engar ákvarðanir hafi ver-
ast, sagði Bjarni svo ekki vera.
„Þetta sveitarfélag umlykur Skaga-
fjörð á alla vegu, þennan fjörð okkar
sem við erum stoltir af, og það er
alveg einboðið að við hann verður
sveitarfélagið kennt,“ sagði Bjarni
að lokum.
ið teknar um það.“ Ný sveitar-
stjórn sameinaðs byggðarlags
verður skipuð 11 fulltrúum á
fyrsta kjörtímabilinu en fækkað í
9 á því næsta. Ákvörðun hefur
einnig verið tekin um það að á
hveijum stað fyrir sig verði rekin
skrifstofa nýs sveitarfélags þótt
aðalskrifstofa þess verði aðeins á
einum stað. Segir Sigurður óráðið
hvar það verður.
„Síðan er fyrirhuguð algjör upp-
stokkun í stjórnkerfinu og aðeins
verði skipaðar fimm aðalnefndir.
Þetta þýðir að ekki verða nema um
40 manns í bæjarstjórn og nefndum
í stað hátt í 200 eins og er í sveitar-
félögunum í dag en nokkrir eru að
vísu í fleiri en einni nefnd.“
Starfsfólk í heilbrigð-
isþjónustu á Húsavík
Öryggi
íbúa stefnt
í hættu
AÐALFUNDUR Deildar starsfólks
í heilbrigðisþjónustu innan Verka-
lýðsfélags Húsavíkur sem haldinn
var 14. nóvember átelur harðlega
stefnuleysi stjórnvalda í málefnum
héraðssjúkrahúsa á landsbyggðinni.
í ályktuninni segir: „Á síðustu
árum hefur mjög fast verið sótt að
tilverurétti þessara stofnana með
endalausum skerðingum á fjárfram-
lögum til þeirra, þrátt fyrir að
stjórnendur hafi sýnt aðhald í rekstri
og starfsmenn hafi mátt þola veru-
legar kjaraskerðingar og aukið
vinnuálag vegna sparnaðaraðgerða
sem ekki er séð fyrir endann á.
Fundurinn hafnar öllum hug-
myndum sem miða að því að draga
enn frekar úr starfsemi Sjúkrahúss
Þingeyinga en orðið er. Með því að
draga úr umsvifum Sjúkrahússins á
Húsavík er verið að stefna öryggi
íbúa á svæðinu í hættu.
Sé það hins vegar stefna stjórn-
valda að færa alla þjónustu, þar
með talda heilbrigðisþjónustu, til
höfuðborgarsvæðisins, eiga menn
að tala hreint út í stað þess að tala
um við hátíðleg tækifæri og fyrir
kosningar að nauðsynlegt sé að efla
byggð í landinu. Eigi byggð að hald-
ast á landsbyggðinni verður fólk að
hafa aðgang að öflugri og öruggri
heilbrigðisþjónustu.
Þá auglýsir fundurinn eftir af-
stöðu þingmanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra á stöðu og framtíð
Sjúkrahússins á Húsavik. Áður
hafði Verkalýðsfélag Húsavíkur
sent þingmönnum kjördæmisins
bréf og óskað eftir afstöðu þeirra í
málinu. Því miður hefur svörunin
verið léleg sem hlýtur að benda til
þess að þeir hafí ekki skoðun á stöðu
og framtíð Sjúkrahússins á Húsavík
og verður það að teljast mjög alvar-
legt fyrir íbúa Þingeyjarsýslna."
------------» ♦ ♦-----
Sjálfstæðis-
konur funda
á Hellu
Hveragerði - Sjálfstæðiskonur í
Suðurlandskjördæmi héldu fund á
Hellu fyrir skömmu þar sem rætt
var vítt og breitt um stjórnmálaþátt-
töku kvenna. Hvemig hægt er að
hvetja konur til þátttöku í stjómmál-
um og stuðla þannig að auknum
hlut kvenna við komandi sveitar-
stjómarkosningar. Framsögumenn á
fundinum voru Ingunn Guðmunds-
dóttir, Selfossi, Drífa Hjartardóttir,
Keldum, Aldís Hafsteinsdóttir,
Hveragerði, og Helga Þorbergsdótt-
ir, Vík. Til stóð að Ásdís Halla Braga-
dóttir, formaður SUS, kæmi á fund-
inn en hún forfallaðist á síðustu
stundu. Á fundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt samhljóða.
„Helmingur þjóðarinnar er konur því
hljóta viðhorf þeirra til samfélagsins
að skipta máli. Sveitarfélögin eru
mikilvægar grunneiningar í stjóm-
sýslunni, því er nauðsynlegt að sem
flest sjónarmið komist að við stjórn-
un þeirra. Við síðustu sveitarstjóm-
arkosningar komst hlutfall kjörinna
kvenna upp í 25% á landsvísu og
28% í Suðurlandskjördæmi. í ein-
stökum sveitarstjómum kjördæmis-
ins varð hlutfallið allt að 44%, en í
tveimur þeirra eru engar konur,
Grímsneshreppi og Olfushreppi-
Fundurinn hvetur konur til að gefa
kost á sér við sveitarstjómarkosning-
amar 1998 og kjósendur til að hvetja
þær og styðja til þátttöku.“
Mikil og góð stemning var á fund-
inum og fundarkonur ákveðnar í því
að láta ekki sitt eftir liggja til að
hlutur sjálfstæðiskvenna við kom-
andi sveitarstjómarkosningar verði
sem mestur.
Dvalarheimilið Lundur, Hellu
Fékk þrjár
milljónir að gjöf
Hellu - Á stjórnarfundi Dvalarheimilisins
Lundar á Hellu, sem nýverið var haldinn, var
tilkynnt að heimilinu hefði borist vegleg pen-
ingagjöf frá fyrrum vistmanni heimilisins.
Um er að ræða fjárhæð að upphæð
3.000.000 kr. sem Oddur Árnason frá Hrólfs-
staðahelli í Holta- og Landsveit arfleiddi heim-
ilið að. Oddur, sem lést i apríl sl., 84 ára að
aidri, hafði verið vistmaður á Lundi í tæp tvö
ár þar áður.
Að sögn hjúkrunarforstjóra, Jóhönnu Frið-
riksdóttur, er hlýhugur sem þessi og allar
góðar gjafír sem heimilinu hafa borist þakk-
aðar af alhug þeirra sem að heimilinu standa.
Dvalarheimilið Lundur er í eigu fjögurra
sveitarfélaga í utanverðri Rangárvallasýslu,
Rangárvallahrepps, Djúpárhrepps, Ásahrepps
og Holta- og Landsveitar.
DVALARHEIMILIÐ Lundur á Hellu.
Afdráttarlaus úrslit sameiningarkosningar á Austfjörðum
Minnstur munur á Eskifirði
en mestur í Neskaupstað