Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 65
MYNPBÖND
Hjálp,
hjálp!
Anaconda
(Anaconda)
Hryllingsmynd
★★★
Framleiðandi: CL Cinema.
Leikstjóri: Luis Llosa. Handritshöf-
undar: Hans Bauer og Jim Cash.
Kvikmyndataka: Bill Butler. Tónlist:
Randy Edelman. Aðalhlutverk: Jenn-
ifer Lopez, Ice Cube, Jon Voight og
Eric Stoltz. 90 mín. Bandaríkin. Col-
umbia Pictures/Skífan. Útgáfud.: 4.
nóv. Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
KVIKMYNDATÖKULIÐ tekur
sér ferð á hendur niður fljót í leit að
indíánabálki. Á leiðinni hitta þau fyr-
ir undarlegan
einfara sem
þekkir svæðið
vel og býður
fram leiðsögn
sína, en það
reynist ekki af
góðmennskunni
einni gert.
Þetta er bara
voðalega
skemmtileg
niynd, ef maður ætlar sér ekki að
ieysa lifsgátuna strax. Persónusköp-
unin er skemmtilega klisjukennd, og
má þar nefna fáránlegan snobbhana
sem er með í leiðangrinum án þess
að þjóna nokkrum tilgangi. Hann
bara passar inn í. Skemmtilegasta
persónan er einfarinn Paul Sarone
sem leikinn er af Jon Voight með
frábærum svipbrigðum sem bæði
vekja óhug og kitla hláturtaugarnar.
Eric greyið Stoltz fær frekar aumt
hlutverk, en svona getur þetta nú
verið óréttlátt fyrir blessaða leikar-
ana. Jennifer Lopez er algjör gella
og svona langar mig að verða þegar
ég er orðin stór; töff og gáfuð með
spænskan framburð. (Hún kannski
nieð aðeins minni rass en ég en það
munar ekki miklu.) Ice Cube er ekk-
ert betri leikari en hann var í sein-
ustu mynd, en hér er hann vinalegur
náungi, sem hægt er að reiða sig á
°g hækkar hann þar með í áliti. (Nei,
nei, það er ekki satt að hlutverk leik-
nra geti mótað smekk okkar á þeim.)
Hér gilda lög spennu og hryllings
°g Anaconda fær viðkvæmar
stúlkukindur eins og mig til að garga
upp yfir sig þónokkrum sinnum, og
föðurlegt augnaráð fæst frá næsta
karlkyns meðáhorfanda sem lætur
ekki á neinu bera.
Tæknibrellurnar eru ekkert
meistai-averk, en öll vitum við hvort
eð er að þetta er bara bíó, og ættum
því ekki að vera að naggast út í smá-
atriði heldur leyfa huganum að
streyma niður suður-amerískt fljót
°g fá útrás fyrir öskur og önnur
sjálfráð viðbrögð sem við byrgjum
inni í okkur dagsdaglega á lífsleið-
inni í þessum siðmenntaða heimi.
Hildur Loftsdóttir
TILBOÐ
Nýja myndastofan
Laugavegi 18,
sími 551 5125
FÓLK í FRÉTTUM
KELLY McGillis leikur
gleðikonu í villta vestrinu í
nýjustu mynd sinni „Painted
Angels“.
Hvað varð um Kelly
►KELLY McGillis skaut upp
á sljörnuhimininn þegar
hún lék á móti Harrison
Ford í „Witness" árið 1985.
Ári síðar lék hún með Tom
Cruise í „Top Gun“ en
síðasta stórmynd hennar
var „The Accused" með
Jodie Foster árið 1988.
Undanfarinn áratug hefur
McGillis verið lítt áberandi þó
hún hafi leikið í sjö
kvikmyndum og þremur
sjónvarpsmyndum á þessu tímabili.
Nú er væntanleg á markaðinn
nýjasta kvikmynd hennar „Painted
Angels".
McGillis lærði við Juilliard og
hafði í sig og á með því að vinna á
veitingastöðum á meðan hún beið
eftir stóra tækifærinu. Hún var 25
ára þegar henni bauðst hlutverkið
í „Reuben, Reuben“ árið 1982 en
varð næstum að hafna því þar sem
hún var að leika á sviði á sama
tíma. McGilIis fékk það í gegn að
hennar atriði voru tekin upp þegar
hún var í fríi í kringum
þakkargjörðarhátíð og jól, og var
þar með komin á blað sem
kvikmyndaleikkona.
Þegar hún lék í „The Accused"
gengu miklar kjaftasögur um það
að hún og Jodie Foster væru
lesbískar og sagt var að McGillis
ætti í ástarsambandi við Whitney
Houston. I viðtali við Movieline var
McGillis nýlega spurð um þessar
McGillis?
sögusagnir. „Ég er ekki Iesbísk þó
að ég eigi margar vinkonur og vini
sem eru lesbíur og hommar. Eg
hef aldrei hitt Whitney Houston.
Mér fannst í raun bara fyndið í
ljósi þessa sambandsleysis að ég
átti að vera ástkona hennar.“
McGillis býr í dag á Key West á
Flórída og rekur þar veitingastað
ásamt eiginmanni sínum, Fred
Tillman. Leikkonan stendur nú á
fertugu og segist vera sátt við líf
sitt. Auk þess að leika í einstaka
kvikmynd, og sinna rekstri Kelly’s
Carribbean Bar Grill & Brewery
eyðir hún töluverðum tfma í
eftirlætis iðju sína, sem er að gera
upp gömul húsgögn.
Askiög f«r
Ltðvé
Nýr geiskadiskur með iögum
Jóhanns 6. Jóhannssonar
í flutningi frábærra listamanna
Daníel Ágúst Haraldsson - Ellen Kristjánsdóttir
Emilíana Torrini - Jóhann G. Jóhannsson
KK - Selma Björnsdóttir - Stefán Hilmarsson
Jón Ólafsson sá um stjórn og útsetningar
JAPISS
Ketlavikun/erktakar sl
.Vin \\I)\rb\\Ki\\
M1K\ Á
Sérslakar þakkir fá: Julíus P. Guíjónsson ehf. - Rolf Johansen & Co
Hagver hf. - Nói Síríus hf. - Eldhaka hf.