Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GARÐAR H. SVA VARSSON + Garðar H. Svav- arsson kaup- maður fæddist í Reykjavík 29. júní 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 7. nóvember síðastliðinn. Hann var sonur Sigríðar Guðmundsdóttur, kaupkonu, f. 6. ^ Tfc desember 1913, og Svavars Hafstein Jóhannssonar, bók- ara, f. 21. júní 1914, d. 3. maí 1988. Garðar átti einn al- bróður, Hilmar H. Svavarsson, f. 4. mars 1940. Hálfsystkini hans samfeðra voru Freygerð- ur, Orn, Droplaug, Kristófer Ingfi, Ása Hlín og Svavar Hrafn. Hinn 24. maí 1958 kvæntist Garðar Huldu Guðrúnu Guð- jónsdóttur, f. 3. nóvember 1933. Foreldrar Huldu voru Guðjón Sveinbjörnsson, vélsljóri, f. 9. desember 1899, d. 18. mars 1980, og Oddný Guðmundsdótt- »-3*ir, húsmóðir, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980. Böm Garðars og Huldu eru: 1) Hauk- ur Geir Garðarsson, viðskipta- fræðingur og löggiltur fast- eignasali, f. 1. júní 1959, sam- býliskona Katrín Sæland Ein- arsdóttir leikskólakennari, f. 19. september 1963, og eiga þau þrjú börn. 2) Sigríður Huld Garðarsdóttir, sjúkraliði, f. 25. maí 1962, gift Karli Eggerts- syni, markaðsfulltrúa hjá VÍS, -jpj f. 12. júní 1960, og eiga þau þijú börn. 3) Heimir Garðarsson, prent- rekstrarfræðingur, f. 21. febrúar 1964, sambýliskona Katr- ín Karlsdóttir, kennari, f. 21. jan- úar 1966, og eru börn þeirra tvö. Áður átti Garðar soninn Skúla, sem er sjómaður, f. 19. febrúar 1955, kvæntur Sigþrúði G. Sigfúsdóttur húsmóður, f. 25. ágúst 1961 og eiga þau fjögur böm. Garðar stundaði ýmis versl- unarstörf á sínum yngri árum. Árið 1959 hefur hann störf sem kaupmaður og rekur ásamt eig- inkonu sinni þegar mest er fjór- ar verslanir, kjötvinnslu og heildsölu. Þekktust þeirra var efalaust Kjötverslun Tómasar Jónssonar sem þau hjónin ráku allt til ársins 1982 er þau seldu hana. Garðar var landsþekktur veiðimaður og þá sérstaklega stangaveiðimaður. Var hann einn af frumkvöðlum og stofn- endum Veiðiklúbbsins Strengs og Veiðiklúbbsins Þistla. Hin seinni ár starfaði Garðar við uppbyggingu á Listasafni Flug- leiða ásamt því að sinna áhuga- málum sínum í Vopnafirði þar sem þau hjón bjuggu stóran hluta úr ári. Útför Garðars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku tengdapabbi. Ég kveð þig með söknuði, elsku vinur minn. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að kynnast þér og njóta elsku þinnar og vináttu. Það var blanda tilhlökkunar og kvíða þegar Sirrý ákvað að kynna mig fyrir þér og Huldu. Við Sirrý höfðum kynnst nokkru áður og vor- um þegar orðin mjög ástfangin. Frá fyrstu stundu sýndir þú mér bæði hlýhug og vináttu en ég skynjaði fljótt hversu mikilvægt það var fyr- ir þig að einkadóttir þín yrði ham- ingjusöm. Þú varst eins og allir sannir feður eiga að vera, á varð- 'ibergi gagnvart tilvonandi tengda- Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík • Sími 553 1099 Erfidrykkjur Sími 562 0200 IIIIIIIII H H H H H H H H H H syni. Sem betur fer tókst mér að vinna traust þitt og þar með eignað- ist ég vin sem á engan sinn líka. Alltaf varstu tilbúinn að gefa góð ráð og rétta hjálparhönd þegar mest lá við. Allt sem þú gerðir, gerðir þú af heilum hug og af ein- lægni, þú varst vinur í raun. Væntanlega verður þín minnst af samferðamönnum sem eins af helstu kjötkaupmönnum landsins á sínum tíma svo og fyrir frábæra hæfileika sem laxveiðimaður. Ég tek ofan fyrir þér fyrir þá hæfi- leika. Ég veit að aðrir þekkja þá sögu betur en ég, en ég man vel eftir hversu gott var að koma í verslunina þína á Laugavegi 2, Kjötbúð Tómasar. Öll framsetning á matvælum og útstilling var það listilega unnin að búðin virkaði eins og segull á mann. Gæði og góð þjónusta var aðalsmerki í þínum rekstri. Nýjungar eins og að bjóða heitan mat í hádeginu og sjá um matarsendingar til útlanda slógu í gegn í verslun þinni. Ég veit hversu mikil vinna þetta hefur verið, bæði fyrir þig og Huldu tengdamömmu sem hefur verið þín stoð og stytta í gegnum lífið. Oft var unnið langt fram á kvöld, sérstaklega á álags- tímum eins og þegar þurfti að útbúa matarsendingar til útlanda fyrir jól. Þegar mest var varst þú með fjórar matvöruverslanir auk kjöt- vinnslu og heildsölu. Þetta hefur að sjálfsögðu komið niður á fjöl- LEGSTEINAR Qraníf HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 skyldulífínu og þá ekki síst börnun- um sem þurftu að vera ein heima á meðan pabbi og mamma voru að vinna fram á kvöld. Pjarveruna hefur þú bætt upp með því að gefa barnabörnunum miklu meira af tíma þínum. Hulda Guðrún dóttir okkar naut þess að vera fyrsta barnabarnið og oft hefur hún dvalið langdvölum hjá afa og ömmu í sveitinni á Vakursstöðum. Nú eru barnabömin orðin fjölmörg og því minni tími fyrir hvert og eitt. Egg- ert Kári og Kristófer ísak synir okkar Sirrýjar undu sér vel í sveit- inni hjá afa og ömmu og biðu spenntir eftir að fá að byija að veiða með þér. Elsku Garðar minn, ég mun minnast þín fyrst og fremst sem góðs vinar og tengdaföður. Þú vild- ir láta gott af þér leiða, þú varst vinur vina þinna og velgjörðarmað- ur margra sem áttu um sárt að binda. Umhyggja þín fyrir eftirlif- andi móður þinni, henni Distu, var aðdáunarverð og mikil er sorg hennar. Dista mín, enginn getur sett sig í þín spor og enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum þá reynslu að fylgja barni sínu til graf- ar. Þú átt samúð mína alla og ég bið Guð að gefa þér og einnig yngri syni þínum, Hilmari, styrk í sorg ykkar. Ég veit að Garðar naut Guðs blessunar og var frelsaður fyrir náð Jesú Krists. Elsku tengdamamma, enginn hefur staðið betur við bakið á eigin- manni sínum en þú. í gegnum súrt og sætt hefur þú ætíð verið trúföst og staðið með þínum manni. Þú hefur gert meira fyrir tengdaföður minn en nokkur maður getur trúað. í veikindunum hefur þú verið hjá honum og hjúkrað á hveijum degi frá morgni til kvölds. Þú hefur vak- að yfir honum allt til enda. Guð gefi þér styrk og varðveiti þig í sorg þinni. Eg bið góðan Guð sömu- leiðis að gefa þér, Haukur, og þér, Heimir, styrk í sorg ykkar vegna fráfalls föður ykkar. Elsku Sirrý mín, ég bið algóðan Guð að styrkja þig, varðveita og vernda í þinni miklu sorg. Hann sýndi þér á dánarbeðinum hversu mikla ást hann bar til þín og hversu gott honum fannst að hafa þig hjá sér síðustu vikurnar. Það var Guðs vilji að þið ættuð þennan tíma sam- an svo að þú gætir hjúkrað honum, veitt honum alla þína ást og kær- leika og gætir fylgt honum síðasta spölinn, alla leið í ljósið. Ég krýp við fótskör frelsarans, í fátækt minni og trú. Ég sé hann binda blómakrans, þann blómakrans átt þú. Guð elskar öll þau bömin sín sem birtu tendra á jörð, hann leitar einnig inn til þín í fylgd með engla hjörð. Vertu sæll, ég sakna þín, svíf um sólskins höf. Á himinhvolfi sólin skín skært yfir þinni gröf. Guð blessi sálu þína, Garðar, vertu sæll, vinur minn. Þinn einlægur, Karl Eggertsson. Elsku afi minn. I sumar var ég hjá þér og ömmu í sveitinni á Vakursstöðum eins og öll sumur þar á undan, sem ég man eftir. Þegar ég átti heima í Dan- mörku og pabbi og mamma buðu mér eitt sumar að velja á milli þess að fara með þeim til Flórída eða heim til íslands til ykkar í sveitina og annað sumar að fara til Ítalíu þá vildi ég í bæði skiptin fara til ykkar í sveitina, því að mér leið alltaf svo vel hjá ykkur. Við gerðum svo margt skemmti- legt saman í sveitinni. Eg man hvað ég var ánægð þegar þú leyfðir mér að keyra bílinn þinn og þegar þú fórst með mig að veiða og varst að kenna mér. Þá varð ég alltaf svo stolt þegar þú hrósaðir mér fyrir hvað ég var dugleg að veiða, því ég mat álit þitt svo mikils. Það var svo margt að gera í sveitinni en mér leið bara svo vel að vera með þér og ömmu hvort sem við fórum í bíltúr niður á Tanga að kaupa ís eða þegar við vorum saman að gróð- ursetja tré í hlíðinni. Þú varst svo mikið fyrir að gróðursetja tré og blóm og vildir hafa umhverfið fal- legt. Það var svo margt sem þú ætlaðir að gera í sveitinni, þú vildir rækta upp skóg og gera Vakurs- staði og Vesturárdalinn að sann- kölluðum sælureit. Elsku afi, þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Þakka þér líka fyrir allar minning- arnar um þig, þær eru mér nú svo dýrmætar. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og ég gat alltaf komið til þín, enda vorum við mikið saman. En núna er skritið að hugsa til þess að þú sért farinn og það hrygg- ir mig, því mér þykir svo vænt um þig. En þú fórst ekki langt. Vertu sæll, elsku afi minn. Þú gafst mér svo mikið og ég mun alltaf minnast þín. Takk fyrir allt. Nú ertu dáinn, elsku afi minn, ástúð þín ei gleymist nokkurt sinn. Það var svo ljúft að halla höfði á kinn og hjúfra sig í milda faðminn þinn. Við skulum vera ömmu ósköp góð, hún á svo bágt og er svo mild og hljóð, og góðvildin og gæskuhugur þinn, gleymist aldrei, hjartans afi minn. Góði Guð, viltu passa afa Garðar rosalega vel. Elsku afi, þú ert svo mjúkur og sætur. Þú ert svo duglegur að veiða. Mér finnst svo vænt um þig. Ég er alveg að verða 5 ára. Guð geymi þig að eilífu, afi minn. Faðir vor þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn tilkomi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himnum. Gef oss í dag vort daglegt brauð, fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum, vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu þvi að þitt er ríkið mátturinn og dýrðin að eilífu amen. Þinn, Kristófer Isak. Ég vildi svo mikið fá að hafa þig lengur hjá mér. Þú ætlaðir að kenna mér að veiða en gast það ekki af því að Guð vildi fá þig til sín svo fljótt. Ég vona að þér líði vel hjá öllum hinum englunum. Ég sakna þín, afi minn. Þinn, Eggert Kári. Nú er minn góði vinur, Garðar, látinn, langt um aldur fram. Við kynntumst haustið 1959 er bróðir minn heitinn fór að vinna hjá honum í Kjötverslun Tómasar á Laugavegi 2. Fáum árum síðar urðum við veiði- félagar og vinir. Samverustundirn- ar hafa orðið margar; við veiðiárn- ar, á ferðalögum, á heimilum okkar og í félagsmálum þar sem leiðir okkar lágu líka saman. Ótal minn- ingar sækja á hugann þegar litið er yfir þessi liðnu ár, nú þegar þessi góði drengur er genginn. Athafnamaðurinn Garðar er minnisstæður. Aðeins 24 ára gam- all hóf hann umfangsmikinn at- vinnurekstur er hann keypti Kjöt- verslun Tómasar að Laugavegi 2 í Reykjavík. Um tíma ráku þau hjón- in, Hulda og Garðar, fjórar verslan- ir í borginni og höfðu mikil umsvif á þeirra tíma mælikvarða. Þau lögðu hart að sér á þeim árum er þau ráku verslanirnar, voru sam- taka í því að leggja grunninn að velferð fjölskyldunnar og uppskáru eins og þau sáðu. Þau seldu rekstur- inn eftir liðlega tuttugu ára erilsöm störf og gátu leyft sér nokkuð ró- legra líf eftir það. En Garðar var ekki þeirrar gerðar að hann sæti með hendur í skauti að loknu þessu tímabili í lífinu. Listunnandinn Garðar gat nú fengið útrás fyrir sín áhugamál. Hann hafði einkar gott auga fyrir myndlist, keypti málverk ýmissa listmálara, eignaðist vináttu þeirra margra og naut samvista við þá og þeir við hann. Þeir urðu sérstakir vinir Garðar og Erró. Garðar átti mestan þátt, og að ég best veit frumkvæði að hinni stórkostlegu gjöf Errós til Reykjavíkurborgar, auðvitað fyrir utan Erró sjálfan. Þar komu að sönnu fleiri að máli og nefni ég þar til sögu Matthías Johannessen og svo þáverandi borgarstjóra, Davíð Oddsson forsætisráðherra. Þessir menn lögðu sig fram um að gjöf Errós yrði þegin með þeirri reisn sem hæfði. Óneitanlega er leitt til þess að vita að deilur skuli hafa orðið um framtíðarstað hins merka mál- verkasafns og þótti Garðari það miður. Hann gladdist þó yfir að nú sæi til lands þótt lausnin um framtíð- arstað safnsins væri önnur og metn- aðarminni en ætlað var í upphafí. Hin síðari árin hefur Garðar svo starfað við uppbyggingu Listasafns Flugleiða. Mér er vel kunnugt hvern metnað hann lagði í þetta starf sitt. Allt var það þó unnið á hæglátan hátt, svo sem hann vissi að hæfði manni sem ekki var sérstaklega menntaður á sviði Iistfræði. Hann hafði hins vegar þann fágaða smekk sem hæfði og átti trúnað forráða- manna félagsins. Þeir treystu hon- um því fyrir innkaupum og skrán- ingu safnsins. Sjálf áttu þau hjónin fallegt safn málverka sem prýtt hefur heimili þeirra. Veiðimaðurinn Garðar var sá sem ég kynntist best. Hann stundaði skotveiði en þar áttum við ekki samleið. Hann var einn af þekktustu lax- veiðimönnum landsins. Hann kast- aði flugu af hreinni list, vissi af langri reynslu og eðlisávísun hvar lax var að fá og hvaða flugu skyldi velja. Það var hrein unun að sjá hann veiða. Hann fékk lax til að taka þar sem aðrir höfðu orðið frá að hverfa. En hann vék líka úr stað fyrir veiðifélögum sem ekkert höfðu fengið og leiðbeindi þeim og miðl- aði af þekkingu sinni. Og fengi Garðar ekki lax var vísast engan lax að hafa á þeim stað. Hún átti því oft við vísan sem Steingrímur í Nesi kvað á bökkum Laxár í Þing. eitt sinn þegar ekkert fékkst: í þessum hyl er ei veiðivon, virðast laxar flýj’ann, fyrst hann Garðar Svavarsson setur ekki í’ann. Hann leiddi mig fyrstu sporin á bökkum laxánna og það sem ég kann lærði ég af honum. Minn fyrsta flugulax fékk ég með leið- sögn hans í Vaðstrengjum í Laxá í Leirársveit, líklega sumarið 1965. í fjölda ára veiddi Garðar í þeirri fögru á. Mér eru minnisstæðar margar ferðir okkar þangað, einkum í efri hluta árinnar, ofan Eyrarfoss. Eitt sinn veiddum við þar 20 laxa á einum degi á eina stöng og misstum annað eins, alla á flugu. Við skipt- umst á um stöngina, Garðar, Matthí- as Johannessen, Sverrir Hermanns- son og ég. Daginn eftir fórum við svo í Hrútafjarðará og áttum eftir- minnilega daga þar saman. í bókinni Vísur um vötn eftir Matthías Johannessen er þetta er- indi í fallegu ljóði um Laxá í Leirár- sveit: En Garðar minn Svavars-sonur hann setur í einn, og ég verð auðvitað að setja í annan og eiga mitt stolt undir því að setja svo aftur í annan og enn dreg ég físk á ný. En Garðar veiddi í fleiri ám en Laxá, mér er nær að halda að hann hafi einhvern tíma veitt í þeim flest- um. Mest hélt hann upp á Sandá í Þistilfirði. Á hveiju sumri í 34 ár veiddi hann þar. Stundum tvisvar á sumri. Þar naut ég samvista við hann síðustu 28 árin ásamt öðrum góðum félögum, þeim Viktori Aðal- steinssyni, Þorsteini É. Jónssyni og síðustu árin Lárusi Jónssyni og áður Haraldi V. Haraldssyni. Ferðirnar í Sandá öll þessi ár, oftast með fjölskyldum okkar félag-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.