Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
RÍKISKAUP hafa fyrir hönd Ríkis-
endurskoðunar efnt til forvals
vegna endurskoðunar á reiknings-
skilum Landsbanka íslands hf.,
Búnaðarbanka íslands hf. og Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins hf.
Endurskoðunarskrifstofur verða í
framhaldi af því valdar til þátttöku
í fyrirhuguðu útboði á þessu verk-
efni.
Um er að ræða þtjú sjálfstæð
og aðskilin endurskoðunarverkefni.
Hvert um sig verður væntanlega
til fimm ára og geta endurskoðun-
arfyrirtæki einungis vænst þess að
fá samning um eitt þessara verk-
efna. Sigurður Þórðarson ríkisend-
urskoðandi sagði við Morgunblaðið
að um leið og ríkisbönkunum yrði
breytt í hlutafélög, þá félli öll endur-
skoðun undir Ríkisendurskoðun.
Bjóða út endur-
skoðun ríkisbanka
„Það var tekin ákvörðun um að
bjóða þetta verkefni út,“ sagði
hann. „Þegar búið verður að meta
það hvetjir eru hæfir til þessa verk-
efnis þá þurfa fyrirtækin að keppa
í verði. Þetta er liður í breytingum
hjá okkur eftir úttekt bresku ríkis-
endurskoðunarinnar. Við munum
halda áfram á þessari braut með
önnur verkefni, enda er það í sam-
ræmi við þann vilja að bjóða út
verkefni á vegum ríkisins og EES-
samninginn."
HÁDEGISVERÐAR
FUNDUR
Fimmtudaginn 20. nóvember 1997,
kl. 12:00 í Skála, Hótel Sögu.
Subcontracting and
Procurement for International
construction Projects
SKANSKA’s Experience
Ræðumaður: Stig Eriksson
Stig Eriksson er verkfræðingur og deildarstjóri
virkjana- og jarðgangnagerðar hjá verktaka-
fyrirtækinu SKANSKA í Svíþjóð.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Fundargjald kr. 2000.- (hádegisverður innifalinn).
Fundurinn er öllum opinn en vinsamlegast tilkynnið þáttöku fyrirfram
í síma 520 1230.
Á vit nýrra tíma
á fjármálamarkaði!
Fimmtudaginn 20. nóvember 1997, boöar Félag viöskiptafræöinga
og hagfræöinga tii morgunveröarfundar frá kl. 8:00-9:30 aö Hótel
Sögu, Sunnusal 1. hæð (áður Átthagasalur).
| Framsögumenn á fundinum verða:
I Bjarni Ármannsson, framkvæmdastjóri
Fjárfestingarbanka atvinnuiífsins.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarsjóös atvinnulífsins.
Þeir munu m.a. fjalla um eftirfarandi atriöi:
• Hver eru hlutverk Fjárfestingarbanka atvinnulífsins
og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins?
• Hvernig ætla þessi fyrirtæki að ná fram
markmiðum sínum?
• Hvaða áhrif hefur það á fjármálamarkaðinn í heild?
• Hver er framtíð banka og sparisjóða á íslandi.
• Þróun fjármálamarkaðarins á næstu árum.
Opinn fundur - gestir velkomnir.
FELAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Fundurinn hefst kl. 8:oo, stendur til kl. 9:30 og er öllum opinn.
Páll Kr. Pálsson
Aðeins þau fyrirtæki verða talin
hæf sem að mati Ríkisendurskoðun-
ar hafa faglegt, fjárhagslegt og
tæknilegt bolmagn til að vinna
verkið. Þátttakendur þurfa t.d.
minnst að hafa þrjá löggilta endur-
skoðendur starfandi og nægjanlega
fjölda starfsmanna til að sinna end-
urskoðun af þessari stæðargráðu.
Sigurður sagði að sum fyrirtæki
í eigu ríkisins væru endurskoðuð
hjá Ríkisendurskoðun t.d. Póstur
og sími. Sett hefði verið stofn sér-
stök deild í þessu skyni innan Ríkis-
endurskoðunar, þar sem sömu fag-
legu kröfur væru gerðar og hjá al-
mennum endurskoðunarfyrirtækj-
um. Stofnunin nyti einnig aðkeyptr-
ar þjónustu löggiltra endurskoð-
enda í nokkuð ríkum mæli.
Sömu endurskoðendur hjá
ríkisbönkunum um árabil
Bæði Landsbankinn og Búnaðar-
bankinn hafa haft sömu endurskoð-
endur um langt árabil. Tryggvi
Jónsson, endurskoðandi hjá KPMG
Endurskoðun hf., hefur um langt
árabil annast endurskoðun hjá Bún-
aðarbankanum. Árni Tómasson,
endurskoðandi hjá Löggiltum end-
urskoðendum hf., hefur hins vegar
annast endurskoðun hjá Lands-
bankanum undanfarin ár.
J. Hinriksson og Iðnþróunarsjóður
Hluthafasamningur
hjá Poly-Ice Mexico
NYLEGA tók Iðnþróunarsjóður
þátt í hlutafjáraukningu í Poly-Ice
Mexico S.A. de C.V. og á nú 25%
hlutfjár í félaginu. Hefur verið gerð-
ur sérstakur hluthafasamningur
milli Iðnþróunarsjóðs og J. Hinriks-
sonar ehf. þar að lútandi, að því
er segir í frétt.
J. Hinriksson ehf. stofnaði þetta
fyrirtæki í Mexíkó árið 1996. Fyr-
irtækið hefur fjárfest í húsnæði og
tækjabúnaði í Mazatlán á vest-
urströnd Mexíkó. Það framleiðir og
selur toghlera og skyldar vörur fyr-
ir rækju- og bolfiskveiðar í Mexíkó
og hófst starfsemin síðla árs 1996.
J. Hinriksson hefur í tugi ára selt
framleiðslu sína á erlendum mörk-
uðum, m.a. til Suður- og Norður-
Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjá-
lands. Tilgangurinn með stofnun
fyrirtækisins í Mexíkó var m.a. sá
að bæta samkeppnisstöðuna á þess-
um mörkuðum.
í aðalstjórn Poly-Ice Mexico voru
kjörnir ívar Trausti Jósafatsson,
formaður, Atli Már Jósafatsson og
Þorvarður Alfonsson. í varastjórn
eiga sæti Birgir Þór Jósafatsson og
dr. Ingvar Emilsson, sem lengi hef-
ur unnið að og stjórnað hafrann-
sóknum í Mexíkó.
Sproti selur áfengis-
verksmiðju sína
ÁFENGISVERKSMIÐJA Sprota
hf. í Borgarnesi, sem framleitt hef-
ur Icy-vodka undanfarin ár, hefur
verið auglýst til sölu. Verksmiðjan
er í rekstri og í sölulýsingu kemur
fram að leiðbeiningar um fram-
leiðslu, hráefni og leyfí fyrir tiltekin
vörumerki geti fylgt verksmiðjunni.
Henni fylgir samstæða til áfeng-
isframleiðslu, áfyllingarvélar, færi-
bönd, sjálfvirk tappavél, sérstök
samstæða fyrir smáflöskufram-
leiðslu og fleira. Þá er hún sögð
geta nýst til framleiðslu á ýmiss
konar drykkjarvörum.
með Gerhard Schröder
Þýsk - íslenska verslunarráðið og viðskiptaskrifstofa
Utanríkisráðuneytisins bjóða til hádegisverðarfundar með
Gerhard Schröder, forsætisráðherra Neðra Saxlands og
líklegasta kanslaraefni jafnaðarmanna (SPD) í þingkosningunum
í september 1998. Samkvæmt skoðanakönnunum er hann með
vinsælustu stjórnmálamönnum Þýskalands um þessar mundir.
Á fiindinum heldur Schröder erindi um stöðu og þróun
efnahagsmála og ræðir stjórnmálaástandið í Þýskalandi.
FUNDURINN VERÐUR í VÍKINGASAL HÓTELS LOFTLEIÐA,
FÖSTUDAGINN 21. NÓV. KL.11.30 -13.15.
Fundarstjóri Gerliard Schrödcr er lögfræðingur að mennt.
Páll Kr. Pálsson
formaður Þýsk - íslenska verslunarráðsins
Verð með hádegisverði 1.900 kr.
Skráning fer fram hjá okkur
ÞÝSK-ÍSLENSKA
VERSLUNARRÁÐIÐ
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7
103 Reykjavík
Sími: 588 6666
Fax: 568 6564
Netfang: kristin@chamber.is
Hann sat á Sambandsþinginu í Bonn frá
1980 -1986. Hann hefurverið í flokksstjóm
jafnaðarmanna frá 1986 og frá sama tíma
setið á þingi Neðra - Saxlands. Schröder
varð forsætisráðherra Neðra - Saxlands |
: 1990. í síðasta mánuði tók hann við forsæti |
efri deildar þýska sambandsþingsins en þar |
sitja allir forsætisráðherrar ;
sambandslandanna 16. |
Utanríkisráðuneytið
VIÐSKIPTASKRIFSTOFA
Ráðinn til
Fjárfesting-
arbankans
•ERLENDUR Magnússon hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri fyr-
irtækjasviðs Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins
(FBA). Með ráðn-
ingu Erlendar er
framkvæmdaráð
bankans nú full-
skipað, en í því
sitja auk Erlend-
ar, Bjarni Ár-
mannsson, for-
stjóri, Svanbjörn
Thoroddsen, framkvæmdastjóri við-
skiptastofu, og Tómas Kristjánsson,
framkvæmdastjóri skulda- og
áhættustýringar.
Erlendur Magnússon er fæddur í
Reykjavík 1956. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1977, BA prófi í alþjóða-
samskiptum með áherslu á stjórn-
málafræði frá Hamline University,
St. Paul, Minnesota 1982, og MSc
prófi í alþjóðasamskiptum með
áherslu á hagfræði frá London
School of Economics 1983.
Erlendur var framkvæmdastjóri
AFS á íslandi 1978-80, starfaði hjá
Eimskip 1983-88, þar af þrjú ár sem
markaðsstjóri Norður-Atlantshafs-
flutninga félagsins. Frá byijun árs
1989 hefur Erlendur starfað við
fjármálaviðskipti í London. Fyrst
hjá Scandinavian Bank (1989-90)
en síðan 1991 hjá Nomura Bank
International. Síðustu árin hefur
Erlendur annast viðskiptatengsl
Nomura Bank við Norðurlönd og
Eystrasaltsríkin.
Eiginkona Erlendar er Carla
Magnusson. Þau eiga tvö börn.
„Spennandi banki“
Erlendur sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa ákveðið að
breyta til vegna þess að hér væri
um mjög áhugavert tækifæri að
ræða. „Það er verið að stofna mjög
spennandi banka og ég held að hann
geti gert hluti _sem ekki hafa verið
gerðir áður á íslandi. Ég hef búið
erlendis síðastliðin 17 ár með
tveggja ára hléi, en var ekki að leita
sérstaklega eftir því að flytja til
íslands. Það var fyrst og fremst
starfið sem varð þess valdandi að
ég ákvað að slá til.“
♦ ♦ ♦
Fyrstu nám-
stefnurBerk-
eleyháskóla á
íslandi
FYRSTU námstefnur í samstarfi
Stjórnunarfélags íslands og Berk-
eley háskóla í Kaliforníu verða
haldnar í Reykjavík dagana 24. til
28. nóvember n.k. Samstarfið miðar
að því að leggja íslenskum yfir-
stjórnendum og millistjórnendum til
fræðsiu um nýjungar á sviði stjórn-
unar- og markaðsmála. Að þessu
sinni eru boðnar fjórar sjálfstæðar
námstefnur í Reykjavík. Sérhver
þátttakandi fær viðurkenningar-
skjal frá U.C. Berkeley.
Fyrsta námstefnan 24. nóvember
fjallar um raunhæfar leiðir til mark-
aðssetningar á Netinu. Fyrirtæki í
Kaliforníu hafa verið fljót að tileinka
sér nýjungar á þessu sviði. Nám-
stefnan 25. nóvember fjallar um
leiðir alþjóðlegrar markaðsnálgunar
til að ná árangri á heimamarkaði
eða í útflutningi.
Þriðja námstefnan 26. nóvember
fjallar um ákvarðanir um verðstefnu
og leiðir til að gera þær að stjórn-
tæki í fyrirtækinu, sem sjaldnast
er raunin. Síðasta námstefnan 27.
nóvember fjallar um nýjar leiðir í
sölustjórnun. Námstefnumar eru
haldnar á Hótel Loftleiðum.