Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Framhaldsskóli Vestfjarða Bannað að sofa í tímum Lífeyrisþegar í LSR eiga kost á að velja sér viðmiðun Lífeyrir tekur mið af meðaltalslaunum LIÐLEGA 1.000 lífeyrisþegar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins hafa valið að láta lifeyrisgreiðslur sínar taka mið af meðalbreytingum á föstum launum opinberra starfs- manna fremur en launum eftir- manns í starfi. Hluti af þessum hóp velur þetta vegna þess að breyting- ar hafa verið gerðar á þvi starfi sem sjóðfélaginn gegndi og því er eng- inn eftirmaður til að miða sig við. í tengslum við breytingar á lög- um um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins var gerð sú breyting að líf- eyrisþegum var boðið upp á að velja um hvort þeir vildu miða lífeyrinn sinn við laun eftirmanns í starfi eða taka mið af meðalbreytingum á föstum launum opinberra starfs- manna. Samkvæmt eldri lögum var eingöngu miðað við eftirmannsregl- una. Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri LSR, sagði að um 5.000 lífeyrisþegar ættu kost á því að velja milli eftirmannsreglu og meðaltalsreglu. Nú þegar hefðu lið- lega 1.000 lífeyrisþegar valið meðal- talsregluna. Lífeyrisþegar hafa tíma til 1. desember til að velja. Haukur sagði að þær breytingar sem gerðar hefðu verið á opinber- um rekstri gerðu það að verkum að oft væri erfitt að sjá við hvað lífeyr- isgreiðslurnar ætti að miða. Fyrir þennan hóp væri heppilegt að miða sinn lífeyri við meðaltalsregluna. Einnig væru til störf þar sem launa- þróun væri með þeim hætti að með- altalsreglan kæmi betur út en eftir- mannsreglan. Haukur sagði að hins vegar væru önnur störf þar sem heppilegra væri íyrir lífeyrisþega að halda sig við eftirmannsregluna. Kennarar væru t.d. stétt sem lík- lega kæmi betur út með því að miða áfram við eftirmannsregluna. 200 hafa fært sig í A-deild Aðeins um 200 opinberir starfs- menn hafa tekið ákvörðun um að flytja sig úr B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins yfir í A-deild- ina. Þetta er talsvert minna en reiknað var með. Frestur til að færa sig yfir í A-deildina rennur út 1. desember nk. ísafirði. Morgunblaöið. NEMENDUR Framhaldsskóla Vestfjarða á fsafirði mega búast við því að á næstu vikum og miss- erum muni ríkja meiri agi við skólann en þeir hafa vanist. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi skólans en þar segir m.a.: „Nemendur komast ekki upp með það að sofa rólegir heima þegar þeir eiga að vera í skólanum því skólameistari hringir heim til þeirra hafi þeir ekki tilkynnt forföll fyrir kl. 9. Þá verður ekki látið viðgangast að nemendur sofi í timum eða hafi í frammi truflandi áhrif á kennslu." Þá verða reykingar með öilu bannaðar á lóð skólans frá og með næstu áramótum og bendir aðstoðarskólameistarinn, Jón Reynir Sigurvinsson, því nem- endum á að nú sé kjörið tækifæri til að hætta þessum lífshættulega ósið. Þá segir í fréttabréfinu að framvegis verði upplýsingar um niðurstöður prófa gefnar jafnóð- um og þær berast frá kennurum og að þær verði í möppu fyrir framan ritaralúgu skólans. „Nemendur eiga alls ekki að trufla yfirferð úrlausna og aðra starfsemi á skrifstofu skólans með spurningum um niðurstöður úr prófunum. Óþarft ætti að vera að taka fram að kennarar vilja ekki fremur en annað fólk láta trufla heimilisfrið sinn með sím- hringingum þar sem nemendur eru að spyrja um einkunnir. Eng- ar einkunnir verða gefnar upp í sfma, hvorki lijá ritara né kenn- \ urum skólans," segir í fréttabréf- inu. Gildandi útvarpsleyfí í landinu 30 útvarpsstöðv- ar og 53 sjón- varpsstöðvar SAUTJAN langtímaleyfi til út- varpsrekstrar, 12 sjónvarpsleyfí og leyfi til að endurvarpa dagskrám 25 erlendra sjónvarpsstöðva, eru nú í gildi í landinu, að frátöldum leyfum Ríkisútvarpsins til útvarps- og sjón- varpsrekstrar og heimildum Pósts og síma til útsendinga á 24 sjón- varpsrásum og 11 útvarpsrásum um breiðband. Alls hafa því verið veitt leyfi til út- sendinga 30 útvarpsstöðva og 13 sjónvarpsstöðva hér á landi og til endurvarps 40 erlendra stöðva. 35 rásir á breiðbandi Pósts og síma Tölurnar eru byggðar á upplýs- ingum á heimasíðu útvarpsréttar- nefndar. Auk þess er fram komið að Póstur og sími hefur í hyggju að hefja útsendingar á breiðbandi og nær leyfi fyrirtækisins til 24 sjón- varpsrása og 11 útvarpsrása. íslenska útvarpsfélagið - Fjöl- miðlun hf., sem hefur sjónvarpsleyfi Stöðvar 2 og útvarpsleyfi Bylgjunn- ar og Stjömunnar, ræður auk þess yfir sjónvarpsleyfi því sem Stöð 3 var veitt og einnig er leyfi Sýnar hf. í eigu sömu aðila. Samtals hafa ís- lenska útvarpsfélagið og dótturfé- lög þess leyfi til að endurvarpa dagskrám 12 erlendra sjónvarps- stöðva. Til viðbótar er leyfi til endur- varps erlendra stöðva í höndum fyrirtækja í Vestmannaeyjum, á Húsavík og Suðurlandi. Fínn miðill hf., sem er sameinað fyrirtæki rekstraraðila Aðalstöðvar- innar og FM 95,7, hefur einnig út- varpsleyfi í nafni X-ins og Klassíkur FM og hefur nýverið fest kaup á út- varpsstöðinni Sígildu FM og Brosi á Suðumesjum. Þá teljast 6 útvarps- stöðvar á vegum þeirra aðila. Auk hljóðvarpsrása Ríkisútvarps- ins hafa Bylgjan og Stjarnan leyfi sem ná til landsins alls. Hið sama á við um sjónvarps- og endurvarps- leyfi á vegum Islenska útvarpsfé- lagsins og Sýnar. Utvarpsleyfi Fíns miðils nær til Reykjavíkur og nágrennis og leyfi annarra eru takmörkuð við ákveðna kaupstaði eða landshluta. Sjónvarpsleyfi Barnarásarinnar, sem hyggst senda út barnaefni, tek- ur gildi frá og með 1. desember, að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, starfs- manns útvarpsréttarnefndar. Morgunblaðið/Ásdís Beðið eftir strætó GOTT er að vera vel búinn þegar allra veðra er von. Hnátunni þótti viss- ara að renna upp í háls meðan hún beið eftir strætisvagninum. Sundsamband fslands Vilja innilaug sunnan við Laugardalslaugina BÆKUR, sérblað Morgun- blaðsins um bækur og bók- menntir, fylgir blaðinu í dag. Meðal efnis er greinin Potað í póstmódernismann þar sem meðal annars er vikið að sam- félagi og bókmenntum og grein um nýja ljóðabók eftir Nóbelsskáldið Derek Walcott og minnst Orkneyjaskáldsins George Mackay Brown sem lést í fyrra. FORMANNAFUNDUR Sund- sambands Islands hefur skorað á borgarstjórn Reykjavíkur að hefja strax undirbúning að byggingu 50 metra innilaugar í Laugardal sem uppfyllir kröfur um alþjóðleg sund- mót. í tillögum nefndar sem skipuð var sl. sumar af borgarstjórn er gert ráð fyrir innilaug sunnan við Laugardalslaugina sem nýtti bún- ingaaðstöðu Laugardalslaugarinn- ar með rými fyrir um 500 áhorf- endur. Nefndin skilar tillögum af sér í dag. Gert er ráð fyrir að ákveðnir fjármunir verði á fjár- hagsáætlun næsta árs vegna for- sagnagerðar og hönnunar innilaug- ar. Sævar Stefánsson, formaður Sundsambands Islands, segir að kostnaður vegna byggingar innilaugar gæti hugsanlega verið um 300 milljónir kr. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að verið sé að skoða þetta mál og það tengist við- gerðum sem þarf að gera á laugar- keri Laugardalslaugarinnar. Ingibjörg Sólrún segir að nauð- synlegt sé að gert verði við laugar- kerið en framkvæmdin hafi ekki verið tímasett. Ljóst þykir að við- gerðin verði afar umfangsmikil og kostnaðarsöm og hefði í för með sér að loka yrði útilauginni. „Við gerum ráð fyrir því að það verði ákveðnir fjármunir á fjár- hagsáætlun næsta árs til forsagna- gerðar og hönnunarvinnu," segir Ingibjörg Sólrún varðandi nýja innilaug á lóð sunnan megin við Laugardalslaugina. Gert er ráð fyrir að tengibygging verði milli lauganna tveggja og búningsað- staða nýtist báðum laugum. Ingibjörg Sólrún kvaðst ekki viss um að tilvonandi innilaug myndi kosta 300 milljónir kr., hugsanlega yi-ði kostnaður lægri. Kostnaður vegna viðgerða á laug- arkerinu yrði eflaust svipaður og byggingakostnaður nýrrar inni- laugar. Viðgerðin tengist hug- myndum um yfirbyggðu laugina á þann hátt að hún geti tekið við sundlaugargestum á meðan við- gerð á útilauginni færi fram. Islenskun Windows stýri- kerfísins Microsoft ekki úti- lokað ís- lenskun NÝ útgáfa af Windows, Windows 98, kemur um mitt næsta ár og Microsoft hefur ekki útilokað að notendaskil verði á íslensku í framtíðinni, að sögn Jóhanns Áka Bjöms- sonar hjá Einari J. Skúlasyni, aðalumboðsmanni Microsoft. Það er hins vegar útséð með að Windows 95 verði íslenskað og Microsoft hefur einnig lýst því yfir að sjái ekki ástæðu til að íslenska bara stýrikerfið heldur einnig Word og Excel. I Morgunblaðinu á sunnu- dag kemur fram að í stefnu menntamálaráðuneytisins um upplýsingastefnu sé að finna það markmið að notendaskil Windows stýrikerfisins verði á íslensku. Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, sagði að það hafi gengið erfiðlega að ná þessu markmiði. Þar sé glímt við Mierosoft, fyrirtæki Bill Gates, auðugasta manns í heimi. Sagði menntamálaráð- herra í blaðinu að ef ekki tæk- ist að íslenska Windows stýri- kerfið yrði annarra leiða leitað. Aðspurður um hvaða leiðir væri að ræða sagði mennta- málaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri tímabært að skýra frá því á þessu stigi. 85% stolið Jóhann Áki sagði að Microsoft hefði einnig vísað til niðurstaðna BSA, samtaka hugbúnaðarrétthafa, að á með- an áætlað sé að 85% af hug- búnaðamotkun á íslandi sé stolin, sé markaðsstærðin langan veg frá því að standa undir kostnaði af íslenskun. Hann sagði að Microsoft hefði sett upp þýðingarmiðstöð fyrir Evrópu á írlandi og væri það stefna fyrirtækisins að sjá sjálft um þýðinguna. Microsoft hefði aldrei útilokað íslenskun kerfisins, en hefði rætt um það að endurskoða afstöðu sína þegar markaðurinn færi að nálgast það sem gerðist í Evr- ópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.