Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 43 AÐSENDAR GREINAR Yfirlýsing MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið að birta eftirfarandi yf- irlýsingu frá Agli Ólafssyni, safnstjóra á Hnjóti í Rauðasands- hreppi í Vestur- Barðastrandarsýslu, vegna máls er varðar minnisvarða um breska sjómenn, sem bæjarstjórn Vestur- byggðar hyggst reisa á Patreksfirði. Yfirlýs- ingin er svohljóðandi: „Vegna umfjöllunar fjölmiðla um það fram- tak mitt, að reistur verði minnisvarði um breska sjómenn sem drukknað hafa hér við land, vil ég vekja at- hygli á eftirfarandi: 1. Minnismerki það um breska sjómenn, er látist hafa við ísland á þessari öld og ákveðið hafði verið að setja upp við Minja- safnið á Hnjóti með aðild fjögurra breskra og skoskra sveitarfélaga, er minning bresku þjóðarinnar um látna ástvini. Það væri mikill sómi fyrir íslensk stjórnvöld að sýna bresku þjóðinni vináttu og samúð með því að koma að þessu máli og sjá til þess að gerð minnismerkisins nái tilgangi sínum. 2. Það voru íbúar Rauðasands- hrepps, sem stóðu að björgunar- afrekinu við Látrabjarg árið 1947 og björgun skipverja af togaran- um Sargon árið 1948. Björgunara- frekið við Látrabjarg er sennilega mesta afrek í björgunarsögu þjóðarinnar á þessari öld. Togar- inn Sargon strandaði í nágrenni Hnjóts og tók ég sjálfur þátt í björgun skipverjanna. Þetta var í fyrsta sinn í heiminum sem björgun hefur verið kvikmynduð. Á Minja- safninu á Hnjóti eru varðveittir ýmsir munir viðkomandi þessum skipsköðum, þar á meðal heiðurs- merki, viðurkenningar og þakkir frá bresku og íslensku þjóðinni. Það hlýtur að teljast eðlilegt að minnis- merki, sem reist verður þegar hálf öld er liðin frá þessum at- burðum, verði staðsett á Hnjóti. 3. Hugmyndin að minnismerk- inu var að öllu leyti mín. Eg undir- bjó málið vandlega og fékk full- tingi þjóðþekkts listamanns til að gera frumdrög að minnismerki til að leggja fyrir þá sem síðar kæmu að málinu. Þá óskaði ég eftir aðstoð íslenska utanríkisráðuneyt- isins við að ná samvinnu við breska aðila, sem kynnu að vilja koma að málinu. Var það gert með bréfi 2. febrúar 1996. Helgi Ágústsson ráðuneytisstjóri tók málaleitun minni ákaflega vel og fól sendi- herra fslands í London fram- kvæmdina, sem aftur kvaddi að málinu Jón Olgeirsson, ræðismann íslands í Grimsby. Fjölmiðlar þar kynntu málið sem hugmynd Egils Ólafssonar og gengust fyrir söfn- unarátaki til minnismerkis að Hnjóti. Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom aldrei að málinu á löngum undirbúningsferli þess, og hafði mér vitanlega engin áform um að Mér sýnist sem bæjar- stjórn Vesturbyggðar, segir Egill Qlafsson, sé að verða íslensku þjóðinni til skammar með framkomu sinni í þessu máli. minnast þessara björgunarafreka. 4. Þegar fulltrúar fjögurra breskra og skoskra sveitarfélaga komu til fundar hér að Hnjóti hinn 5. ágúst síðastliðinn ásamt sendi- herra Breta hér á landi, var staðsetning minnismerkisins ákveðin og aðeins efth’ að ganga frá formlegri afgi’eiðslu bæjar- stjórnar Vesturbyggðar á málinu. Ég tel að fulltrúar bresku og skosku sveitarfélaganna hafi verið beittir blekkingum, þegar bæjarstjórnin tilkynnti þeim rúmum mánuði síðar allt aðra staðarákvörðun minnismerkisins en gengið hafði verið út frá fram að þessu. 5. Sú blekking var í því fólgin að jafnframt því að tilkynna að minnismerkið skyldi staðsett á Patreksfirði, voru boðin fram húsakynni Minjasafnsins að Hnjóti fyrir sýningu um sjósókn Breta við ísland á þessari öld. Með því leit út fyrir að ég væri samþykkur ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar. En sannleikurinn er sá, að þetta var gert án nokk- urs samráðs við mig eða aðra ráðamenn safnsins. Ég vil minna á, að Minjasafnið að Hnjóti er safn um íslenska sjósókn á þess- ari öld og fyrri öldum. Sýning um breska sjósókn yrði þar alger stíl- brjótur, þótt sjálfsagt væri viðeig- andi að setja upp slíka sýningu á þeim stöðum, sem á sínum tíma veittu breskum togurum þjónustu, eins og viðgerða- og læknisþjónustu. Ég ánafnaði safnið á sínum tíma héraðsnefnd Vestur-Barðastrandarsýslu. Því hefur verið skipuð sérstök stjórn, og í gjafabréfinu var sérstaklega fram tekið, að meðan ég væri ofar foldu réði ég öllu um tilhögun safnsins. Af minni hálfu kemur slík sýning ekki til greina og hef- ur aldrei komið. Ég hlýt að koma þeirri synjun minni á framfæri við hina bresku og skosku aðila og útskýra að ég eigi engan hlut að þeim vandræðagangi, sem kom í málið eftir afskipti bæjarstjórnar af því á síðustu tveimur mánuðum. 6. Engu er líkara en með þessu tilboði um sýningu að Hnjóti sé af hálfu meirihluta bæjarstjórnar Vesturbyggðar gerð tilraun til að reka fleyg milli Minjasafnsins á Hnjóti og þeirra bresku aðila, sem náin og góð samvinna hafði tekist við fyrir milligöngu ís- lenska utanríkisráðuneytisins. 7. Eftir það sem á undan er gengið, sýnist mér að bæjarstjórn Vesturbyggðar sé að verða ís- lensku þjóðinni til skammar með framkomu sinni í þessu máli. Ég hafði unnið náið með íslenskum stjórnvöldum að undirbúningi og framkvæmd málsins í hálft annað ár. Geta þau stjórnvöld látið taka fram fyrir hendurnar á sér á síðustu stundu og leiða málið til allt annarra lykta, en að var stefnt með tveggja ára vinnu? Ég vona að enn megi finna farsæla lausn á þessu máli. Höfundur er safnstjóri á Hnjóti í Rauðasandshreppi. ( N BIODROGA Er tölvan þín að gefa upp öndina ? Þarftu stækkunargler til að lesa á skjáinn ? Veistu ekki hvað internetið er ? Er nýjasti tölvuleikurinn eins og flettiskilti ? Þá er kominn tími til að endurnýja ! r snyrtivörur TARGA turn 200 MMX AMD K6 örgjörvi 4320 MB Quantum harður diskur 32 MB EDO innra minni Tseng Labs ET6000 4mb skjákort 17" Targa skjár (1024x768x85hz) 24 hraða Pioneer geisladrif Soundblaster 16 hljóðkort 240 watta hátalarar 33.600 mótald m/ faxi og símsvara Windows 95 CD og bók 6 íslenskir leikir a 149.900 kr vX>°ð V Stækkun í 64mb og Soundblaster 64 kostar aðeins 10.000.- BT.Tölvur kynna vinnuþjark heimilanna sem er á við tveggja tonna trukk í vinnslu en sem sportbíll í keyrslu. Hver hlutur hefur verið valinn vandlega í þetta frábæra tilboð sem inniheldur geggjaðan 17 TOMMU SKJÁ. GSM símar og fjöldi fylgihluta NOKIA 1611 •110 tíma rafhlaða • Númerabirting •199 númera símaskrá • Sendir/Móttekur SMS • Vinnuþjarkur 19.990 NOKIA 8110 • 70 tíma rafhlaða • Númerabirting • 324 númera símaskrá • Sendir/Móttekur SMS • Sýnir hverjir hringdu • Einstaklega nettur 44.990 ERICSSON 628 • 83 tíma rafhlaða • Númerabirting • 150 númera símaskrá • Sendir/Móttekur SMS • Sýnir hverjir hringdu • Góður í vasa 25.990 A Grensásvegi 3 • Simi 5885900 • Fax 5885905 www.bttolvur.is • Netfang : bttolvur@mmedia.is ÖRUGGT 0G ÖDÝRT Opið virka daga 10-19 • Opið laugardaga 10-16 BT.TÖLVUR Blað allra landsmanna! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.