Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Shinto
brúðargreiðsla
►BRÚÐURIN Mitsuko Idei sýndi
hárgreiðslu sína eftir giftingar-
athöfn sína í Meiji hofinu í Tókýó
nú á dögunum. Giftingin var
sanikvæmt hinum hefðbundna
Shinto-stíl sem á miklum
vinsældum aö fagna um þessar
mundir í Japan.
SIGRÚN S6I
fær fólk tll
að hlæja
standandi.
Morgunblaðið/Kristmn
Satín-náttkjóll
með blúndu
kr. 3.499
Uppistand
!< N I C !< K R3 0
Laugavegi 62
sími 551 5444
Öðruvísi gefandi
en leikrit
Leikkonan Sigrún Sól Ólafsdóttir_
er ein af þeim sem hafa reynt fyrir sér
með uppistandi. Hildur Loftsdóttir sá hana
í Dagsljósi og vildi vita hvort þetta væri
ekki taugatrekkjandi.
VERNIG kom það til
að þú fórst að
stunda uppistand ?
„í fyrra var ég með tvær ein-
leikssýningar. Það var leikrit
eftir Megas „Gefin fyrir drama
þessi dama“ þar sem ég var ein
á sviðinu í tvær og hálfa klukku-
stund, og lék sex ólíkar persón-
ur. Sem undirbúnig fyrir þá sýn-
ingu sýndi ég í Kaffileikhúsinu
45 mínútna sýningu um sölu-
konu sem er með sölusýningu,
byggða á textum eftir Þorvald
Þorsteinsson. Þar tala ég mikið
við áhorfendur. Sú sýning gekk
mjög vel og ég fór að þróa hana
út í meira og meira „stand-up“.
Fyrst var þetta bara leikrit sem
ég og leikstjórinn Guðjón Peder-
sen settum saman, en síðan fór
ég að spila þetta meira eftir eyr-
anu, eftir því hvernig hópa ég
var að sýna fyrir. Eg fann að
það féll mjög vel í fólk þegar ég
notaði aðstæður hverju sinni.
- Hver er þá stærsti munur-
inn á uppistandi og einleik?
„Uppistand er óskrifað og þar
verður að grípa augnablikið;
spila inn á áhorfendur og taka
fyrir það sem er að gerast m.a. í
samfélaginu í dag. Ég hef þó í
huga grind með því sem ég vil
taka fyrir. Hvernig ég kem því
frá mér er svo algjör spuni, og
fer eftir því hvaða andsvar ég fæ
frá fólki. Stundum kveikir fólk
ekki á því sem ég er að tala um
og þá verð ég að breyta.“
Að fara í karakter
- Er þetta ekki nokkuð
taugatrekkjandi?
„Nei, eiginlega ekki, því þetta
er mjög gefandi. Mér finnst það
meira gefandi að sumu leyti en
að vera með skrifaðan texta
og fara alveg eftir bókinni.
Maður fær öðruvísi andsvar,
og það er ofsalega spenn-
andi að sjá hvert þeir geta leitt
mann. Því það eru áhorfendur
jafnt sem leikarinn sem leiða at-
burðarásina áfram. Áhorfendur
eru í raun mótleikarinn.
Um daginn sýndi ég t.d.
Kvenfélagi Seltjarnarness Sölu-
konuna. Þær voru svo jákvæðar
og vildu kaupa allt af mér svo ég
varð að fara út fyrir grindina og
endaði á þvi að demba mér út í
sundlaug."
- Þessar sýningar hafa því
reynst þér þinn „uppistands-
skóli"?
„Já, ég héít að ég gæti þetta
aldrei og skyldi ekki fólk sem
fór út í þetta. Þegar ég var í
Leiklistarskólanum fannst mér
þetta alveg fáranlegt að ég gæti
farið að standa fyrir framan fólk
og spinna. Mér fannst það bara
ekki vera í mínu eðli. En um leið
og maður er kominn í einhvern
karakter, leyfist manni miklu
meira en þegar maður er maður
sjálfur. Ég kem fram sem sölu-
kona eða einhver persóna úr
Megasarverkinu, sem ég hef líka
verið að þróa áfram.“
- Áhorfendur eru þá ekki að
svara Sigrúnu Sól heldur ein-
hverri skáldpersónu?
„Að sumu leyti ekki, auðvitað
geng ég alltaf út frá sjálfri mér.
Ég er bara í einskonar búningi.
Sjáðu bara böm sem fara í
löggubúning, þau stækka og
þenjast út. Eða lítinn strák sem
fer í kjól og hreyfingamar verða
strax kvenlegri. Það þarf ein-
hvem veginn að aðskilja sig frá
sjálfum sér.“
Áhorfendur eru tilraunadýr
- Var ekki eríiðara að vera
með uppistand í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi?
„Þegar ég kom fram í Dags-
ljósi vom áhorfendurnir hópur
ungmenna úr Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Ég fór að grínast
létt við þau, spinna og dansaði
líka smá. Það hjálpaði mikið, því
þau urðu svo jákvæð, og
stemmningin var orðin mjög góð
þegar að útsendingu kom.“
- Vissir þú fyrir fram að þú
ættir að skemmta menntskæl-
ingum ?
„Já, ég hafði samt beðið um að
fá frekar eldri hóp, helst kvenfé-
lag, því ég var orðin vön þeim,
en þeim tókst ekki að redda því,
og þannig varð ég að breyta
dagski-ánni samdægurs. Ég var
búin að ákveða mig nokkurn
veginn, þetta eru bara þrjár
mínútur, en ég varð samt að
breyta áherslunum. Þetta var
svo bara mjög fínt.“
- Ertu búin að fínna þig í
þessu?
„Já, svona, en þetta er samt
ennþá skóli fyrir mig, og ég á
langt í land. Ég veit ekki enn
hversu langt þetta mun ná, en
mér finnst þetta mjög spenn-
andi, að þróa áfram mína eigin
leið í þessu. Maður verður að
gera þetta alveg út frá sér og
það er mjög gaman að sjá þegar
það virkar á fólk. Ég er enn að
nota áhorfendur sem tilrauna-
dýr í því hversu langt ég get
gengið. Það getur verið erfitt að
þræða hinn gullna meðalveg
þegar maður er að skemmta
mjög breiðum aldurshópi. Núna
er ég t.d. að byrja að þróa dag-
skrá sem snýst um nektardans-
sýningarnar (hugmyndin kom í
sundlauginni á Seltjarnarnesi)
og það á sjálfsagt eftir að fara
misjafnlega í fólk, ha, ha.
- Eríu mikið bókuð ?
„Já, en núna er ég svo upptek-
in við að vera aðstoðarleikstjóri
Hrafns Gunnlaugssonar við nýju
myndina hans „Myrkrahöfðing-
inn“, en eftir það kasta ég mér
aftur út í þetta af fullum krafti."
AMERISKUR MARKAÐUR Á ÞREMUR HÆÐUM
NBA PEYSUR 3 LIÐ
CHICAGO BULLS PRJÓNAHÚFUR
CHAMPION FATNAÐUR & HOCKEY BÚNINGAR 1/2 VERÐ
AMERÍSKIR JOGGING GALLAR / HLÆGILEGT VERÐ
FRÁBÆR
AMERÍSK
BARNAFÖT
Á ÓTRÚLEGU
VERÐI
NYSENDING
aaiKING OG QUEEN RÚMIN
! KOMIN AFTUR A FRÁBÆRU VERÐI
SÍÐASTA SENDING FYRIR JÓL.
AMERÍSKUR
MARKAÐUR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6
OPIÐ VIRKA DAGA 13.00 - 18.00
LAUGARDAGA 10.00 - 17.00
♦
NIKE &ADIDAS
ÍÞRÓTTASKÓR
LÆGSTA VERÐ
1EVRÓPU!