Morgunblaðið - 18.11.1997, Page 20
I
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Olíurisar farnir
að fá olíu úr
Kaspíahafinu
Bakú. Reuters.
ÁTTA milljarða dollara fyrirtæki
olíurisa í heiminum, ATOC, hefur
dælt fyrstu hráolíunni frá olíusvæð-
um Azerbaijans á Kaspíahafi.
Fyrstu 1.000 tonnunum var dælt
af Chirag-svæðinu, einu þriggja olíu-
svæða þar sem vinnsla fer fram.
AIOC er undir forystu bandalags
British Petroleum (BP) og Statoil í
Noregi. BP á 17,13% hlut í fyrirtæk-
iu og Statoil 8,56%.
Aðrir aðilar að samstarfinu eru
Amoco í Bandaríkjunum (17,01%),
Exxon (8%), Unocal (Bandaríkjun-
um) (10,05%), Pennzoil (Bandaríkj-
unum) (4,82%), Ramco (Bretlandi)
(2,08%), LUKOIL í Rússlandi (10%,
TPAO í Tyrklandi (6,75%), Delta
Nimir í Sádi-Arabíu (1,68%) og Itoc-
hu í Japan (3,92%). Ázerska ríkisol-
íufélagið SOCAR á 10% hlut. Landið
fær um 80% af ágóðanum af verk-
inu, sem mun taka 30 ár.
Upphaflega ætlaði AIOC að byrja
að dæla olíunni 28. ágúst, en því
var frestað nokkrum sinnum.
„Samningur aldarinnar"
Samningurinn var kallaður
„samningur aldarinnar" þegar hann
var undirritaður 1994. Hann var
fyrstur níu samninga við erlend olíu-
fyrirtæki, sem Azerbaijan hefur gert
um olíuvinnslu úr Kaspíahafi. Ef
samningunum verður hrundið í
framkvæmd að öllu leyti eru þeir
30 milljarða dollara virði.
AIOC telur að hægt verði að
dæla upp 650 milljónum tonna af
olíu frá hinum þremur olíusvæðum.
Búizt er við að framleiðslan komist
í 700-800.000 tunna á dag fyrir
2007-2010.
Fyrsta olían mun renna um þúsud
kílómetra langa olíuleiðslu frá Bakú
til rússnesku Svartahafshafnarinnar
Novorossiisk og var hún tekin í notk-
un í síðasta mánuði. Um hana hefur
farið hráolía frá azerska ríkisolíufé-
laginu, SOCAR.
AIOC hyggst senda 120.000 tonn
af hráolíu þessa leið, sem liggur um
uppreisnarsvæðið Tsjetsjeníu, fyrir
árslok. Unnið er að endurbótum á
annarri olíuleiðslu til Svartahafs-
hafnar Georgíu í Supsa og verður
hún tilbúin fyrir árslok 1998.
Nýhafin olíuframleiðsla Azera
þykir benda til þess að þeir muni
skipa sér aftur í fremstu röð olíu-
framleiðenda í heiminum eftir
margra ára hnignun.
Tölvuþjálun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeiö þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduö kennslubók innifalin í veröi.
Innritun stendur yfir.
m
Fjdrfestu í framtíðinnil
Tölvuskóli íslands
BILDSHOFÐI 18, SIMI 567 1466
TILBOÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STJÓRNENDUR Skeljungs
komu saman til nokkuð óvenju-
legs fundar á fimmtudagmorg-
un á Grand Hótel. Þar hlýddu
þeir á Cor Herkströter, æðsta
yfirmann Shell-samsteypunnar
kynna nýjar áherslur írekstrin-
um og ávarpaði hann þar sam-
tímis öll Shell fyrirtæki í heimin-
um, en þau er að finna í um 110
löndum í dag.
Á fundinum var í fyrsta sinn
tekið í notkun nýtt myndfunda-
kerfi sem gerir Shell-samsteyp-
unni kleift að eiga samskipti við
aðildarfyrirtæki sín hvar sem
er í heiminum með þessum
hætti. Að sögn Gunnars Kvaran,
upplýsingafulltrúa Skeijungs, er
gert ráð fyrir því að stór hluti
*
A heims-
fundi hjá
Shell
samskipta við höfuðstöðvar fyr-
irtækisins muni fara fram með
þessum hætti í framtíðinni. Jafn-
framt sé stefnt að því að fundir
þessir geti orðið gagnvirkir, en
enn sem komið er sé þó aðeins
um að ræða hefðbundna útsend-
mgu.
Gunnar segir að á fundinum
hafi yfirmenn Shell kynntþað
sem kalla megi framtíðarsýn
fyrirtækisins. „Það má segja að
fyrirtækið sé að móta sína
ímynd til næstu ára. Það hefur
verið í talsverðri sjálfsskoðun
að undanförnu. Þannig er Shell
farið að huga mikið að framtíð-
arorkugjöfum og er farið að
leggja talsvert mikið fé í þróun-
arvinnu t.d. hvað varðar vind-
og sólarorku.
Við erum ekki dæmigert Shell
félag því samsteypan á aðeins
lítinn hluta í Skeljungi en okkur
fannst það engu að síður mjög
athyglisvert að fylgjast með
þessu, enda kemur markaðs-
setning og þróunarstarf Shell
erlendis til með að nýtast í okk-
ar starfi,“ segir Gunnar.
Levi Strauss lokar
ellefu verksmiðjum
New York. Telegraph.
LEVI Strauss, hinn kunni galla-
buxnaframleiðandi, hefur ákveðið
að loka 11 verksmiðjum í Banda-
ríkjunum og segja upp þriðjungi
starfsfólks í Bandaríkjunum og
Kanada vegna harðrar samkeppni
og minnkandi eftirspurnar.
Niðurskurðurinn fer fram á
næsta ári og verður 6,395 sagt
upp störfum, eða 17% af starfsliði
Levis. Fækkunin kemur í kjölfar
tilkynningar í febrúar þess efnis
að fyrirtækið mundi leggja niður
1000 störf á þessu ári. Gordon
Shank, forseti Levi Strauss í Vest-
urheimi, sagði: „Dregið hefur úr
vexti í fataiðnaði á sama tíma og
við getum framleitt fleiri gallabux-
ur vegna aukinnar skilvirkni.“
Harðnandi samkeppni
Hönnuðir á við Donna Laran,
Ralph Lauren og Calvin Klein hafa
veitt Levi Strauss harðnandi sam-
DowJones
hækkar um yf-
mánaðarins ir 100 Punk!?
nóvember:
Skrautlistar*
20% afsl.
I
*Gildir um fjórar algengustu
tegundir lista: A2, D, E og F.
Metraverð á listum:
A2, áður 130 kr. Nú 104 kr.
D, áður 120 kr. Nú 96 kr.
E, áður 60 kr. Nú 48 kr.
F, áður 90 kr. Nú 72 kr.
I
METRO
VEGGFOÐRARÍNM
I
New York, London. Reuters.
DOW JONES vísitalan hækkaði
um 100,20 punkta í 7672,68. eftir
opnun í Wall Street í gær í kjölfar
mikilla hækkana japanskra hluta-
bréfa og gengi evrópskra bréfa
hækkaði líka.
Nikkei hlutabréfavísitalan í
Tókýó hækkaði um tæplega 8%
og það leiddi til hækkana á öðrum
Asíumörkuðum áður en áhrifanna
fór að gæta í New York og Evr-
ópu. í Wall Street hækkaði Dow
um 90 punkta eða rúmlega 1% á
10 fyrstu mínútunum. Hagtölur,
sem sýna litla verðbólgu, höfðu
einnig áhrif á bandaríska fjárfesta.
Vakti mikla furðu
W
MAIARINN
SKEIFUNNI 8 • S: 581 3500 • 568 7171
Útsölustaðir um land allt:
LÍMMIÐAPRENT
Dropinn, Keflavík ■ Húsasmiöjan, Keflavík ■ Húsasmiöjan, Hafnarfiröi ■ Kvistur, Hverageröi • V.G. Búöln, Selfossi • S.G. Búöin,
Selfossl ■ S.G. Búöin, Hvolsvelli • Reynlsstaöur, Vestmannaeyjum • Klakkur, Vík • KASK, HÖfn • KASK, Djúpavogi • Hermann
Nielsson, Egilsstööum • Nýung, Eskifiröi ■ K.F. Héraösbúa, ReyðarfirÖi ■ Byggt & Flutt, Neskaupstaö • Verslunin Vík, Neskaupsuö
• Ingólfur Arason, Vopnaflröi • K.Þ. Smiöjan, Húsavlk • Utaland, Akureyri • KEA, Akureyri • K.F. Skagfirðinga, Sauöárkrókl •
K.F. Húnvetninga, Blönduósi • K.F. V-Húnvetninga, Hvammstanga • Metró, ísafiröi ■ Byggir, PatreksfirÖi ■ Skipavík, Stykkishólml
• Hamrar, Crundarfiröi • Utabúöin, Ólafsvík • Metró, Borgarnesi • Metró, Akranesi • TrésmlÖjan Akur, Akranesi
Þegar þig vantar límmiðal
Skemmuvegi 14 • 200 Kópavogur
Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243
Farsími: 898 9500
Hækkunin í Tókýó vakti mikla
furðu. Alls hækkaði Nikkei vísital-
an um 1200 punkta - sem er
fjórða mesta prósentuhækkun sem
um getur í Japan
í Bretlandi var ekki búizt við
meira en 1% hækkun á FTSE 100
vísitölunni eftir uppsveifluna í
Tókýó og því vakti furðu að 3%
hækkun varð í London. Verðbréfa-
salar höfðu búizt við 30 punkta
hækkun, en hækkunin varð 130
punktar.
Þó var bent á að viðskipti í
London væru dræm og þegar á
daginn leið dró úr hækkuninni, en
hún nam þó 2%.
í Frankfurt hækkaði DAX vísi-
talan um 1,7%, en IBIS DAX hafði
hækkað um 3% síðdegis. í París
hafði orðið um 2,5% hækkun síð-
degis.
Gull hefur
ekki verið
lægraí
rúm 12 ár
London. Reuters.
VERÐ á gulli hafði ekki verið
lægra í 12 1/2 ár á föstudag.
Lokaverðið var 302,55 doll-
arar únsan, en síðdegis hafði
verðið lækkað í 301,75 dollara,
lægsta verð síðan í marzbyijun
1985. Um tíma lækkaði verðið
í 300 dollara.
Á fimmtudag seldist gull á
308,15 dollara. „Ef verðið
lækkar í 300 dollara getur það
hæglega lækkað í 290 dollara
áður en varir,“ sagði miðlari.
Gullverðið hefur farið lækk-
andi síðan það hækkaði um
tíma í 416,25 dollara í febrúar
í fyrra.
Verðið hefur lækkað að
undanförnu á sama tíma og
seðlabankar hafa velt þvi fyrir
sér opinberlega hvað þeir eigi
að gera við gullbirgðir sínar.
Seðlabankar og fleiri stofn-
anir, eins og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn (IMF) eiga um
35.000 tonn af gulli. Ársfram-
leiðslan nemur um 2500 tonn-
um.
kepnni með nýjum tegundum.
Sears Roebuck og J. C. Penney
hafa einnig verið fyrirtækinu erfið-
ir viðureignar. Aðrir gamalkunnir
gallabuxnaframleiðendur hafa átt
í erfiðleikum. V.F. Corp., sem
framleiðir Wrangler og Lee galla-
buxur, skýrðu frá uppsögnum fyrr
á þessu ári vegna dræmrar sölu.
Levi gefur ekki upp hagnað, en
sala fyrirtækisins í fyrra jókst um
6% í 7,1 milljarð dollara.
i
i