Morgunblaðið - 18.11.1997, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMEINING EYSTRA
OG NYRÐRA
STOR SKREF voru stigin til sameiningar sveitarfélaga
um síðustu helgi. íbúar Sauðárkrókskaupstaðar og tíu
hreppa af ellefu í Skagafirði ákváðu með afgerandi hætti í
kosningum sameiningu í eitt sveitarfélag. Sams konar sam-
einingarskref og með sama afgerandi hættinum voru stigin
í þremur sjávarplássum á Austfjörðum, Eskifirði, Neskaup-
stað og Reyðarfirði.
Það er ekki sársaukalaust að hrófla við hreppaskipan í
landinu, sem staðið hefur lítt breytt frá þjóðveldisöld. Gjör-
breyttar þjóðfélagsaðstæður gera það á hinn bóginn óhjá-
kvæmilegt. Þjóðin er meir en þrefalt fjölmennari en um síð-
ustu aldamót. Búseta í landinu er allt önnur. Ný samgöngu-
tækni hefur fært byggðh* saman. Hreppar og sveitarfélög,
sem fátt áttu sameiginlegt fyi-r á tíð, mynda nú eina heild
atvinnulega og félagslega.
Sameining sveitarfélaga styrkir sveitarstjórnarstigið til
mótvægis við ríkisvaldið og stuðlar að æskilegri valddreif-
ingu, m.a. með tekju- og verkefnaflutningum frá ríki til
sveitarfélaga. Sameining sveitarfélaga er að auki bezta vörn
landsbyggðarinnar gegn áframhaldandi fólksflótta til höf-
uðborgarsvæðisins. Stór og sterk sveitarfélög eru betur í
stakk búin til að veita þá þjónustu og skapa þau búsetuskil-
yrði önnur, sem fólk horfír helzt til þegar það ákveður
framtíðarbúsetu. Einsýnt er og að sameining sveitarfélaga
getur leitt til hagræðingar og sparnaðar í yfírstjórn og á
fleiri sviðum.
Kosningarnar eystra og nyrðra eiga eftir að hafa ríkuleg
áhrif á sameiningarmál sveitarfélaga í næstu framtíð. Sam-
eining sveitarfélaga á eftir að styrkja vörn landsbyggðar-
innar gegn nánast viðvarandi fólksstreymi á Suðvestur-
hornið síðustu áratugi. Ibúar höfuðborgarsvæðisins eiga og
eftir að horfa til þess áður en langir tímar líða, hvort ekki
megi ná fram umtalsverðri hagræðingu, sparnaði og hóf-
legri skattbyrði fólks og fyrirtækja með sameiningu þegar
samvaxinna byggða í landnámi Ingólfs.
TÚNFISKUR GÓÐ
BÚBÓT
ISLENDINGAR eiga að geta stundað túnfiskveiðar með
góð um árangri að mati Jóhannesar Guðmundssonar, sem
var einn eftirlitsmanna um borð í japönskum túnfískveiði-
skipum, sem höfðu heimild til tih-aunaveiða innan íslenzku
fiskveiðilögsögunnar. Allur búnaður til veiðanna þarf að
vera mjög góður að mati eftirlitsmannsins og hann varar
við of miklum væntingum í upphafi á meðan íslenzkir sjó-
menn eru að öðlast reynslu við veiðarnar. Tekjur af túnfisk-
veiðum geta verið mjög miklar, enda um einhvern verð-
mætasta fisk að ræða á mörkuðum. Túnfiskur er um það bil
tuttugu og fimm sinnum verðmætari en þorskur, svo það er
eftir miklu að slægjast.
í viðtali við Morgunblaðið sl. sunndag lýsir Jóhannes
Guðmundsson reynslu sinni af túnfiskveiðunum með Japön-
unum nú í haust, en hann var einn þriggja íslenzkra eftir-
litsmanna í jafnmörgum skipum. Ljóst er, að íslenzku eftir-
litsmennirnir hafa aflað mikilvægra upplýsinga um hvernig
veiðarnar eru stundaðar, gerð skipanna, búnað þeirra, veið-
arfæri og veiðislóð. Þessar upplýsingar ei-u ómetanlegar
fyrir þá útgerðarmenn, sem hafa hug á að reyna fyrir sér
við túnfiskveiðarnar. Jóhannes sagði m.a. í viðtalinu:
„Eg hef fulla trú á, að á komandi árum munum við íslend-
ingar notfæra okkur þessa auðlind, sem túnfiskurinn er, og
komast upp á lag með að veiða hann með góðum árangri.“
Hann varar hins vegar við því, að menn leggi út í miklar
fjárfestingar fyrr en þeir hafi aflað sér nægrar reynslu og
þekkingar á túnfiskveiðum. Full ástæða er til að taka þessi
ummæli alvarlega, því við Islendingar höfum bitra reynslu
af því að ráðast í framkvæmdir án nægjanlegs undirbún-
ings. Dýr skip þarf til túnfískveiðanna og því til sönnunar
nægir að nefna, að þau þurfa að hafa öfluga hraðfrystiað-
stöðu um borð og rúmgóðar frystigeymslur.
Islendingar hafa þegar byrjað að fikra sig áfram við tún-
fiskveiðar, en árangurinn hefur verið lítill, enda þurfa skip-
in að vera sérstakrar gerðar við þessar veiðar. Sé rétt stað-
ið að túnfískveiðunum eru líkur til þess, að þær geti orðið
góð búbót fyrir íslenzkan sjávarútveg og því full ástæða fyr-
ir útvegsmenn að huga að þeim í náinni framtíð.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
A VEFSIÐUNNI um Jónas er að finna þýðingar á 44 ljöðum eftir Jónas ásamt frumtextum og miklu efni um hvert ljóðanna. Þar eru einnig nokkur verk
hans í óbundnu máli, myndir af handritum skáldsins og ýmislegt fleira tengt skáldinu. Myndin er tekin þegar Björn Bjarnason menntamálaráðherra, sem
var staddur á Akureyri, opnaði vefsíðuna í Þjóðarbókhlöðunni á afmælisdegi skáldsins, 16. nóvember, sem jafnframt er Dagur íslenskrar tungu.
DAGUR ÍSLENZKRAR TUNGU
JÓNAS Á ERINDI
VIÐ HEIMINN
í tilefni af Degi íslenskrar tungu ræddu menn á
málræktarþinffl stöðu íslenskrar tungu, meðal
annars í réttarfarslegu samhengi, og eðli íslenskr-
ar málstefnu. Einnig1 var opnaður orðabanki sem
hefur að geyma orðaforða úr sérgreinum og vef-
síða um Jónas Hallgrímsson. Þröstur Helgason
kynnti sér skoðanir manna á þinginu, nytsemi
orðabankans og ræddi við Richard N. Ringler sem
á mestan heiður að vefsíðunni.
Richard N. Ringler
DAGUR íslenskrar
tungu var haldinn
hátíðlegur í annað
skipti á afmælisdegi
Jónasar Hallgríms-
sonar sl. sunnudag,
16. nóvember. í tilefni dagsins var
haldið málræktarþing íslenskrar
málnefhdar á laugardaginn á Hótal
Sögu og á sunnudaginn var svo dag-
skrá í Þjóðarbókhlöðunni þar sem
vefsíða um Jónas Hallgrímsson var
kynnt af höfundi hennar, Richard N.
Ringler, prófessor í norrænum fræð-
um og enskum miðaldafræðum við
Wisconsin háskóla í Bandaríkjunum,
og opnuð formlega af Birni Bjarna-
syni menntamálaráðheiTa.
Á Málræktarþingi opnaði mennta-
málaráðherra orðabanka Islenskrar
málstöðvar. Orðabankinn er saman-
settur af mörgum orðasöfnum í sér-
greinum, svokölluðum íðorðasöfn-
um, sem safnað hefur verið saman í
tölvu og á alnetinu. Að sögn Ai-a
Páls Kristinssonar hjá íslenskri
málstöð og fundarstjóra þingsins er
bankinn einnig skráningarkerfi fyrir
orðasöfn. „Þetta er í raun kerfi til að
búa til orðabækur. Við höfum gert
samninga við fimmtán orðanefndir á
ýmsum sviðum um að við megum
birta orðasöfnin þeirra á þessu kerfi
en í staðin fá þær sérhæfðan hug-
búnað til þess að semja orðasöfn og
halda orðabókunum sínum við. Með
þessum hugbúnaði geta nefndirnar
sett ný orð inn í tölvutækt orðasafn
um leið og það verður til. Með þessu
samstarfi við áhugafólk um nýyrða-
smíð getum við haldið úti mikilli
orðabókarvinnu án mikils tilkostnað-
ar sem er afar dýrmætt, við erum að
nýta þann mikla áhuga sem er í
landinu á þessum hlutum."
Nauðsynlegt að þýða
erlendar reglugerðir
Þrjú erindi voru flutt á þinginu.
Sigurður Líndal talaði um réttar-
stöðu íslenskrar tungu þar sem
hann færði rök að því að lög og
reglugerðir hefðu ekki gildi á ís-
landi nema þær væru á íslensku. Að
sögn Ai'a Páls er þetta merkileg nið-
urstaða ekki síst í ljósi þeirrar um-
ræðu sem farið hefur fram um þýð-
ingu á tilskipunum og reglugerðum
frá Evrópusambandinu. „Menn hafa
nokkuð velt því íyrir sér hvort nauð-
synlegt væri að þýða þessa texta en
það er vissulega afar kostnaðar-
samt. Að sögn Sigurðar taka þessar
reglur hins vegar ekki gildi hér á
landi fyrr en þær hafa verið þýddar
á íslensku; ef maður brýtur reglu-
gerð sem er bara á erlendu máli þá
er ekki hægt að refsa manni fyrir
það vegna þess að viðkomandi gæti
hugsanlega ekki skilið málið sem
reglugerðin væri skráð á.“
Ástráður Eysteinsson flutti er-
indi sem hann kallaði Þýðingar,
menntun og orðabúskapur og fjall-
aði á almennan hátt um menningar-
ástand. Ástráður talaði meðal ann-
ars um þá gagnrýni á íslensk
stjórnvöld að þau hafi ekki markað
neina ákveðna stefnu í menningar-
málum. Ástráður rökstuddi það
hins vegar að íslensk málstefna sé
undantekning frá þessu og stjórn-
völd styðji raunverulega leynt og
ljóst þá opinberu íslensku mál-
stefnu sem í gildi er, sem sé að
varðveita og efla tunguna, og þeir
sýni það meðal annars með rekstri
stofnana eins og íslenskri málstöð
og Islenskri málnefnd.
Ástráður lagði líka almennan
fræðilegan grunn undir það að
þjóðin þurfi ekki að skammast okk-
ar fyrir hina íslensku málstefnu og
segist Ari Páll ánægður með það.
„Ástráður færði rök fyrir því að
þessi málstefna sneri fyrst og
fremst að manneskjunni, sú við-
leitni að finna íslensk orð í stað er-
lendra auðveldi Islendingum að
skilja umhverfi sitt, glíman við orð
og hugtök auðveldi okkur að skilja
heiminn. Þessi stefna er þvi ekki
þjóðremba heldur tæki sem við
beitum til þess að auðvelda okkur
að skilja hlutina."
Kristján Árnason bókmennta-
fræðingur hélt að síðustu erindi um
þýðingarfræði og þýðingarlist þar
sem hann lagði mat á hlut listarinn-
ar annars vegar og fræðanna hins
vegar í þýðingarstarfinu.
Netið hentar Jónasi vel
Vefsíðan um Jónas Hallgrímsson
er á margmiðlunarformi og hefur
verið þróuð af starfsfólki i háskóla-
bókasafninu í Wisconsin í samvinnu
við Richard N. Ringler. Síðan skipt-
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 37
ist í sex kafla. Á henni er að finna
þýðingar á 44 ljóðum eftir Jónas
ásamt frumtextum og miklu efni um
hvert ljóðanna. Þar eru einnig
myndir af handritum skáldsins. Þá
er hægt að hlusta á upplestur á
nokkrum ljóðum á íslensku og
ensku, heyra önnur sungin og sjá
myndir sem tengjast efni kvæð-
anna. Einnig eru á vefsíðunni ensk-
ar þýðingar á nokkrum verkum
Jónasar í óbundnu máli, bæði smá-
sögum og ritverkum um náttúru Is-
lands. Ringler hefur ritað skýringar
við verkin og einnig skrifað ítarlega
ritgerð um líf og starf Jónasar og
tengsl verka hans við bókmennta-
strauma í samtíð hans og hvaða
áhrif þau höfðu á sjálfstæðisbaráttu
íslendinga. Ringler hefur þegar
þýtt alls 150 kvæði og allmörg rit-
verk Jónasar í óbundnu máli og
vinnur að undirbúningi á útgáfu
þeirra á næstu árum.
Ringler segist lengi hafa haft
áhuga á JónasL
„Eg kom til Islands í fyrsta skipti
ái'ið 1964 og var þá á Hólum í
Hjaltadal. Kona skólameistarans
þar hét Ástríður Sigurmundardóttir
hafði mikinn áhuga á ljóðum og las
Jónas fyrir mig í fýrsta skipti. Ég
skildi ekki mikið en síðan hef ég
verið að lesa Jónas. Fyrir sex eða
sjö árum ákvað ég svo að reyna að
þýða ljóðin hans á ensku. Ég reyndi
mai'gar aðferðir þar til ég varð loks
ánægður. Ég bar þýðingarnar undir
Sverri Hólmarsson þýðanda og
hann var ánægður með þetta og
hvatti mig til að halda áfram á sömu
braut. Síðan hef ég verið að fást við
að þýða og skrifa skýringargreinar
við ljóðin. Upphaflega átti þetta
bara að vera bók en fyrir nákvæm-
lega einu ári stakk bókasafnið við
háskólann minn upp á því að við
settum þetta á netið líka. Þeim þótti
netið henta vel til að kynna Jónas
vegna þess að hann var ekki aðeins
skáld heldur einnig vísindamaður og
gerði myndir af Islandi og svo fram-
vegis.“
Ringler segist ekki í nokkrum
vafa um að Jónas eigi erindi út í
heim. „Hann á heima á meðal mestu
skálda heimsins. Hann er eins góður
og höfuðskáld Englendinga eða
Þjóðverja frá þessum tíma.
Ég hugsa að útlendingar eigi
fyi'st og fremst eftir að hafa áhuga á
persónulegum og innhverfum kveð-
skap Jónasar frá síðari árum ævi
hans, frekar en ættjarðarljóðunum.
í þessum innhverfu ljóðum tjáir
hann tilfinningar sínar, oftsinnis
mjög blendnar tilfinningar, á beinni
hátt en var venjulegt á þessu tíma-
bili. Og þessi ljóð eiga að mínu mati
erindi við nútímamenn hvar sem er í
heiminum."
Ringler segist ekki geta líkt
Jónasi við neitt eitt erlent skáld frá
rómantíska tímanum. „Hann er
kannski frekar eins og sambland af
mörgum skáldum, svo sem eins og
Robert Burns, William Cooper og
William Wordsworth. Hann gæti
verið blendingur af þessum ensku
skáldum en svo myndi höfundur
Bjólfskviðu hafa skilið bragfræði
Jónasar; það er því nánast ómögu-
legt að negla hann niður. Ég myndi
til dæmis ekki nota orðið rómantísk-
ur um Jónas því það kveikir svo
margar rangar hugmyndir um
hann; auðvitað má finna rómantíska
kafla í honum en þegar allt kemur
til alls er hann alls ekki dæmigerður
rómantíker."
Margar stofnanir og einstakling-
ar á íslandi og erlendis hafa lagt til
það efni sem er að finna á vefsíðunni
til þýðinga Ringlers. Má þar nefna
Landsbókasafnið, Stofnun Árna
Magnússonar, Ríkisútvarpið og
Þjóðminjasafnið; upplesarana Ant-
on Helga Jónsson, Þorleif Hauks-
son, Silju Aðalsteinsdóttur og Val-
gerði Benediktsdóttur. Listamenn
og ljósmyndarar hafa veitt heimild
til birtingar á verkum sínum.
Vefsíða Jónasar Hallgrímssonar
heitir Jónas Hallgi-ímsson: Selected
Poetry and Prose og vefslóð hennar
er: http://www.library.wisc.edu/et-
ext/Jonas/
Gísli Jónsson hlaut Verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra afhendir Sigurði Líndal og Sverri Kristinssyni, forsvarsmönnum Hins
íslenska bókmenntafélags, viðurkenningu. Sigmundur Ernir Rúnarsson fylgist með.
Veraldarslys ef ís-
lensk tunga týnist
Akureyri. Morgunblaðið
GISLI Jónsson hlaut Verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar sem veitt
voru við hátíðlega athöfn á sal
Hóla, húss Menntaskólans á Akur-
eyri, á Degi íslenskrar tungu sem
lialdinn var í annað sinn síðastlið-
inn sunnudag, en þann dag voru
190 ár liðin frá fæðingu skáldsins
og náttúrufræðingsins Jónasar
Hallgrímssonar. Hið íslenska bók-
menntafélag fékk einnig viður-
kenningu.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra minntist m.a. á það í
ávarpi sínu að Degi íslenskrar
tungu væri ekki síst ætlað að
minna okkur á hvað það væri að
vera íslendingur og ræddi hann
um hversu mikilvægt væri að
leggja rækt við móðurmálið, efla
og styrkja það sem þjóðlegt er.
Lifandi goðsögn
Sigmundur Ernir Rúnarsson
kynnir á samkomunni sagði Gísla
Jónsson að góðu kunnan og hann
hefði í nær hálfa öld miðlað lands-
mönnum þekkingu sinni, þúsundir
manna litu til Gísla sem Iifandi
goðsagnar.
Hann fæddist á Hofi í Svarfað-
ardal 15. september 1925, lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1946 og cand.mag
prófi frá norrænudeild Háskóla ís-
lands 1953 og prófi í uppeldis- og
kennslufræði sama ár. Gísli kenndi
íslensku við Menntaskólann á
Akureyri frá 1951 til 1987. Eftir
hann liggur fjöldi ritverka og þá
hefur hann ritað pistla um íslenskt
mál í Morgunblaðið frá árinu
1979. „Án Gísla Jónssonar væri ís-
lensk tunga fátækari. Hann er vel
að Verðlaunum Jónasar Hall-
grímssonar kominn," sagði Sig-
mundur Ernir.
Þakkaði Gísli góðvild og rausn
þá sem sér væri sýnd með því að
velja sig sem fulltrúa þeirra fjöl-
mörgu er legðu rækt við móður-
mál sitt, íslenskuna, sem ætti um-
fram allt að vera móttækilegt fyrir
nýjungum, orðmörg og fjölbreyti-
leg, „að geta tekið við nýjum hug-
myndum og hugsunum á hverjum
tíma,“ eins og hann orðaði það.
Nefndi hann að það yrði mikið
veraldarslys ef íslensk tunga
myndi týnast og því mætti líkja við
að fara með jarðýtu á Colosseuin.
Morgunblaðið/Kristján
GISLI Jónsson hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar sem veitt voru á
Degi íslenskrar tungu.
Úr römmustu forneskju
Minntist Gísli með hlýhug fólks-
ins heima á Hofi í Svarfaðardal,
þar sem hann lærði íslensku við
móðurkné, sitthvað hafi sér þótt
vera þar úr römmustu forneskju.
Ömmur og langömmur, sem hon-
um þótti á stundum vera handan
siðaskipta hefðu rætt við sig í
orðskviðum og ráðgátum sem
mjög reyndu á barnshugann. Litla
gula hænan var aftur á móti úti í
hænsnakofa. Þá nefndi Gísli þá
gæfu sína að hafa ungur komist til
náms við Menntaskólann á Akur-
eyri þar sem góðir kennarar voru
við störf. „Það er líka óvenjuleg
gæfa að hafa fengið að kenna gáf-
uðum, velviljuðum og námfúsum
unglingum í áratugi, fólki sem
margt hefur haldið við mig ótrú-
legri tryggð," sagði Gísli og færði
Morgunblaðinu einnig þakkir „fyr-
ir að umbera sig frá árinu 1979“
og þeim mikla manngrúa sem haft
liefði við sig samband vegna pistla
sinna og þannig haldið í þeim lífi.
Amtsbókasafnið á Akureyri þar
sem Gísli hefur löngum haft vist
og „hjartarýmið er meira en hús-
rýrnið" fékk einnig hlýjar kveðjur
Gísla. Þá þakkaði hann sérstak-
lega þá nærgætni og tillitsemi sem
sér væri sýnd ineð því að afhenda
verðlaunin í Menntaskólanum á
Akureyri.
Hið íslenska bókmennta-
félag fékk viðurkenningu
Framkvæmdanefnd Dags ís-
lenskrar tungu veitti einnig Hinu
íslenska bókmenntafélagi viður-
kenningu, en félagið var stofnað
árið 1816 og hefur gefið út tíma-
ritið Skími, elsta tímarit á Norð-
urlöndum frá árinu 1827. Sigurður
Líndal forseti Hins íslenska bók-
menntafélags og Sverrir Kristins-
son framkvæmdasfióri tóku við
viðurkenningunni. Gerði Sigurður
grein fyrir útgáfustarfsemi á veg-
um félagsins, en á öðrum áratug
síðustu aldar þegar félagið var
stofnað hefði ekki verið glæsilegt
um að litast. Þeir sem að félaginu
stóðu hefðu átt sinn þátt í endur-
reisn tungumálsins.
Á samkomunni kynnti Valdemai'
Gunnarsson menntaskólakennari
upplestrarkeppni grunnskólanna
sem nú er að hefjast og færði
Birni Bjarnasyni myndband sem
gert hefur verið af því tilefni og
Tjarnarkvartettinn úr Svarfaðar-
dal söng nokkur lög, m.a. við ljóð
Jóuasar Hallgrímssonar og Davíðs I
Stefánssonar.