Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
STUTT athöfn var á skrifstofu biskups í gærmorgun er Karl Sigurbjörnsson tók þar við
lyklavöldum. Eitt af fyrstu verkum Karls á nýrri skrifstofu sinni á Biskupsstofu var að
svara símtali sem reyndist vera til fráfarandi biskups, Ólafs Skúlasonar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BISKUPI Islands, Karli Sigtirbjörnssyni, var vísað til sérstaks biskupssætis í Dómkirkjunni
á nýársdag. Athöfnin er nýmæli og var tekin upp í kjölfar þess að biskupsvígsla fór fram í
Hallgrímskirkju. Á myndinni eru einnig Hjalti Guðmundsson og Jakob Hjálmarsson, dóm-
kirkjuprestar, og Guðmundur Þorsteinsson prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Karl Sigurbjörnsson tekur við lyklavöldum biskupsembættisins
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÓLAFUR Skúlason, fráfarandi biskup, kemur til aftansöngs í Bústaðakirkju á gamlárskvöld, þar sem hann
messaði ásamt sr. Pálma Matthíassyni og sr. Skúla Sigurði Ólafssyni, syni sínum. Ebbu Sigurðardóttur, eig-
inkonu Ólafs, ber við hann á myndinni.
S
Askorun
að taka
við nýju
starfí
KARL Sigurbjörnsson tók við
lyklavöldum á Biskupsstofu við at-
höfn þar í gærmorgun. Ólafur
Skúlason afhenti Karli þá lykla að
kirkjuhúsinu við Laugaveg og
embættiskirkju biskupsins, Dóm-
kirkjunni, að viðstöddum eiginkon-
um þeirra og nokkrum starfs-
mönnum embættisins. Að því
loknu heilsaði Karl upp á nýtt
samstarfsfólk sitt á Biskupsstofu.
Karl Sigurbjörnsson sagðist, í
viðtali við Morgunblaðið, vera eft-
irvæntingarfullur við upphaf nýs
árs. Þótt það fylgdi því ákveðinn
söknuður að skilja við preststarfið,
sem hefði verið sér mjög ánægju-
legt, hlakkaði hann til að takast á
við ný verkefni. Hann væri að
vissu leyti kunnugur biskupsemb-
ættinu en það væri alltaf ákveðin
áskorun að takast á við nýtt starf
og hann fyndi óneitanlega fyrir
þeirri ábyrgð sem því fylgdi.
Sem yfirmaður þjóðkirkjunnar
sagðist hann hafa í hyggju að
leggja áherslu á endurnýjun innra
lífs kirkjunnar, bæði í bæna- og
trúariðkunum, sem sé ákaflega
brýnt, sérstaklega á þessum miklu
geijunartímum. Einnig hygðist
hann leggja mikla áherslu á að
kirkjan efidi líknarþjónustu sína
og hjálpaði þeim sem minna mega
sín.
Aðspurður hvernig hann hygðist
standa að þessum breytingum,
sagði Karl að það þyrfti að laða
fólk til samstarfs, það gengi ekki
að skipa fyrir til slíkra
starfa. Ólafur Skúlason sagði við
sama tækifæri að nýja árið legðist
ágætlega í sig. Áramótin hefðu
verið þeim hjónum afskaplega
ánægjuleg. Hann hefði messað
ásamt sr. Skúla Sigurði Ólafssyni,
syni sínum, og sr. Pálma Matthfas-
syni í Bústaðakirkju á gamlársdag.
Athöfnin hefði verið svo vel sótt að
það hefði þurft að opna á milli sala
og það hefði glatt sig að sjá þar
mörg kunnugleg andlit.
Á nýársdag hefði hann sfðan
verið f biskupamessu í Dómkirkj-
unni og eftir það á Bessastöðum.
Þá hefði fjöldi góðra vina sótt þau
hjónin heim að kveldi nýársdags.
Gott fólk hefði þvf borið þau á
örmum sér.
Ólafur sagðist líta björtum aug-
um fram á veginn þótt hann vissi
ekki enn hvað tæki við. Fyrir lægi
að fóta sig og finna sér farveg.
Hann væri við góða heilsu og vildi
nýta starfskrafta sína þótt hann
gerði sér grein fyrir nauðsyn þess
að stíga til hliðar nú þegar nýr
biskup hefði tekið við embætti.
Fasteignaverð á
höfuðborgarsvæði
Verð- |
lækkun
undir
lok
ársins
VERÐ á íbúðarhúsnæði á höf-
uðborgarsvæðinu virðist hafa
lækkað nokkuð í lok síðasta
árs, samkvæmt upplýsingum
frá Fasteignamati ríkisins en
annars var fasteignaverð
nokkuð stöðugt á síðasta ári á
höfuðborgarsvæðinu.
í nýjum hagvísum Þjóð-
hagsstofnunar kemur fram að
vísitala raunverðs íbúðarhús-
næðis á höfuðborgarsvæðinu
hafi lækkað töluvert milli
október og nóvember. Að
sögn Snorra Gunnarssonar
hjá Fasteignamati ríkisins var
þarna um að ræða bráða-
birgðatölur sem byggðust á
fáum kaupsamningum og eftir
því sem fleiri samningar
komu inn hafi meðalverðið
hækkað. Hins vegar virðist
sem fasteignaverðið hafi
lækkað eitthvað milli þessara
mánaða.
Fermetraverð að jafnaði
tæplega 72 þúsund krónur í
nóvembermánuði
Að sögn Snorra var meðal- )
verð á fermetra í fjöbýlishús-
um á höfuðborgarsvæðinu um
72.600 krónur í september, 74
þúsund krónur í október, en
samkvæmt þeim bráðabirgða-
tölum sem hagvísamir byggð-
ust á var verðið 70.388 í nóv-
ember.
Snorri sagði að þær upplýs-
ingar sem nú lægju fyrir um
fasteignakaup í nóvember
bentu til þess að fermetra-
verðið hafi verið tæplega 72
þúsund krónur að jafnaði í
þeim mánuði þannig að verðið
virtist hafa lækkað eitthvað
milli mánaða en ekki eins mik-
ið og fyrstu tölur bentu til.
Snorri sagði að af þeim
kaupsamningum, sem gerðir
hefðu verið í desember og
lægju nú fyrir, mætti ráða að
fermetraverðið hafi verið
rúmar 72 þúsund krónur en
þær tölur væru alls ekki end-
anlegar.
Tollgæslan í Keflavík lagði hald á meira magn af e-töflum og LSD í fyrra en nokkru sinni
Talið að fjöldi „burðar-
dýra“ sleppi í gegn með efni
LAGT var hald á mun meira af e-töflum, LSD,
marijuana, kókaíni og ýmsum lyfjum, svo sem
sterum og megrunarlyfjum, á Keflavíkurflugvelli
á síðasta ári en fyrri ár. Alls voru 24 handteknir
og/eða kærðir vegna ólöglegra efna, þar sem þeir
voru með áhöld til neyslu eða af öðrum orsökum.
Fjórir erlendir ríkisborgarar voru með stóran
hluta þeirra efna sem lagt var hald á. í frétt frá
Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli segir að ætla
megi að fjöldi burðardýra sleppi í gegn með efni
inn í landið.
í yfirliti Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli
fyrir síðasta ár kemur fram að lagt var hald á
2.026 e-töflur en aðeins tvær árið 1996 og 305 ár-
ið 1995.
Teknir voru 296 áætlaðir skammtar af LSD en
ekkert tvö næstu ár á undan, 174 grömm af kóka-
íni og 338 grömm af marijuana en ekkert árið
1996. Þá voru teknar af mönnum nærri 78 þús-
und pillur, þ.e. sterar eða megrunarlyf, en aðeins
tæp 11 þúsund stykki árið 1996. Um var að ræða
lyf sem háð eru samþykki Lyfjaeftirlits ríkisins
þar sem þau eru lyfseðilsskyld eða jafnvel bönn-
uð hérlendis.
ítarleg skoðun og röntgen-
myndatökur
íslendingar eru fjölmennastir þeirra sem teknir
voru eða 20, tveir eru Bretar og síðan einn
Hollendingur og einn Svíi. Þessi hópur er í ýms-
um starfsgreinum: tveir eru framkvæmdastjórar,
einn á eftirlaunum, einn námsmaður, einn iðnað-
armaður, þrír sjómenn, tveir veitingamenn og
síðan má finna verslunarmenn, verkamenn og
fatafellu.
í frétt Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli
kemur fram að hún haldi uppi virku eftirliti,
talsvert sé um að farþegar séu færðir til ítar-
legrar skoðunar í leitarklefum tollgæslunnar og
nokkur brögð séu að því að farþegar séu sendir
til röntgenmyndatöku vegna gruns um að þeir
hafi fíkniefni innvortis. Þá segir að svokölluð
burðardýr séu drjúg í innflutningi ólöglegra
efna og að fjórir erlendir smyglarar hafi verið
stöðvaðir á síðasta ári með stóran hluta þeirra
efna sem tekinn var.
„Ætla má að fjöldi burðardýra sleppi í gegn
með efnin inn í landið. Betur má ef duga skal.
Herða verður eftirlitið til muna ef betri árangur
á að nást í því að hafa hendur í hári þeirra sem
standa að innflutningnum (höfuðpaurunum),
smyglurunum og því ógæfulega ferli sem fylgir í
slóð fíkniefnanna," segir í yfirliti Tollgæslunnar
á Keflavíkurflugvelli.