Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Síversnandi ástand á sjúkrahúsum vegna uppsagna unglækna Unglæknar telja lausn geta verið í sjónmáli UNGLÆKNAR telja ekki útilokað að lausn geti verið í sjónmáli í kjara- deilu þeirra, en undanfarna daga hafa verið ræddar tillögur frá stjómum sjúkrahúsanna um breytta vinnutil- högun sem unglæknar telja að geti orðið grannur að lausn kjaradeilunn- ar. Pélagsfundur í Félagi ungra lækna í gær taldi sig hins vegar ekki geta gengið að tiilögunum óbreyttum að svo stöddu, en vildi eindregið að viðræðum yrði haldið áfram. Unglæknar munu skýra fjármálaráð- herra frá afstöðu sinni til málsins ^j^iæstkomandi mánudag. Fjallað var um tillögumar að breyttri vinnutilhögun unglækna á fé- lagsfundi í Félagi ungra lækna í gær, en að sögn Birgis Jóhannessonar, eins talsmanna unglækna, var að framkvæði framkvæmdastjóra sjúkrahúsanna og lækningaforstjóra farið í viðræður um vinnutilhögun þar sem tillit yrði tekið t.d. til írágangs á vöktum og ritun læknabréfa sem venjulega hefur fallið utan venjulegs vinnutíma unglækna og ekki verið „Það komu upp ýmis atriði sem við höfum verið að reyna að fá í gegn og berjast fyrir í mörg ár, þannig að það eru nú komin upp á borðið atriði sem við teljum geta orðið grandvöll fyrir lausn deilunnar. Þau atriði sem borin vora upp á fundinum vora hins vegar ekki talin uppfylla það sem þarf til að unglæknar komi til starfa aftur en era þó talin mjög góður grundvöllur til áframhaldandi viðræðna," sagði Birgir. Spurning um neyðarástand Uppsagnii- unglækna hafa haft í för með sér aukið álag á sérfræðinga sjúkrahúsanna sem þurft hafa að ganga í störf unglæknanna. Læknar á lyflæknisdeild og skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur áttu í gær fund með stjórnendum lækninga- sviðs sjúkrahússins og foru lækn- arnir fram á að ástandið á deildun- um yrði skilgreint. Stefán Matthías- son, sérfræðingur á skurðdeildinni, sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórnendur lækningasviðsins hefðu ekki viljað fallast á að orðið neyðar- ástand yrði notað yfir ástandið á deildinni. „Þetta er spuming um keisarans skegg hvaða orðalag er notað, en ástandið á deildinni er mjög slæmt. Við stöndum frammi fyrir því að ef þessi deila verður ekki leyst núna um helgina, verðum við að fara að taka ákvörðun um það hvað við geram hér. Við getum ekki bæði gengið vaktir og sinnt slösuðum og bráða- sjúkum og eins líka haldið uppi dag- legri starfsemi eins og t.d. skurðað- gerðum vegna krabbameina og alvar- legra æðasjúkdóma." Lækningaforstjórar RQdsspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur sendu í gær- kvöldi frá sér fréttatílkynningu þar sem segir að mjög alvarlegt ástand hafi skapast þar sem unglæknar hafi ekki verið að störfum við sjúkrahúsin í rúmar tvær vikur og þau geti ekki sinnt því hlutverki að öllu leyti sem þeim ber. Þannig geti sjúklingar sem bíða aðgerðar ekki vænst þess að komast í aðgerð að óbreyttu ástandi, en áfram verði unnið að því að fá að- stoðarlækna til starfa. A suðurpólinn á nýárskvöld ÍSLENSKU suðurskautsfararnir komu á áfangastað eftir 1.086 kílómetra göngu á nýárskvöld. Skeyti barst frá Argos-sendi þeirra rétt eftir klukkan níu um kvöldið þar sem fram komu hnit suðurskautsins og merki sem táknaði að þeir væru komnir á leiðarenda. Vegna veðurs tefst flugferð þeirra frá pólnum til bækistöðvar- innar Patriot Hills, þaðan sem þeir hófu gönguna. Þaðan verður flogið til Punta Arenas í Chile og loks heim til Islands. A myndinni eru Suðurskautsfararnir Ólafur Örn Haraldsson, Haraldur Örn Ólafs- son og Ingþór Bjarnason við upp- haf ferðarinnar til suðurskautsins fyrir tæpum tveimur mánuðum. ■ Lokatakmarkinu náð/38 Talið að gáshnall hafí rekið á land Djúpavogi. Morgunblaðið. TVEIR hvalir fundust reknir vestan við Kálk þar sem er mikið Ifeandflæmi úti á Búlandsnesi við Djúpavog. Stærri hvalurinn er um 7,5 metrar og nýrekinn. Hann er með smátrýni, tannlaus og með sporðblöðku með skarði f miðju. Heimamönnum sýnist að honum svipi mjög til gáshnalls eins og honum er lýst í bók Sig- urðar Ægissonar, Islenskir hvalir fyrr og nú. Þetta hefur þó ekki verið staðfest af sérfr-æðingum. Afar óvenjulegt er að slíka skepnu reki á land við ísland. Sáttafundir eftir helgi BOÐAÐ hefur verið til næsta sátta- fundar í deilu vélstjóra og útvegs- manna næstkomandi mánudag 5. janúar og til fundar í deilu Sjó- mannasambandsins, Farmanna- og fiskimannasambandsins og Alþýðu- sambands Vestfjarða, fyrir hönd sjómanna innan þess, við útvegs- menn 7. janúar. Úrslit í atkvæðagreiðslu meðal sjómanna í Sjómannasambandinu og yfirmanna í FFSI um boðun verk- falls 2. febrúar eiga að liggja fyrir næstkomandi fimmtudag þegar at- kvæði verða talin. Atkvæðagreiðsl- unni lýkur 5. janúar. Vélstjórafélag- ið ákvað skömmu fyrir jól að fresta áður boðuðu verkfalli til miðnættis 16. janúar og LIÚ svaraði með því að fresta boðun verkbanns á fiski- skipaflotanum til 20. janúar. ■ Talið stefna/10 Bankaeftirlitið athugar hlutabréfaviðskipti undir lok ársins Grunsemdir um sýndarviðskipti IVQög óvenjulegur hvalreki I bók Sigurðar segir að gás- hnallur sé af svínhvalaætt og að hann finnist um öll heimsins höf. Gáshnallur hafi aðeins sést tvisvar hér við land, árið 1979 og 1981 er hræ af slíkum hval fund- ust á Öræfafjöru. Sigurður, sem er prestur á Grenjaðarstað og mikill áhuga- maður um hvali, gat ekki setið kyrr þegar hann frétti af hvaln- um og lagði í gærkvöldi af stað til Djúpavogs til að skoða hann. Gísla Víkingssyni, líffræðingi á Hafrannsóknastofnun, þótti einnig þessi hvalreki merkilegur ''"*>g sagðist hafa mikinn áhuga á að rannsaka dýrið. Hann segir að gashnallur sé flækingsskepna við Island og óvenjulegt að rekast á hana hér. Hinn hvalurinn er um 2,5 metrar á lengd og er líklega höfrungur. Hann er nokkuð illa „ farinn og hefur sennilega Iegið í fjörunni í nokkurn tíma. VERÐBRÉFAÞING hefur tekið tíl athugunar viðskipti með hlutabréf nokkurra hlutafélaga síðustu daga ársins. Beinist athugunin einkum að því hvort ætlunin með þessum við- skiptum hafi verið að hafa áhrif á lokaverð ársins. Viðskipti í þeim til- gangi kunna að vera brot á ákvæði laga um verðbréfaviðskipti, þar sem lagt er bann við aðgerðum til að hafa óeðlileg eða óhæfileg áhrif á verð- myndun í verðbréfaviðskiptum. Slík viðskipti hafa stundum verið nefnd „sýndarviðskipti". Verðbréfaþing hef- ur þegar ákveðið að vísa nokkrum þessara mála til bankaeftirlits Seðla- bankans til frekari meðferðar. Verðbréfaþing vildi í gær ekki upp- lýsa nánar um þau mál sem era til at> hugunar. Athyglin á verðbréfamark- aði beinist hins vegar einkum að við- skiptum með hlutabréf fjögurra fé- laga skömmu íyrir lokun markaðar- ins fyrir hádegi á gamlársdag. Verð hlutabréfa Tæknivals hækkaði þá um tæp 20% kl. 11.58 í samtals tíu við- skiptum þegar fyrirtækið keypti sjálft eigin bréf fyrir 3,7 milljónir. Sérstök tilkynning var send Verð- bréfaþingi þar að lútandi. Rúnar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Tæknivals, sagði aðspurður um ástæður þessara kaupa að bréfin hefðu einfaldlega verið á hagstæðu gengi eða að meðaltali á genginu 5,95. Tilviljun hefði ráðið tímasetningu í þessum viðskiptum. Um svipað leyti eða um kl. 11.57- 11.59 urðu viðsldpti með hlutabréf í Samherja og var lokagengi þeirra 9,0 eða tæplega 6% hærra en deginum áður. Samtals námu viðskipti með bréf í félaginu um 6,5 milljónum. Verðbréfaþingi barst tilkynning skömmu síðar um að innherjar hefðu átt aðild að stærstum hluta þessara viðskipta. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, staðfesti í gær að innherja- viðskiptí hefðu átt sér stað með hluta- bréf í félaginu á gamlársdag. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um tilgang viðskiptanna þar sem hann þyrftí að afla sér betri upplýsinga þar að lút> andi. „Það hafa verið mikil viðskiptí með Samherjabréf að undanfómu. Þama áttu sér stað innherjaviðskipti og þau vora tílkynnt eins og vera ber. Eg veit því ekki betur en það hafi verið staðið eðlilega að þessum viðskiptum og vona að menn verði fljótir að af- greiða þetta mál,“ sagði Þorsteinn. Þá urðu viðskipti með bréf Bása- fells að fjárhæð 3,2 milljónir á Opna tilboðsmarkaðnum kl. 11.58 og hækkaði gengi þeirra úr 2,30 í 2,50 eða um tæp 9%. Loks vöktu athygli viðskiptí með hlutabréf í Islenskum sjávarafurðum undir lokin þennan dag, þar sem gengi þeirra hækkaði skyndilega úr 2,60 í 3,0, en tveimur mínútum síðar lækkaði það á ný í 2,55. Samtals námu viðskiptin tæpum 4 milljónum og leiddu til 2% hækkunar. Meðal verðbréfamiðlara era þær skoðanir uppi að þessi viðskipti geti talist óeðlileg og tílgangurinn með þeim hafi verið sá að sýna hærra gengi undir lok ársins en ella hefði orðið, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Samtals skiptu um hendur hluta- bréf fyrir um 229 milljónir króna á gamlársdag og hækkaði hlutabréfa- vísitala þingsins um 1,22%. Þyngst í þessum viðskiptum vegur sala Húsa- víkurkaupstaðar á bréfum í Fiskiðju- samlagi Húsavíkur fyrir 174 milljónir sem skráð var í viðskiptakerfi þings- ins skömmu fyrir lokun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.