Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Freyr Jónsson JÓN Svanþórsson (t.h.) notaði spilið og sprungugrindina á „albatrosinum" til að slaka matvælum niður í jökulsprungu þar sem þau verða geymd. Jeppamenn á suðurleið Morgunblaðið/Jón Svanþórsson FREYR Jónsson skaut upp flugeldum í miðnætursólinni við Wasa-stöðina á gamlárskvöld. Orðuveitingar á nýársdag JEPPAMENNIRNIR Freyr Jóns- son og Jón Svanþórsson lögðu af stað frá sænsku bækistöðinni Wasa á nýársdag áleiðis til Svea stöðvarinnar á brún hásléttu Suðurskautslandsins. Leiðangursmenn, sem komnir voru til Svea á undan þeim sem voru í Wasa, lentu í vandræðum með ísborinn og urðu að hætta störfum. Þurftu jeppamennimir að hraða för sinni því þeir eru vel búnir verkfæram og munu aðstoða við viðgerð borsins. Ann- ar Toyota Land Cruiser jeppinn er nú hlaðinn loftnetum og orðinn all skrautlegur ásýndum. Hann hefur fengið viðurnefnið Albat- rosinn, vegna þess hve „vænghaf- ið“ er mikið. Mælingar með ísrad- ar gengu brösuglega í byijun vegna truflana, en nú mun vera búið að komast fyrir þær. Dagana fyrir áramót var unnið að undirbúningi ferðarinnar til Svea. Lagfæra þurfti ibúðagám á sleða sem annar jeppinn dregur og hlaða kerru og bíla vistum og búnaði. Þá var búnaður til gervihnattafjarskipta settur á íbúðagáminn. Matur sem geyma á í Wasa var settur í frysti í jök- ulsprungu nálægt bækistöðinni. Undirbúningi lauk á gamlársdag. Hveravallastemmning A gamlárskvöld var glatt á hjalla. A borðum var humar í forrétt, nautafilé í aðalrétt og eftirréttur var kahluakaka, kaffi og koníak. „Stemningin var góð og ekkert ósvipuð venjulegri Hveravallaáramótastemmn- ingu,“ segir í bréfi frá þeim fé- lögum. „Um miðnætti var farið út og skotið upp gömlum neyð- arrakettum og kveikt á gömlum neyðarblysum. Það er svolítið skrítið að skjóta áramótarakett- um í flennibirtu og sólskini. Við hringdum heim til okkar heitt- elskuðu og Freyr hringdi til vina sinna sem voru að halda upp á áramótin á Hveravöllum. Þeir voru ekki lítið hissa á að heyra frá Suðurskautslandinu." A nýársdag sendu félagarnir heillaóskaskeyti til göngumann- anna þriggja í Amundsen-Scott stöðina á Suðurpólnum. Þeir biðja fyrir bestu áramótakveðjur heim til íslands. Nánari fréttir af jeppamönnum er að finna á heimasíðu þeirra. Slóðin er http://www.mbl.is/sudurskaut/, þar eru bæði dagbók þeirra fé- laga og ýmsar upplýsingar. Á FUNDI ríkisráðs á Bessastöðum 31. desember var sr. Karli Sigur- björnssyni veitt embætti biskups íslands frá 1. janúar 1998. Þá stað- festi forseti íslands fjárlög fyrir árið 1Q98 á fundinum og lög um breyu..gu á skaðabótalögum nr. 50 frá 19. maí 1993. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, sæmdi eftirfarandi íslend- inga heiðursmerkjum hinnar ís- lensku fálkaorðu við hátíðlega at- höfn á Bessastöðum á nýársdag: Önnu Einarsdóttur, verslunar- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyr- ir kynningu á íslenskum bókum erlendis; dr. Önnu Soffíu Hauks- dóttur, prófessor, Reykjavík, ridd- arakrossi fyrir vísindastörf á sviði rafmagnsverkfræði; Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóra, Reykjavík, riddarkrossi fyrir kvik- myndagerð; Halldór Baldursson, lækni, Reykjavík, riddarakrossi fyr- ir læknisstörf í friðargæslusveitum í fyrrverandi Júgóslavíu; Halldór Þórðarson, skipstjóra, Keflavík, riddarakrossi fyrir sjósókn; Harald Sigurðsson, fv. bankafulltrúa, Ak- ureyri, riddarakrossi fyrir störf að félags- og menningarmálum; Helgu Kress, prófessor, Reykjavík, ridd- arakrossi fyrir fræðistörf á sviði íslenskra bókmennta; dr. Ingvar Birgi Friðleifsson, forstöðumann jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík, riddarakrossi fyrir fræðslustörf í þágu þróunar- landa, Jón Bogason, rannsókna- mann, Kópavogi, riddarakrossi fyrir rannsóknir á lífríki hafsins; Ómar Ragnarsson, fréttamann, Reykja- vík, riddarakrossi fyrir þáttagerð í sjónvarpi um land og náttúru þess; Sigríði Guðmundsdóttur, hjúkrun- arfræðing, Reykjavík, riddarakrossi fyrir hjúkrunar- og hjálparstörf í þróunarlöndum, og Vigdísi Gríms- dóttur, rithöfund, Reykjavík, ridd- arakrossi fyrir ritstörf. SIGMUND SIGMUND Jóhannsson er í áramótafríi og verður teikning eftir hann næst á þessari síðu á þriðjudag. Áramótaheitið að hætta að reykja? Með viljann að vopni tekst það Ingileif Ólafsdóttir EFLAUST tóku margir þá ákvörð- un að drepa í síð- ustu sígarettunni á gaml- árskvöld. Ingileif Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, segir að það reynist fólki lítill vandi að hætta að reykja ef vilji sé fyrir hendi. „Nikótín er sterkt fíkniefni en ef fólk hefur viljann að vopni getur það hætt að reykja án mikilla erfiðleika. Reykingamaður sem er að daðra við sígarettur um leið og hann er að hætta er að plata sjálfan sig.“ - Hvað meinarðu með að daðra við sígarettur? „Það er ekki hægt að hætta að reykja en halda áfram að vera tækifærisreykingamaður. Hvern einasta reykingamann dreymir um að verða að tækifræisreyk- ingamanni. En einn vindill á dag verður að tveimur með tímanum og langflestir reykingamenn sem byijuðu á hálfum pakka á dag fyrir tuttugu árum eru komnir í einn og hálfan pakka á dag núna.“ Ingileif bendir á að þegar fólk segi að það reyki ekki daglega en reyki svo einn vindil íjórum sinnum í viku, sé það engan að plata nema sjálft sig. „Jafnvel fólk sem reykir bara um helgar er háð reykingum en það hefur bara öðruvísi mynstur." Hún seg- ir að fólk sem komi á námskeið sé í mörgum tilfellum ekki stór- reykingafólk heldur til dæmis að reyna að losa sig við fjórar sígar- ettur á dag. - Hversvegna er erfitt að venja sig af svo fáum sígarettum? „Vegna þess að þessar fáu síg- arettur eru í raun kjarninn sem gerir fólk háð reykingum. Það er oft erfiðast að hætta að reykja t.d. morgunsígarettuna eða sígar- ettuna sem reykt er í bílnum á Ieið úr vinnu.“ - Hvað er erfiðast við að hætta að reykja? „Það er erfítt að hætta ef fólk er hálfvolgt í ákvörðuninni og það er til dæmis að fela reykingarnar fyrir sínum nánustu. Ætli fólk að hætta að reykja borgar sig að sleppa reykingum undir öllum kringumstæðum. Þetta á líka við ef fólk notar áfengi, fer í heim- sókn, er svangt og svo framveg- is. Daður við tóbak býður hætt- unni heim.“ Ef fólki er hált á svellinu eru ýmsir möguleikar í boði sem styðja við bakið á því. Ingileif segir að auk námskeiða séu í boði nikótínlyf sem slá á frá- hvarfseinkenni og sjálfshjálp- arbækur á við bók Allen Carr sem heitir Létta leiðin að hætta að reykja. - Hverjir sækja aðallega námskeið til að hætta að reykja? „Flestir hætta án þess að sækja námskeið. Þeir sem koma á nám- skeið eru á öllum aldri. Auk þess sem við hjá Krabbameinsfélaginu stöndum fyrir námskeiðum eru til dæmis reglulega haldin nám- skeið á Heilsuverndarstöðinni og nú hefur Heilsustofnunin í Hvera- gerði einnig tekið upp þá ný- breytni að bjóða fólki að koma til dvalar vilji það hætta að reykja. Þar er eftirspurnin margfalt meiri en forsvarsmenn Heilsustofnun- ► ingileif Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1954. Hún er hjúkrunarfræðingur og kenn- ari og starfar sem fræðslufull- trúi hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Eiginmaður hennar er Ágúst Ingi Jónsson og eiga þau tvö börn. arinnar áttu von á. Eftir því sem við komumst næst er þetta eina stofnunin í heimi sem býður fólki að koma til dvalar til að hætta að reykja.“ Ingileif talar um að reykinga- fólki, sem hættir að reykja, megi skipta í þrennt. „Fyrst koma þeir sem vilja hætta af fúsum og frjálsum vilja og eru ekki farnir að finna fyrir líkamlegum ein- kennum sem ýta á þá. Þessir ein- staklingar koma oft á námskeið. Næst koma þeir sem hafa reynt að hætta án árangurs en hafa fengið viðvaranir frá lungum, fót- um eða hjarta. Þeir leita gjarnan til Heilsustofnunarinnar í Hvera- gerði. Svo eru það þeir sem eru á Reykjalundi og verða að hætta reykingum. Þá snýst sú ákvörðun um líf eða dauða og enginn dvel- ur á lungnadeild Reykjalundar sem reykir.“ - Hvenær er algengast að fólk byrji aftur að reykja ef það hefur reynt að hætta? „Á fyrstu tveimur til þremur vikum springa flestir en fólk er síðan að falla eftir sex mánuði eða jafnvel ár. í raun þarf reyk- ingafólk alltaf að vera á verði.“ - Koma unglingar á nám- skeiðin hjá ykkur? „Unglingar eiga ekki samleið með fullorðnu fólki sem er að hætta að reykja og það hefur vantað valkost fyrir þá. Reyking- ar meðal unglinga hafa aukist og nú er unnið markvisst að því að koma á þjónustu fyrir þennan hóp. Á vegum Krabbameinsfé- lagsins er væntanlegur bæklingur fyrir heilsugæslu skóla og annar sem ætlaður er starfs- fólki félagsmiðstöðva. í þessum bæklingum er starfsfólki kennt að hjálpa unglingum að hætta að reykja." Ingileif segir að undanfarið hafi unglingar einnig komið ásamt foreldrum sínum í viðtöl hjá Krabbameinsfélaginu í þeim til- gangi að hætta að reykja. - A hvaða aldri eru þessir unglingar sem hafa komið í viðtöl til ykkar? „Þetta eru aðallega krakkar í áttunda, níunda og tíunda bekk.“ Auk þess segir Ingileif að hún hafi nokkrum sinnum verið kölluð til í skóla þar sem ellefu ára börn hafa verið að fíkta við reykingar. „En það eru undantekingar.“ Sérstök námskeið fyrir unglinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.