Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna á Irak UNDANFARIÐ hefur mikið verið rætt í íslenskum fjölmiðlum um það hlutverk sem Bandaríkin gegna með stuðningi sínum við viðskiptabann Samein- uðu þjóðanna á írak. Þessi stuðningur bygg- ist á yfirveguðu mati á öllum hliðum ástands- ins þar. Eftir að fjölþjóða- herinn hrakti heri Saddams Husseins út úr Kúveit árið 1991 samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þrjár ályktanir sem voru hluti þeirra vopnahlésskilmála sem Saddam Hussein verður að ganga að til fá viðskiptabanninu á Irak aflétt. í fyrsta lagi verður hann að gera grein fyrir afdrifum 600 Kúveitbúa sem saknað er eftir að þeim var rænt af heimilum sínum á meðan á hernámi íraka stóð. í öðru lagi verður hann að skila eða borga fyrir þær eignir Kúveitbúa sem íraski herinn stal eða eyði- lagði. í þriðja lagi verður hann að hætta framleiðslu gjöreyðingar- vopna - efna-, sýkla- og kjarnorku- vopna. Þegar þessi skilyrði hafa verið uppfyllt verður banni Samein- uðu þjóðanna við öllum útflutningi íraka og mestum hluta innflutnings þeirra aflétt (viðskiptabannið hefur aldrei náð til matvæla og lyfja). Eins og Rolf Ekeus, sænski stjóm- arerindrekinn sem fór fyrir eftirlits- hópi Sameinuðu þjóðanna þar til síðasta sumar, hefur sagt, var við því búist árið 1991 að þessi skil- yrði yrðu uppfyllt á hálfu ári og að þá yrði viðskiptabanninu af- létt. Það hefur enn ekki gerst. Saddam Hussein hefur ekki farið eftir þessum þrem ályktun- um. En hvers vegna ekki? í ályktununum felast sanngjarnar kröfur. Hver telur að ekki eigi að gera grein fyrir afdrifum þeirra Kúveitbúa sem saknað er? Og eignum þeirra? Hveijum finnst að írakar eigi að framleiða gjöreyðingarvopn, sér- staklega eftir að Saddam Hussein hefur notað eiturgas gegn sinum eigin þegnum - Kúrdum - og gert hrottalegar árásir á nágranna sína? Viðskiptabannið er enn í gildi af því að Saddam Hussein hefur valið að hafa það þannig. Hefði hann einfaldlega farið eftir ályktununum hefði viðskiptabanninu verið aflétt. I staðinn hefur einræðisherrann í írak vaiið að svelta þjóð sína, sem er herbragð til að bijóta upp sam- stöðu þeirra þjóða sem standa að viðskiptabanninu, frekar en að gefa neitt eftir af hernaðarmætti sínum. Af þessum sökum stendur samfé- lag þjóðanna frammi fyrir erfiðu vali. Hvernig er hægt að stöðva einræðisherra sem er reiðubúinn að nota sína eigin þjóð - jafnvel börn - sem gísla? Hvernig er hægt að Walter Douglas fá einræðisherra til að hætta að smíða vopn og hallir í staðinn fyrir að fæða þjóð sína? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að hann hefji annað stríð eða fremji þjóðarmorð? Það er þijá kosti að velja. í fyrsta lagi er hægt að fara í stríð til að bola honum frá völdum. En vald- beiting er aldrei vænlegasti kostur- inn. I öðru lagi er hægt að Iesa yfir honum um skyldur hans á al- þjóðavettvangi. Það er gagnsiaust. I þriðja lagi er hægt að beita við- skiptaþvingunum. Það er það sem Öryggisráðið hefur valið að gera. Viðskiptabannið á írak er enn í gildi vegna þess að Saddam Hussein hef- ur ákveðið að hlíta ekki skilyrðum Sameinuðu þjóðanna, segir Walter Douglas. Hann segir íraska einræðisherrann frekar hafa valið þann kost að svelta þjóð sína. Viðskiptabannið tryggir að Sadd- am Hussein liefji ekki nýtt stríð eða fremji fjöldamorð. Með viðskipta- banninu nást að sjálfsögðu ekki öll markmið meðlima Öryggisráðsins. En það kemur í veg fyrir fleiri dráp og meiri eyðileggingu sem hlytist af því ef Saddam Hussein fengi að smíða efna-, sýkla-, og kjarnorku- vopn. Þetta er sá kostur sem Sadd- am Hussein hefur neytt samfélag þjóðanna til að velja, þrátt fyrir þær hörmungar sem það leiðir yfir sak- lausa íraka, og það er vegna þessa sem Bandaríkin og aðrir 14 meðlim- ir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa hafnað öllum breytingum á viðskiptabanninu síðustu sjö árin. Höfundur er blaðafulltrúi bandaríska sendiráðsins í Keykjavík. Eru málefni aldraðra undir röngum hatti? í LOK aldarinnar standa málefni aldr- aðra á krossgötum. Annarsvegar blasir við stöðnun. Hinsvegar möguleikar á nýrri sókn. Það má líkja rekstri félagslegrar þjónustu fyrir aldraða við þekkt fyrirbæri í sveitum landsins. Það er smal- að af fjalli og dregið í dilka. Síðan eru þarfír aldraðra oft leystar með einhverskonar geymslum í útjöðrum þjóðfélgsins. Sem dæmi um þetta eru stór elliheimili, sérlög um málefni aldr- aðra, einangrun aldraðra eftir að stórfjölskyldan leið undir lok, sér félög fyrir aldraða, sér tegundir af félagslífi fyrir aldraða, sér stórhýsi fyrir aldraða og svo framvegis. All- ar þessar geymslur hafa í eðli sínu tilhneigingu til að einangra fullorð- ið fólk í þjóðfélaginu. Hver á sinn hátt ýta þessar geymslur fólki frek- FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR := ||| i' c \\ ÍT J Stórhöfða 17, við Guilinbrú, sínti 567 4844 ar út úr iðandi mann- lífi þjóðfélagsins en að laða það til virkrar þátttöku. Ef einhveijar skýr- ingar eru á þessum ósköpum er þeirra ef til vill að leita í arfleifð frá þeim tíma þegar einhvemveginn varð að uppfylla fmmþarfír fólks í upphafi ald- arinnar og á kreppu- tímanum áður en stríð- ið og peningamir komu og þjóðfélagið enda- stakkst og allt breyttist nema hugarfarið og haldið var áfram að leysa þjónustuþörf aldraðra með sömu lausnum og áður. En tíminn stendur ekki í stað og það er kannski tilviljun að næsta holskefla í málum aldraðra lendir á aldamótunum. Það sem er að ger- ast núna er að „velferðarþjóðfélög" margra Vesturlanda eru að hrynja eftir margra áratuga þróun. Nú eru þessi „velferðarþjóðfélög" að stokka upp. Og þá komast aldraðir meðal annars í þá stöðu að lenda oft í félagslegu tómarúmi. Atvinnu- leysi eykst. Hagvöxtur minnkar. Auðlindir ganga til þurrðar. En vegna góðra lífskjara og heilsu- gæslu lifír fólk lengur og betur og fleiri og fleiri aldraðir eiga 10-20 góð ár eftir verkalok. Þarna blasir við eitt stærsta félagslega verkefnið á nýrri öld. Það er mjög merkilegt og líklega „Velferðarþjóðfélög“ margra landa eru að hrynja, segir Hrafn Sæmundsson, eftir margra áratuga þróun. rannsóknarefni, hvað fáir hafa gef- ið þessari þróun gaum. Hinni fé- lagslegu og andlegu hlið málsins. Til dæmis skólakerfið. Og Háskóli íslands. Til að fyrirbyggja misskiln- ing þá yrði það síðasta verk að gagnrýna Háskólann. Háskólinn er sú stofnun í þjóðfélaginu sem ráða mun úrslitum um framtíð þessarar undarlega gefnu þjóðar sem af ein- hveijum ástæðum var dritað hér niður á norðurhvelið. Það væri hugsanlega verkefni stjórnenda Háskólans að fara aðeins í gegnum þennan þátt í háskólaumhverfinu. Hvaða vægi hefur til dæmis félags- legur og andlegur þáttur í námsefni heilbrigðisstéttanna? Hafa margir nemendur í félagsvísindadeid leitað á þessi mið til dæmis eftir ritgerðar- efni? Hafa viðskipta- og hagfræði- deildirnar kafað í þennan þátt efna- hagsþróunar? Og hafa háskóla- kennarar sinnt þessu verkefni í rannsóknarvinnu sinni? Nýir stjórn- endur Háskólans settu stefnuna á meira frelsi Háskólans bæði til að skilgreina og rannsaka og líka til að hafa skoðanir á þjóðmálum. En þjóðmál eru meira en kvótakerfi og Hrafn Sæmundsson Vald ráðherra yfir háskólun- um aukið I VIÐLESNU dag- blaði nokkru fyrir jól birtist þversíðufyrir- sögn á áberandi stað inni í blaðinu þar sem fullyrt var að vald menntamálaráðherra hefði verið minnkað við afgreiðslu nýju há- skólalaganna. í tilvís- un á forsíðu er þess einnig getið að vald menntamálaráðherra hafi verið minnkað með samþykkt lag- anna. Hvað er hæft í þessu? Staðreyndin er sú að þetta er þvætt- ingur. í gildandi há- skólalögum kemur skýrt fram að rektor er valinn af háskólanum án allra afskipta menntamálaráðherra. Grundvallarbreyting á stöðu háskólans Þegar Björn Bjarnason lagði há- skólafrumvarpið fyrir alþingi var hins vegar farið inn á allt aðra braut því þar sagði: „Menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt til- nefningu viðkomandi háskólaráðs eftir nánari ákvæðum í sérlögum hvers skóla. Skal staðan auglýst til umsóknar ... Rektor verður ekki leystur frá störfum án þess að það sé borið undir háskólaráð og hljóti samþykki meirihluta þess.“ Með öðrum orðum: Enginn getur orðið rektor nema menntamálaráð- herra samþykki viðkomandi. Rök meirihlutans fyrir þessum grund- vallarbreytingum eru bau að með því móti sem nú hefur verið ákveð- Efnahagsbandalagið. Auðvitað ætti Háskólinn að taka höndum saman í formlegu samstarfi við það fólk sem undanfarin ár hefur synt á móti straumnum og reynt að skapa nýja hugmyndafræði og ný viðhorf til ellinnar og efri áranna. Hér hefur verið drepið á nokkra þætti í málum aldraðra sem geta haft mótandi áhrif á þróunina. Þess- ir þættir geta vissulega haft áhrif en það verður þó ekki þetta sem ræður úrslitum heldur aldraðir sjálfir og ekki síður þeir aldurshóp- ar sem nú eru enn á vinnumarkaði en nálgast verkalokin. Þessir aðilar verða að taka til höndunum og ganga af fullum krafti inn í þá hugmyndafræði sem boðar við- horfsbreytingu og nýja sýn til elliár- anna. Þó viss þróun hafi orðið þarna svo sem með stofnun 45 félaga eldri borgara um land allt, þá þarf að endurskoða þann grunn sem þessi starfsemi stendur á. Þetta þarf að gerast í stjómum félaganna og hjá félögunum sjálfum og ekki síður hjá öllum hinum sem standa utan félaganna og eru enn á vinnumark- aði. Það þarf að verða viðhorfs- breyting hjá fullorðnu fólki sjálfu og allri þjóðinni. Fyrsta og nauðsynlegasta verk- efnið er að lækka aldursmörkin í félögum eldri borgara niður í 50-55 ár nú þegar. Síðan þarf að stuðla að því að í stjórnir félaganna setjist líka fólk sem enn er á vinnumark- aði - setja kvóta? Því þrátt fyrir mikið ágæti aldraðra frammá- manna í þjóðfélaginu sem veljast til forustu eftir að góðu og heilla- dijúgu ævistarfi lýkur, er ekki víst að þeir séu endilega allir tilbúnir að stokka upp spilin og ganga inn í nýja öld með nýjar og róttækar hugmyndir og ný vinnubrögð. Höfundur er fulltrúi á Félags- málastofnun Kópavogs. ið geti rektorinn orðið sjálfstæðari gagnvart starfsmönnum háskól- ans! Þessi rök eru út í hött því það sem mestu máli skiptir er það að rektor sé sjálfstæður gagnvart stjórnvöldum á hverjum tíma. Há- skóli íslands bað ekki um þá lagabreytingu sem hér um ræðir; for- ystumenn hans reyndu allt sem unnt var til þess að stöðva þessa atlögu að háskólanum. Öllum tilraunum þeirra var vísað á bug. Það eina sem eftir stendur af tilraunum til breytinga er það að tekið er fram að ráðherra geti ekki rekið rektor frá störfum tilefn- islaust! Þakka skyldi! Sjálfstæðir háskólar eru ein lykilforsenda þess, segir Svavar Gestsson, að okkur takist að halda í við aðrar þjóðir í þróun lífskjara framtíð- arinnar. Ráðherra tilnefnir tvo menn inn í háskólaráð Auk þessa að ráðherra fær með nýju lögunum heimild til þess að hafa áhrif á skipan rektors er opn- uð leið í lögunum til þess að ráð- herra geti tilnefnt menn inn í há- skólaráð viðkomandi háskóla. Öll- um tilraunum til að takmarka þessa heimild ráðherra við tiltekinn hóp manna var hafnað af meirihluta Sjálfstæðisflokksins og FRAM- SÓKNARFLOKKSINS sem er haft hér með hástöfum til að vekja at- hygli á því að Framsókn ber einnig fulla ábyrgð á þessari atlögu. Svör meirihlutans við þeirri gagnrýni sem hér er fram sett eru þessi: aðrir háskólar en háskóli Is- lands (til dæmis Háskólinn á Akur- eyri) uni þessu kerfi vel. Eini gagn- rýnisaðilinn sé Háskóli íslands. Það er rétt en það er engu að síður frá- leitt að láta athugasemdir Háskóla Islands, sem er óumdeilanlega móð- urskip háskólamenntunar á íslandi, sem vind um eyrun þjóta. Þessu þarf að breyta aftur til fyrra horfs Hvað er til ráða? Ég tel að við þessar aðstæður hljóti háskólarnir að verða sem fyrst að komast að niðurstöðu um það hvað þeir vilji hafa í sérlögum um skólana. Mín skoðun er sú að það eigi aftur að breyta til fyrra horfs rektorskjöri í háskólunum, að minnsta kosti í Kennaraháskólanum og Háskóla íslands og að það eigi að takmarka vald ráðherra til tilnefningar á mönnum inn í háskólaráð við tiltek- inn hóp eftir eðli og gerð háskólans. Meirihluti stjórnarflokkanna undir forystu hins valdagíruga menntamálaráðherra vann háskóla- samfélaginu tjón fyrir áramótin; nú þarf að safna liði til að breyta há- skólalögunum á ný á næsta kjör- tímabili í þágu háskólanna og þar með í þágu betri lífskjara á íslandi því sjálfstæðir háskólar eru ein lyk- ilforsenda þess að okkur takist að halda í við aðrar þjóðir í þróun lífs- kjara framtíðarinnar. Höfundur er fyrrverandi menntamálaráðherra. Svavar Gestsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.