Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 67 FÓLK í FRÉTTUM Skrifar leikrit fyrir eiginkonuna WOODY Allen ku vera að skrifa leikrit með hlutverk fyrir hina nýbökuðu eiginkonu sína, Soon- Yi, sérstaklega í huga. Allen vill ekkert láta uppi um nafn leikritsins eða söguþráð en það mun gerast í New York og að sögn JVew York Post hefur Soon- Yi sótt leiklistartíma síðan í október. Sem kunnugt er gengu þau skötuhjú í það heilaga nú á dögunum en hin kóreska Soon-Yi var ættleidd af fyrrverandi eiginkonu Allens, Miu Farrow, og þáverandi eiginmanni hennar Andre Previn þegar hún var átta ára gömul. Allen hefur skrifað þrjú leikrit í fullri Iengd á hinum langa ferli sínum en hann er 62 ára gamall. I flestum myndum hans liafa kærustur eða WOODY Allen er að skrifa leikrit ineð eiginkonu sína, Soon-Yi, í huga. sambýliskonur hans farið með stór hlutverk og má þar nefna Diane Keaton, Miu Farrow og Louise Lasser sem var eiginkona Allens númer tvö. MYNDBÖND s A bak við tjöldin í Hollywood Leyndardómar Hollywood (Hollywood Confidential)_ N |> e n n ii in v n (I ★y2 Framleiðendur: James Herbert. Leikstjóri: Reynaldo Villalobos. Handritshöfundar: Anthony Henden Yerkovich. Kvikmyndataka: Reynaldo Villalobos. Tónlist: Mark Bonilla. Aðalhlutverk: Edward James Olmos, Ricky Aiello, Angela Alvarado, Christine Harnos, Charlize Theron. 88 mín. Bandaríkin. Cic Myndbönd 1997. Útgáfudagur: 16. desembcr. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. ÞESSI mynd segir frá hópi fólks sem fæst við að leysa þau mál í Hollywood sem aldrei er fjallað um í blöðunum. Sá sem hefur safnað þessum hópi saman er Stan Navarro, en nokkur ár eru liðin síðan hann sagði upp störfum hjá lögreglunni í Los Angeles. Hópurinn samanstendur af fólki sem passar hvergi inní hina umfangsmiklu Hollywood menningu, en flest hafa þau sitt sérsvið, eins og tölvur, eftirlit, valdbeiting o.fl. Það eru þrjú mál sem hópurinn fæst við í þessari mynd. Veigamesta málið snýst um virtan leikstjóra í Hollywood og unga ástkonu hans, sem vill ekki ljúka sambandinu við hann og er Stan því settur í málið. Hin tvö málin eru annars vegar um spilltan barþjón og hins vegar um handritshöfund sem hópurinn er fenginn til þess að rannsaka. Leyndardómar Hollywood er greinilega gerð sem upphafið að sjónvarpsmyndaflokki, sem snýst um þessa tólfmenninga og spillinguna sem viðgengst í Hollywood. Myndin reynir að draga upp einhverja mynd af öllum tólfmenningunum og endar með að gera hverja klisjukennda persónuna á fætur annarri. Það eru einstaka góð atriði í myndinni og er það hugvitsamlegri leikstjóm Reynaldo Villalobos að þakka, en hann sér einnig um kvikmyndatökunna. Leikararnir reyna sitt besta, en efniviðurinn er ekki nægilega góður til þess að þeir geti sýnt einhverja takta. Það getur ræst úr öllu þessu þegar líður á þáttaröðina og það eru margar áhugaverðar spurningar sem koma fram og er ekki svarað, en þar sem Leyndardómar Hollywood er gefin út sem sjálfstæð kvikmynd er ekki hægt annað en að mæla ekki með henni. DANSHUSIÐ Artun Vagnhöfða 11, sími 567 4090 og 898 4160, fax 567 4092 Dansleikur í kvöld laugardaginn 3. janúar Suðurnesjamenn leika fyrir dansi 3. janúar '98 kynna “La flores de la primavera,, Vor - sumartískusýningu’98 Hár: Salon Veh "j^' Förðun: Svavar Salon Veh Miðnætursýning Föstudag 9. og laugardag 10. janúar 1998 wmmmmmm m bnnog Sbr /7 elýúMmántii u e/ium.a. ,rBaAÍ>&kSltOp.“iÖHtfUA Waibcf^iÖKftuf JtoaMemu^fjamúiioUi ÍMUmuLScÁúfi VmUfUatutaióL Qap/ii KtJaHma SLíUtanmU JLMaiÍúlkaK JLjáibá Ó ioíettúa if’JI <4.<4 Vinsælasta danshljómsveit landsins: Hljómsveit Geirmundar Vahýssonar leikur fyrír dansi. HúsiO opnað kl. 19:00 lyrir matargesti. • Skemmtun helst kl. 21:30. Verð: Kr. 4500matur og skemmtun • Kr. 1800áskemmtun og dansleik. • Kr. 950 á dansleik. Glæsilegasta hlaðborð landsins: Fjöidi kjöt-. lisk,- grænmehs- og pastarétta. Aukþess úrvalaleltirréttum. HOTELgLAND Slmi 568-7111 - Fax 568-5018. • Miðasala opln daglega kl. 13-17. • Vinsamlega pantlð tímanlega. Innritun í síma 551 5103 er eftir! Stórdansleikur með hljómsveitinni Pops í kvöld, 3. janúar. Hljómsveitina skipa Pétur Kristjánsson, Óttar Felix Hauksson, Ólaíur Sigurðsson, Björgvin Gísiason, Jón Ólafsson og Birgir Hrafnsson. Miðaverð aðeins 850 krónur -pín skemmtisaga! Ottó Geir Borg VJS l VQQA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.