Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 15
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 15 LANDIÐ Með litla jóla- skreytingu en mikla athygli Nemendur útskrifað- ir í Eyjum Selfossi - „Eftir að ég fékk áskorun frá einum nágranna mínum í götunni, Snorra Sig- urfinnssyni, sem reyndar er garðyrkjustjóri bæjarins sló ég til og smellti þessari skreytingu á grenitréð hjá mér til þess að vera ekki minni maður en hinir í göt- unni,“ sagði Jón Bjarnason, íbúi í Baugstjörn á Selfossi, en jólaskreyting hans hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða litla hvíta peru á um 20 sentimetra háu grenitré. Þó peran sé lítil og tréð ekki hátt þá eru þeir margir sem hafa staldrað við hjá húsi Jóns til þess að skoða skreytinguna sem sannarlega er öðru- vísi en aðrar í göt- unni. Þegar Jón hafði sett upp skreyting- una, sem hann gerði nóttina eftir að hann fékk bréf- ið frá garðyrkju- stjóranum, fékk hann strax annað bréf sem innihélt hrós og lýsingu á því hvernig garð- yrkjustjóranum varð við við að sjá skreytinguna. Hann var á leið um götuna í bíl sín- um ásamt kon- unni og þegar hann kom auga á litla tréð og peruna setti að honum svo mikinn hlátur að hann var rétt kominn inn í næsta garð á bílnum en konan náði að grípa í stýrið og forða útafakstri. Og auðvitað gaf garðyrkjustjórinn Jóni fyrstu einkunn fyrir frumlegheit og snaggaraleg viðbrögð við áskorun um skreytingar. Vestmannaeyjum - Framhaldsskól- inn í Vestmannaeyjum útskrifaði nemendur er haustönn skólans lauk skömmu fyrir jól. Brautskráning nemenda nú var sú 25. frá því skól- inn brautskráði fyrst nemendur ár- ið 1984. Að þessu sinni útskrifuðust ellefu stúdentar frá skólanum, sjö af nátt- úrufræðibraut, tveir af félagsfræði- braut og tveir af hagfræðibraut. Tveir nemendur luku verslunar- prófi og tveir stálskipasmiðir og einn sjúkraliði voru útskrifaðir. Einn útskrifaðist af 2. stigi vél- stjómarbrautar og níu vélaverðir voru útskrifaðir. Olafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari, sagði að 340 nemend- ur hefðu skráð sig til náms á haustönn en þó hafi ekki allir skilað sér til náms og nemendur hafi verið um 300. Þetta sé mesti fjöldi sem stundað hafi nám við skólann og munaði þar miklu að skipstjómar- námið, sem áður var í Stýrimanna- skólanum í Vestmannaeyjum, var fellt inn í nám Framhaldsskólans á liðnu hausti. Ólafur sagði að tekist hefði að fá leyfi til að halda 1. stig skipstjóm- armenntunar við skólann að þessu sinni en óvíst væri hvað yrði um framhald skipstjórnarmenntunar- innar við skólann. Það væri þó verið að berjast fyrir því að nemendur gætu áfram aflað sér skipstjómar- menntunar í Vestmannaeyjum og sagðist hann vonast til að þau mál myndu skýrast á vorönninni. Hann sagði að eins og undanfarin ár hefðu náttúra- og félagsfræðibrautir verið þær fjölmennustu við skólann og um 25% nemenda hefðu verið í iðn- og verknámi. Þrengt að starfinu íjárhagslega Ólafur sagði að um leið og ábyrgð og störf hefðu verið færð frá menntamálaráðuneyti til stjórnenda skólans hefði verið mjög þrengt að starfinu fjárhagslega og varaði hann við þeirri þróun. Sagði hann það óþolandi að þegar búið væri að greiða brýnustu gjöld væri ekkert eftir til endurnýjunar á búnaði og húsnæði skólans enda lægi húsnæði hans nú undir skemmdum. Þrátt fyrir þröngan fjárhag sagði hann að ráðist hefði verið í kaup á vélarúms- hermi fyrir vélstjómarkennsluna. Talsvei-t hefði verið eytt um efni fram með þeim kaupum en hann sagði að treyst hefði verið á að fyr- irtæki í Eyjum kæmu til liðs við skólann og aðstoðuðu hann við kaupin eins og stundum áður hefði venð gert. í lok ræðu sinnar hvatti skóla- meistari útskriftarnemendur til dáða í framtíðinni og að vinna störf sín af alúð og heilindum. Hann bað þau að muna að þau væra nemend- ur Framhaldsskólans í Vestmanna- eyjum og af frammistöðu þeirra í lífinu yrði skólinn metinn. Að lokinni útskrift flutti Jóhann Örn Friðsteinsson ávarp nýstúd- ents, þar sem hann þakkaði starfs- fólki skólans og nemendum sam- starf liðinna ára. Nokkrar viðurkenningai' voru veittar fyrir námsárangur. Hilmar Ómarsson fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á stúdents- prófi. Guðrún Scheving Björnsdótt- ir og Þóreý Friðbjarnardóttir fengu viðurkenningar fjTÍr námsárangur í þýsku en Þórey fékk einnig viður- kenningu fyrir góðan námsárangur í íslenskum bókmenntum. Þá hlaut Ester Garðarsdóttir viðurkenningu fyrir góðan árangur í bókfærslu og Gideonfélagið færði Önnu Valsdótt- ur sjúkraliða Nýja testamentið að gjöf, en félagið hefur gefið öllum sjúkraliðum sem útskrifast hafa Nýja testamentið. Morgunblaðið/Sig. Jóns. JON Bjarnason og litla grenitréð í Baugsljörn 1 á Selfossi. Rauð jól og rafmagnsleysi í Árneshreppi Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson MARGIR staurar gáfu eftir í snjókomunni annan í jólum í Arnes-hreppi. Árneshreppi - Annan í jólum var norðan kaldi hér um slóðir og snjó- koma. Gífurlegur snjór hlóðst á rafmagnslínur og slitnuðu þær og staurar brotnuðu. Rafmagnslaust varð því á öllum bæjum í 8 klukkustundir en á Kjörvogi og Gjögri í um sólar- hring. Gjögursflugvöllur fékk ekki rafmagn fyrr en um miðjan dag á sunnudag því þar höfðu brotnað þrír staurar. Þetta þykir óvenjulegt því ekkert hvassviðri var en snjór þungur og mjög blautur. Fólk hér í sveit hélt jól með hefðbundnu sniði eins og vani er. Rauð jól vora á aðfangadag og jóla- dag með hvassviðri og rigningu eða súld. Barnakór Vík- urskóla syngur í kaupfélaginu Fagradal - Það er orðin árviss viðburður að barnakórinn syngi í kaupfélaginu í Vík á Þorláksmessu. Þetta er skemmtilegt og kemur fólki í jólaskap enda var þröng á þingi í búðinni meðan börnin sungu. Þau sungu ýmis jólalög af mikilli innlifun, en í barna- kórnum eru um 30 krakkar og stjórnandi lians er Anna Björnsdóttir. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Morgunblaðið/Ómar Bogason VISNAVINIR sýndu leikrit um Grýlu, Leppalúða, jólasveina og sveinku. J ólatr ésskemmt- un á Djúpavogi Djúpavogi - Árlegt jólaball yngstu kynslóðarinnar á Djúpavogi var haldið í íþróttahúsinu 28. desember sl. Að þessu sinni var brugðið út af hefðbundnu jólaballi og ýmsar upp- ákomur tengdar jólunum voru þar nú ásamt dansi í kringum jólatréð. Vísnavinir, sem eru hópur söng-, leik- og ljóðaunnenda á Djúpavogi, voru með leikrit og söng sem hitti beint í mark, bæði hjá börnum og fullorðnum. Þama mættu óvænt á staðinn jólasveinar, Grýla, Leið- indaskjóða og fleiri furðuverar sem skemmtu sér með börnunum. Einnig voru afhent verðlaun í sam- keppni sem Vísnavinir efnu til með- al skólabarna um bestu jólasöguna. Sögurnar sem voru verðlaunaðar vora: Snjórinn, eftir Karen Sveins- dóttur 3. bekk, Óþekka Dísa, eftir Snjófríði Kristínu Magnúsdóttur 4. bekk, Jólastjarnan, eftir Sigurjón Þórsson 6. bekk, og Jólin hans Helga, en hana sömdu þær Eygló Bjamadóttir og Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir sem era í 9. bekk. Alls bárust í keppnina 32 sögur sem þóttu mjög góðar og var það erfitt hlutskipti dómnefndar að velja á milli en Vísnavinir ætla að gefa þær allar út á næstunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.