Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 51
MORGUNB LAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 5T~* GUÐRÚN JÓHANNA EINARSDÓTTIR + Guðrún Jóhanna Einarsdóttir var fædd á Stöðvarfirði 25. febrúar 1938. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 18. desember sfðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Unnur Péturs- dóttir, f. 24. júlí 1915, d. 12. okt. 1980, og Einar Eirfksson sjó- maður, nú vistmaður í Seljahlíð í Reykjavík, f. 25. ágúst 1905. Hún var elst sex systkina og ólst upp í foreldra- húsum á Fáskrúðsfirði til 16 ára aldurs að hún flutti til Reykjavík- ur. I Reykjavík var hún lengst á Landakotsspftala sem ganga- stúlka. 18 ára var hún í sambúð með Kristjáni Þorgeirssyni og eignuðust þau soninn Jón Hauk- dal, f. 23. apríl 1956. Hans kona er Bára Guðbjartsdóttir og eiga þau tvo syni. Hinn 5. nóvember 1960 giftist hún eftirlifandi eiginmanni, Braga Guðmundssyni, f. 17. ágúst Það getur oft verið erfitt að koma orðum að þeim tilfinningum sem leika um hugann þegar sárt er saknað. A þeirri stundu liggja orðin dýpra en svo að þau verði sögð eða skráð á blað. En í gegnum hugann framkallast margar lífsmyndir lið- ins tíma, sem líða hjá, kristallast og geymast. Og víst er margs að minn- ast, sem gott er og gleðilegt, þótt skuggi saknaðar grúfi yfir. Þegar horft er til baka og sá heimur minninga opnast, sem skil- inn er eftir handa okkur til að skyggnast inn í, verður okkur full- ljóst að minningin lifir áfram þótt manneskjan deyi. Eitthvað liggur þó enn dýpra sem ekki verður upplýst né skilið, aðeins skynjað með innri tilfinningu. En sérhver manneskja á þó sinn lífskyndil sem logar áfram og lýsir fyrir ættingjum og vinum minningu þess sem saknað er. Enginn má sköpum renna. Mætti það vera huggun ástvina Jóhönnu Einarsdóttur að enginn getur misst mikið, nema hann hafi átt mikið. Bragi minn, ég veit að mikið er frá ykkur tekið, þér, bömunum og bamabömum ykkar Jóhönnu. Gott er til þess að hugsa að það var hún sem hughreysti og efldi kjark ykkar þegar þið urðuð fyrir sámm sonar- missi. Hún var hin sterka í fjöl- skyldunni, sem kvaddi ykkur, ást- vini sína, með hlýjum hug þegar hún yfirgaf jarðlífið nú á einum helgasta tíma ársins, þegar jólin voru að ganga í garð. Nú er komið að þeirri stund að kveðja og þakka um leið margar góðar samverustundir, þó sér í lagi er við áttum saman í sumarbústöð- um okkar í Þrastaskógi. Elsku bróðir, ég og fjölskylda mín sendum ykkur innilegar samúð- arkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Friðgeir H. Guðmundsson. Mér andlátsfregn að eyrum berst og út í stari bláinn og hugsa um það, sem hefur gerst til hjarta mér sú fregnin skerst: hún móðir mín er dáin! Þú varst mér ástrík, einlæg, sönn, mitt athvarf lífs á brautum, þinn kærleik snart ei tímans tönn hann traust mitt var í hvíld og önn í sæld, í sorg og þrautum. Ég veit þú heim ert horfin nú og hafin þrautir yfir, svo mæt og góð, svo trygg og trú, og tállaus, falslaus reyndist þú, ég veit þú látin lifir. Ei þar sem standa leiðin lág ég leita mun þíns anda, er h't ég fjöllin fagurblá mér finnst þeim ofar þig ég sjá í bjarma skýjalanda! (Steinn Sig.) Börn, tengdabörn og barnabörn. 1936 í Miklabæ í Skagafirði. Þau bjuggu á Akureyri til haustsins 1969 að þau fluttu til Selfoss. Frá 1977 hafa þau búið í Hveragerði. Þeirra börn eru: 1) Margrét Jóna, f. 2. nóvember 1959. Hennar maður er Sveinbjörn Guð- mundsson. Börn Mar- grétar eru þijú. 2) Hafdís Rósa, f. 19. júní 1961. Hennar maður er Hilmar Hauksson. Þau eiga fjögur börn. 3) Hafsteinn Ómar, f. 19. júní 1961, d. 14. júlí 1979. 4) Lilja Jó- hanna, f. 23. júní 1977, sem þau gengu í foreldrastað. Hennar maður er Sigurður Ingimundar- son. Þau eiga eitt barn. Síðustu tíu árin var Guðrún Jóhanna starfskona hjá Dvalarheimilinu Ásbyrgi í Hveragerði. Utför Guðrúnar Jóhönnu fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku Hanna, ekki hvarflaði það af mér síðast þegar við hittumst, að ég ætti ekki eftir að sjá þig aftur nema til þess að kveðja þig hinstu kveðju. Það er svo ótalmargt sem hefur komið upp í huga minn síð- ustu daga, minningar um öll þau ár sem við höfum þekkst og allar þær samverustundir sem við áttum sam- an. Það sem mér er efst í huga nú er ég kveð þig er þakklæti. Ég þakka þér alla þá hlýju og þá vináttu sem þú ávallt sýndir mér. í nærveru þinni og fjölskyldu þinnar leið mér alltaf eins og ég væri ein af fjöl- skyldunni. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir hðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, fríður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Bragi, Hafdís, Magga, Nonni, Einar og aðrir aðstandend- ur, Guð veri með ykkur. Jóna Hafsteinsdóttir og fjölskylda. Hún Jóhanna Einarsdóttir er dá- in. Hún fór frá okkur þegar við ætl- uðum að fara að fagna jólunum. Hún, sem var svo mikið jólabarn í sér, var að keppast við að ljúka öllu sem fyrst. Nú skil ég af hverju henni lá svona mikið á, hún þurfti að fara til jólafagnaðar með frels- ara sínum en vildi vera búin að ljúka sem flestu áður en hún færi. Hanna var búin að vinna í tíu ár í Ásbyrgi í Hveragerði þegar hún lést, aðeins 59 ára gömul. Þegar ég byrjaði að vinna í Ásbyrgi fyrir fjórum árum tók ég strax eftir Hönnu, hún var mjög hlý, glettin, svolítið stríðin, skemmtilegur vinnufélagi, mjög rík að samúð með öllum sem áttu bágt. Hún var góður vinnufélagi, gerði sitt til að halda hópnum saman. Hún átti það til að bjóða öllum hópnum til grillveislu í sumarbústað þeirra hjóna. Þá grillaði Bragi og síðan var sungið fram á nótt. Það eru ógleymanlegar minningar fyi'ir okkur sem eftir erum. Ég var bara búin að þekkja Hönnu í fjögur ár, en mér fannst sem ég hefði alltaf þekkt hana. Ég veit að fjölskylda hennar var það dýrmætasta sem hún átti. Bragi, börn, tengdabörn, barnabörn, aldraður faðir og systkini, hún var vakin og sofin yfir velferð ykkar allra. Soninn Hafstein Ómar misstu þau hjón í bílslysi árið 1979, ég veit að það var henni mik- il raun sem erfitt var að sætta sig við. Að leiðarlokum viljum við vinnu- félagar þakka henni samferðina og alla gleðina sem hún gaf okkur og erum við þess fullviss að vel hefm- verið tekið á móti henni, en við söknum vinar í stað. Eiginmanni hennar, Braga, börnum, bamabörn- um, tengdabömum og öðmm ætt- ingjum vottum við okkar dýpstu samúð. Gengin er góð kona. Kristín Munda Kristinsdóttir. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA Þ. PÉTURSDÓTTIR, Seljahlíð, Hjallaseli 55, lést 16. desember síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kærar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar. Elsku Hanna. Nú þegar hátíð Ijósanna gengur í garð, ert þú horf- in yfir móðuna miklu meira að starfa Guðs um geim. Hvem hefði órað fyrir því að þú yrðir kölluð burt frá okkur svo skjótt? Það sannar aðeins það, sem við oft ræddum um, hversu mjó sú taug er sem aðskilur líf og dauða, og hversu óviðbúin við oftast erum þegar kallið kemur. Ég mun ætíð minnast þín sem góðs vinnufélaga og vinar. Það mun verða oft sem ég sakna þess að þú komir í kaffisopa og spjall, heyra þig hlæja dillandi, eða vera með smá stríðni og spaug, eins og þér var svo tamt. Ég mun sakna þess að tala ekki lengur við þig um prjónaskapinn, og ég hugsa að fáar konur myndu leika það eftir þér að prjóna aftur í bíl á ferðalagi. Þú varst áhugasöm um svo margt, svo sem verkalýðsmál, en þar varstu virkur félagi í Boðan- um, í kvenfélagi og meira að segja hafðir þú brennandi áhuga á stjóm- málum. Ýmislegt fleira var það sem vakti áhuga þinn, en of langt mál væri upp að telja. Greiðvikin varst þú og vinur vina þinna. Einnig varst þú góður ferða- félagi. Þar kom oft berlega í Ijós hvað þú varst Ijóðelsk og kunnir mikið af vísum. Minnisstæð mun verða Finnlandsferðin sem farin var og varð svo skemmtileg. Þú áttir drjúgan þátt í því. Eins varst þú mikil fjölskyldu- manneskja, viðkvæm og umhyggju- söm, og þannig vil ég best muna þig- Sorgin barði að dyrum hjá ykkur eins og öðrum, og þá kom best í ljós hversu sterk þú varst, þegar þið misstuð son ykkar í slysi. Eg vona og veit að nú hafa átt sér stað gleði- legir endurfundir. Mér finnst á þessari stundu ég heyra vindinn þjóta í austfirsku fjöllunum okkar, líkt og við heyrð- um svo oft í bemsku. Þau eru að syngja þér kveðjusöng. Eiginmanni, bömum, bamabömum og ástvinum öllum sendum við hjónin innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þau í mikilli sorg þeirra. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, kæra vinkona, þar til við sjáumst aftur. Ó, Jjúfi Guð, ég leita þín, þú læknar, græðir meinin mín. Þú geymir mig, ég gleði finn og gætir mín, ó Drottinn minn. (Finnbogi G. Lárusson.) Kveðja. Dorothy. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrh’ hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útmnninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Anna Sigurjónsdóttir, Sveinbjörn Eiðsson, barnabörn og langömmubörn. Elskuleg sambýliskona mín, móðir, tengda- móðir og amma, SVANFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Hjaltabakka 32, Reykjavík, lést á Landspítala íslands hinn 1. janúar 1998. Haraldur Kristjánsson, Jón Bergþór Hrafnsson, Anna Ólafsdóttir, og barnabörn. t Hr. JÓN MAGNÚSSON frá Hafnarfirði, andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, föstudaginn 26. desember. Bálför fer fram mánudaginn 5. janúar 1998 kl. 15 í Fossvogskapellu. Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Fyrir hönd ættingja, Valgerður Eyjólfsdóttir, Jón E. Guðmundsson. t Útför konu minnar, JÓNÍNU MAGNÚSDÓTTUR, frá Giljum, Dalbraut 25, sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Lan- dakoti, 30. desember sl. fer fram frá Áskirkju í Reykjavík mánudaginn 5. janúar nk. kl. 10.30. fh. Jón Pálsson. t Bróðir okkar, GfSLI GUÐMUNDSSON, Staðarbakka, Miðfirði, lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga að morgni nýársdags. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur, vinur, bróðir og mágur, GUNNAR GUÐSTEINN ÓSKARSSON húsasmfðameistari verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 5. janúar kl. 13.30. Ólöf Gunnarsdóttir, Baldur Magnússon, ívar Þór, Stefán Óli, Gunnar Örn, Óskar Gunnarsson, Vilborg Guðsteinsdóttir, Óskar Guðmundsson, Erlín Óskarsdóttir, Ástráður Stefán Guðmundsson, Ásta Óskarsdóttir, Steinberg Ríkarðsson, Finnur Óskarsson, Sólveig Kristjánsdóttir, Þórunn Óskarsdóttir, Stefán Guðmundsson og systkinabörn. > »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.