Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 13 FRÉTTIR Verð á tóbaki hækkar um 10,1% Hækkanir eiga að draga úr tóbaksneyslu HEILDSÖLUVERÐ á tóbaki hækkar að meðal- tali um 10,1% samkvæmt nýrri verðskrá Áfeng- is- og tóbaksverslunar ríkisins sem tók gildi 1. janúar sl. og verð á áfengi hækkar að meðal- tali um 0,42% miðað við selt magn undanfarna 12 mánuði. í fréttatilkynningu frá Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins er verðbreyting á tóbaki fyrst og fremst skýrð með ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar, frá því í desember sl., um að verð á tóbaki skuli hækkað. Að sögn Steingríms Ara Arason- ar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, er ákvörð- un ríkisstjórnarinnar til þess fallin að draga úr tóbaksneyslu og að auka tekjur ríkisins. Hluti verðhækkunar á tóbaki kemur þó einnig til vegna breytinga á gengi krónunnar og breyttu innkaupsverði frá birgjum. Svo dæmi séu tekin hækkar lágmarksverð á Winston-sígarettupakka (filter) úr 299 kr. í 329 kr., skorið neftóbak (50 g) hækkar úr 190 kr. í 208 kr., London Docks vindlar (10 stk.) hækka úr 450 kr. í 480 kr. og Sweet Dublin reyktóbak (50 g) hækkar úr 451 kr. í 500 kr. í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu er gert ráð fyrir að verðhækkunin færi ríkis- sjóði um 200 milljónir króna á ári eftir að gert hafi verið ráð fyrir nokkrum samdrætti í sölu á tóbaki vegna hennar. í fréttatilkynningu ÁTVR kemur aukinheldur fram að verðbreyting á áfengi stafi af breytingu á gengi krónunnar og breyttu innkaupsverði frá birgjum. Verð á St. Emilion rauðvíni hækkar til dæmis úr 1.190 kr. í 1.200 kr. Áhrif á framfærslu- vísitölu Kjartan Halldórsson, starfsmaður hjá vísitölu- deild Hagstofu íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verðbreytingin hefði áhrif til hækkunar á framfærsluvisitölu, en áfengis- og tóbaksverð er hiuti af grunni fram- færsluvísitölu. Hins vegar sagði Kjartan að enn væri ekki hægt að segja hve áhrifin væru mik- il, þar sem þau yrði ekki reiknuð fyrr en í næstu viku. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson MÁNABRAUTIN í Vík umflotin sjó og hurðin þar sem sjórinn flæddi inn í kjallara Víkurprjóns. Fagradal. Morgunblaðið. Gjald- heimtan lögð niður UM ÁRAMÓTIN tók Tollstjór- inn í Reykjavík við innheimtu staðgreiðslu af Gjaldheimtunni í Reykjavík sem þá var lögð niður. Starfsmenn Gjaldheimt- unnar, en þeir voru um 30 um ára- mót, hafa all- ir verið ráðn- ir til embætt- is Tollstjóra utan tveir sem láta af störfum fyrir aldurs sakir. Annar þeirra er Þorvaldur Lúðvíksson gjaldheimtustjóri, sem starfað hefur hjá gjald- heimtunni í sjö ár. Þorvaldur sem varð sjötugur í haust sagðist vera feginn í aðra röndina að láta nú af störfum. „Ég verð að starfa eitthvað á vegum Reykjavíkurborgar fram eftir ári við skiptin og verð fyrstu dagana á skrif- stofu Gjaldheimtunnar en síð- an heima,“ sagði hann. „Eftir það mun ég kannski dútla eitt- hvað við lögfræðistörf ef mað- ur heldur heilsu." Kostir og gallar Þorvaldur sagði að flutningi Gjaldheimtunnar fylgdu bæði kostir og gallar. „Gjaldheimt- an er búin að starfa í 35 ár og þar var innbyggð þekking á viðskiptavinunum," sagði hann. „Þetta var tvíverknaður þegar skattar voru innheimtir á tveimur stöðum. Launa- skattur og virðisaukaskattur er innheimtur hjá Tollstjóra en staðgreiðslan og eftirá- skattar voru hjá okkur. Svo var tvíverknaður með lokanir, þegar lokað var fyrir stað- greiðsluna þá gátu liðið tveir dagar þegar lokað var fyrir virðisaukaskattinn hjá Toll- stjóra.“ Þorvaldur sagðist vilja óska Tollstjóraembættinu vel- farnaðar. Um leið og Tollstjórinn tek- ur við Gjaldheimtunni verður gerð skipulagsbreyting og munu gjaldkerar m.a. flytja yfir götuna til Tollstjóra en lögfræðideild verður áfram í sama húsnæði. MIKIL sjávarflóð urðu nú um áramótin í Vík í Mýrdal en sjáv- arhæð var óvenjumikil og mikið brim. Sjór flæddi meðal annars inn í kjallara Víkurprjóns. Að sögn Þóris Kjartanssonar framkvæmdastjóra Víkurpijóns urðu skemmdir vonum minni en í kjallaranum eru m.a. rafmótor- ar. Með sjónum sem flæddi inn komu meðal annars nokkur sand- síli. Þórir segist ekki muna annan eins sjávargang frá því hann flutti til Víkur en það var upp Sandsíli bárust með sjávarflóði úr 1960. Sjór flæddi einnig um syðstu götu þorpsins, allt í kring- um grunnskólann í Vík og Víkur- skála og einnig stórt sjávarlón á túninu framan við tjaldsvæðin. Að sögn verkfræðings Mýrdals- hrepps, Sveins Pálssonar, virk- uðu niðurföll í götunni öfugt við það sem þau eiga að gera því að sjór rann upp úr þeim. Fyrir nokkrum árum byggði Vita- og hafnamálastofnun flóð- garð framan við þorpið og er tal- ið að verr hefði farið hefði hann ekki verið kominn, því að sjórinn flæddi víða upp að honum en þar sem brúin er yfir Víkurána, sem rennur í gegn um þorpið, er garð- urinn rofinn og sjór hefur flætt inn eftir árfarveginum. Ásta Ragn- heiður í Alþýðu- flokkinn ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður hefur gengið í Al- þýðuflokkinn, en hún var kjörin á þing fyrir Þjóðvaka í alþingiskosn- ingunum 1995. Hún sagði að þessi ákvörðun kæmi í rökréttu framhaldi af samstarfi Þjóðvaka og Alþýðu- flokksins_ í þingflokki jafnaðar- manná. Ásta Ragnheiður er annar þingmaður Þjóðvaka til að ganga í Alþýðuflokkinn, en í haust gekk Ágúst Einarsson í flokkinn. „Þjóðvaka hefur verið breytt í félag og hann er ekki lengur stjórn- málaflokkur. Það er verið að vinna mikið í sameiningarmálum á vinstri væng stjórnmálanna og að því koma þrír stjómmálaflokkar, Alþýðu- flokkur, Kvpnnalisti og Alþýðu- bandalagið. Ég tel að það sé affara- sælla að ég leggi þessu lið með því að ganga í Alþýðuflokkinn þangað til búið er að stofna nýjan Jafnaðar- mannaflokk, sem er auðvitað mark- miðið, Samstarfíð í þingflokki jafn- aðarmanna hefur verið mjög gott og þetta skref mitt er eðlilegt fram- hald af því samstarfi," sagði Ásta Ragnheiður. Þorvaldur Lúðvíksson Helgafellið sigldi með sex nýja skipveija Samskip bjóða fjórum mönnum af sex ný störf Morgunblaðið/Golli Fyrsta barn ársins HELGAFELL, leiguskip Samskipa, sigldi úr höfn á nýársdag. Um borð voru sex íslenskir hásetar sem ráðn- ir höfðu verið í stað sex háseta sem sagt var upp störfum eftir að þeir neituðu að standa gæsluvaktir í Reykjavíkurhöfn um hátíðarnar. Samskip hafa boðið fjórum mönn- um, af þeim sex sem sagt var upp, störf á öðrum skipum félagsins. í yfirlýsingu sem Samskip sendu frá sér á milli jóla og nýárs segir að félagið telji að áhöfninni hafi borið að hlýða fyrirmælum skip- stjórans og standa umræddar vakt- ir. Sjómannafélag Reykjavíkur hélt því hins vegar fram að uppsagnir mannanna hefðu verið ólögmætar þar sem þeir hafi átt rétt á fríi og fól lögmanni sínum að veija rétt þeirra. Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að engar ákvarðanir hafi verið teknar um framhaldið. Málið væri í athugun og engra ákvarðana að vænta á næstu dögum. Skipið komi hins vegar aftur í höfn eftir 12 daga og þá hljóti eitthvað að hafa skýrst. Áhersla lögð á að leysa málið Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam- skipa, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að þrátt fyrir að deilan væri á milli íslendinganna sex og danska fyrirtækisins vildu Samskip leggja sitt af mörkum til að leysa málið. í því skyni hefur félagið boð- ið ijórum af þeim sex, sem danska fyrirtækið sagði upp, vinnu á öðrum skipum. „Það kemur í ljós hvort þeir taka því en ég vona að málið leysist far- sællega. Samskip munu sem fyrr leggja áhersla á að eiga gott sam- starf við Sjómannafélag Reykjavík- ur og starfsmenn sína um vinnufyr- irkomulag og kjör þannig að allir geti verið sáttir við sinn hlut,“ sagði Olafur. íslendingar með hærri laun í fréttum á gamlársdag, kom fram að danska fyrirtækið P.E.P. Shipping, sem rekur Helgafellið, hafi greitt íslenskum sjómönnum um borð samkvæmt taxta danskra samninga en Samskip greitt það sem upp á vantaði til þess að þeir fengju greitt samkvæmt íslenskum samningum. Aðspurður hvort íslenskir sjó- menn væru almennt hærra launaðir en aðrir á leiguskipum sem þessu, sagði Jónas Garðarsson að ekki væri hægt að draga slíkar ályktan- ir af einu tilfelli. Skipið sem hér um ræðir sé skráð hjá Dansk inter- national skibregister og þar séu laun lægri en á dönskum skipum sem eru skráð í almennri skipaskrá. FYRSTA barn ársins var dreng- ur sem tekinn var með keisara- skurði kl. 2.33 aðfaranótt nýárs- dags. Hann var 3.588 gr. að þyngd eða rúmar 14 merkur og 50 cm. Er hann fyrsta barn Álfs Þórs Þráinssonar og Hörpu Maríu Hreinsdóttur, sem hér eru með drenginn á milli sín en hans hefur verið beðið frá 16. desember. Sagði Harpa að fæð- ingin hefði verið nokkuð erfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.