Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUÐAGUR 26. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
__________________________FRÉTTIR ________________________
Ogilding samkeppnisráðs á kaupum Myllunnar á Samsölubakaríi
Standi ógildingin
ganga kaupin til baka
KOLBEINN Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Myllunnar-Brauðs
hf., segir að úrskurði Samkeppnis-
stofnunar um ógildingu á yfirtöku
Myllunnar á Samsölubakaríi verði
áfrýjað alia leið en nokkum tíma
muni taka að ganga frá áfrýjun úr-
skurðarins til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála. Hann segir að
ógildingin muni hafa í för með sér
verulegt tjón íyrir báða aðila, en ef
af ógildingu yfirtökunnar verði muni
Mjólkursamsalan sem átti Samsölu-
bakarí greiða kaupverðið til baka og
Myllan skila hlutabréfunum í fyrir-
tækinu. Kolbeinn segir að þetta geti
hugsanlega haft í for með sér skaða-
bótakröfur fram og til baka.
„Ógilding þýðir það einfaldlega
að menn verða á þeim reit sem þeir
voru á áður en skrifað var undir
samninginn. Þetta er gríðarlega
mikið tjón fyrir bæði fyrirtækin.
Fyrir Mylluna er þetta mikið tjón
því hún er búin að leggja í milljóna-
kostnað út af þessu og það mun
kosta milljónir að ógilda þetta. Fyr-
ir fyi-rverandi eigendur Mjólkur-
samsölunnar er þetta tjón því þeir
hafa afhent okkur fyrirtækið og við
erum búnir að fara þar í gegnum
allt og þekkjum það jafn vel og okk-
ar fyrirtæki," sagði Kolbeinn.
Mikið áhyggjuefni fyrir
framleiðsluiðnaðinn
Kolbeinn sagði að ástæða þess
að ekki hefði verið leitað mats hjá
Samkeppnisstofnun á kaupunum á
Samsölubakaríi áður en kaup-
samningur var undirritaður væri
sú að ótryggt hefði verið að ekki
myndi fréttast af væntanlegum
kaupum.
„Ef menn hefðu getað verið 100%
öryggir með að öll sú vinna hefði
farið fram í fullum trúnaði og full-
víst hefði verið að ekkert hefði kvis-
ast út þá hefðu menn getað gert
þetta, en í okkar litla samfélagi eru
100% líkur á að það hefði ekki tek-
ist. Þá hefðum við alveg eins getað
gleymt þessu því viðbrögð margra
aðila hefðu þá getað gert það að
verkum að menn hefðu bara hætt
við,“ sagði Kolbeinn.
Hann sagði úrskurð samkeppnis-
ráðs fela það í sér að horfið væri 50
ár aftur í timann þegar mönnum var
úthlutað hverfum sem þeir máttu
starfa í.
„Núna erum við komin með
stofnun sem segir að ef þú ert
duglegur og stendur þig vel þá
mátt þú ekki verða stór og sterk-
ur. Þarna er á ferðinni misskiln-
ingur hjá stofnuninni því menn
mega verða stórir og sterkir en
ekki berja á öðrum. Þessi markað-
ur er svo ofboðslega virkur í sam-
keppninni að við kæmumst aldrei
upp með neina slíka hluti því vinir
okkar í stórmörkuðunum myndu
þá einfaldlega fjármagna ein-
hverja til að setja upp bakarí eða
einfaldlega gera það sjálfir. Síðan
er það neytandinn sem getur valið
úr tugum bakaría og hann þarf því
ekki að fara í Hagkaup eða Bónus
til að kaupa sín brauð,“ sagði Kol-
beinn.
Hann sagði að ef úrskurður Sam-
keppnisstofnunar fengi að standa
þá væri það mjög mikið áhyggjuefni
fyi’ir framleiðsluiðnaðinn hér á landi
í framtíðinni.
„Þá held ég að menn verði að fara
að skoða sín mál, hvort það sé yfir-
leitt hægt að starfa hérna á ís-
landi," sagði hann.
Hörður Kristjánsson í bakaríinu í Austurveri
Gæti vel hugsað
mér búðarskenk
í stórmarkaði
Morgunblaðið/Kristinn
HORÐUR Kristjánsson, bakarameistari í Aust-
urveri, þjónaði Bónus um árabil.
„ÉG gæti vel hugs-
að mér að afgreiða
brauð og kökur við
búðarskenk í stór-
markaði ef mér
væri gefinn kostur
á því, en það hefur
ekki verið til
þessa,“ segir Hörð-
ur Kristjánsson,
bakarameistari og
eigandi bakarísins í
Austurveri í
Reykjavflt, aðspurð-
ur um hvort hann
hefði áhuga á að
reka viðskipti í stórmarkaði.
Bakaríið Austurver rekur tvær
verslanir í Reykjavík, aðra í Aust-
urveri við Háaleitisbraut og hina
við Rangársel í Seljahverfi. „Ég
hefði síður áhuga á að blanda mér
í slaginn um hilluplássið, Myllan
og Samsölubakarí hafa einokað
það og við fáum ekki einu sinni að
reka þar inn Iitlu tána,“ segir
Hörður ennfremur. Hann kveðst
reiðubúinn að vera með í útboði ef
stórmarkaður gæfi kost á þvf en
sagði það ekki hafa verið uppi á
teningnum hjá þeim.
Brauð frá Austurveri voru seld í
Bónus og segist Hörður hafa haft
hillupláss í Bónus frá upphafi, eða
1989, fyrst í versluninni í Skútu-
vogi og sfðan í öllum öðrum versl-
unum Bónuss til nóvemberloka
1996. „Ég var kallaður á fund f
Bónus haustið 1996, en þá hafði ég
framleitt fyrir þá Bónusbrauðin
ásamt fleiri brauð- og kökutegund-
um frá því að Bónus-verslunin var
stofnuð. Þeir sögðust vera með til-
boð í framleiðslu á brauðum fyrir
48-50 krónur og var ég spurður
hvort ég vildi framleiða á því
verði. Þá sagði ég bara nei takk;
ég gat ekki boðið slíkt óraunhæft
verð því hjá mér var það um það
bil 100 krónur. Þessi Iækkun
þeirra hefur ekkert skilað sér í
verðinu, svo mikið veit ég,“ sagði
Hörður ennfremur og sagði slíkt
verð algjörlega óraunhæft fyrir
bakarí eins og hans.
Hann segir afkastagetu bakarís-
ins geta verið um 400-600 brauð á
klukkustund, ef allt gengur upp,
slíkt væri hámark og með þeim af-
köstum gæti hann til dæmis bætt
við sig afgreiðsluborði í stórmark-
aði.
Símta Isf lu trti ngu r
Með einfaidri aðgerð get-
urðu flutt simtöl í venjulegan
síma, farsíma eða boðtæki.
Nánari upplýsingar um verð
og sérmónustu Landssímans
færðu í sima 800 7000 eða
SÍMASKRÁNNI.
LANDS SÍMINN
Þarftu aðflytja
simtöl úrþinum
síma í annan?
ttlR
Framkvæmdastjóri Bakarameistarans um sölu í stórmarkaði
Tökum ekki þátt í stríði
um verð og hillupláss
Morgunblaðið/Kristinn
VIGFÚS Kr. Hjartarson, framkvæmdastjóri
Bakarameistarans, segir fyrirtækið ekki hafa
áhuga á að blanda sér í glórulaust verðstríð.
„ÞAÐ kæmi alveg til
greina af hálfu okkar að
selja eitthvað af framleiðsl-
unni í stórmarkaði en við
höfum hins vegar ekki vilj-
að taka þátt í því sem ég vil
kalla bull og vitleysu í
verðstríði og baráttunni
um hillupláss," sagði Vig-
fús Kr. Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Bakara-
meistarans við Suðurver,
aðspurður um áhuga fyrir-
tækisins á að selja vörur
sínar hugsanlega í stór-
markaði.
Bakarameistarinn rekur
tvær verslanir og segir Vigfús alla
áherslu hafa verið lagða á að sjá
um bakstur fyrir þær. Með
breyttu vaktafyrirkomulagi og
meira frysti- og geymslurými
mætti auka afköstin þannig að
hægt yrði að selja víðar en í eigin
verslunum, ekkert væri í sjálfu sér
því tfi fyrirstöðu.
„Við höfum einfaldlega ekki
haft áhuga á þessu stríði við stór-
markaðina, það er ekki eftirsókn-
arvert og enn síður ef Myllan fer
algjörlega að gína yfir þeim. Þá
geta þær bæði stillt minni bakarí-
um og mörkuðunum upp við
vegg,“ segir Vigfús ennfremur en
veltir líka fyrir sér hvort stór-
markaðir muni bregðast við enn
meiri hlutdeild á einni hendi:
„Spurningin er hvort stórmark-
aðimir fara að skipta hilluplássinu
betur upp, leyfa þeim sem hafa
sérvöru og meiri fjölbreytni í
brauðaúrvali að fá eitthvert hillu-
pláss sem skiptir máli, en Myllan
og Samsölubakarí hafa setið að
86% af öllu hilluplássi. Ef forsend-
ur breytast væru minni bakari al-
veg tilbúin að fara inn á þennan
markað lika. Það skiptir máli
hvort menn hafa aðgang að einum
hillurekka eða átta.“
Vigfús segir samkeppni af
hálfu stóru aðilanna hafa verið
óvægna, þeir hafi með bullverði
drepið önnur bakarí niður í stór-
mörkuðunum og það hafi verið
bæði á höfuðborgarsvæðinu og
nágrannabæjum. Bæði Myllan og
Samsölubakarí hefðu siðustu
fjögur til fimm árin boðið óraun-
hæft verð á framleiðslu sinni og
Ijóst væri að bæði fyrirtækin
ættu við rekstrarerfiðleika
að stríða vegna hinnar
óvægnu samkeppni þeirra í
milli.
Semja stórmarkaðir við
minni bakarí?
„Og nú er útlit fyrir að
staða Myllunnar verði enn
meira ráðandi þannig að
hafi einhvern tíma verið lítt
fýsilegt fyrir önnur, bakarí
að reyna að komast að í
stórmarkaði þá er það enn
frekar núna. Ég þykist þó
vita að sumir stórmarkaðir
hafa ekki verið alls kostar ánægð-
ir með skipulagið og hugsanlega
vilja þeir taka upp samninga við
minni aðilana til að fá meiri fjöl-
breytni í framboði og verði, mað-
ur veit ekki hver þróunin verður
ef bann samkeppnisráðs stendur."
Að lokum bendir Vigfús líka á
að öðrum bakaríum hafi ekki ver-
ið gefinn kostur á að hafa eigin
sölu í stórmörkuðum eins og
Myllan hafi t.d. fengið að hafa í
verslunum Hagkaups: „Engum
öðrum hefur staðið til boða að
setja upp ferska verslun með
brauð í stórmarkaði eins og Myll-
an hefur gert. Ég tel Bakara-
meistarann mjög vel í stakk bú-
inn til að þjóna slíkri verslun og
við myndum áreiðanlega skoða
tilboð í slíkt ef okkur stæði það til
boða.“
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins um Mylluna og Samsölubakarí
s
Ogildingin er
mjög stefnu-
markandi
„VIÐ tcljum úrskurð samkeppnisráðs hafa fordæmisgildi
og vera mjög stefnumarkandi. Við erum að fara nánar
ofan í málið og vinna að samantekt greinargerðar um
það,“ sagði Sveinn Ilannesson, framkvæmdastjóri Sam-
taka iðnaðarins, aðspurður um álit samtakanna á ógild-
ingu ráðsins á samruna Myllunnar og Samsölubakarís.
Sveinn Hannesson sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá
sig um málið en hann minnti á að islensk iðnfyrirtæki
stæðu í harðri samkeppni við innflutning. Hann sagði
allar hliðar varðandi samruna sem þennan til skoðunar
og verið væri einnig að ræða samskipti framleiðenda
og smásala, markaðsaðgang og fleira. Myndu forráða-
menn samtakanna tjá sig þegar greinargerðin lægi fyr-
ir eftir fáa daga.