Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ_____________________________FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998 17 _________________________LANDIÐ Iþróttadagur í Borgarnesi Upp með íþróttir - niður með vímuefni! „ Morgunblaðið/Ingimundur ELIN Anna Steinarsdóttir, 14 ára, hlaut viðurkenningu úr minningar- sjóði Auðuns Hlíðkvist Kristmarssonar. Með henni á myndinni eru for- eldrar Auðuns, Kristmar J. Ólafsson og fris Hlíðkvist Bjarnadóttir, ásamt sonum sínum Bjarna Hlíðkvist og Sævari Illíðkvist. Borgarnesi - Það var mikið um að vera í íþróttamiðstöðinni í Borgar- nesi fimmtudaginn 19. febrúar sl. Dagurinn hófst með morgunsundi og heitum umræðum í pottunum. Okeypis var í sund og þrek allan daginn, en kjörorð dagsins var: Upp með íþróttir - niður með vímu- efni. I hádeginu æfðu nokkrir vask- ir hádegisgestir Miillersæfingar úti á pottasvæði. Vöktu tilburðir þeirra óskipta gleði og ánægju annarra gesta. Eftir hádegið fór fram sund- keppni milli bekkja Grunnskóla Borgamess. í íþróttasalnum var keppt í ýmsum knattleikjum á milli bekkja. Mátti þar líta gryfjubolta, höfðingjaleik, knattspyrnu, körfuknattleik, handknattleik og hafnabolta. Að lokum keppti stjömulið kennara við úrvalslið nemenda í bandý. Kynning hjá Kveldúlfi og Skallagrími Að iokinni keppni grunnskóla- nema kynntu deildir Ungmennafé- lagsins Skallagríms starfsemi sína. Þá vora kynntar frjálsar íþróttir, sund, knattspyma, badminton og knattspyma. Kveldúlfur, íþróttafé- lag fatlaðra, kynnti einnig boccia. Áhorfendur fengu sömuleiðis að bregða á leik. Viðurkenningar úr minningar- sjóði Auðuns Hlíðkvist Kristmar J. Ólafsson afhenti við- urkenningu úr minningarsjóði son- ar síns, Auðuns Hlíðkvist, er lést 2. ágúst 1995, aðeins 14 ára að aldri. Auðunn, sem var fæddur 11. febrú- ar 1981, var mjög efnilegur íþrótta- maður. Hann stundaði knatt- spyrnu, körfuknattleik og frjálsar íþróttir. Eftir fráfall hans var stofnaður sjóður til minningar um hann. Arlega er veitt ein viður- kenning úr sjóðnum. Hana hlýtur fjórtán ára unglingur úr Skalla- grími sem þykir skara fram úr jafnöldram sínum. Viðurkenningin var nú veitt í þriðja sinn. í ávarpi sínu ræddi Kristmar um forvamar- gildi íþrótta og það gagn sem þær gera landi og þjóð. Sagði hann að íþróttahreyfingin virtist nokkuð tvístígandi í afstöðu sinni. I einu orði væri forvamargildinu hampað og samþykktar stefnuyfirlýsingar, en á móti gætu sumir ekki hafnað auglýsingum sem ætlað væri að auka neyslu áfengra drykkja. Hann fagnaði því að aðalstjórn Skallagríms hefði hrundið af stað átaki í forvamar- og fíkniefnamál- um, og bæjarstjórn Borgarbyggð- ar hefur í samvinnu við fjölmarga aðila blásið í herlúðra af sama til- efni. Takist vel til mun það skapa || Vönduð - Ryðfrí Húsaskilti Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! betra bæjarfélag. Kristmar sagði að viðurkenningin væri veitt til að hvetja ungt íþróttafólk til að stunda íþróttir af kappi og lifa heil- brigðu og vímulausu lífi. Hann gat þess að íþróttamaðurinn sem við- urkenninguna hlyti væri jafnöldr- um sínum góð fyrirmynd, stundaði fjölda íþróttagreina og legði sig ávallt allan fram. Að þessu sinni hlaut hana Elín Anna Steinarsdótt- ir, en hún er mjög fjölhæf íþrótta- kona og hefur komið víða við á íþróttaferli sínum. Formaður Skallagríms, Jófríður Sigfusdóttir, afhenti tvær viður- kenningar: ÍSÍ-bikarinn Á 60 ára afmæli Skallagríms í desember 1976 færði ÍSÍ félaginu að gjöf bikar sem nefndur er ÍSÍ- bikarinn, en hann skal árlega hljóta sú deild innan Skallagríms er sýnir mesta félagslega starfið. Aðalstjóm félagsins ákveður hverju sinni hver hljóta skuh grip- inn. Að þessu sinni varð knatt- spyrnudeild fyrir valinu fyrir mikið og gott foreldrastarf. Magnús Valsson, framkvæmdastjóri knatt- spymudeildar, tók við gripnum fyrir hönd deildarinnar. UMFÍ bikarinn Á 80 ára afmæli Skallagríms af- henti UMFI bikar og ákvað for- mannafundur félagsins að hann skyldi hljóta nafnið Skallagríms- bikarinn. Skal hann veittur fyrir- tæki, þjálfara, foreldri, stjórnar- manni deildar eða almennum fé- lagsmanni sem starfar vel fyrir fé- lagið. Var hann nú afhentur í fyrsta sinn. Fyrir valinu varð Sparisjóður Mýrasýslu, sem hefur styrkt starf félagsins myndarlega mörg undanfarin ár. Sigfús Sumar- liðason sparisjóðsstóri tók við gripnum. Áð lokum var greint frá kjöri „íþróttamanns Borgarbyggð- ar“ og um kvöldið var æsispenn- andi leikur Skallagríms og Njarð- víkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.