Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Sjúkrahús Þingeyinga
Unnið að endurbótum á
gamla sjúkrahúsinu
HLUTI stjórnar Styrktarfélags Sjúkrahúss Þingeyinga. Frá vinstri:
Björn Guðmundsson, Jóhanna Aðalsteinsdóttir og Guðni Kristinsson.
Húsavík - Styrktarfélag Sjúkrahúss
Þingeyinga var stofnað fyrir tveim
árum og hefur starfað ötullega og
styrkt sjúkrahúsið á margan hátt
með gjöfum tækja og ýmsan útbúnað.
Unnið er að því að endurbæta
gamla sjúkrahúsið sem byggt var
1936 og hefur styrktarfélagið tekið
að sér að standsetja og útbúa þar tvö
herbergi með þar til gerðum hús-
búnaði til afnota fyrir aðstandendur
sjúkra sem dvelja á Sjúkrahúsinu en
eiga heimili utan bæjarins.
Hér eins og víðast annars staðar
hafa kvenfélögin í sýslunni styrkt
Sjúkrahúsið á Húsavík frá upphafi
með ýmsum tækjagjöfum og hefur nú
sú hefð skapast að þau ráðfæra sig
við styrktarfélagið um gjafír því það
hefúr gott samband við læknana um
það hvar þörfin sé mest á hverjum
tíma. Nú er til dæmis eitt verkefnið
að kaupa tæki til afnota fyrir sér-
fræðinga sem hér koma öðru hverju,
t.d. frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Húsavík telst vel
búið tækjum miðað við stærð en þau
þarf oft að endumýja vegna slits og
framþróunar tækjabúnaðar.
Stjóm félagsins skipa: Guðni Krist-
insson, formaður, Bjöm Guðmunds-
son, Böðvar Jónsson, Jóhanna Aðal-
steinsdóttir og Svala Hólm.
Nýr speglun-
arbúnaður
sparar ferða-
kostnað
Neskaupstað - Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað og inn-
flutningsfyrirtækið Austur-
bakki í Reykjavík efndu nýlega
til fundar þar sem kymitur var
tækjabúnaður sem sjúkrahúsið
hefur eignast og keyptur var
fyrir fé sem ýmsir aðilar á
Austurlandi hafa gefið sjúkra-
húsinu.
Sá tækjabúnaður sem sýndur
var á fundinum er speglunar-
búnaður sem keytpur var hjá
Austurbakka og nýtist hann við
ýsmar rannsóknir. Þá nýtist
hann kvensjúkdómafræðingum
sem hingað koma reglulega svo
og við speglanir á liðum.
Læknarnir Guðjón Guð-
mundsson og Björn Magnússon
útskýrðu fyrir viðstöddum
notkunargildi tækisins. Fram
kom í máli Björns að frá því að
tækið var tekið í notkun hefðu
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
BJÖRN Magnússon útskýrði
speglunarbúnaðinn fyrir við-
stöddum.
nokkrir tugir Austfirðinga, sem
trúlega hefðu þurft að fara til
Akureyrar eða Reykjavíkur til
lækninga ef speglunarbúnaður-
inn hefði ekki verið til staðar,
fengið meðhöndlun við sjúk-
dómum heima í héraði.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
Landsbankinn
styður keflvíska
körfuboltamenn
Keflavík - Nýlega gerðu Körfu-
knattleiksdeild Keflavíkur og Land-
samning. Guðmundur B. Kristins-
son, formaður körfuknattleiksdeild-
arinnar, sagði að þessi samningur
væri’ ákaflega mikilvægur fyrir
deildina og þá sérstaklega þar sem
hann styrkti unglingastarfið. í hon-
um væri sérstök áhersla lögð á ung-
lingastarf deildarinnar og mundi
bankinn auglýsa á öllum búningum
yngri flokka karla og kvenna, auk
meistaraflokka félagsins.
Viðar Þorkelsson, svæðisstjóri
Landsbankans á Suðurnesjum,
sagði við þetta tækifæri að bankinn
væri mjög ánægður með samstarf-
ið við körfuknattleiksdeildina und-
anfarin ár.
Með nýjum samningi vildi bank-
inn styðja sérstaklega við unglinga-
starfið. „Við í Landsbankanum telj-
um það mikilvægt verkefni að
leggja okkar af mörkum til stuðn-
ings íþrótta- og æskulýðsstarfsemi
á Suðurnesjum og er þessi samn-
ingur liður í því,“ sagði Viðar Þor-
kelsson ennfremur.
MorgunDiaoio/Djorn dwuu».
FRÁ undirritun nýja samningsins. Við borðið siija frá vinstri til hægri: Jóhanna Óskarsdóttir, Landsbanka-
stjóri í Leifsstöð; Viðar Þorkelsson, svæðisstjóri Landsbankans á Suðurnesjum; og Guðmundur Bjarni Krist-
insson, formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Á myndinni eru einnig Ieikmenn allra flokka í hinum
nýju búningum sem liðið mun keppa í á næstu tveimur árum.
Vettvangur fólks í fasteignaleit