Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FÉBRÚAR 1998 55 . , «verrir Hermannsson, l Jínrfíttir. Ed» ““'stetoion taS«>ÍW “»'* Ástvaldsdóttir, Astvaldur kræsingunum. Edda, Garðbúar eignast heimili SKÁTAFÉ LAGIÐ Garðbúar, sem eru staðsett í Bústaða- hverfi, opnaði nýtt skátaheimili í Hólmgarði 34 síðastliðinn sunnudag, eða á skátadaginn. Er það afmælisdagur Badens Powells sem var frumkvöðull skátahreyfingarinnar í heimin- um. Á opnunardaginn var fullt hús gesta. Margrét Tómasdótt- ir aðstoðarskátahöfðingi færði félaginu gjöf og ámaðaróskir frá Skátahreyfingunni á ís- landi. Margir félagai- í Garðbú- um og félagsforingjar annarra félaga færðu félaginu einnig gjafir og ámaðaróskir. Séra Pálmi Matthíasson vígði heim- ihð og að því loknu var skátun- um boðið upp á kaffi og kökur að skáta sið. Jrynjólfsson, Marteinn •ason, Jóel Brynjólfsson, ri ívarsson, Einar Njals- ma Smáradóttir og Einar >n tóku eina fundaræf- MÚLIIMIM íkvöldkl. 21:00 Kvartett Ómars Axelssonar Margreynd öndvegislög. Sunnudaginn 1/3 kl. 21:00 Kuran FÓLK í FRÉTTUM . _ _ Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson SIGURJON Kristinsson frá Vegatanga átti 45 ára leikafmæli og Hólmfríður Bjarnadóttir, formaður leikdeildar, færði honum blóm og árnaðaróskir. Síldarárin komu eins og sprengja LEIKRITIÐ Síldin kemur og sfldin fer eftir syst- urnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur var frum- sýnt í Aratungu siðastliðið föstudagskvöld. Leik- ritið er sett á svið í tilefni af 90 ára afmæli Ung- mennafélags Biskupstungna. I leikskránni kemur fram að báðar systurnar unnu í sfld á Seyðisfírði á sildarárunum kringum 1960. Sfldarinnar hafi verið beðið stöðugt frá 1880 og svo hafi þau komið - „eins og sprengja“. „Og við söltuðum bókstaflega dag og nótt, það var algjört ævintýri, ég svaf ekkert allt sumarið - um haustið var ég eins og undinn sokkur," segir Kristín. „Eg var líka fljót að salta, ein sú fljótasta á planinu. Maður stóð þarna alveg rauðeygður og voteygður, en maður gaf sig ekki. Þetta var engu lfkt!“ Og svo kom bræla og þá skelltu allir sér á ball. „Þá fylltist fjörðurinn af skipum - plássið af sæt- um gæjum og sumir einkennisklæddir, sem var það albesta," segir Iðunn. Það var líka svo mikil vinnugleði ríkjandi - og samt var þetta ofboðs tryllingur; þú saltar meðan þú getur staðið, skellir þér á ball, dansar hvern dans, fylgist með slagsmálunum, stendur á önd- inni. Og svo er allt í einu allt búið.“ Ef þetta gefur forsmekkinn af skemmtuninni og stemmningunni í Aratungu á leikriti þeirra systra Sfldin kemur og sfldin fer er áreiðanlegt að eftir miklu er að slægjast. SKÓLAMEISTARAHJÓNIN á Laugarvatni, Kristinn Kristmundsson og Rannveig Pálsdótt- ir, ásamt leikstjóranum, Ingunni Jensdóttur. . ■ BOÐIÐ var upp á síldarréttahlaðborð og nutu þeir Haukur Ingvarsson, Haukur Daðason og Þorlákur Jónsson góðs af. Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. mars 1998 er 25. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 25 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.786,20 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. september 1997 til 10. mars 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. mars 1998. Reykjavík, 26. febrúar 1998 SEÐLABANKJ ÍSLANDS Sími 551 SG66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.