Morgunblaðið - 26.02.1998, Síða 10

Morgunblaðið - 26.02.1998, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 26. FEEHÚAR 1998____________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Veðurstofa íslands býst við einu mesta kuldakasti seinni ára um helgina Spáð allt að 25° frosti Morgunblaðið/RAX EINS og sjá má á þessari mynd úr myndasafni Morgunblaðsins hefur stundum fryst hressilega og sjómenn þurft að berja ís af skipum sínum. SAMKVÆMT spá Veðurstofunnar er gert ráð fyrir um 20-25° frosti um norðanvert landið og um 15-20° á sunnanverðu landinu á laugardag og sunnudag. Eins og spáin lítur út fyr- ir mánudag og þriðjudag í næstu viku er gert ráð fyrir áframhaldandi norðanátt og kulda. Það tók að kólna í gær, öskudag, en vonandi rætist ekki sú trú að deginum fylgi átján bræður eins og segii’ í Sögu daganna. Guðmundur Hafsteinsson, veðuríræðingur á Veðurstofunni, seg- ir að útlit sé fyrir að hægt og bítandi muni kólna næstu daga eða fram á laugardag og sunnudag þegar horfur ei-u á 20-25° frosti fyrir norðan og þá kaldara inn til landsins og 15-20° frosti fyrir sunnan. „Eins og hoi-fur eru núna virðist sem einna kaldast verði á laugardag og sunnudag en þangað til kólnai- jafnt og þétt,“ sagði hann. Guðmundur sagði að lægð hefði verið norður af landinu í gær sem færðist austur á bóginn í átt að Norður-Noregi. „En yfir Grænlandi er myndarleg hæð sem heldur á móti og beinfr til okkar ísköldum vind- streng nánast alla leið frá Norður- pólnum suður með strönd Græn- lands og skellir þessu yfir okkur,“ sagði hann. „Það er ekki annað að sjá en að þetta komi beint frá póln- um.“ Sagði hann að enn væri langt fram á laugardag og að spáin gæti sveifl- ast til. „Ef við lítum á tölvuspá frá því á þriðjudag þá virtist ekki vera jafn mikill kuldi á leiðinni og ef til vill dregur úr þessu, en þessum nýju tölvuspám ber það vel saman að ég held að ástæða sé til að reikna með að það verði mjög kalt,“ sagði Guð- mundur. „Hvort það fer í 20-25° frost eða hvort við sleppum með 15° frost, það er annað mál.“ Spáin nær enn sem komið er ekki lengi'a en til sunnudags en Guð- mundur sagðist ekki sjá nein hlýindi á næstunni. Því yrði trúlega kalt fram eftfr næstu viku, þar sem engin lægð væri sjáanleg á leiðinni. „Við sitjum í þessum kuldapolli eitthvað áfram,“ sagði hann. „Réttast er að draga fram kuldafatnað og ef farið er á fjöll, að gæta að andlitinu að það kali ekki. Þá er rétt að minna á að líta eftfr frostleginum á bílnum.“ Bið eftir útgáfu ökuskír- teina TALSVERÐAR tafir hafa verið á útgáfu ökuskírteina að undanförnu og hafa ökumenn fengið í hendur bráðabirgða- skírteini í nokkra daga á með- an beðið er eftir fullbúnum skírteimm. Skv. upplýsingum Huldu Árnadóttur á skrif- stofu lögreglustjóraembættis- ins er ástæðan sú að misvel hefur gengið að setja myndir á hina nýju gerð ökuskírteina sem tekin voru upp í haust. Getur tekið allt frá þremur dögum og upp í tvær vikur að afgreiða skírteinin. Hulda sagði að ástandið færi þó batnandi og tekist hefði að yf- irvinna byrjunarerfiðleika, sem í ljós komu er útgáfa nýrra ökuskírteina hófst sl. haust. Niðurstöður alþjóðlegu TIMSS-könnunarinnar á kunnáttu í náttúrufræði og stærðfræði 73% boðaðra nemenda mættu til prófsins Veigamikill þáttur í meira brotthvarfí nemenda frá námi í framhaldsskólum hér á landi en í öðrum löndum er að námsframboð hér á landi er minna en víða annars staðar að mati margra skólastjóra í framhaldsskólum. EINAR Guðmundsson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála, segh' að setja verði ákveðna fyrirvara við niðurstöður al- þjóðlegrai' rannsóknar (TIMSS) á kunnáttu framhaldsskólanema í náttúrufræði og stærð- fræði. Þegar alls sé gætt og þessir fyi-irvarar teknir með í reikninginn sé engu að síður ljóst að við séum ofan alþjóðlegs meðaltals í þessum efnum. Greint var frá niðurstöðum athugunarinnar í Morgunblaðinu í gær, en samkvæmt henni eru íslenskir framhaldsskólanemendur í þriðja sæti í kunnáttu í þessum efnum. Þegar árangur 25% af bestu nemendum allra landa er skoðaður falla íslensku nemendurnir niður í 10. sæti í at- huguninni. Fram kom að brotthvarf nemenda frá námi hér á landi er meira en víðast annars staðar og geti það haft áhrif á niðurstöðuna. Einnig var gagnrýnt að þátttaka nemenda í at- huguninni hafi verið frjáls, en um var að ræða fjögurra klukkustunda próf utan kennslutíma. Það geti einnig haft áhrif á niðurstöðuna, þar sem einkum þeir áhugasömustu og nemendur af eðlisfræði- og náttúrufræðibrautum hafi tek- ið þátt í henni. Nemendur á aldrinum 17-21 árs frá 21 þjóð tóku þátt í könnuninni og komu nemepdur í Hollandi og Svíþjóð best út og þá Island. Margar af þeim þjóðum sem urðu meðal efstu þjóða er sambærileg könnun var gerð í 7. og 8. bekk grunnskóla tóku ekki þátt að þessu sinni, svo sem Asíuþjóðir og nokkrar Evrópuþjóðir. Einar sagði gagnrýni á rannsóknina ekki á rökum reista. Allir nemendur, sem hafi verið að ljúka einhverju námi í framhaldsskóla óháð námsbrautum, hafi verið boðaðir í prófið og af þeim hafi 73% mætt til þess. Af 21 landi sem þátt tóku í athuguninni hafi einungis átta þjóð- ir náð því aðferðafræðilega markmiði sem sett hafi verið í athuguninni að þátttakan næði 80%. Við séum undir þeim mörkum eins og 13 aðrar þjóðir, en ekki langt frá þeim mörkum. Einar sagði að fyrirvararnir sem Rann- sóknastofnun uppeldis- og menntamála hafi sett við niðurstöðurnar hafi verið tveir. Annars vegar brotthvarfið í framhaldsskólum og hins vegar mætingin í prófið. Þessir fyrirvarar koll- varpi hins vegar ekki niðurstöðunni, enda sé reynt að meta áhrif brotthvarfsins með því að taka einungis þau 25% sem efst séu. Við það föllum við nokkuð niður, en ennþá séum við samt fyrir ofan alþjóðlegt meðaltal í þessum efnum. Ekki nægjanlegar kröfur í grunnskóla Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunar- skóla íslands, sagðist telja að brotthvarf frá námi og góður árangur íslenskra nemenda í þessari alþjóðlegu rannsókn ættu sér sömu skýringuna að hluta til, þ.e.a.s. þá að ekki væri nægilegar kröfur gerðar til nemenda á fyrstu árunum í grunnskóla. „Það er mjög verulegur mismunur á niður- stöðu hvað varðar framhaldsskóla og grunn- skóla og það er í fullu samræmi við það sem maður hefur talið; að það væru ekki gerðar nægilegar kröfur í grunnskólunum, sérstak- lega á fyrstu árunum. Framhaldsskólinn lendir í því að gera í einu vetfangi, þegar nemendur eru innritaðir, kröfur sem þeir hafa aldrei kynnst fyrr. Annað hvort bregðast nemendur í framhaldsskólanum við þessum nýju óvæntu ki-öfum með því að fara að læra og þá taka þeir verulegum framfórum eða þeir læra ekki meira en þeir hafa gert og þá falla þeir brott,“ sagði Þorvarður. Hann sagði að mikið mætti laga í þessum efnum með því að auka kröfur til nemenda fyrr og að þefr hefðu alist upp við það strax að álag- ið væri hæfilega jafnt í náminu sem annars staðar. „Nemendur verða að hafa einhver verk- efni að vinna. Það er frumskilyrði. Annars hætta þeir bara að vera nemendur og snúa sér að einhverju öðru,“ sagði Þorvarður. Aðspurður hvort hann teldi til bóta að taka upp námssíu eins og gamla landsprófið, sagðist hann telja að úrbætur væru fyrst og fremst fólgnar í því að fara að kenna meira í fyrstu bekkjum grunnskólanna, en það tæki að sjálf- sögðu langan tíma að laga svona skekkju þegar hún væri komin inn í alla árganga. Aðspurður hvort hann teldi það skekkja nið- urstöðu rannsóknarinnar að nemendur höfðu frjálst val um það hvort þeir tóku þátt í prófinu eða ekki sagði Þorvarður að sömu reglur giltu í löndunum í kringum okkur í þessum efnum. Honum kæmi ekki á óvart þótt íslenskir nem- endur hefðu skilað sér betur í prófið en til dæmis nemendur í Danmörku og nálægum löndum, því þar væri valið meira en hér á landi. Kom að sumu leyti á óvart Eiríkur Guðmundsson, skólameistari í Menntaskólanum við Sund, sagðist ekki geta sagt mikið um málið á þessari stundu, þar sem einu upplýsingarnar sem hann hefði um niður- stöður rannsóknarinnar væru frásagnir fjöl- miðla. Hann sagði að niðurstaðan kæmi honum að sumu leyti á óvart miðað við þá útkomu sem hefði orðið varðandi kunnáttu grunnskólanem- enda í þessum efnum. Það hefði alveg eins mátt búast við að útkoman í framhaldsskólum yrði í takt við það en rannsóknin gæfi vísbendingar um að staðan væri heldur betri hjá framhalds- skólunum. Aðspurður um hvaða skýringar kunni að vera á miklu brottfalli nemenda í framhalds- skólum, sagði hann að ýmsar skýringar hefðu verið nefndar í því sambandi, meðal annars sú að námsframboð í framhaldsskólum hér sé ekki í samræmi við óskir nemenda. Þeir finni ekki nám við hæfi og hætti þar af leiðandi. Þá mætti einnig benda á að hér á landi hefði ungt fólk lengst af átt auðveldara með að fá vinnu en þekktist í nágrannalöndunum. Loks væri notk- unin á hugtakinu brottfall svolítið á reiki og spurning hvernig það væri mælt. Algengt væri til dæmis hér á landi að fólk hætti í námi um tíma og sneri sér síðan að því aftur síðar „þannig að það er svolítið erfitt að henda reiður á því hversu örugg þessi mæling er“, sagði Ei- ríkur. „Það er jákvætt að heyra þetta og gefur von- ir um að sú gagnrýni sem hefur verið uppi á skólakerfið eigi nú ekki alltaf við rök að styðj- ast. En vissulega getum við alltaf bætt starfið og það er framundan mikið endurbótastarf vegna námskrárinnai' bæði í grunnskóla og framhaldsskóla. Þar verður auðvitað tekið á þessum málum í heUd sinni,“ sagði Eiríkur ennfremur. Ánægjuleg tíðindi Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari Fjöl- brautaskólans í Garðabæ, sagði að það væri ánægjulegt að heyra af þessum niðurstöðum rannsóknarinnar. Hann vissi hins vegar ekki hvort raunhæft væri að bera þetta saman við niðurstöður athugunarinnar í grunnskólunum, þar sem þar hefðu önnur lönd átt í hlut. Þorsteinn sagði að það væri að vissu leyti rétt að brottfall nemenda væri meira í fram- haldsskólum hér á landi en annars staðar. Skil- greining á brottfalli væri hins vegar með dálítið öðrum hætti hér en annars staðar, þar sem út- gönguleiðirnar úr framhaldsskólanum væru til- tölulega færri hér en þekktist annars staðar. í grófum dráttum værum við með örfáar tveggja ára námsbrautir, iðnnám og síðan stúdents- próf. Nemandi sem búinn væri að ljúka rúm- lega 100 einingum í framhaldsskóla væri í ein- hverjum tilvikum skilgreindur sem brott- fallsnemandi ef hann hætti námi. Víða í Evrópu væri nemandi sem búinn væri að ljúka svona mörgum einingum ekki talinn brottfallsnem- andi heldur hefði hann lokið einhverju skil- greindu námi. Aðalsteinn Eiríksson, skólameistari Kvenna- skólans, sagði að það sem helst styngi í augun varðandi rannsóknina væri hversu hæpin þessi samanburður væri og hann teldi að ekki væri hægt að draga mjög víðtækar ályktanfr af hon- um einum, þótt hann gæfi tilefni til ýmissa bollalegginga. Allra síst væri hægt að bera saman vinnu í grunnskólum og framhaldsskól- um á þessum grunni. Aðalsteinn sagði að hugtakið brottfall væri mikið álitamál og skilið mjög misjöfnum skiln- ingi. Það vildi þannig til að hann væri einmitt nú í rabbhópi á vegum gæðastjórnunai'félagsins að velta fyrir sér þessu hugtaki og það sem upp úi' stæði í þeim efnum væri hversu ólíkum skiln- ingi menn skildu þetta hugtak. Þannig væri rikjandi óvissa um það hvort menn væru að tala um sama fyrirbærið og hann hefði ekki séð þau gögn sem lægju til grundvallar tölum frá öðrum löndum í þessum efnum. Hitt væri ljóst að það væri alltof mikið brottfall í íslenskum fram- haldsskólum og á því þyrfti að taka. Hann teldi að brottfallið endurspeglaði hvað skólarnir væru vanbúnfr að veita nemendum það sem þeir þyrftu á að halda. Framboðið á námsefni og starfsmenntabrautum væri ekki í samræmi við þarfir einstaklingsins eða mai'kaðarins. Vilja ekki bijótast úr viðjum láglaunastefnu „Það er gleðilegt að íslenskir framhaldsskóla- nemendur skuli í nýrri alþjóðlegri stærðfræði- og vísindakönnun TIMSS standast samanburð við framhaldsskólanemendur í öðrum löndum, enda tel ég að íslendingar hafi aldrei átt mann- vænlegra ungt fólk en einmitt nú, þótt agaleysi þjóðfélagsins og rangt verðmætamat eyðileggi stórlega fyrir þessu fólki sem og öðrum. Niðui'- staða TIMSS-könnunarinnar nú verður vonandi til þess að auka skilning stjómvalda á mikil- vægi skólamenntunar, því hvar værum við án skólamenntunar í dag?“ sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Ákureyi'i. „Meginástæður fyrir miklu brottfalli nem- enda á framhaldsskólastigi era að mínum dómi þrjár,“ sagði Tryggvi ennfremur. „í fyrsta lagi er ekki samræmi milli kennslu á grunnskóla- stigi og kennslu á framhaldsskólastigi og sam- vinna milli skólastiganna of lítil - eða réttara sagt engin. Stökkið úr grunnskóla í framhalds: skóla er því of stórt fyrir of marga nemendur. 1 öðru lagi er staða verkmenntunar og starfs- menntunar í landinu veik og skilningur for- ystumanna vinnuveitenda á mikilvægi mennt- unar lítill. Vinnuveitendur og forystumenn at- vinnulífsins hafa lengi sætt sig við ómenntað starfsfólk og vilja ekki brjótast úr viðjum lág- launastefnu sinnar. Þetta hefur leitt til lítilla afkasta og áhugaleysis á verkmenntun sem hentar mun fleiri en hrein bókleg menntun. Forystumenn atvinnuveganna þurfa að brjót- ast úr þessum sálarviðjum sínum og axla þá ábyrgð sem því fylgir að mennta starfsfólk sitt. Atvinnulífið á að kosta að fullu menntun starfs- fólks síns, þá fyrst skilja þeir hvar skórinn kreppir. í þriðja lagi er ein meginástæðan fyrir miklu brottfalli nemenda úr framhaldsskóla lág laun kennara og fjársvelti og lélegt starfsum- hverfi skóla. Nú er sífellt erfiðara að fá vel menntaða kennara til starfa við framhalds- skóla, einfaldlega vegna þess að laun kennara eru of lág enda kennarar löngu orðnfr lág- launastétt," sagði Tryggvi Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.