Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ný flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar á leiðinni til landsins Þýðir byltingu 1 skipaviðgerðum FLOTKVÍIN sem Vélsmiðja Orms og Víglundar sf. í Hafnar- fírði hefur fest kaup á hjá breska hernum er væntanleg til Hafnarfjarðar á skírdag, en breskur dráttarbátur lagði af stað með kvína í eftirdragi frá Clydefírði í Skotlandi síðastlið- inn mánudag. Að sögn þeirra Eiríks Orms Víglundssonar og Guðmundar Víglundssonar hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar munu skap- ast 40-50 ný störf við nýju flot- kvína, en það er svipaður fjöldi og starfað hefur við eldri flotkví fyrirtækisins sem kom til Hafn- arfjarðar fyrir þremur árum. Nýja flotkvíin er smíðuð árið 1967 og er hún nánast eins og ný, að sögn Eiríks. Hún er mjög djúprist með 13.500 tonna Iyfti- getu og getur því tekið tvo tog- ara af stærstu gerð til viðgerða í einu, en eldri flotkvíin er með 3.000 tonna lyftigetu. Þá verður hægt að annast viðgerðir á væntanlegu hafrannsóknaskipi og einnig á væntanlegu varð- skipi í flotkvínni, og einnig skapast möguleikar til að annast viðgerðir á erlendum togurum sem stunda veiðar við Island. I flotkvínni eru öll verkstæði sem þörf er á til skipaviðgerða og einnig er í henni mötuneyti og önnur aðstaða fyrir starfsmenn. „Þetta verður bylting í skipa- viðgerðum og smíðum hér á landi, en flotkvfin er útbúin gæðakerfi sem uppfyllir alla Evrópustaðla, og hægt verður að annast viðgerðir á öllum ís- lenskum skipum í henni sem áð- ur hefur þurft að senda úr landi til viðgerða eða breytinga," sagði Guðmundur. Fyrst um sinn verður flotkvfin við bryggju í Hafnarfírði, en bú- ið er að hanna nýja höfn þar sem flotkvíarnar verða hlið við hlið í framtíðinni og verður sú aðstaða væntanlega tekin í notk- un haustið 1999. Krabbameins- félagið og tóbaksvarnarnefnd Vinnuskól- ar verði reyklausir KRABBAMEINSFÉLAG Reykjavíkur og tóbaksvarnar- nefnd hafa sent Vinnuskóla Reykjavíkur, borgarstjóra Reykjavíkur og stjómum bæj- arfélaga bréf þar sem bent er á að vinnuskólar skuli vera reyklausir vinnustaðir. Bréfið er sent í kjölfar þeirr- ar fræðslu sem Krabbameins- félagið og tóbaksvamarnefnd hafa staðið fyrir í gi-unnskól- um. Bréfið var sent nú, að sögn Guðlaugar B. Guðjóns- dóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags Reykja- víkur, vegna þess að reykingar unglinga hafa farið vaxandi og félögin vilja vekja athygli á að vinnuskólar skuli vera reyklausir vinnustaðir og vinnutíminn reyklaus. „Nokk- ur misbrestur hefur orðið á því að vinnuskólar séu reyklausii- og við vitum til þess að jafnvel leiðbeinendur hafi verið að reykja á vinnutíma. Starfsfólk vinnuskólanna er börn á grunnskólaaldri og rétt eins og grunnskóiar ei-u reyklausir mælumst við til þess að vinnu- skólar séu það líka,“ sagði Guðlaug. Ki-abbameinsfélagið og tób- aksvarnarnefnd segja í bréfinu að félögin séu tilbúin til að koma til móts við vinnuskólana og veita þá aðstoð sem þarf, til dæmis að bjóða fræðslu um skaðsemi reykinga og reyk- bindindisnámskeið fyrir ung- linga sem reykja. Líkams- árás kærð í Ólafsvík MAÐUR á þrítugsaldri lagði fram kæra um líkamsárás til lögreglu í Ólafsvík í gær. Hann rifbeinsbrotnaði og fékk áverka á höfði eftir atvik sem átti sér stað aðfaranótt sunnudags. Málavextir eru þeir helstir að fimm til sex mönnum lenti saman fyrir utan veitingastað í Ólafsvík aðfaranótt sunnu- dags. Upphófust þar handalög- mál og fékk maðurinn, sem lagði fram kæruna, ofan- greinda áverka í kjölfarið. Ekki er ljóst hver veitti mann- inum áverka samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu, en þol- andinn er utanbæjarmaður. Málið er í rannsókn. s Vinnuslys 1 Vogum MAÐUR meiddist illa á tveim- ur fmgi-um í vinnuslysi í Vog- um á Vatnsleysuströnd skömmu fyrir hádegi í gær. Maðurinn var við vinnu sína hjá fiskverkunarfyrirtækinu Sæstjörnunni í Vogum þegar óhappið varð. Vinstri hönd hans lenti í blaði bandsagar sem hann var að vinna við með þeim afleiðingum að hann skaddaðist talsvert á tveimur fingrum. Hann var fluttur á sjúkra- hús í Keflavík og þaðan til Reykjavíkur, þar sem hann gekkst undir aðgerð í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. BRESKUR dráttarbátur er nú með hina nýju flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar sf. í togi á leið til landsins. Lögreglan í Reykjavík vísar gagnrýni vegna viðbragða við aðvörunarboðum á bug Lögregla segir bank- ann bera ábyrgðina JÓNMUNDUR Kjartansson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, kveðst telja að lög- reglumenn hafi brugðist rétt við þegar boðum frá viðvörunarkerfi Búnaðarbanka í Mjódd var svarað á sunnudagsmorgun. Bankastjóri Bún- aðarbanka gagnrýndi viðbrögð lögreglu í Morg- unblaðinu í gær og sagði hana ekki hafa sinnt boðum með réttum hætti. Hefðu átt að fá þakkir Jónmundur segir að bankinn verði að axla sjálfur á því ábyrgð að innbrotsþjófurinn komst fyrirhafnarlítið inn í bankann og að ekki tókst að gera neinum starfsmanni bankans viðvart. „Ég flokka þessi mál undir öryggismál og harma því og undrast að bankastjórinn skuli hafí kosið að ræða þau opinberlega. Mér hefði þótt skemmtilegra að bankastjóri Búnaðar- banka þakkaði okkur íyrir að upplýsa málið svo fljótt, í stað þess að saka okkur um slóðahátt,“ segir hann. „Það er óheppilegt en þar sem svo er komið verður lögreglan að svara fyrir sig,“ segir Jónmundur. „Þegar lögreglumenn fóru á staðinn virtist ekkert vera að, þar sem innbrotsþjófurinn opn- aði anddyri bankans með korti sínu og komst síðan inn í bankann með vægast sagt afspymu auðveldum hætti. Mér skilst að hann hafi spennt upp innri hurð með skrúfjámi. Það er með ólík- indum að ekki þuríí meira til og þyrfti bankinn og kannski fleiri stofnanir væntanlega að huga að þessum atriðum. Af þeim sökum voru engin ytri ummerki um innbrot sem lögreglumenn gátu komið auga á þegar þeir skoðuðu húsið. Þar að auki hefur þetta kerfi hringt áður þrí- vegis á þessu ári, fimm sinnum í fyrra og fjómm sinnum árið 1996, vegna m.a. mistaka starfs- manna, og það er ekkert nýtt að slík kerfi fari í gang,“ segir Jónmundur. Gömul og úrelt númer Kerfí bankans er tengt við stjómstöð Securit- as og þaðan við aðallögreglustöð. Þegar boðin bámst lögreglu birtust jafnframt upplýsingar um símanúmer hjá þremur tengiliðum innan bankans sem hafa á samband við í tilvikum sem þessum. „Bankinn lét Securitas seinast fá þessi síma- númer 7. apríl í fyrra og fyrirtækið setti þau inn á þann hluta kei’fisins sem að okkur snýr. Það er rangt að aðeins hafí verið hringt í eitt númer eftir að boð bárast, hringt var í öll þrjú en ekki svaraði í neinu þeirra. Þau vora annað hvort orðin úrelt eða um ranga aðila var að ræða. Við höfðum ekki símanúmer hjá næturvörðum Bún- aðarbanka, en höfum hins vegar í kjölfar þessa atburðar gert ráðstafanir til að þau verði sett inn á kerfið," segir Jónmundur. Lögreglan í Reykjavík handtók innbrots- þjófinn fyrir hádegi sama dag og innbrotið upp- götvaðist. Jónmundur segir rétt hjá bankastjóra Búnaðarbanka að myndavélar bankans hafí náð góðri mynd af innbrotsþjófinum, en rangt sé að hún hafi orðið til þess að maðurinn var handtek- inn. „Maðurinn var ekki til í myndasafni hjá okkur og hefði sennilega tekið lengri tíma að ná honum ef okkur hefðu ekki borist upplýsingar frá glöggskyggnum vegfaranda," segir hann. Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóri Securitas, segir um misskilning hjá bankastjóra Búnaðarbanka að ræða sem hann kunni ekki skýringar á, en hann hyggist ræða við forsvars- menn bankans vegna málsins. Fyrirtækið ann- ist margháttuð öryggismál fyrir Búnaðarbanka en á meðal þein-a sé ekki gæsla hjá Búnaðar- banka í Mjódd. Fyrirtækið beri því enga ábyrgð á að innbrotið í útibúið uppgötvaðist ekki fyrr en sólarhring eftir að það átti sér stað. „Oryggiskerfi Búnaðarbankans á Reykjavík- ursvæðinu era langflest beintengd til lögreglu og við komum ekki nálægt þessu kerfi að öðra leyti en sjá um árlegt viðhald. Við förum ekki í útkall eða sjáum um næturvöktun," segir Hann- es. „Hins vegar erum við með stóran hluta af þeirra öryggismálum, þannig að ekki er óeðli- legt að nafn okkar komi upp í huga manna þeg- ar þau mál ber á góma.“ Hann segir að hefði viðvörunarkerfið verið tengt við stjórnstöð fyrirtækisins hefði starfs- maður verið sendur á vettvang til að grennslast fyiir um boðin, en hins vegar sé ekki hægt að fullyrða að árangur hefði orðið annar en hjá lög- reglu. slnnbrot uppgötvast oftast „Sem betur fer er það ákaflega sjaldgæft, hvort sem um lögreglu eða öryggisgæslufyrir- tæki er að ræða, að innbrot uppgötvist ekki. Ég man einungis eftir einu eða tveimur slíkum til- vikum á þeim 19 áram sem okkar fyrirtæki hef- ur verið starfrækt,“ segir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.