Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ________________________________________
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna gamanmyndina „The Stupids“ með Tom
Arnold í aðalhlutverki, en hann leikur ofurheimskan mann sem sér
samsæri í hverju horni. Leikstjóri er John Landis.
Heimskan allsráðandi
STUPID-fjöskyldan saman-
stendur af þeim Stanley (Tom
Arnold) og Joan Stupid
(Jessica Lundy) og ki’ökkunum
þeirra, Buster og Petunia, en sam-
an eiga þau eftir að lenda í miklum
hremmingum þegar þau fara að
rannsaka hver það sé sem steli
alltaf' ruslinu þeirra. Fjölskyldan
setur upp gildru fyrir þjófana og
Stanley eltir þá á staðinn þar sem
þeir losa ruslið, en þar rekst hann á
snarvitlausa hermenn sem eru í
miðri vopnasölu þegar hann kemur
að þeim. Honum dettur strax í hug
að forn óvinur hans standi á bak við
þetta djöfullega ráðabrugg og ætli
hann sér að stela öllu sorpinu sem
fólk hefur haft svo mikið fyi’ir
því að safna. Stanley hafði
nefnilega unnið hjá póstinum
áður, en hann var rekinn þaðan
þegar hann taldi sig hafa kom-
ið upp um samsæri einhvers
sem héti Sender og fékk
ógrynni af pósti annarra send-
an til sín. Stanley er sann-
færður um að nú sé ráða-
brugg Senders stærra í snið-
um en einungis það að ræna
pósti frá fólki og nú ætli hann
sér að ræna öllu sorpi þjóðar-
innar. í baráttunni við að
upplýsa glæpinn á Stanley
eftir að komast að því að inn
í málið eru flæktar ýmsar stofnanir
og verur, þar á meðal matarsendl-
ar, geimverur, alþjóðlegir hryðju-
verkamenn, lögreglan, bæjarblöðin
og að sjálfsögðu póstþjónustan.
Leikstjóri myndarinnar er John
Landis en hann á að baki margar af
helstu gamanmyndum síðustu ára-
tuga. Hann sló í gegn þegar hann
leikstýrði „National Lampoon’s
JOHN Landis
TVÆR geimverur skjóta upp kollinum í grillveislu hjá
Stanley Stupid og fjölskyldu.
Tom Arnold byrjaði ferill-
inn sem uppistandsgrínari og
í framhaldi af því fór hann að
skrifa handrit að grínþáttun-
um um hina holdmiklu Ros-
anne Barr sem hann var
kvæntur um skeið. Þaðan lá
leiðin í kvikmyndirnar þar
sem hann er kannski þekkt-
astur fyrir hlutverk sitt í
„True Lies“ þar sem hann lék
á móti Arnold Schwarzen-
egger, en hann hefur einnig
leikið í myndunum „Hero“ og
„Nine Months" þar sem hann
lék á móti Hugh Grant.
Jessica Lundy hefur aðallega
verið viðloðandi þætti og myndir
sem gerðir hafa verið fyrir sjón-
varp og verið mjög dugleg að næla
sér í gestahlutverk í vinsælum þátt-
um eins og Seinfeld. Hún hefur líka
sést í myndum eins og „Single
White Female“ og „I Love Trou-
ble“.
!S$Tur‘"w”»»i
Animal House“ og síðan hef-
ur hann leikstýrt myndum eins og
„The Blues Brothers", „Trading
Plaees“, „Spies Like Us“, „Three
Amigos“ og „Coming To America“.
Hann á einnig að baki myndir eins
og „An American Werewolf In
London“, „Beverly Hills Cop III“,
„Oscar“ og „Innocent Blood“.
Frumsýning
Nr. 1 var Lag Flytjandi
T. i (4) Pedal Wubble
2. i (9) Losing Hand Lhooq
3. i (1) Ashtray Din Pedals
4. i (23) Turn It Up Busta Rymes
5. : (5) Flug 666 Botnleðja
6. : (-) Meet Her at the Love Parade Da Hool
7. i (2) Treat Infany Rest Assured
8. ! (10) Watching Windows Roni Size
9. i (8) Tourniquet Headswim
10. i (28) Organ Donor Dj. Shadow
11.1(18) It's the Subta Subteranean
12.'; (13) l've Got A Feeling Ivy
13.: (12) Déj'a vu Lord Tariq & Peter Gunz
14.! (14) Hand in Youre Head Money Mark
15. i (7) Feelin'Good Huff & Herb
16..; (ii) RudeBoy Rock Lionrock
17. i (-) This is Hardcore Pulp
18. i (27) Kung Fu 187 Lockdown
19. ’; (16) Purple gusgus
20. i (-) From You're Mouth God Lives Underwater
21.: (6) The Plan Sofo Surfers
22.: (3) Timber Coldcut
23.: (17) The Force Quarashi
24.i {-) Sangue de Beirona Cesario Verona
25. i (21) Music in My Mind Adam
26.i (-) Das EFX&Redman Rap Scholar
27.i (-) Deep Inside Incubus
28. i (22) Church of Noize Therapy
29.i (-) This How the Story Ends Tin Tln Out
30.: (-) Shoulderhoulster Morcheeba
í bígerð
Piauóleikarinn David Helfgott,
sem var Undrið í „Shine“, eign-
ast brátt félaga á hvíta tjaldinu.
Nýtt undur
► LEIKKONAN Barbara Hersh-
ey hefur tekið að sér aðalhlut-
verk í áströlsku myndinni Ástríð-
ur eða „Passion“. Fjallar myndin
um sérvitran pianóleikara eins
og önnur áströlsk mynd, Undrið
eða „Shine“, en Geoffrey Rush
fékk Óskarinn fyrir frammistöðu
sína í þeirri mynd.
Ástralskur leikari, Richard
Roxburgli, fer með hlutverk
Percy Grainger, sem er hvað
kunnastur fyrir „Danny Boy“.
Hann ólst upp í Melbourne síðla á
nitjándu öld og lærði á píanó
undir strangri leiðsögn móður
sinnar, Rose, sem leikin er af
Hershey.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin lá
í loftinu og sögur um sifjaspell
milli Rose og Percy komust á
kreik flúðu þau til Bandaríkj-
anna. Þar fraindi Rose sjálfs-
morð eftir að hún hafði inisst vit-
ið af völduin sárasóttar. Árið
1928 giftist Percy Ellu Strom, Iif-
andi eftirmynd móður sinnar, á
sviðinu í Hollywood Bowl.
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 71
STUPID-fjöIskyldan er ákaflega ánægð með sig en Iendir í hremm-
ingum þegar hún fer að kanna hverjir stela ruslinu hennar.
1 ,>V.’
WJJp
iL , #
W' - * 0 .0*,
nr
AVIK
RF. $TáUR«NT
Tískusýning frá versluninni
í kvöld,
fimmtudag 2. apríl,
kl. 21.00.
Módelsamtökin
sýna.
ÖOBT
B-YOIING
Matseðill:
Ofnbakaður lax
Thermidor
meS
sjávarhrísgrjónum.
Verðkr. 1.190
Hollensku stelpurnar Eclipse leika í kvöld
Borðapantanir í síma 562 5530 eða 562 5540
Um helgina: Hálft í hvoru leika fyrir dansi föstudags-
og laugardagskvöld.
Allir velkomnir snyrtilegur klæðnaður