Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 61
I
I
I
I
I
Það dimmdi snögglega eins og við
steypiregn
Eg stóð í herbergi er rúmaði sérhveija andrá
í fiðrildasafni.
Og samt var sólin jafnsterk og áður.
Óþreyjufullir penslar máluðu heiminn.
(Þýð. Njörður P. Njarðvík)
Mæt kona er fallin frá. Maðurinn
með ljáinn hefur mundað vopn sitt,
sá er engu eirir, sá er að jafnaði fær
sínu framgengt.
Ég átti því láni að fagna að
kynnast Jensínu Jóhannsdóttur
þegar á barnsaldri og héldust þau
góðu kynni langt fram á eldri ung-
lingsár.
Atvikin höguðu því svo að ég og
dóttir hennar, Gerður Elín, gerð-
umst „kærustupar" um árabil og
var ég því heimagangur hjá fjöl-
skyldunni í Lyngbrekkunni í Kópa-
vogi. Þetta voru harla viðburðarík
ár, sem skildu eftir margar og ljúf-
ar minningar. Húsráðendur, þau
Jensína og hennar gagnmerki
bóndi, Hjálmar Elíesersson, skip-
stjóri og útgerðarmaður, voru okk-
ur ungviðinu bæði mild og skiln-
ingsrík, enda þótt Pink Floyd, Led
Zeppelin og viðlíka hávaðaseggir
hafi stundum gert usla á heimilinu
og væntanlega orðið óbilgjarnari
húsráðendum þyrnir í augum.
Jensína stýrði heimili þeirra
hjóna af myndugleika og fágætum
skörungsskap, en Hjálmar var, sök-
um starfa sinna, oft fjarverandi.
Hann hafði hins vegar einkar
sterka „nærveru" og segja má að
andi hans hafi jafnan svifið yfir
vötnum, enda þótt hann hafi oft
verið fjarri góðu gamni.
Hjálmar var gáfu- og bók-
menntamaður og það varð okkur
ungmennunum rík reynsla að heyra
hann í heyranda hljóði fara með
heilu ljóðabálkana, jafnan með til-
finningu og einkar leikrænum til-
þrifum.
Jóhannes úr Kötlum og Bólu-
Hjálmar voru „hans menn“, enda
sló hjarta Hjálmars með lítilmagn-
anum.
Jensína naut þess ríkulega að
heyra bónda sinn flytja þennan
magnaða kveðskap, svo áheyrilega
að unun var á að hlýða. Var þá oft
stutt í brosið hjá þessari tilfinn-
ingaríku og skapheitu konu.
Það er því engum þeim er til
þekkir undrunarefni að afkvæmi
þeirra hjóna hafa mörg hver
hneigst til lista og sum raunar
gerst atvinnulistamenn.
Ungu fólki er það hollt að kynn-
ast traustum persónuleikum og
menningarfólki og fæ ég seint full-
þakkað þann velvilja og þá rausn
andans er ég, á unga aldri, varð að-
njótandi á menningarheimilinu við
Lyngbrekku. Börnum Jensínu og
afkomendum öðrum votta ég ein-
læga samúð. Henni sjálfri óska ég
góðrar heimkomu.
Lárus Már Björnsson.
Okkur hjónin og Eirík son okkar
langar til að minnast Jensínu, þess-
arar konu sem kom okkur til hjálp-
ar nokkuð við aldur. Veik hafði hún
verið á besta aldri og beið þess
aldrei bætur. Hjálmar, mann sinn,
missti hún sviplega liðlega fimm-
tug. Hún var fimm barna móðir.
Makamissirinn særði hana holsári
sem aldrei greri. Til okkar kom hún
til að sjá um lítinn dreng, og dreng-
urinn naut ástar hennar, sem var
henni svo eiginleg og sjálfsögð.
Dætur okkar tvær, eldri, mátu
hana mikils. Hún ræddi við dreng-
inn, sat á gólfi, og lék við hann, m.a.
í playmobil, og var barnsglöð.
Drengurinn ungur sagði við móður
sína eitt sinn: „Þú þarft ekki að
hafa áhyggjur, mamma, Jensína
kemur.“
Við þökkum fyrir að hafa kynnst
Jensínu, svo ólgandi af reynslu og
ástríki, og áhuga fyrir að verða aft-
ur með barninu barnið í sjálfri sér.
Okkur var hún ómetanleg. Við
sendum öllum ættingjum hennar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing Jensínu Jóhannsdóttur.
Eiríkur Gunnsteinsson,
Agnes Engilbertsdóttir,
Gunnsteinn Gunnarsson.
+ Dagmar Guð-
munda Sigurð-
ardóttir, húsmóðir í
Heiðarholti 34 í
Keflavík, fæddist á
Lækjarmótum í
Sandgerði 8. sept-
ember 1929. Hún
lést á Landspítalan-
um 2. apríl 1997.
Foreldrar hennar
voru Guðbjörg Odd-
fríður Bjarnadóttir
frá Tryggvaskála á
Selfossi, f. 28.9. 1900, d. 19.5.
1961, og Sigurður Guðmunds-
son frá Melabergi í Romshvals-
nesi, f. 9.2. 1902, d. 15.8. 1967.
Systur Dagmar eru: Kristín, f.
22.2. 1921, og Ester, f. 24.11.
1925, d. 30.8. 1990. Dagmar ólst
upp á Sólvöllum í Sandgerði.
Hinn 25. febrúar 1950 giftist
Öll við berum hyldjúpt hjartans sár.
Hrynja af augum brennheit sorgartár.
Enginn veit nær ævidegi hallar,
allir verða að hlýða er dauðinn kallar.
Alltof stutt var ævi þinnar tíð
eftir lifir minning ljúf og blið.
Kæra vina, sofðu vært og rótt,
í sælu, Drottins faðmi, góða nótt.
Kveðja frá
eiginmanni og niðjum.
í dag, árí eftir að þú fórst frá
mér, á ég léttara með að skrifa nið-
ur nokkrar línur. Þetta tóm sem
hefur verið í brjósti mínu er loksins
að hverfa, þótt ég finni fyrir því að
þú sért ekki til staðar. Eg sakna
þeirra stunda þegar ég kom til þín
Dagmar eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Friðjóni Þorleifssyni
frá Naustahvammi í
Neskaupstað, f. 13.8.
1928. Foreldrar hans
voru Þorleifur As-
mundsson frá Vaðla-
vík í Reyðarfirði, f.
11.8. 1889, d. 10.10.
1956, og María Jóna
Aradóttir frá Nausta-
hvammi í Neskaup-
stað, f. 4.5. 1895, d.
23.12. 1973. Börn Dagmar og
Friðjóns eru: 1) Þorleifur Már, f.
19.7. 1948, maki hans er Bryn-
hildur Njálsdóttir, börn þeirra:
Dagmar og Friðjón, og Snædís
sem er frá fyrra hjónabandi
Þorleifs. 2) Guðfinnur, f. 26.8.
1952, maki hans er Lilja Bára
Gruber, börn þeirra eru: Helgi
til að spjalla um heima og geima.
Það var svo gott að koma til þín,
elsku mamma. Ég veit að þú þráðir
þetta, að komast til æðri heima
vegna veikindanna, sem voru búin
að hrjá þig í mörg ár. Ég hélt að
þetta væri ekki svo alvarlegt fyrr en
undir það síðasta, en ég vonaði samt
að það fengist lækning við þessu
meini. Því ég vildi hafa þig hjá mér í
fjölda mörg ár til viðbótar. Við ætt-
um svo mikið eftir að gera. En það
sem ég get gert í dag er að blessa
miningu þína og þakka þér íyrir aHt
sem þú gerðir fyrir mig. í öll þessi
ár sem mínir ei-fiðleikar steðjuðu að
varstu alltaf til staðar til að hjálpa
mér, hvað sem á bjátaði.
Mamma, ég þakka þér alla þá
umhyggju sem þú sýndir mér í
Jónas og Astrid, Svava Björg er
frá fyrri sambúð Guðfinns. 3)
Sigurður Guðbjörn, f. 3.11.
1956, maki hans er Ingibjörg
Aradóttir, börn þeirra: Unnar
og Haukur. 4) Guðmunda, f.
30.6. 1959, maki Kristinn Sör-
ensen, börn þeirra eru: Krist-
inn, Margrét Rut og Leó Rúnar.
5) Guðbjörg Oddfríður, f. 3.7.
1962, maki Sigurður Svein-
björnsson, barn þeirra er: Dag-
ur Mar, og Sigurður sem er frá
fyrra hjónabandi Guðbjargar.
6) Karen Ásta, f. 15.8. 1969,
maki Guðmundur Sigurðsson,
börn þeirra eru: Sigurður,
Sindri Þór, og Þórdís Lára sem
er frá fyrra hjónabandi Karen-
ar. Barnabörn Dagmar og Frið-
jóns eru 16 og 4 barnabarna-
börn.
Dagmar og Friðjón hófu bú-
skap á Vatnsvegi 33 og svo á
Miðtúni 7 í Keflavík. Þau
bjuggu flestöll árin í Keflavík
nema nokkur ár í Neskaupstað.
Utför Dagmar fór fram frá
Keflavíkurkirkju 7. aprfl.
gegnum árin. Ég þakka þér allt
umburðarlyndið í minn garð, þótt
augnbrúnimar hafi stundum sigið
yfir mínum uppátækjum, en þú
fyrirgafst mér alltaf og sýndir að
þú elskaðir mig og mín systkini.
Ég sakna þín mikið og ég mun
alla tíð minnast þín. Pabbi, ég veit
að þetta er erfitt, en þú veist að þú
getur alltaf leitað til mín. Minn
faðmur stendur þér alltaf opinn
eins og þið mamma kennduð mér
að gera.
Þinn sonur
Sigurður.
Það er erfit að trúa því að
mamma mín sé dáin. Allt sem við
vomm búnar að tala um að gera
verður víst ekkert af. En ég má
þakka þér hvernig rættist úr öllu
hjá mér. Alltaf varstu til staðar ef
það bjátaði einhvað á og gafst mér
byr undir vængi til að halda áfram.
Það vai’ eifitt að koma heim úr
páskafríi og heyra þá frétt að þú
værir alvarlega veik. En ég hugsaði
með bjartsýni um það að þú myndir
ná þér. Aldrei hugsaði ég til þess að
nóttina á eftir myndir þú kveðja
okkur fyrir fullt og allt. En svona
er lífið. Elsku mamma, þín er sárt
saknað af öllum í fjölskyldunni og
ekki síst af mér. Einn daginn eigum
við eftir að hittast að nýju. Elsku
pabbi, ég veit að þetta ár hefur ver-
ið mjög erfitt fyrir þig en eins og þú
veist áttu okkar stuðning og ást og
alla okkar umhyggju sem til er.
Svæfill minn og sængin mín
sé önnur mjúka höndin þín
en aðra breið þú ofan á mig
er mér þá værðin rósamlig.
(Sig. Jónsson.)
Þín ástkæra dóttir
Karen Ásta.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
A grænum grundum lætur hann mig hvflast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns hans.
(Úr Davíðssálmum)
Með þessum fátæklegum orðum
kveðjum við þig, kæra mamma,
tengdamamma og amma. Missir
okkar var mikill og söknuður sár
og allt þar til nú hefur okkur verið
tregt um tungu.
Við þökkum allar samverustund-
irnar og varðveitum minninguna
um þig í hjörtum okkar.
Megir þú hvíla í friði.
Már, Hilda, Dagmar,
Friðjón og Bjarki.
DAGMAR GUÐMUNDA
SIG URÐARDÓTTIR
+
Eiginmaður minn, faðir, sonur okkar og bróðir,
SVAVAR GYLFASON,
fæddur 21.12. 1967,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn 26. mars.
Jarðarförin fór fram frá Nærbö kirkju í Noregi þriðjudaginn 31. mars.
Við þökkum veitta samúð.
Olaug, Jane Elin, Gunn Helen,
Hanna Sigga og Gylfi,
Andrea, Laufey, Halla,
Rut, Friðbjörg og Þórður.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN M. TULINIUS,
áður til heimilis
á Skothúsvegi 15,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 3. apríl kl. 15.00.
Magnús J. Tulinius,
Agla Tulinius,
Ása Tulinius, Jón Elís Björnsson,
Þóra Sigurðardóttir, Jóhann Eysteinsson,
Guðmundur Karl Sigurðsson, Auður Guðjónsdóttir
Guðrún Anna Guðmundsdóttir.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
AÐÓLF FRIÐFINNSSON
frá Skriðu f Hörgárdal,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstu-
daginn 3. apríl kl. 13.30.
Sigríður Jónsdóttir,
Steinunn Aðólfsdóttir, Páll Ó. Hafiiðason,
Emil Aðólfsson, Margrét Árnadóttir,
Pálína H. Aðólfsdóttir, Jakob Ólafsson,
Jóna A. Aðólfsdóttir, Reynir Karlsson
og barnabörn.
+
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN BJARNASON,
vélstjóri,
Rauðalæk 30,
Reykjavík,
andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þriðjudaginn
31. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. apríl kl. 13.30
Árný Árnadóttir,
Stella Ester Kristjánsdóttir, Hreinn Pálsson,
Elísabet Erla Kristjánsdóttir, Reynir Brynjóifsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir vandamenn.
+
Ástkær bróðir okkar,
GUÐMUNDUR R. MAGNÚSSON
fyrrum verkstjóri
hjá Hitaveitu Reykjavíkur,
áðurtil heimilis
á Laugarnesvegi 61,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á
morgun, föstudaginn 3. apríl, kl. 10.30.
Kristín Magnúsdóttir,
Pálína Pálsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
HILMAR S. EINARSSON,
Sólbakka,
Bakkafirði,
sem andaðist föstudaginn 27. mars sl., verður
jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju laugardag-
inn 4. apríl kl. 11.00.
Þórhalla Jónasdóttir,
Steinar Hilmarsson, Sjöfn Aðalsteinsdóttir,
Hilmar Þór Hilmarsson, Freyja Önundardóttir
og barnabörn.