Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 74
74 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnbofflnn frumsýnir í öllum landsfiórðungum teiknimyndina Anastasíu sem sýnd er bæði
með íslensku tali og ensku með úrvalsleikurum sem ljá sögupersónunum raddir sínar.
Frumsýning
ANASTASÍA er teiknimynd í
fullri lengd fyrir börn og
fullorðna og er myndin upp-
full af ævintýrum, spennu, róman-
tík og tónlist. Myndin fjallar um
týnda rússneska prinsessu, sem er
síðasti lifandi meðlimur Romana-
ov-keisarafjölskyldunnar, og ótrú-
legt ferðalag hennar í leit að upp-
runa sínum. í þessu einstaka ævin-
týri takast Anastasía og samferða-
menn hennar á við hinn illa
Raspútín, leðurblökuna Bartók og
fleiri ógnvænleg furðudýr, sem
gera allt sem í þein-a valdi stendur
til að fullkomna þau álög sem
■ yjjaspútín lagði á fjölskyldu
Anastasíu. Pegar Anastasía hefur
svo að lokum náð takmarki sínu og
fundið ömmu sína í París stendur
hún frammi fyrir því að þurfa að
velja á milli þess að gefa sig alfarið
að prinsessulífinu eð hinni einu og
sönnu ást.
Anastasía er frumsýnd í Regn-
boganum, Sambíóunum, Háskóla-
bíói, Borgarbíói á Akureyri, Egils-
stöðum, i Vestmannaeyjum og á
ísafirði og er þetta i fyrsta skipti
• «;em kvikmynd er frumsýnd í öllum
landsfjórðungunum samtímis.
ANASTASIA undirbýr sig fyrir sérstakt hátíðarkvöld í Parísaróperunni.
Ævintýri
rússnesku
prinsessunnar
BRAGÐAREFURINN Dimitri og aðalsmaðurinn Vladimir
leggja Anastasíu lið.
Myndin er sýnd bæði með íslensku
og ensku tali og þá með íslenskum
texta. íslensku leikararnir sem ljá
persónunum raddir sínar eru Sig-
rún Edda Björnsdóttir, sem leggur
til rödd aðalpersónunnar, en Svala
Björgvinsdóttir leggur til söngrödd
hennar, Baldur Trausti Hreinsson,
Margrét Ákadóttir, Jóhann Sigurð-
arson, Sigurður Sigurjónsson, Ása
Hlín Svavarsdóttir og Magnús
Olafsson. í ensku útgáfunni eru það
m.a. Meg Ryan, John Cusack,
Christopher Lloyd og Kelsey
Grammer sem leggja persónunum
til raddirnar.
Anastasía er fyrsta teiknimynd-
in sem Fox-kvikmynda-
samsteypan stendur
að og var ekk-
ert til
sparað til
að ná sem
bestum ár-
angri við
gerð
myndarinn-
ar. Til þess
voru fengnir
kvikmynda-
gerðarmenn-
irnir Don
Bluth og
Gary Goldman sem unnu við
gerð teiknimynda hjá Disney á
áttunda áratugnum. Peir hófu
síðan að starfa sjálfstætt og
HINN illi Raspútín nýtur
aðstoðar leðurblökunnar
Bartók í viðureigninni
við Anastasíu.
hafa þeir meðal annars gert mynd-
imar „An American Tail“, „The
Land Before Time“ og „All Dogs Go
to Heaven", sem samanlagt hafa
skilað 575 milljónum bandaríkjadala
í aðgangseyri, en meðal nýjustu
teiknimynda þeirra eru „Thum-
belina“ og „Á Troll in Central
Park“.
KJOLANA!
Bonus
Pater
'MMm
ir''1 m 1 ” IÍTTFTT
apríltilboð
Myndsnælda 45 mln. x 2 stk. (VHS C)
Myndsnælda 90 min. x 2 stk. (8 mm)
279kr
Verö áöur:
410 kr.
Sám 2000 hreinsir (turbo 1 Itr.)
Sóma langlokur / Coca Cola 0,5 Itr. dós
/Coca Cola diet 0,5 Itr. dós
299i
'kr.
Verö áður:
395 kr.
Marino kaffi (450 gr.)
495,
Verð áöur:
990 kr.
Northland arinkubbar
1 kassi (3 Ibs. x 6 stk)
39„r
Verð áöur:
38 kr.
Pops súkkulaöi 40 gr. / Kókosbar
súkkulaði / Kinder egg / Kit-Kat
/ Homeblest (blátt)
Uppgrip eru á eftirtöldum stöðum:
© Sæbraut við Kleppsveg © Mjódd í Breiðholti
© Gullinbrú í Grafarvogi
© Hamraborg í Kópavogi
© Alfheimum við Suðurlandsbraut © Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ
© Háaleitisbraut við Lágmúla
© Vesturgötu í Hafnarfirði
© Ánanaustum
© Langatanga í Mosfellsbæ
© Klöppvið Skúlagötu
© Tryggvabrautá Akureyri
olís
létfir f>ér lífiS