Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján ISAFOLD Helgadóttir, nemandi í 2. bekk U í Menntaskólanum á Akur- eyri, ásamt nokkrum bekkjarsystkinum sínum.. Snúin stafsetningarkeppni á Listaviku MA ísafold fékk 10 Sparisjóðir taka við rekstri íslandspósts Ibúum býðst heimabanki og pósthólf án kostnaðar ÍBÚUM á þeim svæðum þar sem þrír sparisjóðir í Eyjafírði og S- Þingeyjarsýslu munu taka við rekstri póstafgreiðslustöðva fyrir Islandspóst býðst ókeypis áskrift að heimabanka til 1. janúar árið 2000. Sparisjóðirnir ei-u í Hrísey og Grenivík í Eyjafirði og á afgreiðslu- stöðum Sparisjóðs S-Þingeyjar- sýslu á Laugum í Reykjadal og í Mývatnssveit. Einnig verður íbúum á þessum svæðum boðið að taka pósthólf sér að kostnaðarlausu. Orn Skúlason, framkvæmda- stjóri markaðs- og sölusviðs ís- landspósts, sagði að ekki stæði til ÍSAFOLD Helgadóttir frá Ólafs- vík, nemandi í 2. bekk U í Menntaskólanum á Akureyri, náði mjög athyglisverðum árangri í stafsetningarkeppni sem lialdin var í tengslum við Listaviku skólans. Isafold sigraði í keppninni og var eini þátttak- andinn sem skilaði prófí upp á 10. Stefán Þór Sæmundsson, kenn- ari í MA, sem samdi prófíð, sagði það hafa verið „svínslega" erfítt og hann átti alls ekki von á að nokkur kæmist villulaust í gegn- um prófið. Það gerði Isafold hins vegar og í heild sagði Stefán Þór að útkoman hefði verið góð. Aksjón 20.25 Þ’Sjónvarpskringlan - Akureyri íbRÍÍTTIR 2100^KA Val IrllUI IIII ur. Gunnar Níels- son lýsir fyrsti leik KA og Vals í 4 liða úrlitum íslandsmótsins í handknattleik. Árangurinn mjög góður „Það var mjög óvenjulegt framtak hjá nemendum að bjóða upp á stafsetningarkeppni á Listaviku og það er ekki á hverj- um degi sem þeir fara sjálfviljug- ir í stafsetningarpróf. Um var að ræða einstaklingskeppni og keppni milli bekkjardeilda en þó sendu ekki allar bekksagnir full- trúa í keppnina. Þetta var virki- lega snúin stafsetningaræfing og nemendur fengu frá 0 og upp í 10 villur og það er afar góður ár- angur.“ Stefán Þór sagði að nemendur í 1. bekk væru prófaðir í staf- setningu er þeir hæfu nám við skólann og þeir sem væru slakir ættu kost á aukatúnum. „Þessar æfíngar eru mjög léttar, almenn- ur texti skrifaður eftir upplestri, en oft eru nemendur með 5 til 20- 30 villur og þeir sem standa illa fá stuðning og veitir ekki af. Við vitum að það skiptir svo miklu máli að sá sem er að skrifa texta og koma honum frá sér, hvort sem það er t.d. ritgerð, fréttatil- kynning eða atvinnuumsókn, skili honum villulausum." * Agætis veiði þegar gefur Grímsey. Morgunblaðið. ÁGÆTIS VEIÐI hefur verið hjá netabátum í Grímsey að undanförnu og hafa menn komist upp í rúm 10 tonn eftir nóttina í aðeins 50 net. Uppi- staða aflans er þorskur en einnig hefur svolítill karfí slæðst með. Þrátt fyrir ágætis veiði hef- ur veðráttan hamlað sjósókn nokkuð og hafa menn oft þurft að draga net sín úr sjó vegna veðurs. Veiði línubáta hefur verið sæmileg en veðr- átta hamlað sjósókn þeirra. Einn bátur er gerður út á dragnót frá Grímsey og hefur hann róið austur í Öxarfjörð að undaníornu með ágætum árangri. Þótt hrafninn sé kannski ekki einn af vorboðunum leyn- ir sér ekki að vorið er komið þegar hann er farinn að bera að efnivið í hreiðurgerð. Akureyrardeild RKI færði FSA góðar gjafír Fullkomna kennsludúkku og ferðafóstrukassa AKUREYRARDEILD Rauða kross Islands hefur nýlega fært Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að gjöf mjög fullkomna dúkku til kennslu og þjálfunar í endurlífgun. Einnig hefur Akureyrardeildin gef- ið barnadeild FSA ferðafóstrukassa frá þýsku Drager-verksmiðjunum. Dúkkan er af fullkomustu gerð og hefur nýst ákaflega vel til að þjálfa bæði starfsfólk FSA og sjúkraflutningamenn í háþróaðri endurlífgun, þar með talin notkun á hálfsjálfvirku rafstuðtæki sem komið er í sjúkrabfla Rauða kross- ins á Akureyri. Dúkkan er í umsjá hjartalæknis á lyflækningadeild sjúkrahússins en geymd hjá sjúkra- flutningamönnum á Slökkvistöð Akureyrar, sem nota hana reglu- bundið til þjálfunar. Ferðafóstrukassi sannað gildi sitt Ferðafóstrukassinn er af svoköll- uðu gjörgæslumódeli með öndunar- vél, sogi, súrefni og ýmsum öðrum aukabúnaði, þ.m.t. sérhönnuð dýna, sem hægt er að láta leggjast að barninu og halda því kyrru í flutn- ingi. Þá eru og möguleikar á að festa við hann ýmis mælitæki og nýtist hann því barnadeildinni vel til flutninga á veikum nýburum, Morgunblaðið/Kristján JÓN Kr. Sólnes, forinaður Akureyrardeildar RKÍ, (t.v.) og Jón Þór Sverrisson, sérfræðingur í hjartalækningum, við dúkkuna og búnað- inn sem henni fylgir. m.a. til að sækja veika nýbura til Grænlands. Akureyrardeild RKÍ færði bama- deild FSA ferðafóstrukassa fyrir um 18 árum. Sá kassi hefur sannað gildi sitt margsinnis þótt ekki væri hann jafn fullkominn og hinn nýi. Flutningur á veikum nýburum til og frá barnadeild hefur aukist mjög sl. ár, bæði með tilkomu samkomu- lags við vökudeild Barnaspítala Hringsins varðandi þjónustu við fyrirbura og veika nýbura, svo og samningi við grænlensku heima- stjómina um bráðaþjónustu við veik börn á austurströnd Græn- lands. Gamli kassinn var orðinn mjög lúinn og svaraði ekki kostnaði að gera við hann. Því kemur hin nýja ferðafóstra sér afar vel. að skerða þjónustu í kjölfar þess að sparisjóðimir tækju við rekstri póstafgreiðslnanna, en einhver misskilningur hefði þó komið upp um að póstur yrði ekki borinn út til íbúanna. Hann sagði að þeir myndu hafa þann valkost að sækja sinn póst í pósthólf, t.d. um leið og þeir sinntu bankaerindum, en póst- ur yrði borinn út til þeirra sem ekki taka pósthólf. Hraðbankar settir upp Friðrik Friðriksson, sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Svarí'dæla á Dal- vík, segir enga ástæðu til að ætla að þjónusta verði lakari í kjölfar þess að sparisjóðir á Norðurlandi taki við rekstri póstafgreiðslu- stöðvar á þessum fjómm stöðum. Þvert á móti yrði boðið upp á góða þjónustu og nefndi hann m.a. að hraðbankar yrðu settir upp á öllum stöðunum þar sem fólk gæti sinnt viðskiptum sínum þegar því hent- aði. Einnig yrðu afgreiðslurnar opnar í hádeginu sem ekki hefði tíðkast áður. „Við eram að leggja í mikinn kostnað við þetta verkefni og von- um að íbúarnir kunni að meta það,“ sagði Friðrik Morgunblaðið/Kristján Leikfélag Menntaskólans á Akureyri Ferðin á heimsenda LEIKFÉLAG Menntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld, fímmtudagskvöldið 2. apríl, leik- ritið „Ferðin á heimsenda" eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur í leik- stjórn Sögu Jónsdóttur. Sýnt verður í Samkomuhúsinu á Akur- eyri. Leikritið er barnaleikrit, fal- legt og hugljúft ævintýri með söngvum, tónlist og glensi og höfðar til allra aldurshópa. Fylgst er með ferð þriggja ferða- langa á heimsenda með gripinn Geislaglóð til að bjarga framtíð álfanna í Ljósalandi. Galdramað- urinn Hrappur og hjáiparhella hans sækjast eftir Geislaglóð og ferðalangarnir þrír verða að hafa sig alla við til að koma í veg fyrir að það takist. Einnig rekast þremenningarnir á ýmsar kynja- verur, s.s. tröll, vetrarálfa, köngulær og fleira á ferð sinni. Á myndinni eru þrír af leikur- unum, Amma í ramma er Harpa Elín Haraldsdóttir, Steinunn Björgvinsdóttir, sem leikur Skottu, og Jón Bergmann Mar- onsson, sem leikur Hrapp. Kennaradeild Háskólans á Akureyri Fær hrós fyrir sereinkenni sín KENNARADEILD Háskólans á Akureyri fær hrós fyrir skýr mark- mið og þá sérstöðu sem hún hefur skapað sér í menntun grunnskóla- kennara í skýrslu ytri matshóps sérfræðinga á vegum menntamála- ráðuneytisins, sem gert hefur ítar- lega könnun á kennaramenntunar- stofnunum á Islandi, en hún var birt í síðustu viku. „Það gladdi okkur að sjá að áhersla okkar á fámenna skóla, raungreinar og heimspekilega yfír- sýn er metin að verðleikum í skýrsl- unni,“ sagði Kristján Kristjánsson, prófessor og starfandi forstöðumað- ur kennaradeildar. „Einnig fáum við rós í hnappagatið fyrir skipulag á æfingakennslu okkar og vett- vangsnámi, sem er samfelldara en víðast annars staðar, nemendur eru heilt misseri í tilteknum grunn- skóia.“ I skýrslunni er bent á það sem áhyggjuefni hve fáir nemendur inn- ritist í grunnskólakennaranám á Akureyri og deildin hvött til að kynna sérstöðu sína betur út á við. Kristján sagðist vona að hið já- kvæða mat á inntaki námsins myndi hvetja fleiri nemendur til að sækja um skólavist nú í vor. Við kennaradeild eru einnig starfræktar leikskólakennarabraut og námsbraut fyrir starfandi leið- beinendur til kennsluréttinda. Þá verður í haust í fyrsta sinn hér á landi boðið upp á sérskipulagt nám fyrir starfandi leikskólakennara til B.Ed.-prófs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.