Morgunblaðið - 02.04.1998, Side 24

Morgunblaðið - 02.04.1998, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ D □ ISETNINGARÞJONUSTA SERSMIÐI Bílavörubúðin Fjöðrin selur pústkerfi, dráttarbeisli og höggdeyfa í miklu úrvali. Á verkstæði okkar er boðið upp á sérsmíði á pústkerfum og ísetningu á höggdeyfum og dráttarbeislum. Bílavörubúðin FJÖDRIN ifararbroddi SÉRSMÍÐAVERKSTÆÐI, GRENSÁSVEGI5, SÍMI588 2555. UR VERINU Frumvarp um veiðar á norsk-íslenzku sfldinni Aflaheimildum úthlutað á skip næstu þrjú árin SJAVARUTVEGSRAÐHERRA hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um stjórn veiða úr norsk-ís- lenzka síldarstofninum. Þar er gert ráð fyrir að aflaheimildum verði út- hlutað á skip, en veiðarnar verði ekki frjálsar innan heildarkvóta eins og verið hefur. Jafnframt er gert ráð fyrir því að framsal þess- ara heimilda verði takmarkað. Ekki er um varanlega úthlutun aflahlutdeildar að ræða. Ekki er gert ráð fyrir því að þær útgerðir, sem fái veiðiheimildir, verði að af- sala sér á móti ákveðnu hlutfalli Eru peningarnir þínir örugglega á réttum stað? Skiptir fjárhagslegt öryggi þig rniklu máli? Við hjá VIB teljum það vera hlutverk okkar að vaka yfir fjármunum viðskipta- vina okkar með þeirra hagsmuni að leiðarljcsi og veita þeim þá bestu þjónustu sem völ er á. Gefðu þér tíma til að íhuga hvað liggur að baki þessum orðum og hvað þau geta þýtt fyrir fjárhagslegt öryggi þitt. Þau þýða einfaldlega að við skuld- bindum okkur til að vinna af einurð að hagsmunum viðskiptavina okkar. Sífellt fleiri telja Verðbréfasjóði VÍB vera rétta staðinn fyrir peningana sína mars '96 ágúst '96 mars '97 ágúst '97 mars '98 3,5 5,0 6,0 7,7 14,4 Stærð Verðbréfasjóða VÍB í milljörðum króna. Má ekki bjóða þér að líta itin og sjá hvemig við getum aðstoðað þig? VIB Verið velkomin í VÍB og til verðbréfafulltrúa í útibúum íslandsbanka VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi • Sími: 560-8900, 800-4-800 • Myndsendir: 560-8910 ■ Veffang: www.vib.is ■ Netfang: vib@vib.is Framsalsheimildir innan hvers árs takmarkaðar veiðiheimilda innan lögsögu eins og gildir um veiðar á Flæmska hattin- um og utan lögsögu á Reykjanes- hrygg. Samkvæmt frumvarpinu er veiðistjórnunin aðeins ákveðin til þriggja ára, 1988, 1999 og 2000. Engin skip fá leyfí til síldveiðanna nema þau hafí leyfi til veiða í at- vinnuskyni innan fískveiðiland- helginnar. Skipta skal að minnsta kosti 90% af þeim árlega veiði- heimildum sem í hlut íslands koma milli þeirra skipa, sem veiðar hafa stundað úr norsk-íslenzka stofnin- um á þremur síðustu árum, eða skipa, sem komið hafa í þein-a stað. 60% heimildanna skal skipta milli skipanna eftir burðargetu og 40% skal skipta jafnt. Allt að 10% af ár- legum heildaraflaheimildum skal skipta jafnt milli annarra skipa á grundvelli reglna sem sjávarút- vegsráðherra setur, þó þannig að aldrei komi meira magn í hlut skips, en sem nemur 25% af meðal- tals aflahámarki. Framsal takmarkað við 50% Innan hvers árs er heimilt að framselja ákveðinn hluta árlegs aflahámarks hvers skips miðað við aflareynslu þess við veiðar úr norsk-íslenzka síldarstofninum á þremur síðustu vertíðum og leyfi- legan heildarafla hvers árs. Skal það magn, sem heimilt er að fram- selja nema 50% af sama hlutfalli heildarveiðiheimilda og nam hlut- deild sama skips í heildarafla síð- ustu þriggja vertíða. Endurúthlutun heimil Sjávarútvegsráðherra skal setja með reglugerð nánari reglur um framkvæmd veiðanna. Ráðherra getur meðal annars ákveðið að sér- stakar reglur skuli gilda um úthlut- un á takmörkuðu aflamagni sem ís- lenzkum skipum er heimilt að veiða innan lögsögu annarra þjóða. Þá getur ráðherra ákveðið að endurút- hluta skuli aflaheimildum eftir til- tekinn tíma, sýnist það nauðsyn- legt til að fullnýta leyfðan afla ís- lenzkra skipa. Loks skal ráðherra, samkvæmt fí-umvarpinu, fyrir fyrsta nóvem- ber árið 2000 leggja fyrir AJþingi frumvarp um stjórn þessara veiða eftir árið 2000. Viðræður um loðnu í Ósló í dag „Mikilvægt að ná niðurstöðu fljótt“ FORMLEGUM viðræðum um nýj- an loðnusamning milli íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga verður fram haldið í Ósló í dag og á morgun. Jóhann Sigurjónsson, sendiherra og formaður íslensku viðræðunefndarinnar, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki geta sagt til um hvort þessi þriðja formlega lota samningavið- ræðna þjóðanna myndi enda með gerð nýs samnings. Hins vegar væru allar forsendur fyrir hendi að hægt væri að setjast að raunveru- legri samningagerð þar sem gögn um þróun veiðanna og viðhorf þjóðanna til gerðar nýs loðnusamn- ings lægju nú ijós fyrir. Óformlegur undirbúningsfundur var haldinn í Kaupmannahöfn í desember sl. þar sem farið var fyrst yfir stöðuna. Síðan var farið mjög ýtarlega yfir stöðuna í lok febrúar í Reykjavík. Samningsaðil- ar útskýrðu þá sínar kröfur og við- horf til nýs samnings. Þær tvær þjóðir, sem sagt hafa upp núgild- andi loðnusamningi, íslendingar og Grænlendingar, greindu frá ástæð- um fyrir uppsögninni auk þess sem aðilar settu fram sínar kröfur. „Við teljum að nú sé tímabært að MEG frá ABET UTANÁHÚS FYRIRLIGGJANDI ►>. ÞORGRÍMSSON &CO J7j| ARMULA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK Jyf SIMI553 8640 568 6100 taka á hinum eiginlegu samningum. Ég get ekki sagt fyrirfram um það hvort samningar náist nú, en við teljum það vera mjög mikilvægt að ná niðurstöðu fljótt. Við höfum því ákveðnar væntingar til viðræðn- anna nú og teljum það í raun og veru í rökréttu samhengi við það sem á undan er gengið þar sem búið er að fara mjög ítarlega í gegnum stöðuna. Samningsaðilar hafa skýrt sín sjónarmið svo vel að viðræðum- ar þyrftu ekki að vera neitt þoku- kenndar lengur,“ segir Jóhann. Mikið ber í milli Því er hins vegar ekki að leyna að töluvert hefur borið á milli í við- ræðunum hingað til, að sögn Jó- hanns. „Á meðan íslendingar telja að tryggja þurfí raunhlutdeild úr stofninum betur en gert er í nú- gildandi loðnusamningi, telja Norðmenn að samningurinn geti staðið óbreyttur og að ekki sé ástæða til að breyta formi hans að neinu leyti. Auk hlutdeildaraukn- ingar úr 78% í 86-87%, sem er raunhlutdeild okkar úr stofninum, viljum við að samið sé um aðgang að lögsögum tvíhliða en ekki þrí- hliða, eins og nú er. Norðmenn telja það ekki nauðsynlegt en Grænlendingar eru á hinn bóginn sammála okkur um að semja beri um aðgang að lögsögum tvíhliða. Þá telja Islendingar að styrkja þurfí framkvæmd eftirlits- og upp- lýsingamála." Sjö manna sendinefnd Auk Jóhanns, eiga sæti í sendi- nefnd íslendinga þeir Jón B. Jón- asson og Snorri Rúnar Pálmason frá sjávarútvegsráðuneytinu, Al- bert Jónsson frá forsætisráðuneyt- inu, Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssambands íslenskra út- vegsmanna, Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands ís- lands, og Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.