Morgunblaðið - 02.04.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 02.04.1998, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 MORGUNB LAÐIÐ ERLENT Helsti sprengjusmiður Hamas myrtur á Vesturbakkanum Fyrrverandi Ungfrú Bandaríkin kveðst hafa haft mök við Clinton Israelar neita að hafa átt hlut að máli Fulltrúar Hamas-samtakanna lofa hefndum Jerúsalem. Reuters. PALESTÍNSK lög- regla greindi f'rá því í gær að meintur sprengjusmiður palest- ínsku samtakanna Hamas, Muhyideen al- Sharif, hefði verið skot- inn til bana og lík hans skilið eftir við hlið bíls sem sprengdur var í loft upp á Vesturbakk- anum á sunnudag. ísra- elar neituðu því að þeir hefðu staðið að morðinu á al-Sharif, en hann var efstur á lista yfír þá menn sem Israelar vildu koma höndum yf- ir vegna sjálfsmorðs- sprengjuárása er orðið hafa fjölda manns að bana í Israel. Fulltrúar Hamas hétu því í gær að morðsins á al-Sharif yrði hefnt. Palestínskir unglingar létu reiði og kröfðust hefndaraðgerða og grýttu ísraelska hermenn. Hermennimir svöruðu með gúmmíkúlum og táragasi. Atökunum linnti er palestínskir lögreglumenn skárust í leikinn. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, neitaði því alfarið að ísraelar hefðu átt nokkurn þátt í að al- Sharif var felldur, en hann hefur ekki sést opinberlega í um þrjú ár. Margir Israelar áttu þó erfitt með að dylja ánægju sína rneð að al-Sharif, sem ísra- elar telja ábyrgan fyrir morðum á fjölda gyð- inga, skuli vera allur. „Eg veit ekki hvort maður á að tjá ham- ingjuóskimar á hebr- esku eða arabísku. En hver sá, sem réð [al- Sharif] af dögum, á skilið mikið hrós og þakkir frá ísraelsku þjóðinni,“ sagði Efraim Sneh, fyrrverandi hershöfðingi og þingmaður Verka- mannaflokksins. Staðgengill „verkfræðingsins" Israelskir öryggismálafulltiúar telja að al-Sharif hafi komið í stað Yahya Ayash, sprengjusmiðs Hamas, er kallaður var Verkfræð- ingurinn og var ráðinn af dögum með sprengju í farsíma á Gaza í janúar 1996. ísraelar telja að al- Sharif hafi staðið að tveim sprengjutilræðum er urðu 21 ísra- ela að bana í júlí og september sl. í Jerúsalem. Fréttaskýrendur segja að ísraelska leyniþjónustan hafi myrt Ayash, og um 50 ísraelar féllu í hefndaraðgerðum er fylgdu í kjölfarið. Palestínskir lögreglumenn sögðu í gær að fjölskylda al-Sharifs hefði borið kennsl á lík hans og krufning hefði leitt í ljós að hann hefði verið skotinn til bana þrem klukkustund- um áður en sprengingin varð á sunnudag. Ibrahim, bróðir al- Sharifs, kenndi ísraelsku leyni- þjónustunni um morðið og hét hefndum. Heimastjórn Palestínu- manna fordæmdi morðið, en gekk ekki svo langt að ásaka Israela fyr- ir það. Al-Sharif slapp naumlega undan öryggissveitum Israela í júlí 1995 er hann flúði af heimili sínu aðeins nokkrum sekúndum áður en Isra- elarnir réðust þar til inngöngu. Síðan hefur hann verið eftirlýstur. Israelar eyðilögðu heimili fjöl- skyldu hans í Austur-Jerúsalem í mars 1996 eftir sprengjutilræðin er fylgdu í kjölfar morðsins á Ayash. Muhyideen al-Sharif Reuters ELIZABETH Ward Gracen varð Ungfrd Arkansas 1982 og hreppti einnig titilinn Ungfrú Bandaríkin það ár. Vísindamenn segja „fuglaflensuna“ í Hong Kong tvö veiruafbrigði Varað við enn skæðari faraldri Hong Kong. Reuters. VÍSINDAMENN hafa uppgötvað, að „fuglaflensuna", sem varð nokkrum mönnum að bana í Hong Kong á síðasta ári, megi í raun rekja til tveggja veiruafbrigða. Gerir það bar- áttuna gegn sjúkdómnum erfiðari en ella. Vísindamennimir, sem starfa við bandarísku sjúkdómavarnastofnunina, segja, að þeir, sem veiktust í Hong Kong, hafi sýkst af tveimur af- brigðum af H5Nl-veirunni en hvortveggja get- ur leitt til dauða. Kom þetta fram á læknaráð- stefnu í Hong Kong í fyrradag. John Tam, próf- essor í veirufræði við Kínverska háskólann í borginni, sagði, að ljóst væri, að vegna þess yrði mjög erfitt að framleiða bóluefni gegn sjúk- dómnum. Lítið um mótefni í mönnum Tam sagði, að þessi uppgötvun vekti einnig upp spurningar um það hvaðan veiran er komin en talið var, að-hún hefði borist úr öndum í kjúklinga og þaðan í menn. Nú grunar menn, að ferlið geti verið öllu flóknara. Fuglaflensan getur valdið því, að starfsemi ýmissa líffæra bregst og menn hafa yfirleitt engin mótefni gegn henni. Engin ný tilfelli hafa verið skráð í Hong Kong síðan 1,4 milljónum fúgla var slátrað í desember en á ráðstefnunni í fyrradag viiruðu margii- við því, að eftir nokkurra mánaða „hvíld“ gæti veiran eða veirumar komið aftur enn skæðari en fyrr. „Ég vil alls ekki tala um þetta“ Washington. Reuters. FYRRVERANDI Ungfrú Bandarík- in, Elizabeth Ward Gracen, greindi frá því á þriðjudag að hún hefði sjálf- viljug átt kynmök við Bill Clinton, núverandi forseta, fyrir 15 ámm þegar hann var ríkisstjóri í Arkansas. Gracen sagðist hafa ákveðið að segja frá þessu nú til þess að koma í veg fyrir að andstæðingar forsetans gætu gefið í skyn að for- setinn hefði neytt hana til samfara. Gracen er 37 ára og leikur I sjón- varpsmyndaflokknum Highlander. Hún sagði í viðtali við New York Daily News: „Ég hafði samfarir við Bill Clinton, en það skiptir mig mestu að ég var aldrei neydd til neins.“ Gracen sagði að skjmdikynn- in af Clinton hefðu stafað af „alvar- legum dómgreindarskorti" og að hún hefði ákveðið að greina frá þeim til þess að bera á móti ákæraatrið- um í máli Paulu Jones gegn forset- anum. Jones hefur höfðað mál á hendur Clinton fyrir kynferðislega áreitni og segh- hann hafa reynt að fá sig til munnmaka á hótelherbergi í Little Rock í Arkansas 1991. Clinton var þá ríkisstjóri og Jones lágt settur ríkisstarfsmaður. Clinton segir ekk- ert hæft í ásökunum hennar. I viðtalinu við Daily News segir Gracen að hún hafi kynnst Clinton náið í Little Rock 1983, árið eftir að hún var kosin Ungfrú Bandaríkin. Bæði voru í hjónabandi. „Við eydd- um saman kvöldi. Enginn var neyddur til neins. Þetta var allt af fúsum og frjálsum vilja,“ sagði Gracen. „Ég vil alls ekki tala um þetta. Þetta kemur engum við.“ Fulltrúi Hvíta hússins vildi ekki tjá sig um viðtalið við Gracen. „Við höfum ekkert að segja um eitthvað sem á að hafa gerst fyrir fimmtán árum.“ þó það sé óneitanlega stór plús flYUHBA' " »»» ’vi; ’ V,, \ \ \ l o\maþyo- Tæknival Skeifan17 • 108 Reykjavík • Sími: 550 4000 Reykjavíkurvegur 64 • 220 Hafnarfj. • Sími: 550 4020 Opnunartími: 9-19 virka daga og 10 - 16 laugardaga ^^^^\..heldur líka öryggi , . og þjónustu! Hyundai 200 mmx Intel Pentium 200 MMX • 32 mb SRAM vinnsluminni • 512 kb pipeline Burst Cach skyndiminni • 2.1 GB Ultra DMA hardur diskur • 16 bita hljódkort • 24 hraöa geisladrif • 50W hátalarar • 2mb ATI Mach64 skjákort • 3,5" disklingadrif • Hnappaborö og Logitec mús • Windows 95 33,6 „fax/voice” mótald • Internetáskrift í 4 mánuði Fermingar tilbod aðeins kr. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.