Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 46

Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 46
^3*16 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Garðplöntuframleiðendur í útrýmingarhættu FYRIR rúmlega 100 árum skutu fyrstu garð- arnir upp kollinum í Reykjavík. Garðar þessir voru flestir í eigu fólks af erlendum upp- runa því engum heilvita Islendingi datt í hug að hægt væri að rækta plöntur við íslensk skil- yrði. Eftir því sem plöntumar stækkuðu j* og döfnuðu breiddist ■^garðræktin út og eftir- spurn eftir plöntum jókst. Framsýnir menn stofnuðu garðyrkjufé- lag sem dreifði plönt- um, fræjum og græjum til ræktunar um landið og fræddi al- menning um kosti ræktunarinnar. Ungt fólk hélt utan til náms í garð- yrkju og flutti heim með sér mikil- væga þekkingu. Um miðja öldina má segja að garðplöntuframleiðsla eins og við þekkjum hana hafi orðið að veruleika. Garðar voru orðin algeng sjón við hýbýli landsmanna og gróðr- arstöðvar sem sérhæfðu sig í ræktun garðplantna urðu til. í dag þykir ekkert sjálfsagðara en að rækta plöntur í kringum mannabústaði. Garðyrkjuáhugi al- mennings vex með ári hverju og garðyrkjan sem fag er í sókn. Mað- ur skyldi því ætla að af- koma garðplöntufram- leiðenda, þeirra sem framleiða plöntumar fyrir allt garðyrkjuá- hugafólkið, fari batn- andi með ári hverju. Pað er af og frá. Á tím- um þjóðarsáttar gerð- ust garðplöntuframleið- endur þjóðarsáttir, eins og aðrir þjóðfélags- þegnar og ákváðu að gera sitt til að halda verðlagi stöð- ugu. Svo þjóðarsáttir voru þessir að- ilar að nú, átta árum seinna, eru plöntur enn seldar á sama verði og í upphafí þjóðarsáttarinnai'. Reyndar má segja að garðplöntuframleiðend- ur hafi byrjað sína þjóðarsátt árið 1988 því plöntuverð hefur haldist óbreytt síðan. Þrátt fyrir það hefur verðlag miðað við neysluvísitölu hækkað um rúm 74% og þar með öll aðfóng til framleiðslunnar. I stað Garðyrkjuáhugi almennings vex með ári hverju. Guðríður Helgadóttir telur áhyggjuefni hve léleg afkoma garðplöntu- framleiðenda er. þess að þróun verðlags á garðplönt- um hafi fylgt því sem gerst hefur í þjóðfélaginu á þessum tíma hafa framleiðendurnir hert sultarólina, hagrætt í framleiðslunni og sagt upp starfsfólki, allt til að halda plöntu- verðinu niðri. Inn í þetta spilar að sjálfsögðu harðnandi samkeppni og undirboð, eins og í öðrum greinum. Þegar við horfum til nágrannalanda okkar sjáum við að þar er plöntuverð á bilinu 50-75% hærra en hér á landi. Á sama tíma er verð á öðrum neysluvörum svipað eða töluvert lægi-a en hérlendis. Garðyrkja á íslandi hefur nokki-a sérstöðu vegna einangrunar landsins og þeirrar tegundafæðar sem ein- Guðríður Helgadóttir kennir íslensku flóruna en til hennar teljast einungis um 450 tegundir há- plantna. Ræktunarsaga okkar ein- kennist af gríðarlega mikilli tilrauna- starfsemi og hafa garðplöntufram- leiðendur átt sinn þátt í því að finna plöntur sem henta fyrir íslenskar að- stæður. Smám saman hefur byggst upp úrval tegunda sem þrífast í ís- lensku loftslagi og hafa menn mark- visst reynt að velja til fjölgunar plöntueinstaklinga sem skara fram úr. Segja má að innlend framleiðsla sé sérhæfð fyrir íslenskar aðstæður. Enn fremur má benda á það að vegna einangrunar landsins er ótrú- lega lítið um meindýr og sjúkdóma á garðplöntum. Eftirlit með innflutn- ingi er strangt og ekki má flytja inn hvaða plöntur sem er. I nágranna- löndum okkar má fínna aragrúa skaðvalda sem gætu valdið miklum usla í íslenskri ræktun ef þeir slys- uðust hingað til lands. Þjóðhagsleg hagkvæmni þess að rækta plöntur á Islandi er því ótvíræð. Garðplöntumarkaður á Islandi er afar litÓl. Stærsta markaðssvæðið er í kringum höfuðborgai'svæðið og þar eru jafnframt flestar garðplöntu- stöðvarnar staðsettar. Allar sveiflur á markaðnum hafa mikil áhrif. Þegar verð á framleiðsluvöru hefur einu sinni dottið niður úr öllu valdi, jafn- vel langt niður fyrir framleiðslu- kostnað, tekur það mjög langan tíma fyrir markaðinn að jafna sig og vöru- verðið að komast á eðlilegt plan. Þetta hefur ítrekað gerst á sumar- blómamarkaðnum en margar garð- plöntustöðvar byggja stóran hluta afkomu sinnar á ræktun sumar- blóma. Hagsmunaaðilum innan greinar- innar er það mikið áhyggjuefni hversu léleg afkoma hennar er. Fæstar garðplöntustöðvar hafa efni á að hafa fagfólk í vinnu allt árið. Fagmenntað fólk leitar því gjarnan í önnur öruggari störf og við það eykst hættan á því að fagþekking minnki í greininni. Garðplöntustöðv- arnar hafa mikið byggt á sumar- vinnu unglinga. Með lengingu skóla- ársins og reglum EES um vinnu- vernd barna og unglinga er ljóst að framleiðendur verða að leita annað eftir vinnuafli. Aðsókn nemenda í Garðyi-kjuskóla ríkisins hefur, enn sem komið er, ekki dvínað en það er staðreynd að fæstir þeir sem læra garðplöntuframleiðslu fara út í það að stofna eigin garðplöntustöð. Öll ytri skilyrði til þess eru einfaldlega óhagstæð. Nýliðun í greininni er hverfandi og ef garðplöntuframleiðendur væru dýrategund væru þeir álitnir í út- rýmingarhættu. Með markvissum aðgerðum má snúa þessari þróun við en þær aðgerðir verða að koma frá framleiðendunum sjálfum. Höfundur er fagdeildarstjóri garö- plöntubrautar Garðyrkjuskóla ríkis- ins. AOAUGLVSIIMGAR Ráðstefna um lagnir í skipum haldin af Lagnafélagi íslands, í samvinnu við Vélstjórafélag íslands, með málefnastuðningi frá Siglingastofnun íslands, Fræðsluráði málm- iðnaðarins, Vélskóla íslands, Kælitæknifélagi íslands, Málmi (Samtökfyrirtækja í málm- og skipaiðnaði), Tækniskóla íslands og Háskóla íslands á Hótel Lofleiðum laugardaginn 4. apríl nk. Innritun hefst kl. 8.00. Ráðstefnustjóri: Kristján Ottóson, vélstj./blikksmíðameistari, framkvstjóri Lagnafélags íslands. Fundarstjórar: Dr. Valdimar K. Jónsson, vélaverkfr., prófessor HÍ og Guðmundur Hjál- marsson, byggingatæknifr., deildarstj. byggingad. TÍ. Ritari: Ólafur Eggertsson, rekstrartæknifr., Samtökum iðnaðarins. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um: Gæðamál og reglugerðir: Guðmundur Guðmundsson, vélaverkfræð- ingur, forstöðumaður skoðunarsviðs Sigl- ' ingastofnunar íslands. Tæring málma: Pétur Sigurðsson, efnaverk- fræðingur, sjálfstæður ráðgjafi. Hönnun loftræsti- og hitakerfa í skipum: Leslie P.B. Jensen, verkfræðingur. Kæli- og frystikerfi: Haraldur Baldursson, véltæknifræðingur, Kælismiðjunni Frost hf. Vökvakerfi í skipum: Hjalti Þorvarðarson, vélfræðingur, framkvstj. HP. vökvabúnaðar. Þjónusta loftræsti- og hitakerfa í skipum: Kristján Ottósson, vélstjóri/blikksmíðameist- ari, framkvæmdastjóri Hita- og loftræstiþjón- ustunnar og Lagnafélags íslands. Olíur, eiginleikar og meðferð: Herbert Herbertsson, vélfræðingur, elds- neytis- og smurolíuráðgjöf ESSO. Frárennslislagnir í skipum: Steinar Viggósson, skipatæknifræðingur, rekstrarstjóri, Stálsmiðjunni hf. Áhrif súrefnisskorts og óhreins lofts á mannslíkamann: Helgi Guðbergsson, yfirlæknir atvinnusjúkdómadeildar Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. Umræðuhópar starfa. Ráðstefnuslit kl. 16.40. Ráðstefnan er öllum opin. Aðalfundur Hótels ísafjarðar hf. verður haldinn á Hótel ísafirði föstudaginn 17. apríl kl. 16.00. Dagskrá samkvæmt 3. gr. samþykkta félagsins. Stjórn Hótels ísafjarðar hf. Stefnuþing Reykjavíkur- listans 1998 Stefnuþing Reykjavíkurlistans vegna borgarstjómarkostninganna verður haldið laugardaginn 4. apríl í Kiwanishúsinu Engjateigi 11. Þingið er opið öllum stuðningsmönnum Reykja- víkurlistans. Þingið mun standa frá kl. 9.30—15.00. Stefnuþingsgjald er 1.500 kr. og innifalið í því er iéttur hádegisverður. Dagskrá: Kl. 9.30 Móttaka og skráning. Kl. 10.00 Setning: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Kl. 10.30 Málefnahópar að störfum. Kl. 12.00 Hádegisverðarhlé Kl. 13.00 Málefnahópar skila af sér. Kl. 13.45 Almennar umræður. Kl. 14.30 Afgreiðsla stefnuyfirlýsingar. Kl. 14.50 Stefnuþingsslit. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu Reykjavíkurlistans, Hafnarstræti 20, sími 561 9498. REYKJAVIKURLISTINN STVRKIR Framkvæmdanefnd búvörusamninga í samræmi við samning um framleiðslu sauð- fjárafurða frá 1. október, auglýsir Fram- kvæmdanefnd búvörusamninga styrki til hag- ræðingar- og vöruþróunarverkefna í slátrun og vinnslu sauðfjárafurða. Skilafrestur umsókna er annars vegartil 1. júní 1998 og hins vegar 1. ágúst 1998. Nánari upplýsingar og reglur um úthlutun er hægt að fá í landbúnaðarráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, sími 560 9750 og hjá Bænda- samtökum íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg, sími 563 0300. ÝMISLEGT Rekstur Golfskála! Rekstraraðili óskast í golfskálann Kiðjabergi í Grímsnesi mánuðina júní- júlí- ágúst nk. Upplýsingar hjá Meistarafélagi húsasmiða í síma 553 1277 (Eygló) SMAAUGLYSINGAR FÉLAGSLÍF □ Hlín 5998040219 VI Landsst. 5998040219 VII I.O.O.F. 5 = 1782648 = 5h. I.O.O.F. 11 = 178428 = Sk. Næstu dagsferðir Sunnudaginn 5. apríl kl. 10.30 frá BSÍ. Gengið á reka um suður- strönd Reykjanesskagans. Fimmtudaginn 9. apríl, skírdag- ur, kl. 10.30 frá BSÍ Kaldársel um Kýrskarð. Sunnudaginn 19. apríl. Grónar götur 1 — ný göngusyrpa í þremur áföngum. Páskaferðir 9, —13. apríl: Skaftárdalur — Lakagígar. Skiðaganga. 9.—13. apríl: Sigalda — Fjallabak — Skaftárdalur. Skíðaganga. 9,—13. apríl: Sigalda — Land- mannalaugar — Básar. Skiða- ganga. 11.—13. apríl: Básar um páska — ferð fyrir alla. Kvöldvökur, göngu- ferðir o.fl. 11. —13. apríl: Fimmvörðuháls um páska. 9. —13. apríl: Fullbókað er í Grímsvatnaferð jeppadeildar. Ferðaáætlun 1998 Ferðaáætlun 1998 fæst á skrif- stofu Útivistar. Skráning þátt- töku i sumarferðir stendur yfir. Myndakvöld Útivistar verður haldið í Fóstbræðraheimilinu fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30. Gestur kvöldins verður Ingvar Teitsson, formaður Ferðafélags Akureyrar sem sýnir myndir frá Öskjuveginum, gönguleiðin Herðubreiðalindir — Svartárkot og kynnir leiðir um Gjögurskarð og Glerárdalssvæðið. 18.—24. júlí er Öskjuvegurinn á dagskrá hjá Útivist. Mætið og kynnið ykkur gönguleiðir um ein- staka náttúru. \r--7/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Fjöl- breytni I bibliulestri. Umsjón: Sr. Bragi Friðriksson. Upphafsorð: Gunnar Örn Jónsson. Allir karlmenn velkomnir. Frímúrarareglan Netfang: isholf.is./frmr FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Páskaferdir Ferðafélagsins 1. Snæfellsnes — Snæfells- jökull, 9, —11.04. Jökulganga, strandgöngur. Gist að Lýsuhóli. Sundlaug. 2. Skíðagönguferð í Land- mannalaugar, 9. —11.04. Farangur fluttur. Gist i sæluhús- inuþaugum. 3. Ökuferð í Landmannalaug- ar 9. —11.04. Ný ferð þar sem farið er á jeppum að sæluhúsinu i Laugum og gist þar. Gönguskíði ekki nauðsynleg. 4. Þórsmörk, 11. —13.04. Til- valin fjölskylduferð. Gist í Skag- fjörðsskála. Uppl. og miðar á skrifstof- unni í Mörkinni 6, sími 568 2533. Færeyjaferð 10.—18. júní og Skotlandsferð 7.—17. ágúst í samvinnu við Vestfjarðaleið (s. 562 9950). Upplýsingablöð á skrifst., s. 568 2533. Bókið strax. Athugið að margar sumarleyfis- ferðir innanlands eru að fyllast. Sjá ferðir I ferðaáætlun og á heimasíðu: http://www.fi.is Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Kvöldvaka kl. 20.30. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar. Allir hjartanlega velkomnir. KENNSLA — Leiklistarstúdíó — Eddu Björgvins og Gisla Rúnars. Vornámskeið fyrir fullorðna. Skráningar í síma 581 2535.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.