Morgunblaðið - 02.04.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 49*T
Olvunarakstur og af-
leiðingar umferðarslysa
Hj úkrunarfr æ ðingar
að störfum innan end-
urhæfingar þurfa að
takast á við afleiðingar
umferðarslysa, oft
mjög alvarlegar og
langvarandi.
Vaxandi fjöldi öku-
manna sem tekinn er
ölvaður við akstur hef-
ur verið okkur
áhyggjuefni og sérstak-
lega sú viðhorfsbreyt-
ing sem orðið hefur í
þjóðfélaginu á undan-
fórnum árum meðal
ökumanna, að eðlilegt
þyki að neyta áfengis,
þ.e. bjórs eða léttvíns,
setjast síðan undir stýri og aka bif-
reið.
Þessari þróun þarf að snúa við
og við teljum að líklega verði það
ekki gert nema að lækka leyfílegt
áfengismagn í blóði niður í 0 pró-
mill.
Við teljum að það þurfí að eiga
sér stað hugarfarsbreyting í þjóð-
félaginu og að sú skoðun verði ríkj-
andi að neyti fólk áfengis láti það
bifreiðina vera.
„Að eftir einn“ skerðist einbeit-
ing, dómgreind og hreyfifæmi þ.e.
viðbrögð hugar og handa og að
þess vegna skuli „eftir einn ei aka
neinn“.
Fagdeild hjúkranarfræðinga á
sviði endurhæfingar hefur velt því
fyrir sér hvaða leið væri farsælust
til lausnar þessa vanda. Erfítt er
að spá fyrir um hvaða leið yrði ár-
angursríkust en við tökum undir
mikilvægi þess að efla fræðslu.
Leggja mætti aukna áherslu á
upplýsingar og fræðslu um alvar-
legar afleiðingar um-
ferðarslysa, mögulega
áhættu á áverkum við
hin ýmsu umferðarslys
svo sem vegna
hraðaksturs og bíl-
veltna, líkamlegan og
andlegan sársauka og
þjáningu þeirra sem
lenda í alvarlegum um-
ferðarslysum, annað-
hvort af eigin völdum
eða annama vegna
hraðaksturs eða ölvun-
araksturs, og ennfrem-
ur sársauka og and-
lega vanlíðan þeirra
sem valda því að líf
tapast og sorg þeirra
sem missa. Þá mætti einnig auka
fræðslu og efla kostnaðarvitund al-
mennings með tilliti til verðmæta
eigin lífs, bifreiða og kostnaðar fyr-
ir heilbrigðiskerfið.
Stjórn fagdeildar hjúkrunar-
fræðinga á sviði endurhæfingar
lýsir yfir ánægju með að nú skuli
hafin opinber umræða um þetta
brýna málefni og lýsir jafnframt
yfir vilja sínum til að leggja mál-
efninu lið.
Fyi-ir verslunarmannahelgina
árið 1996, eina mestu ferðahelgi
ársins, skrifaði formaður fagdeild-
ar hjúkrunarfræðinga á sviði end-
urhæfingar stjóm Umferðarráðs
bréf þar sem lýst var yfir áhyggj-
um af háskalegum hraðakstri á
þjóðvegum landsins.
Ahersluþættir þess bréfs voru
fyrst og fremst sá mikli hraðakst-
ur sem á sér stað í þjóðvegaakstri
og það virðingarleysi sem ríkir
meðal ökumanna gagnvart um-
ferðarlögum og um leið eigin lífi
og annarra með háskalegum
akstri.
Formaður fagdeildar hjúkrunar-
fræðinga á sviði endurhæfingar
benti þar einnig á alvarlegar afleið-
ingar umferðarslysa, þann sárs-
auka og þjáningu sem þau valda og
kostnað fýrir heilbrigðiskerfið.
Eitt tapað mannslíf af völdum
ölvunaraksturs er einu of mikið.
Örkuml eða fötlun ungs fólks af
völdum ölvunaraksturs eru óbæri-
Stjórnin lýsir yfir
ánægju sinni með það,
segir Ingibjörg S.
Kolbeins, að Lækna-
félag Islands hafi
vakið umræður um
ölvunarakstur.
leg og óþörf. Við hjúkrunarfræð-
ingar í fagdeild hjúkrunarfræðinga
á sviði endurhæfingar hvetjum því
alla landsmenn til að snúa vöm í
sókn, sporna við þessari þróun og
breyta hugarfarinu um áfengis-
notkun og akstur. Við segjum „nei
takk, ég er akandi“ þegar boðið er í
glas og bíllyklarnir eru í vasanum.
Stjóm fagdeildar hjúkmnar-
fræðinga á sviði endurhæfingar
lýsir yfir ánægju sinni með og ein-
dregnum stuðningi við Læknafélag
Islands að hafa vakið umræður í
þjóðfélaginu um ölvunarakstur.
Höfundur er formaður fagdeildar
hjúkrunarfræðinga á sviði endur-
hæfíngar.
Ingibjörg S.
Kolbeins
SÖLUAÐILAR sjáv-
arafurða hafa leynt og
ljóst beitt sér gegn því
á undanförnum árum
að hvalveiðar hæfust
við ísland á ný. Þeir
hafa sagt að með því að
hefja hvalveiðar á nýj-
an leik sé verið að
fórna meiri hagsmun-
um fyrir minni. Er-
lendir markaðir okkar
muni stórskaðast. Þó
er ekkert sem bendir
til að þetta sé rétt.
I fréttum undanfarið
hefur verið ítrekað
fjallað um starfsemi
Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna í Bandai’íkjunum og
Bretlandi. Það sem mér hefur
fundist áhugavert er hve hlutur ís-
lenskra afurða í heildarsölunni
hefur dregist saman á undanförn-
um árum. Nú er svo komið að í
Bandaríkjunum er ekki nema
u.þ.b. 25% af hráefni Coldwater
fengin af Islandsmiðum. Það sem á
vantar er m.a. að stórum hluta
fengið frá Færeyingum og Norð-
mönnum, helstu hvalveiðiþjóðum
við Norður-Atlantshaf. Samfara
þessu hefur S.H. stóraukið starf-
semi sína í þessum löndum. Þeir
hafa sameinað dótturfyrirtæki sitt
í Bretlandi færeysku sölu- og
framleiðslufyrirtæki sem hefur
gefið þeim aukinn aðgang að nýj-
um birgjum í Færeyjum og Nor-
egi. Þá opnuðu þeir nýlega skrif-
stofu í Noregi til að geta staðið
enn betur að hráefnis-
öflun þar í landi.
Vissulega er þessi
útvíkkun í starfsemi
S.H. gleðiefni og
styrkir án efa stoðir
fyrirtækisins. Þessar
ráðstafanir gera það
betur í stakk búið til
að stunda öflugt mark-
aðsstarf og opna leiðir
inn á nýja markaði um
víða veröld. Einnig
hefur þessi þróun það í
för með sér að fyrir-
tækið verður ekki eins
háð þeim sveiflum sem
kunna að verða í afla-
brögðum hjá okkur í
framtíðinni og er þannig betur í
stakk búið til að uppfylla gerða
sölusamninga og verjast áföllum í
rekstri.
En þá kemur að afstöðu þeirra í
hvalveiðimálinu. Það er óskiljanlegt
að ef afstaða þeirra gagnvart hval-
veiðum íslendinga breytist ekki í
kjölfar þessara róttæku breytinga í
starfsemi fyrii’tækjanna. Stór hluti
af þeim fiski sem þessi fyrirtæki
selja eru frá hvalveiðiþjóðunum,
Færeyjum og Noregi. Ekki minnist
ég þess að hafa heyrt frá þeim
nokkuð í þá átt að hvalveiðar þess-
ara þjóða hafi með nokkrum hætti
haft áhrif á markaði okkar erlendis.
En það er kannski bara allt í lagi að
þessar þjóðir veiði hvali bara ef við
Islendingar látum það vera. Eg
spyr, eru þessir menn samkvæmir
sjálfum sér?
í fylgiblaði Morgunblaðsins, Úr
verinu, voru nýlega birtar tölur
um innflutning á ferskum og
frosnum físki í Bretlandi. Þetta
voru um margt áhugaverðar tölur
en þó var eitt sem stakk mig sér-
staklega. Af innfluttum ferskum
og ísuðum fiski til Bretlands á
tímabilinu janúar til september
1997 var langmest flutt inn frá
Færeyjum eða u.þ.b. 43% af heild-
arinnflutningi, sem er um 30%
aukning frá fyrra ári. Þetta gerist
á sama tíma og áróðurssamtök
náttúruverndarsinna hafa haldið
Færeyingar voru
stærstir í innflutningi
fersks físks til Bret-
lands en Norðmenn
stærstir í frystum fiski,
segir Jón Gunnarsson,
þrátt fyrir hvalveiðar
beggja þessara þjóða.
uppi stífum áróðri gegn afurðum
Færeyinga í Bretlandi m.a. í
opnuauglýsingum í víðlesnum dag-
blöðum. Og hverjir skyldu svo
vera stærstir þegar skoðaðar eru
frystar afurðir. Þar eru Norð-
menn, hin hvalveiðiþjóðin í ná-
grenni okkar.
Erum við Islendingar allt öðru-
vísi en þessar þjóðir, eða látum við
stjórnast af hræðsluáróðri? Við
hljótum að vera menn til að taka á
þessu máli og ég vona að söluaðilar
íslensks sjávarfangs fylki nú liði
með öðrum stéttum í sjávarútvegi
og fiskvinnslu og skorí á stjórnvöld
að hefja nú þegar skynsamlega og
sjálfsagða nýtingu á þeirri náttúru-
auðlind sem hvalastofnar hér við
land eru.
Höfundur er formaður Sjávarnylja
Tvískinnungur í
málflutningi
físksalanna
Jón
Gunnarsson
Allur aldur þarfn-
ast hreyfíngar
GRÆNI lífseðillinn er samstarfs-
verkefni heilbrigðisráðuneytis og
Iþróttasambands Islands. Fram-
kvæmd verkefna er i höndum
Heilsueflingar og íþrótta fyrir alla.
Margir hafa breytt lífsstíl sínum til
hins betra og eru með-
vitaðir um nauðsyn
þjálfunar á öllum aldri.
Abyrgð okkar foreldr-
anna er mikil, að láta
börnin temja sér heil-
brigðan lífsstíl og vera
fyrirmynd þeirra. Því
það sem við segjum og
gerum hefur mun meiri
áhrif en það sem við
segjum en fórum ekki
eftir.
Til að hafa úthald til
vinnu og frítíma er hreyf-
ing mjög mikilvæg. Lík-
aminn svarar þjálfun á
öllum aldri. Reyndu að
koma reglulegri hreyf-
ingu inn í daglegt líf þitt
með einum eða öðrum hætti, a.m.k. 20
mín. 3 sinnum í viku. Tökum dæmi:
Reyndu, segir Ágústa
Guðmarsdóttir, að
koma reglulegri hreyf-
ingu inn í daglegt
líf þitt.
Gengurðu í vinnuna? Er ekki
möguleiki að leggja bflnum í 5-10
mín. fjarlægð frá vinnustaðnum til
að ganga rösklega, fá upp púlsinn og
hrista upp í sálartetrinu.
Hvemig væri að taka strætó?
Engin þörf á að skrapa glugga og
fara inn í kaldan bfl, heldur ganga út
á næstu stoppustöð og stíga inn í
heitan vagninn. Þú klæðir þig eftir
aðstæðum og færð nokkra hreyfingu
umfram það að nota einkabflinn.
Notarðu Iyftu í stað þess að ganga
tröppur á milli hæða? Veistu ekki að
hver hreyfing telur í heildarstyrk og
úthaldi fyrir líkamann.
Ferðu í sund af og til og leggst
eingöngu í heita pottinn? Ef svo er
veistu ekki hve gott er að reyna fyrst
á alla vöðva líkamans á þægilegan
hátt í sundi og fara svo að slaka á í
pottunum á eftir. Slökunin og vellíð-
anin verður mun meiri.
Af hverju hreyfir þú þig ekki
reglulega? Er veðrið alltaf slæmt,
eða þú verðrn- að fara á
fund eða elda matinn
einmitt þegar þú varst
búin að ákveða að nota
þennan tíma til að
hreyfa þig. Væri ekkfy
skynsamlegt að skipu-
leggja sig aðeins betur.
Finnst þér leiðinlegt
að hreyfa þig? Reyndu
fleiri möguleika, t.d. ým-
iss konar dans, badmint-
on, tennis, taekwon-do,
sundleikfimi, skíði, borð-
tennis og skauta.
Hittir þú vinina allt of
sjaldan? Hvernig væri
að hreyfa sig með þeim.
Geturðu heimsótt aldr-
aðan ættingja með því
að fara út að ganga með honum?
Sendu þeim kort græna lifseðilsins
sem minnir á mikilvægi hreyfingar.
Matartími. Er hann nægur til að
fá sér 10. mín. göngu og fá ferskt loftT
í lungun? Þú gætir fengið þér vasa-
diskó og hlustað á fréttir, útvarps-
þætti eða ljúfa tónlist um leið og þú
þjálfar þig. Því ekki?
Hvað með 20 mín. göngu, þegar þú
kemur heim úr vinnu? Hefurðu ekki
þann tíma 3-5x í viku? Þá skaltu
skoða daginn hjá þér og athuga
hvort ekki megi draga úr á einhverj-
um öðrum sviðum?
Hreyfing er ein af undirstöðunum
fyrir því að láta sér líða vel bæði dags
daglega og sem ávísun á betri líðan í
framtíðinni. Þú getur fundið þína
hreyfingu ef þú skoðar með opnum
huga. Hreyfing sem þú hefur gaman
af og hður vel á eftir er hklegri til að
bæta lífsstflinn, t.d. mataræðið og
minnka löngun í tóbak. Skoðaðu
kortin frá grænum lífseðli, sendu þau
til þeirra sem þér þykir vænt um og
láttu innihald kortanna verða þér
hvatning til hreyfingar. Byrjaðu því
strax í dag að framkvæma: Hreyfðu
þig þér til ánægju.
Höfundur er sjúkraþjálfari.
Ágústa
Guðmarsdóttir
Tilboösréttir:
í hádeginu virka daga:
Tilboð öll lcvöld
og um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
■ lleil ölhun /lextium ifómiuelu rétluin
^/tjfijm atifnt, tnmdW, xutulbur oij intiur.
POTTURINN
OG
^erov^ykkur-
aá qóðu !
BRfiUTflRHOLTI 22
SlMI 551-1690
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa, salatbar
os heitur matur,
margar tegundir.
kr.790.-
GRÍSAFIÐRILDI Duxel, meö Dijon-sósu og gljáðu grænmeti AÐEINSKR. 1490- , Marineruð KJUKUNGABRINGA með rjómalagaðri paprikusósu. AÐONSKR.1.490.-
Grillaður LAMBAVÖÐVI með bakaóri kartöflu og Bemaisesosu. AÐBNSKR. 1.490,- Ristaðar GELLUR með Julian-grænmeti og hvftlauksrjóma AÐBNSKR. 1490.-
PASTA aö hætti kokksins, borið fram með hvítíauksbrauöi. AÐÐNSKR.1.280- Grillaðar Laxakótilcttur í Basilsósu. AÐBNSKR. 1490.-