Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 SíF
AÐSENDAR GREINAR
_ Við ætlum að.
vinna þennan leik
„ÍSLAND án eiturlyfja
2002 - ég hef nú aldrei
heyrt neitt eins hall-
ærislegt". „Hassið, er
það ekki bara skárra en
brennivínið?“ „Forvam-
ir - hvaða kjaftæði er
það nú?“ „Maður var nú
ekki barnanna bestur
sjálfur á sínum yngri
árum - eru þetta ekki
óþarfa áhyggjur?" „ís-
land án eiturlyfja 2002,
það er nú gjörsamlega
óraunhæft." „Pað er
ekkert vandamál í mín-
um skóla - það er sko
ekkert að marka þessar
kannanir."
Heimili og skóli,
landssamtök foreldra, hafa á undan-
fömum árum tekið þátt í baráttu
gegn áfengis- og vímuefnaneyslu
ungmenna, enda er foreldrastaiTið í
skólunum sannkallað forvarnastarf.
Við fögnum því af heilum hug áætl-
uninni „ísland án eiturlyfja 2002“
sem hefur að markmiði að virkja allt
samfélagið í baráttunni gegn fíkni-
efnum.
Það eru nokkur vonbrigði að nær
daglega hljóma í eyrum úrtöluraddir
eins og í upphafi þessarar greinar.
Fjölmiðlar, stjórnmálamenn, fag-
menn og annað vel meinandi og upp-
lýst fólk hafa verið afar gagnrýnin í
garð þess vímuvarnastarfs sem unn-
ið er hér á landi og fundið því flest til
foráttu. Það er fárast yfir því sem
gert er, það er kvartað yfir því sem
ekki er gert og aðilar sem starfa að
forvarna- og meðferðarmálum gera
lítið úr starfi hver annars. Skipulag
forvarna- og meðferð-
armála er sagt í molum
og er sjálfsagt mikið til
í því. Almenningur fær
þá mynd að vímuvarn-
irnar séu í algjörri
ringulreið og ungling-
amir álíta að stjómvöld
og fullorðnir ráði ekki
neitt við neitt og viti
ekki til hvað ráða eigi
að grípa.
Sundurlyndisfjand-
inn lifir sem sé góðu lífi
og það era kjöraðstæð-
ur fyrir alla dópsala og
landabruggara sem
vilja ná til unglinga.
Ástandið í okkar 270
þúsund manna þjóðfé-
lagi er, skv. upplýsingum Rannsókn-
arstofnunar uppeldis- og mennta-
mála frá því í mars 1997, í stuttu
máli þetta. Um 60% nemenda í 10.
bekk hafa drukkið sig full, 16% nem-
enda í 10. bekk hafa orðið fyrir
óæskilegri kynlífsreynslu vegna eig-
in áfengisneyslu, um 20% pilta í 10.
bekk í Reykjavík og nágiænni hafa
prófað hass og 4,6% nemenda í 10.
bekk segjast hafa prófað amfetamín.
En ef við spyrjum kennara í skóla í
Reykjavík hvort einhver nemandi sé
líklegur til að nota eiturlyf í 10.
bekknum hans er eins líklegt að við-
komandi segi svo ekki vera! í könn-
un sem Gallup o.fl. gerðu á viðhorf-
um einstaklinga á aldrinum 25-55 til
unglingamála kom m.a. fram að afar
fáir sætta sig við drykkju unglinga
18 ára og yngri. Þrátt fyrir þá stað-
reynd ræðst illa við barna- og ung-
hngadrykkjuna. Um ástandið meðal
Ég skora á stjórnvöld
og alla þá sem að þessu
máli koma, segir Unn-
ur Halldórsdóttir, að
taka á málinu af fullum
heilindum og alvöru.
ungs fólks á aldrinum 16-20 ára höf-
um við engar nýjar tölulegar upplýs-
ingar en skv. tilfinningu manna og
upplýsingum frá lögreglu og með-
ferðarstofnunum er ástandið ekki
gott. Meðferðarúrræði fyrir ung-
linga í vímuefnavanda em af skorn-
um skammti og em menn ekki á eitt
sáttir um hvaða leiðir eigi að fara í
því sambandi.
Það er einkum þrennt sem íslensk
stjómvöld og aðrir þeir sem stjórna
ferðinni í vímuefnavörnum þurfa að
gera upp við sig í baráttunni við út-
breiðslu ólöglegra fíkniefna. í fyrst
lagi þurfa stjómvöld að ákveða og
vita hvaða stefnu þau hafa í málinu, í
öðru lagi að framfylgja henni og í
þriðja lagi þurfa aðilar að vinna sam-
an til að árangur náist.
Aætlunin ísland án eiturlyfja 2002
er samstarfsverkefni stjórnvalda.
Ríkisstjórnin, Reykjavíkurborg og
European Cities Against Drags
gerðu með sér samning til fímm ára í
febrúar 1997 um að vinna saman að
því brýna verkefni sem baráttan við
eiturlyf er. Síðan hefur Samband ís-
lenskra samvinnufélaga gerst aðili
að áætluninni. Heiti verkefnisins,
það er „ísland án eiturlyfja 2002“
Halldórsdóttir
hefur farið í taugarnar á mörgum,
menn setja fyrir sig ártahð og era
búnir að ákveða að það sé með öllu
óraunhæft að ná eiturlyfjalausu
landi á 5-6 ámm og þess vegna sé
ekkert mark á þessu takandi. En
meðan menn þrátta um ártöl og bá-
biljur eru böm og ungmenni að
handleika og neyta eiturlyfja sem
aldei fyrr.
Það er ekki aðalatriði málsins
hvort ártalið er 2002 eða 2010 eða
eitthvað annað. Það er aukaatriði.
Meginmálið er að markmiðssetning-
in sé skýr: Við viljum ná raunveru-
legum árangri gegn fíkniefnabölinu
og viljum verða laus við eiturlyfin.
Flóknara er þetta ekki. Af hverju
eyðum við orkunni þá í úrtölur og
karp um keisarans skegg?
Hvaða íþróttafélag fer í kappleik
með því hugafari að gefast upp fyrir
fram, leikurinn sé hvort sem er tap-
aður? Hvert væri hún Vala Flosa-
dóttir komin í stangarstökki ef allir
hefðu dregið úr henni kjarkinn?
Ef menn vilja og ætla að ná ár-
angri þá mæta þeir sigurvissir til
leiks. Baráttan við eiturlyfin er stríð
sem verður að vinnast fyn- eða síðar
ogjþví fyrr því betra.
Islendingar hafa margar mikil-
vægar forsendur til að ná árangri i
þessu máli. Það er almenn andstaða
við eiturlyf í landinu, eiturlyfjamark-
aðurinn er lítill og gegnsær, íbúa-
samsetning er einsleit í menningar-
fg. Útihurðir
l**gluggar
05678 100
Fax 567 9080
I Bíldshöfða 18
og trúarlegu tilliti, efnahagslega og
menntunarlega stöndum við vel að
vígi, fjölskyldutengsl eru sterk,
þekking á foivarna- og meðferðar-
málum er til í landinu og við höfunv —
greiðan aðgang að fæmstu erlendu
sérfræðingum og ráðgjöfum á þessu
sviði. Hins vegar er augljóst að bar-
áttan kostar vissulega peninga, póli-
tískan vilja og samstöðu og á því
strandar í dag.
Eg skora á stjórnvöld og alla þá
sem að þessu máli koma að taka á
málinu af fullum heilindum og al-
vöru. Stjórnvöld verða að tryggja fé
og mannafla í tollgæslu og reyna
með öllum ráðum að draga úr flæði
efnanna inn í landið. Fjölmiðlarnir
verða líka að axla sína ábyrgð, veita
aðhald og fylgjast með því hvað er acW
gerast. Foreldrar, skólamenn, sveit-
arstjórnarmenn, íþrótta- og tóm-
stundafélög og allir þeir sem koma
að málefnum barna og ungmenna
verða að snúa bökum saman og
vinna með unghngunum að heil-
brigðum lífsstíl. Göngum sigurviss til
leiksins og sýnum að saman eram við
sterk.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Heimilis og skóla.
Fermingarmyndir
BARNA ^FJÖLSKVLDB
LJOSMYNDIR
Ármúla 38 • sími SÁ8-7644
Gunnar Leifur Jónasson
1980
1980
1980
500 KR. MARKAÐUR A LONGUM LAUGARDEGI
DRESS
MANN
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK
numer