Morgunblaðið - 04.04.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 04.04.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 27 Yerð- og magntollar Paprikur og tómat- ar hafa hækkað í verði NÝLEGA voru settir verð- og magntollar á innflutt grænmeti, þ.e. á tómata, agúrkur og paprik- ur. í kjölfarið hækkaði verð á tómötum og paprikum. Að sögn Jóns Asgeirs Jóhannes- sonar í Bónus annar íslensk fram- leiðsla engan veginn eftirspurn. „Það er fáránlegt og algjörlega ótímabært að setja verð- og magn- tolla á innfluttar paprikur og tómata. Islenskt framboð er nán- ast ekkert og ég myndi slá á að innlend framleiðsla annaði um 4- 5% af markaðnum.“ Um framboð á íslenskum agúrkum segir Jón As- geir að það sé ágætt en auðvitað mótist verðið á íslenskum agúrk- um af þeim verndartollum sem settir eru á þær innfluttu. „Ríkið tekur núna með skatt- heimtu sinni 65% af verði á inn- fluttum agúrkum og 54% af tómataverði. A paprikum er skatt- lagningin um 52-53% af verði til neytenda." Verð á tómötum og paprikum hefur hækkað í flestum verslunum og að sögn Jóhanns Olasonar hjá Nóatúni og Jóns Seheving hjá Hagkaup hefur það hækkað sem samsvarar magn- og verðtollum. Anna eftirspum eftir páska Að sögn Kolbeins Agústssonar hjá Sölufélagi garðyrkjumanna hefur framboðið á agúrkum verið nægj- anlegt meirihluta vetrar og um þessar mundir annar íslensk fram- leiðsla eftirspum þegar agúrkur eru annars vegar. Kolbeinn bendir á að verð á íslenskum agúrkum hafi verið það sama í allan vetur og ekki hækkað neitt þrátt fyrir magn- og verndartolla á innfluttar agúrkur. Hann segir að enn anni innlend framleiðsla ekki eftirspurn á tómötum, en líklega breytist það strax eftir páska. Það sama má segja um paprikur. Kolbeinn segir að útlit sé fyrir ágæta uppskeru, veður hefur verið gott og íslenskt grænmeti ætti að verða fyrr á ferðinni en í fyrra. HÖNNUN: PIETRO CHIESA Mörkinni 3 • sími 588 0640 E-mail: casa@islandia.is •www.cassina.it • www.roset.de • www.zanotta.it • www.artemide.com • www.flos.it • www.ritzenhoff.de •www.alessi.it • www.kartell.it • www.fiam.it • www.fontanaarte.it Uppáhaldsupp- skriftir borg- fírskra kvenna ÞÆR voru hressar konumar úr Sambandi borgfii-skra kvenna sem stóðu á göngum Kringlunnar fyrir helgi og seldú uppáhaldsuppskriftim- ar sínar til styrktar Þi'oskahjálp á Vesturlandi. Sigrún Sólmundardóttir, sem á hugmyndina að því að safna þessum uppskriftum saman, sagði að sér hefði fundist tími til kominn að breyta til með fjáröflunaraðferðir og hvers yegna ekki að safna heimilisupp- skriftum úr Borgarfirði? „Þetta hefur gengið ótrálega vel. Við byrjuðum með að láta prenta 500 eintök og nú vomm við að láta bæta við,“ segir Sigrán. í bókinni er að finna eftirrétti, kökur, brauðrétti og svo nýstárlegar uppskriftir eins og að spægipylsu og t.d. hvannamarmelaði. Bók kvennanna, sem heitir Hollt og gott, kostar þúsund krónur og hana er hægt að nálgast á Belgsholti í Melasveit, á Sigmundarstöðum eða Ferstiklu. Með góðfúslegu leyfi kvennanna birtum við hér uppskrift að kínversk- um kjötrétti, sem er tilvalinn í helgar- matinn, og hvannamarmelaðinu. Kínverskur kjötréttur ______________2 laukar____________ ___________50 g smjörlíki__________ __________500 g lambakjöt_________ _____________1 tsk. salt__________ _____________4 dl vatn____________ ___________3 msk. hveiti__________ _____________11/2 dl vatn_________ ____________1/g dl rúsínur________ _______________2 epli_____________ ____________15 möndlur____________ ______ 1/g tsk karrý, múskat,_____ _______________engifer____________ _____________og paprika___________ Kjötið er skorið í bita og steikt ásamt lauknum og síðan sett í pott með salti og vatni. Soðið í 25 mínút- ur. Jafnað með hveitijafningi. Saxaðar rúsínur, epli og möndlur settar út í. Soðið í 5 mínútur. Með- læti eftir smekk. Hvannamarmelaði Nota skal njólann áður en hann trénar. _______400 g njóli____ 300 g sykur _________________2 epli________________ _____________1!/g bolli vatn____________ _________1 bréf kívíduft (Toro)________ Njólinn er fiysjaður, skorinn í bita og soðinn í vatninu í um það bil 10 mínútur. Eplin eru soðin með í smá- stund. Þetta er sett í matvinnsluvél og maukað. Þá er maukið soðið að- eins aftur. Torodufti og sykri bætt út í og hrært í þar til duftið er bráðnað. ' ~~ nnafnar- verð* tilbo Herrailmur Jean Paul Gaultier 75 ml Tommy Boy 50 ml Diesel Davidoff coolwater 40 ml Hugo Boss 100 ml Hagkaups- tilboð 2.490 kr. 1.640 kr. 1.380 kr. 1.690 kr. 2.440 kr. Fríhafnar- verð* 2.550 kr. 1.650 kr. 1.390 kr. 1.790 kr. 2.450 kr. Dömuilmur Coolwater Woman 50 ml Jean Paul GauLtier 50 ml CK One 100 ml Diesel 75 ml 212 Carolina Herrera 30 ml Scarf Taomina 30 ml Hugo Woman 75 ml 2.590 kr. 3.390 kr. 2.590 kr. 1.795 kr. 1.945 kr. 1.690 kr. 3.390 kr. 2.650 kr. 3.400 kr. 2.650 kr. 1.810 kr. 1.990 kr. 1.740 kr. 3.410 kr * Samkvæmt verðlista Frihafnarinnar Túboðin eru einungis í snyrtivöruverslunum Hagkaups í Kringlunni, Skeifunni og Akureyri. HAGKAUP - fHrírjJölsbflduMaz

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.