Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 27
Hamas-
samtökin
vöruð við
PALESTÍNSKIR embættis-
menn vöruðu Hamas-samtök
herskárra múslima við því í
gær að gera lítið úr rannsókn
palestínskra yfirvalda á andláti
Hamas-sprengjusmiðsins Mu-
hyideen al-Sharifs.
Sjálfstjórnaryfirvöld Palest-
ínumanna hafa átt í hörðum
deilum við talsmenn Hamas að
undanförnu um það hverjir hafi
staðið að baki morðinu á Sharif.
Þessar deilur hafa varpað ljósi
á djúpstæða valdabaráttu
tveggja helztu fylkinga Palest-
ínumanna, sem standa annars
vegar með PLO að sjálfstjóm-
inni, og hins vegar Hamas, sem
vilja enga friðarsamninga við
Israela.
Akvörðun um
kjarnavopn
eftir könnun
GEORGE Femandes, vamar-
málaráðherra Indlands, sagði 1
gær að ríkisstjómin myndi taka
ákvörðun um hvort hún hygðist
koma upp kjarnorkuvopnabúri
eða ekki eftir að ýtarleg könn-
un á vamarþörfum landsins
hefur verið gerð. Fernandes
tjáði blaðamönnum í Nýju-Del-
hi þetta, en hann sagði ekkert
um hvað ætlað væri að þessi
könnun tæki langan tíma.
Reuters
BORGARSTARFSMAÐUR mokar snjó á Rauða torginu í Moskvu í gær.
Snjókoma og
rigning víða
um Evrópu
París, Moskvu, London. Reuters, The Daily Telegraph.
SNJOKOMA og rigning olli miklu
umferðaröngþveiti í Frakklandi á
mánudag og eru að minnsta kosti
sex dauðsfóll rakin til þessa. Gífur-
legur umferðarþungi var á þjóð-
vegum er fólk sneri heim á leið úr
páskafríi og urðu víða fjölda-
árekstrar, í tveim tilfellum skullu
hátt í þrjátíu bílar saman. Verst
var ástandið í Vosgeshéraði þar
sem jafnfallinn snjór var 30-40 cm
og mörg þúsund heimili voru án
rafmagns um tíma.
I Englandi létust fimm manns af
völdum einhverra mestu flóða sem
komið hafa í manna minnum. Úr-
koma var gífurleg og að sögn veð-
urfræðinga var hún nærri monsún-
mörkum. Þúsundir urðu að yfir-
gefa heimili sír. vegna veðurhams-
ins í Miðlöndum og Austur-Anglíu.
Veðurfræðingar voru hóflega
bjartsýnir á að það versta væri af-
staðið, en sögðu þó að búast mætti
við nokkurri snjókomu næstu daga.
Þá myndu nokkrir dagar líða áður
en yfirborðshæð í ám yrði komin í
eðlilegt horf.
Talsmaður bresku veðurstofunn-
ar sagði að flóð sem þessi væru
eðlileg veðurfyrirbæri í norð-vest-
urhluta Evrópu á 15-20 ára fresti
þegar sumarið nálgaðist. And-
rúmsloftið væri að hlýna, en enn
væri kalt í efstu lögum þess og þvi
skapaðist óstöðugleiki. Þetta sé
svipað því sem gerst hafi 1983.
I Moskvu snjóaði óvænt um
helgina og gerði það borgarstjór-
anum svo gramt í geði að hann hót-
aði að hætta viðskiptum við Veður-
stofu Rússlands, en veðurfræðing-
ar þar höfðu spáð blíðviðri. Fulltrúi
borgarstjórans, Júrís Lúsjkovs,
sagði: „Samskiptum okkar kann að
verða hætt ef þessum blekkingum
verður haldið áfram. Svona villandi
upplýsingar hafa borist oftar en
einu sinni á nýliðnum vetri.“
A sunnudag var jafnfallinn snjór
16 cm í Moskvu, en spáð hafði verið
9-11 stiga hita og rigningu.
Lúsjkov er einn þeirra sem þykja
líklegir til forsetaframboðs 2000 og
er kunnur af raunsæjum viðhorf-
um. Á mánudag hótaði hann að
stofna veðurstofu borgarinnar
vegna þessa máls.
Rússneskir veðurfræðingar báru
hönd fyrir höfuð sér og bentu á að
engin veðurstofa í heiminum hefði
spáð þeirri snjókomu sem varð í
Moskvu á sunnudag. Talsmaður
Veðurstofunnar sagði að það væri
óhjákvæmilegt að spár gengju ekki
alltaf eftir. Hann viðurkenndi enn-
fremur að samdráttur í fjárveit-
ingu til Veðurstofunnar undanfarin
fimm ár hefði komið niður á starf-
seminni.
OLIS ef þú verslar
með Vildarkorti
Visa og Flugleiða
á Olísstöð
olÍ5