Morgunblaðið - 04.06.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðskiptaráðherra um skipan nefndar
Segir tillögu
einn misskilning
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra gagnrýnir tillögu stjómar-
andstöðunnar, sem lögð var fram á
Alþingi til ályktunar í gær um skip-
an rannsóknamefndar samkvæmt
39. grein stjómarskrárinnar til að
fjalla um málefni Landsbanka Is-
lands hf. og samskipti fram-
kvæmdavalds og Alþingis, og segir
hana í samræmi við allan málflutn-
ing stjómarandstæðinga í málinu.
Finnur segir að Ásta R. Jóhann-
esdóttir alþingismaður hafi orðið
uppvís að ósannindum í málinu í
fyrradag og í Ijós hafi komið við
umræður á Alþingi að hún hafi
rekið málið á misskilningi og
ósannindum. „Mér finnst þessi til-
laga vera í samræmi við það, einn
stór misskilningur. Lindarmálið
hefur verið afhent ríkissaksóknara
til rannsóknar. Hún hlýtur þá að
taka til þess tíma þegar Lind var
að störfum og hefur á engan hátt
áhrif á mig, vegna þess að búið var
að sameina Lind Landsbankanum
þegar ég kom í ráðuneytið. Það er
mjög alvarlegt ef stjórnarandstað-
an ætlar að blanda sér inn í þá
rannsókn með skipun nefndar,"
sagði Finnur.
„Ekki er síður alvarlegt að með
skipun rannsóknarnefndar em
menn að leggjast á sveif með
Sverri Hermannssyni um að draga
úr trúverðugleika Ríkisendurskoð-
unar, vegna þess að Ríkisendur-
skoðun er búin að rannsaka
Landsbankamálið. Hún heyrir
undir Alþingi og því finnst mér
þessi málatilbúnaður allur með
ólíkindum," sagði Finnur.
■ Alþingi skipi/12
Morgunblaðið/Asdís
Lipponen á Islandi
PAAVO Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, kom í opinbera
heimsókn til íslands í gær.
Lipponen fundar með Davíð Odds-
syni forsætisráðherra og Halldóri
Asgrímssyni utanríkisráðherra í
dag. Einnig heimsækir hann Al-
þingi og Hæstarétt íslands og
snæðir hádegisverð með forseta-
hjónunum, Olafi Ragnari Gríms-
syni og frú Guðrúnu Katrínu Þor-
bergsdóttur. Þá snæðir hann
kvöldverð í boði Davíðs Oddssonar
og eiginkonu hans, frú Ástríðar
Thorarensen, í Perlunni. Lipponen
heldur siðan af landi brott snemma
í fyrramálið. Á myndinni sést
Lipponen á leið inn á Hótel Sögu
ásamt Sigríði Snævarr prótókoll-
stjóra.
Kristján Pálsson alþingismaður við almennar stjórnmálaumræður á Alþingi
Tilfínning þjóðarinnar að útgerð-
inni hafí verið gefín þjóðareignin
KRISTJÁN Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sagði við almennar stjómmálaumræður á Alþingi í
gærkvöld að það væri afleitt að þjóðin hefði þá til-
finningu að útgerðinni hefði verið gefin þjóðareign-
in með lögunum um stjóm fiskveiða frá árinu 1990.
„I þjóðfélagsumræðunni síðustu daga hafa
ýmsir aðilar jafnað saman lögunum um miðhá-
lendið og kvótakerfinu með þeim rökum að mið-
hálendið sé afhent fáum á sama hátt og kvótinn,"
sagði hann við umræðurnar í gær. „Þama er
ólíku saman að jafna. Miðhálendið er sett undir
ríkið og eignaryfirráðin eru ríkisins, eins og kom-
ið hefur fram, meðan kvótinn er afhentur útgerð-
armönnum til veðsetningar, til sölu, leigu og
veiða allt eftir geðþótta hvers og eins útgerðar-
manns. Fiskveiðistjórnunarkerfið hefur af þess-
um ástæðum verið mörgum þymir í augum og er
það tilfinning þjóðarinnar að útgerðinni hafi ver-
ið gefin þjóðareignin með lögunun um stjóm fisk-
veiða frá árinu 1990. Það er afleit tilfinning."
Sátt náist um auðlindarstýringuna
Kristján sagði ennfremur frá því að fyrir rúmu
ári hefði hann ásamt nokkmm þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins barist hart gegn því að lög-
fest yrði heimild til að veðsetja kvótann með
skipi. ,Ástæða þeirrar baráttu var fyrst og
fremst það álit okkar að þá festist kvótinn enn
frekar í sessi. Gmndvallarbreytingar á kerfinu
geta einnig orðið erfiðari eftir það og bakað þjóð-
inni skaðabótaábyrgð. Það var ekki síst fyrir
mikinn þrýsting ríkisbankanna að okkur tókst
ekki að stöðva þetta mál. Okkur sem nú sitjum á
þingi er því mikill vandi á höndum. Allar aðgerðir
til að leggja kvótann af í einu vetfangi eru of
áhættusamar, enda enginn sem vill setja lang-
mikilvægasta atvinnuveg þjóðarinnar í hættu,
slíkt er ábyrgðarleysi. Ymsir vonast til þess að
lausnin fáist með þingsályktun um skipun
þverpólitískrar nefndar, sem kanni gjaldtöku í
einu eða öðru formi fyrir afnot af þjóðareigninni.
Með því móti vonast ég til að sátt geti náðst um
auðlindarstýringuna. Niðurstaða þessarar nefnd-
ar verður að líta dagsins ljós fyrir næstu ára-
mót,“ sagði hann.
36 hljómsveitir á tónleikunum Popp í Reykjavík 4. til 6. júní
„Rosalegustu tónleikar
sem haldnir hafa verið“
„ÞAÐ leggjast allir á eitt um að
gera þetta að rosalegustu tón-
leikum sem haldnir hafa verið á
íslandi," segir Jón Páll Leifsson,
einn aðstandenda tónleikanna
Popp í Reykjavík, sem hefjast í
Héðinshúsinu og Loftkastalan-
um í kvöld. Tónleikarnir standa
yfir þrjú kvöld í röð og koma
þar fram 36 hljómsveitir. Gerð
verður samnefnd kvikmynd um
tónleikana sem frumsýna á (
haust. Mikill fjöldi fólks vann öt-
ullega að undirbúningi tónleika-
haldsins í gær þegar ljósmynd-
ari leit inn í Héðinshúsið. I kvöld
koma sex hljómsveitir fram á
tónleikum í Loftkastalanum sem
hefjast kl. 18 og aðrar sex sveit-
ir leika í skemmunni í Héðins-
húsinu frá kl. 21. Undirtitill tón-
leikanna er „Utvegssýning á ís-
lenskri tónlist", og er tilgangur-
inn, að sögfn Jóns Páls, að veita
þeirri miklu grósku, sem nú er í
reykvískri popptónlist, þá at-
hygli sem hún á skilið, bæði
heima og erlendis. Von er á fjöl-
mörgum erlendum gestum til
landsins, útsendurum sjónvarps-
stöðva, útgáfufyrirtækja, tónlist-
artímarita o.fl. Allir tónlistar-
mennimir sem koma fram gefa
vinnu sína.
Morgunblaðið/Jim Smart
Keiko til
Islands
í haust?
FREE Willy Foundation í Bandaríkj-
unum hefur fyrir sitt leyti ákveðið að
flytja háhyminginn Keiko til íslands,
að því er fram kom í bandarískum
fjölmiðlum í gær. Nú er aðeins beðið
eftir því að íslensk sfjómvöld veiti
heimild til flutningsins. Von er á því
að síðasta sýnið sem yfirdýralæknir
fór fram á varðandi heilbrigði Keikos
berist til landsins innan tíðar.
Hallur Hallsson hjá Mönnum og
málefnum, sem hefur haft milligöngu
í þessu máli, segir að sýnið varði
hugsanlega sýkingarhættu gagnvart
laxfískum. Sýnið sé neikvætt en svar
eigi formlega eftir að berast þar til
bæmm yfirvöldum. Bandarískir fjöl-
miðlar leituðu fregna hérlendis í gær
vegna fréttarinnar ytra um að ákveð-
ið hefði verið að flytja Keiko til ís-
lands.
Veiti stjómvöld samþykki sitt fyr-
ir flutningnum er stefnt að því að
flytja sjókvína, þar sem Keiko mun
dveljast í Eskifirði, til landsins á
næstu vikum. Stefnt er að því að
flytja háhyrninginn til íslands í sept-
ember. Hallur segir að reiknað sé
með því að hátt í eitt þúsund blaða-
menn komi til landsins og um einn
milljarður manns muni fylgjast með
fréttum af málinu.
----------------
Björk og
Pavarotti hafa
ekki náð saman
ÍTALSKI óperasöngvarinn Luciano
Pavarotti hefur ekki haft samband
við útgáfufyrirtæki Bjarkar í Bret-
landi, One Little Indian, til að ræða
mögulegt samstarf. Haft er eftir
Pavarotti í viðtali við danska blaða-
manninn Peter Bennett að hann von-
ist til að þau geti komið fram saman.
Hjá útgáfufyrirtækinu fengust
hins vegar þær upplýsingar að það
hefði staðið til að þau syngju saman á
styrktartónleikum fyrir nokkra en af
því hefði ekki orðið. Á þeim tónleik-
um kom Bono, söngvari írsku hljóm-
sveitarinnar U2, fram með
Pavarotti. Björk og Pavarotti hafa því
enn sem komið er ekki náð saman.
Björk er þessa dagana í sumar-
leyfi en næstu tónleikar hennar
verða 6. júní í París.
-------♦-♦-♦----
Aukning aflaheimilda
Tæpir 3 millj-
arðar miðað
við leiguverð
MIÐAÐ við leiguverð kvóta í dag má
áætla að tekjur útgerðarmanna auk-
ist um 2,8 milljarða króna vegna
aukningar á þorskveiðiheimildum á
næsta fiskveiðiári.
Verðmæti aukningarinnar er um
25,6 milljarðar króna miðað við verð
á varanlegum þorskveiðiheimildum í
dag. En það má búast við að verð á
varanlegum þorskkvóta lækki vegna
aukningar á aflaheimildum.
■ Leigutekjur/25
8SKHJR
VŒ)SISPTE AMNNUIÍF
GSM um
gervihnött
Hnattvæðing far-
símaþjónustu/B8
FARSÍMAR
STÓRMARKAÐIR
Merrild á
toppnum
Sölutölur versl-
ana gefnar út/B4
Arnór Guðjohnsen gengur
til liðs við Val/C1
Skoskur miðvörður gerði
samning við KR-inga/C2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is