Morgunblaðið - 04.06.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hitalögn í
gangstétt í
Pósthús-
stræti
LAGNING hitalag’na við
Reykjavíkurapótek í Pósthús-
stræti stendur nú yfir. Morgun-
blaðið vakti athygii á því í vetur
að engin hitalögn var í gang-
stéttinni við Reykjavíkurapó-
tek. Þá sagði Sigurður Skarp-
héðinsson gatnamálastjóri það
venju að leggja hitalagnir þeg-
ar gangstéttir væru endurnýj-
aðar. Nú hafa gatnamálayfir-
völd tekið til hendinni og er
verið að endurnýja þessa gang-
stétt og leggja hitalagnir.
Gangandi vegfarendur geta því
vænst þess að næsta vetur
gangi þeir á auðum stéttum á
þessum slóðum, hvernig sem
viðrar.
Morgunblaðið/Golli
UNNIÐ að lagningu hitalagna í Pósthússtræti.
Frumvarp um loftferðir samþykkt með viðauka við umdeilda setningu
Hættulegt fordæmi að
sögn formanns málnefndar
FRUMVARP til laga um loftferðir,
ásamt breytingatillögu við 140.
grein þess þar sem fjallað er um
birtingu ákvarðana Flugmála-
stjórnar í flugmálahandbók, var
samþykkt á Alþingi í fyrradag.
Setningin óþörf
í breytingatillögunni fólst við-
auki við setninguna í 140. gr.
„skulu þær vera á íslensku eða
ensku eftir því sem við á“, sem Is-
lensk málnefnd hafði gert athuga-
semdir við og vildi fella út úr laga-
textanum. Með samþykkt fi-um-
varpsins og tillögunnar hefur máls-
liðurinn: „Samgönguráðherra er
heimilt að höfðu samráði við Is-
lenska málnefnd að kveða nánar á
um útgáfu þeirra með reglugerð,"
bæst við fyrrnefnda setningu.
Kristján Árnason formaður ís-
lenskrar málnefndar sagði að málið
gæti verið fordæmisgefandi.
„Hættulega fordæmið er það að
það skuli standa í íslenskum lögum
að einhverjar reglur sem menn
verða dæmdir eftir skuli vera á
ensku. Að óbreyttum lögum þá
fínnst mér óþarfí að vera að taka
það fram sérstaklega að við einstök
tækifæri sé hægt að dæma menn
fyrir að fylgja ekki reglum sem eru
ekki á íslensku. Setningin er ef til
vill hreinlega óþörf að mínu mati,“
sagði Kristján.
Einar K. Guðfinnsson, formaður
samgöngunefndar, sem flutti
breytingatillöguna, sagði að með
breytingunni væri brugðist við at-
hugasemd stjómar íslenskrar mál-
nefndar. „Rökin fyrir þessu eru
mjög einfóld. Landsréttur er á ís-
lensku og við eigum í fæstum til-
vikum neitt val um það hvort að
eigi að þýða þær reglur sem okkur
er skylt að hrinda í framkvæmd og
eru hluti af Evrópuréttinum sem
okkur er skylt að taka upp. Það er
auðvitað ljóst að lagareglur á að
birta á íslensku með formlegum
hætti. Hitt er það að það getur
komið til að það sé vafí á því hve
langt eigi að ganga í þýðingu og al-
mennri birtingu á reglunum," sagði
Einar.
Hagsmunir tungunnar tryggðir
I síðari hluta ábendinga Is-
lenskrar málnefndar er sagt m.a.:
Telji menn af einhverjum gildum
ástæðum óhjákvæmilegt að leyfa
að tilteknar reglur um flugrekstur,
sem hér hafa gildi, megi birtast á
ensku, er nauðsynlegt að skýrt
komi fram í lagatextum við hvaða
aðstæður það skuli heimilað. Og
verði þá kveðið svo á í lögum að
leita beri samráðs um þessi mál við
þar til bæra aðila, bæði um réttar-
stöðu tungunnar og þegnanna.
„Ég tel að með þessu ákvæði
sem felst í breytingatillögunni sé
komið til móts við síðari hluta
ábendingar Islenskrar málnefndar.
Ég tel að með þessari viðbót séu
hagsmunir tungunnar tryggðir og
fjármunum varið skynsamlega,"
sagði Einar.
Ari Páll Kristinsson, forstöðu-
maður Islenskrar málstöðvar, seg-
ir að sér fínnist ákaflega skammt
farið til móts við óskir Islenskrar
málnefndar í frumvarpinu.
Þerney með 110 millj. kr. aflaverðmæti
Hásetahluturinn eftir
veiðiferðina 1,1 millj. kr.
Morgunblaðið/Þórður Magnússon
TROLLIÐ tekið inn í veiðiferðinni góðu hjá Þerney.
Norður-
Hérað
hlaut flest
atkvæði
Vaðbrekku, Jökuldal.
SKOÐANAKÖNNUN um nýtt
nafn á sameinað sveitarfélag
Jökuldals, Hlíðar og Tungu-
hreppa fór fram samhliða
sveitarstjómarkosningunum á
dögunum. Sameiningamefnd
gerði tillögu um þrjú nöfn,
Brúarhrepp, Jökulsárhrepp og
Norður-Hérað, auk þess sem
kjósendum gafst kostur á að
setja fram eigin tillögu að
nafni.
AUs tóku um 190 þátt í skoð-
anakönnuninni um nafnið og
hlaut nafnið Norður-Hérað
flest atkvæði eða 116, Jök-
ulsárhreppur hlaut 41 atkvæði
og Brúarhreppur 13 atkvæði.
Aðrar tillögur er kjósendur
stungu uppá og fengu atkvæði
vom meðal annars Brúarþing,
Jökultunga, Smjörfjallabyggð,
Sólarsveit og 7512 Egilsstaðir
en 7512 er númer hins nýja
sveitarfélags er Hagstofa Is-
lands úthlutar sveitarfélögum í
landinu. Nýkjörin sveitarstjóm
mun ákveða hvaða nafn verður
fyrir valinu þegar hún kemur
saman.
ÞERNEY RE landaði i gær 950
tonnum af hausskomum karfa á
Japansmarkað að verðmæti um 110
milljónir króna og Hólmaborg SU
setti löndunarmet þegar skipið
landaði 2.723 tonnum af síld úr Sfld-
arsmugunni á Eskifirði í gær.
Þórður Magnússon skipstjóri á
Þemey sagði að veiðiferðin djúpt
úti af Reykjaneshrygg hefði tekið í
heild um 40 daga og væri þetta með
því mesta sem Þerney hefði veitt í
einni veiðiferð. Hann sagði að veið-
in hefði verið dottin niður undir
lokin en meðan gaf hafi verið góð
veiði.
„Þetta kom okkur bara verulega
á óvart og minnti á veiðiskap fyrir
nokkmm ámm. I fyrra var þetta
virkilega dapurt og segir manni að-
eins að það em sveiflur í lífríki sjáv-
ar. Þama er líka óvígur floti að
djöflast á stofninum, allt upp undir
100 skip, þar af 20-25 íslensk skip,“
sagði Þórður.
Hásetahluturinn á Þerney er 10
þúsund krónur af hverri milljón, 1,1
milljón kr. fyrir veiðiferðina.
Hólmaborgin fékk fullfermi,
2.723 tonn, af síld á þremur dögum
á Jan Mayen svæðinu og var land-
anum aflað í gærmorgun. Skipið var
stækkað fyrir um tveimur ámm og
gat áður borið mest um 1.570 tonn.
30 tíma stím var á miðin. Sfldin var
stór og þokkalega feit en áta var í
henni. Hún fór öll til bræðslu. Há-
setahluturinn var nálægt 350 þús-
und krónur.
Forsætisráðherra
Óttast
ekki
klofning
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir að miðað við
yfirlýsingar Sverris Her-
mannssonar um fyrirhugaða
stofnun nýs stjómmálaflokks
muni hann helst eiga samleið
með Jóhönnu Sigurðardóttur,
Þingflokki jafnaðarmanna. „Ég
ímynda mér að fleiri af stuðn-
ingsmönnum Þjóðvaka geti
komið inn í þessa umræðu,“
sagði Davíð í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
I samtali við Stöð 2 í fyrra-
kvöld sagðist Davíð ekki taka
framboðshugmyndir Sverris
mjög alvarlega. Um þá stuðn-
ingsmenn og framþjóðendur
sem nefndir hafa verið í tengsl-
um við málið sagði hann að
þetta væm nöfn sem „að jafn-
aði“ væm dregin upp þegar
svona framboð væm nefnd.
Hann sagðist aðspurður ekki
óttast að verið væri að mynda
klofningsbrot úr Sjálfstæðis-
flokknum, þrátt fyrir að fyrr-
verandi þingmenn flokksins
hafi lýst yfir stuðningi við fyr-
irhugað framboð.
í samtali við Moi'gunblaðið í
gær sagði Davíð: „Að sjálf-
sögðu verður þessu máli haldið
áfram meðan Sverrir gegnir
stöðu þriðja ritstjóra Morgun-
blaðsins eins og hann hefur
gert undanfarið.“
Ellert B. Schram
Mun veita
Sverri lið
ELLERT B. Schram, forseti
íþrótta- og ólympíusambands
íslands og fyrrverandi þing-
maður Sjálfstæðisflokksins,
segist munu veita Sverri Her-
mannssyni lið ef hann stofni til
framboðs byggðu á andstöðu
við núverandi fiskveiðistjórn-
unarkerfi og gegn spillingu í
stjórnkerfinu. Aðspurður úti-
lokar hann ekki að fara sjálfur
í framboð.
„Stuðningsmenn Sverris
hafa verið að orða við mig að
hann ætli í framboð og ég hef
sagt við þá að mér lítist vel á
það. Það var ekki talað um það
hvort ég færi sjálfur í framboð
en ég myndi áreiðanlega veita
honum eitthvert lið ef þetta
verða málin sem verða á oddin-
um hjá honum,“ sagði Ellert í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Ellert er um þessar mundir
staddur erlendis á vegum ÍSÍ.
Innbrot í
Ffladelfíu
ÞRIR ungir menn vora staðnir að
verki við innbrot í hús Ffladelf-
íusafnaðarins við Hátún í Reykjavík
snemma í gærmorgun.
Lögregluþjónn sem var á leið til
vinnu sinnar um sexleytið í gær-
morgun varð mannanna var þar
sem þeir vora eitthvað að bjástra í
kringum húsið. Þegar lögreglubíll
kom á vettvang nokkram mínútum
siðar höfðu þeir komist inn í húsið
en ekki náð að stela neinu. Þegar fé-
lagarnir urðu lögreglunnar varir
lögðu þeir á flótta en náðust á
hlaupum þar skammt frá. Þeir vildu
ekki við það kannast að hafa verið
að verki en voru handteknir og
færðir til yfirheyrslu. Á einum
mannanna fannst lítilræði af fíkni-
efnum, að sögn lögreglu.