Morgunblaðið - 04.06.1998, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998
F
AKUREYRI
Þela-
merkur-
skóli fær
tölvu
HUGVER í Reykjavík afhenti
nýlega Þelamerkurskóla í
Hörgárdal tölvu að gjöf, en
fyrirtækið hafði leitað að skóla
þar sem fínna mætti grósku-
mikið starf með nemendum
með ríkar einstaklingsþarfír.
Þelamerkurskóli varð fyrir val-
inu enda hefur hann náð góð-
um árangri á því sviði.
Tölvur í skólastarfí verða
nauðsynlegri með degi hverj-
um, auk þess að búa nemendur
undir tölvuvætt þjóðfélag nýt-
ast þær einstaklega vel í námi
og kennslu. Auk þeirrar fjöl-
þættu vinnu sem margvísleg
forrit bjóða upp á gefa þær
nemendum kost á meiri vinnu-
hraða en þeir eiga að venjast
með hefðbundnum leiðum í
námi og einnig má nefna að
þær gefa nemendum á svip-
stundu upplýsingar um árang-
ur.
Sýningu Rojs
að ljúka
UM NÆSTU helgi lýkur sýningu
Roj Fribergs í Listasafninu á Akur-
eyri. Henni hefur verið afbragðsvel
tekið og fjölmargir gestir lagt leið
sína í safnið. Roj Friberg sýnir um
160 myndir gerðar með fjölbreyttri
tækni. Auk innsetningar í vestursal,
sem byggð er á verki Kafka „Rétt-
arhöldin", sýnir hann vaxmálverk
gerð á pappír og filmu auk stórra
blýantsteikninga og litógrafíu.
Listasafnið er opið frá kl. 14 til 18
alla daga nema mánudaga.
Blindir og sjónskertir Hollendingar og fslendingar á ferðalagi
HÓPUR blindra og sjónskertra Hollendinga og íslendinga hefur verið
á ferð norðanlands en í gær var farið í Lystigarðinn á Akureyri.
LITIL tjörn úr mósaiksteinum vakti athygli ferðalanganna
þegar þeir fóru í Lystigarðinn á Akureyri.
UM 30 manna hópur blindra og sjónskertra
Hollendinga og Islendinga hefur verið á ferð í
Eyjafírði síðustu daga, en í gær lá leiðin suð-
ur á bóginn. Fólkið tekur þátt í verkefni sem
heitir Ungt fólk í Evrópu og er ætlað fólki á
aldrinum 15 til 25 ára. Síðar í sumar munu ís-
lendingarnir sækja Hollendingana heim og
kynnast landi þeirra og lífsháttum. Markmið
ferðanna er líka að reyna eitthvað sem ekki
er hægt að gera heima.
Fararstjórar eru þau Karen Friðriksdóttir,
Rannveig Traustadóttir og Halldór Sævar
Guðbergsson. I hópnum eru 19 Hollendingar,
6 blindir, 2 sjáandi og 11 sjónskertir, Islend-
ingarnir eru 10 talsins, 2 blindir, 1 sjáandi og
aðrir sjónskertir. Hópurinn hefur dvalið að
Ytri-Vík á Árskógsströnd, en farið í ferðir
vítt og breitt, m.a. farið í fljótasiglingu á
gúmmíbát og sjóstangaveiði. „Þau hafa tekið
þátt í margvíslegum erfiðum verkefnum og
upplifað margt sem þau ekki létu sér detta í
hug áður að þau gætu,“ sögðu þær Karen og
Rannveig þegar Morgunblaðsmenn hittu hóp-
inn í Lystigarðinum á Akureyri í gærmorgun.
Glíma við mörg
erfið verkefni
Morgunblaðið/Kristján
STYTTURNAR í garðinum voru
líka skoðaðar.
Hollensku ferðalöngunum þykir margt ein-
kennilegt við Island, hin mikla víðátta sem
þeir upplifa en þeim þykir landið stórt og
stijálbýlt enda vanir hinu andstæða úr sínu
heimalandi. Plássið er svo mikið og hljóðun-
um sem þeir heyra eiga þeir heldur ekki að
venjast, að hlusta á sjávarniðinn, heyra vind-
inn hvína. Björt nóttin hefur líka heillað, út-
lendingarnir eru vanir því að dimmi á
ákveðnum tíma, „ég er þreyttur en get ekki
farið að sofa því það er ekki ennþá orðið
dimmt,“ sagði einn ferðalangur í hópnum.
Margir voru að koma við lifandi físk í
fyrsta sinn þegar farið var í sjóstangaveiði
frá Hauganesi í vikunni og þótti það afar
spennandi. Ekki varð ánægjan minni þegar
aflinn var grillaður og fólkið tók til við að
snæða fískinn, en margir höfðu ekki áður
upplifað svo náin tengsl við náttúruna.
„Það eru allir svo jákvæðir, vilja taka þátt í
ævintýrunum og þó upp komi vandamál þá er
tekið til við að leysa þau, hindranir eru til að
sigrast á þeim, það er hugarfarið sem ríkir í
hópnum," sögðu fararstjórarnir.
Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Akureyrarlista samþykktur
Brýnast að styrkja atvinnulífið
Aksjon
Fimmtudagur 4. júní
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur
ætlaður ferðafólki á Akureyri og
Akureyringum í ferðahug.
BRÝNASTA verkefni bæjar-
stjórnar Akureyrar á kjörtímabil-
inu verður að leita leiða til að
styrkja atvinnulífið að því er fram
kemur í málefnasamningi um
meirihlutasamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Akureyrarlista sem sam-
þykktur hefur verið innan flokk-
HRÍSEYJARHREPPUR
Neyðarkall frá
Grunnskólanum í Hrísey
Ágætu kennarar nær og fjær!
Hafið þið prófað að kenna í fámennum skólum?
Hafíð þið hugsað um að auka við starfsreynslu ykkar og reyna
eitthvað nýtt, t.d. samkennslu.
Vitið þið að Hrísey er steinsnar frá Akureyri og ferjuferðir eru
oftar en þið haldið.
Hrísey er paradís barna og náttúruunnenda.
í Hrísey er leikskóli og þar opnar í sumar glæsileg líkams-
ræktarstöð.
Búið þið í dýru leiguhúsnæði? Ef svo er þá er húsaleiga í
Hrísey afar sanngjörn.
Okkur sárvantar tvo eldhressa og duglega kennara. í skólanum
ríkir góður andi. Þar verða 37 nemendur næsta skólaár í l .-9.
bekk. Allar mögulegar kennslugreinar á lausu. Skóiinn er
ótrúlega vel búinn miðað við smæð. Hríseyingar eru duglegir
og vilja gera allt til að halda uppi góðum skóla. Nemendur
skólans eru frábærir.
f guðanna bænum hringið eða komið í skoðunarferð hið
snarasta.
Umsóknarfrestur til 10. júní.
Svanhildur Daníelsdóttir, skólastjóri.
Vinnus. 466 1763. Heimas. 466 1739.
E-mai: Rjupan@nett.is
Eftir 1. júní gefur sveitarstjóri upplýsingar.
Vinnus. 466 1762. Heimas. 466 1739.
anna. Ný bæjarstjóm tekur við á
bæjarstjórnarfundi næstkomandi
þriðjudag, 9. júní, og verður Krist-
ján Þór Júlíusson bæjarstjóri. Til-
kynnt verður um skipan í nefndir
og ráð á vegum bæjarins á fundin-
um.
Unnið verður að stefnumótun í
atvinnumálum til lengri tíma og
verður þeirri vinnu lokið á þessu
ári og verður atvinnumálanefnd í
samstarfí við atvinnurekendur,
launþega og menntastofnanir falið
það verkefni.
Hvað stjórnsýslu varðar verða
störf bæjarritara og hagsýslu-
stjóra lögð niður í núverandi
mynd, en nú störf, sviðsstjórar
fjármálasviðs og stjórnsýslusviðs,
mótuð. Þeir verða ráðnir til fímm
ára í senn með möguleikum á end-
urráðningu. Tæknisvið bæjarins
verður endurskoðað sem og um-
hverfissvið. Þá verður hlutverk og
verkefni framkvæmdanefndar
bæjarins einnig tekið til endur-
skoðunar. Innkaupa- og útboðs-
stefna verður mörkuð sem og regl-
ur um val verktaka.
Þátttöku bæjarins í Skólaþjón-
ustu Eyþings verður hætt og
skólaþjónusta grunnskólans sam-
einuð hjá Akureyi-arbæ, en lýst er
yfir vilja til að veita öðrum sveitar-
félögum á svæðinu skólaþjónustu
ef eftir verður leitað. Brýnasta
verkefni á sviði grunnskólans er
úrlausn húsnæðismála og aðbún-
aður nemenda og starfsmanna.
Ljúka á viðbyggingu við Lundar-
skóla haustið 1999 og ný álma við
Síðuskóla verður tekin í notkun
sama haust. Haustið 2000 verður
lokið við viðbyggingu Oddeyrar-
skóla, framkvæmdum haldið áfram
við Giljaskóla og þá verður tillög-
um að húsnæðisáætlun Brekku-
skóla hraðað. Nýr leikskóli í stað
Iðavalla verður byggður og hafín
bygging heimavistar fyrir fram-
haldsskólanemendur. Nýtt tjald-
svæði við Hamra verður tekið í
notkun sumarið 2000, byggt verð-
ur yfír skautasvellið og nákvæm
hönnunarforsögn fyrir fjölnotahús
á íþróttasvæði Þórs verður gerð og
miðað við að húsið verði tekið í
notkun í lok kjörtímabilsins.
Þá kemur fram í málefnasamn-
ingi að ljúka á hönnunarvinnu og
gerð útboðsgagna vegna bygging-
ar við Amtsbókasafnið á næsta ári
þannig að framkvæmdir geti hafist
árið 2000. Endurbótum á Sam-
komuhúsi verður haldið áfram og
tengingu þess við gamla barna-
skólann, þá verða möguleikar á
nýtingu íþróttahallarinnar til tón-
leikahalds kannaðir til hlítar.
Hverfasamtök verða stofnuð og
er miðað við skólahverfin, Mennta-
smiðja kvenna verður studd og
stefnt að því að hraða gerð jafn-
réttisáætlunar.
Lán eða eignasala
Hvað skipulagsmál varðar má
nefna að skipulag Skátagils,
göngugötu og Ráðhústorgs verður
endurskoðað, einnig íbúðarbyggð
austan sjúkrahúss og syðri hluti
Miðbæjar. Finna á nýjan urðunar-
stað fyrir sorp af Eyjafjarðar-
svæðinu svo hægt verði að hætta
urðun á Glerárdal, en þar verður
uppgi-æðslu haldið áfram til að
koma í veg fyrir sandfok og upp-
blástur. Stefnt er að því að færa
rekstur fráveitu til veitustofnana.
Meirihlutinn stefnir að verulegri
lækkun á húshitunarkostnaði á
síðari hluta kjörtímabilsins í kjöl-
far endurfjármögnunar lána hita-
veitu. Áhersla verður lögð á að
ljúka gerð Fiskihafnar og lengja
Oddeyrarbryggju til austurs.
Fram kemur í samkomulaginu
að þær framkvæmdir bæjarins
sem gert er ráð fyrir að ráðast í á
kjörtímabilinu séu meiri en svo að
hægt sé að greiða fyrir þær með
tekjum bæjarsjóðs, þannig að ráð-
gert er að taka lán eða selja eignir
til að brúa bilið.
www.mbl.is
Skrifstofa Norðurskautsráðsins
um verndun lífríkis á norðurslóðum
(CAFF)
óskar eftir húsnæði á Akureyri eða í nágrenni
fyrir finnskan starfsmann skrifstofunnar og
fjölskyldu hennar (2+2) frá og með byrjun júlí,
má vera eitthvað síðar, og til loka júlí 1999.
Upplýsingar veittar í síma 4623350 á
skrifstofutíma annars ísíma 4613292.
)
l
)
)
)
)
)
)
)
i