Morgunblaðið - 04.06.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 25
ÚR VERINU
Það sem eftir er af kvótanum 1. júmí 1998 (25% ettirat kvótaárinu)
Ætlir bú að eianast Subaru á árinu. gríptu þa
tœkÍTœrið núna^^f^^iimSSSm^
A lukkudögum býðst Subgiu a betri kjörum en nokkru
sinni ryrri
m.
m l
_ 1 n ***** £ i
""W" Ý Lukkudagar
% á ferð um landið í dag, miðvikudag:
við Olís skálann á Akranesi kl. 11-15
við Bílasölu Vesturlands á Borgarnesi kl. 18-22
Patreksfjörður fös. 5/6, ísafjörðurog Egilsstaðir um helgina
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
GRÉTAR Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU, og Aðal-
steinn Jónsson, forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, uin borð í brúnni
á skipinu eftir að það kom úr breytingunum í Póllandi.
Breyting á Jóni Kjart-
anssyni hagkvæm
MAGNÚS Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, segir að ekki sé spurning að
þær miklu breytingar sem gerðar
hafa verið á síldveiðiskipinu Jóni
Kjartanssyni SU í Póllandi hafi ver-
ið til mikilla bóta og mjög hag-
kvæmar. Skipið fer til síldveiða eftir
sjómannadaginn.
„Já, já, þetta er hagkvæmt, jafn-
vel þótt kostnaður hafi orðið meiri
heldur en iagt var upp með. Bæði
þurfti meira að gera við skipið og
svo fóru tímamörkin úr böndunum
og þá koma ýmsir ófyrirséðir kostn-
aðarliðir inn og eru fljótir að breyta
myndinni. Samt held ég að í aðalat-
riðum sé þetta það sem búast mátti
við og við erum ánægðir að vera
búnir að fá skipið til starfa á ný,“
sagði Magnús.
Hann sagði að ekki væri búið að
gera það endanlega upp hver kostn-
aðurinn við breytingamar væri, en
það liti út fyrir að heildarkostnaður
verði um 370 miiljónir.
„Eg get nú ekki sagt hvað nýtt
skip myndi kosta, en þó er ljóst að
það yi'ði ekki undir 800 miiljónum
og í ljósi þess að maður losnar ekki
við þessi gömlu skip, eins og Jón
Kjartansson var orðinn, er þetta
verulega hagkvæmt. Peir hjá
Lloyds-tryggingarfélaginu hafa
sagt okkur að þeir líti á Jón sem
þriggja ára skip eftir breytingarn-
ar.“Verið er að dytta að einu og
öðru í skipinu þessa dagana, en eftir
sjómannadaginn heldur skipið á
slóðir norsk-íslensku síldarinnar og
getur nú tekið meiri aíla í hverri
ferð en fyrrum, eða rúm 1.600 tonn
nú í stað 1.100 tonna áður. Skip-
stjóri verður sá hinn sami og stýrði
gamla Jóni Kjartanssyni, Grétar
Rögnvarsson.
Leigutekj-
ur kvóta-
aukningar
2,8 millj-
arðar
TEKJUR útgerðarinnar vegna
aukningar á þorskveiðiheimildum á
næsta fiskveiðiári aukast um 2,8
mHljarða króna sé miðað við verð á
leigukvóta á mörkuðum í dag.
Leiguverð á kvóta er í dag um 88
krónur fyrir kíló. Leyfilegur
þorskafli á næsta fiskveiðiári verður
250.000 tonn sem er 32.000 tonnum
meiri afli en leyfður er á yfirstand-
andi fiskveiðiári. Miðað við leiguverð
á kvóta í dag má því áætla að tekjur
útgerðarmanna aukist um rúma 2,8
milljarða ki'óna leigi þeir kvóta sinn
innan ársins.
Verð á varanlegum þorskveiði-
heimildum er í dag um 800 krónur og
útlit er fyrii' að það verð haldist út
þetta fiskveiðiár. Verð á varanlegum
þorskkvóta var 1. september á síð-
asta ári um 620 krónur. A yfirstand-
andi fískveiðiári er leyfilegur
þorskafli 218.000 tonn. Miðað við það
má því áætla að heildarverðmæti
þorskkvótans á árinu sé um 174,4
miUjarðar ki'óna. Að öllu jöfnu ætti
verð á varanlegum þorsidrvóta að
lækka á næsta fiskveiðiári vegna
aukningar á aflaheimildum. Ef svo
verður ekki má áætla að verðmæti
aukningarinnar sé um 25,6 milljarð-
ar króna. Viðmælendur Morgun-
blaðsins vara þó eindregið við því
slíkum fullyrðingum. Hátt verð á
varanlegum aflaheimildum helgist
meðal annars af því að útgerðar-
menn hafí búist við kvótaaukningu
og jafnvel meiri aukningu en raunin
Pillun á hrárri rækju
varð á. Þeir benda einnig á að verð á
varanlegum veiðiheimildum í rækju
og sfld hafi lækkað talsvert á ái'inu.
Minni tekjur af ýsunni
Leyfilegur ýsuafli á næsta fisk-
veiðiári verður 10.000 tonnum minni
en var á þessu ári. Leiguverð á ýsu á
kvótamörkuðum í dag er um 25
krónur. Miðað við sömu forsendur
og að ofan má því áætla að tekjur út-
gerðarmanna skerðist um 250 millj-
ónir leigi þeir ýsukvóta sinn innan
ársins.
HAFIN er pillun á hrárri rækju í
rækjuvinnslu Þormóðs ramma-
Sæbergs hf. á Siglufirði. Rækjan
er flutt á sérhæfðan markað í
Japan.
Þormóður rammi hefur stund-
að tilraunavinnslu á hrárri rækju
undanfarin ár. „Nú er komið að
því að keyra meira magn inn á
markaðinn og sjá hver viðbrögð
hans verða,“ segir Róbert Guð-
finnsson stjórnarformaður.
Tilgangur þessarar vinnslu er
að þróa fleíri vörutegundir og
dreifa áhættunni í rækjuvinnsl-
unni, vera ekki eins háður einum
markaði, í þessu tilviki Evrópu-
markaði, eins og verið hefur.
Innfjarðarrækja,
Aflaheimild,
7.309 tonn
Ný staða,
407 tonn
Humar,
Aflaheimild
459 tonn
Ný staða,
459 tonn
Skel,
Aflaheimild,
9.997 tonn
Ný staða,
305 tonn
Síld,
Aflaheimild,
117.6 þús. t,
Ný staða,
48.6 þús. t.
41%
/
Þorskur,
Aflaheimild,
159,4 þús. t,
Ný staða,
30,1 þús. t,
Karfi,
Aflaheimild,
67,3 þús. t,
Ný staða,
16,9 þús. t.
Steinbítur,
Aflaheimild,
10.429 tonn,
Ný staða,
4.765 tonn
Grálúða,
Aflaheimild,
9.540 tonn,
Ný staða,
2.021 tonn
Skarkoli,
Aflaheimild,
9.960 tonn,
Ný staða,
4.215 tonn
Sandkoli,
Aflaheimild,
6.442 tonn
Ný staða,
2.199 tonn
Langlúra,
Aflaheimild,
1.085 tonn
Ný staða,
559
Úthafsrækja,
Aflaheimild,
79,3 þús. t,
Ný staða,
36,6 þús. t.
Ýsa,
Aflaheimild,
38,8 þús. t,
Ný staða,
18,4 þús. t.
Ufsi,
Aflaheimild,
30,3 þús. t,
Ný staða,
11,7 þús.
Skrápflúra,
Aflaheimild,
4.604 tonn
Ný staða,
1.637 tonn
FÉLAG
GARÐPLÖNTU-
FRAMLEIÐENDA