Morgunblaðið - 04.06.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 4
J
!
Í
I
I
J
1
1
«
i
GUÐJÓN
SIG URFINNSS ON
+ Guðjón Sigur-
fínnsson fæddist
í Oddakoti í Austur-
Landeyjum 8. maí
1903. Hann lést á
Sólvangi í Hafnar-
firði hinn 26. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ingibjörg Ólafsdótt-
ir og Sigurfinnur
Guðmundsson.
Hann ólst upp á
Krossi í A-Landeyj-
um hjá Þorvaldi
Símonarsyni og
konu hans, Sólveigu
Petreusardóttur. Guðjón átti
eina systur, Stefaníu, sem er
látin.
Guðjón kvæntist 24. ágúst
1941 Rakel Bjarnadóttur, f. 30.
september 1915 á Ytri-Skógum
í Kolbeins-staðahreppi. For-
eldrar hennar voru hjónin Gróa
Jónsdóttir og Bjarni Márus
Jónsson.
Börn þeirra eru: 1) Grétar
Már, bifvélavirki, f. 4. október
1939. 2) María Ingibjörg, f. 30.
desember 1941, maki Kristján
Karl Normann, þau skildu,
synir þeirra eru Guðjón Einir
og Baldur. 3) Sólveig, f. 17.
júní 1954, sjúkra-
liði og snyrtifræð-
ingur, maki Andrés
Hafberg, börn
þeirra eru Þorvald-
ur, Rakel og Guð-
rún. Guðjón átti
fyrir son, með Ástu
Friðriksdóttur,
Halldór Grétar,
skrúðgarðaarki-
tekt, sem býr í Sví-
þjóð. Halldór er
kvæntur Ullu Britt,
börn þeirra eru
Hákon, Stefán og
Ása.
Guðjón stundaði almenn
sveitastörf á uppvaxtarárum.
Byrjaði sjóróðra 16 ára hjá
Sæmundi Ólafssyni, Lágafelli,
Landeyjum. Sjómennska varð
síðan hans aðalstarf til um
1950, sigldi hann m.a. á bv.
Haukanesi öll stríðsárin. Um
13 ára skeið var hann verk-
stjóri hjá Bátafélagi Hafnar-
fjarðar. Síðan starfsmaður við
timburafgreiðslu hjá Dvergi til
76 ára aldurs. Guðjón var
mörg ár í stjórn verkamanna-
félagsins Hlífar.
títför Guðjóns hefur farið
fram í kyrrþey.
Á fagurri sumarnóttu kvaddi
Guðjón, tengdafaðir minn, og hélt á
vit feðra sinna. Við fráfall hans
leitar hugurinn aftur í tímann og
minningar um mann, sem alltaf var
boðinn og búinn til að hjálpa
öðrum, hrannast upp. Þegar ég
kynntist Guðjóni var hann kominn
hátt á sjötugsaldur, en þó fullur
elju og atorku sem væri hann
miklu yngri. Guðjón hafði mikið
yndi af garðrækt, ræktaði fyrst
garðinn við hús sitt og svo þegar
úthlutað var spildum inn af
Hafnarfirði, kringum 1980, fékk
hann eina sem hann, ásamt
tengdamömmu og Grétari mági,
plantaði í trjám og öðrum jurtum.
Stundum fékk hann send fræ og
lauka frá Halldóri, syni sínum í
Svíþjóð, sem hann gerði tilraunir
með og sumt heppnaðist en annað
ekki.
Guðjón og Rakel lifðu í
hamingjusömu hjónabandi. Þau
áttu alla tíð sitt heimili í
Hafnarfirði og frá 1959 að
Grænukinn 26, sem þau byggðu
ásamt Grétari, syni sínum. Þegar
Guðjón var kominn yfir nírætt fór
hann að tapa heilsu og síðustu 3-4
árin dvaldi hann á Sólvangi. Grétar
kom til hans á hverjum degi, tók
hann heim þegar hægt var og
annaðist hann á allan þann hátt
sem honum var unnt.
Að leiðarlokum þakka ég
ánægjulega samfylgd sem aldrei
bar skugga á.
Andrés Hafberg.
Í
«
i
«
«
«
«
«
«
I
«
«
«
«
«
4
HULDA
KRIS TJÁNSDÓTTIR
mun erfiðara að sjá hana veikjast
af Parkinsons-sjúkdómnum. Að
hún gæti ekki lengur gert allt sem
henni datt í hug var svo óskiljan-
legt. Hennar sterki sjálfstæðisvilji
hélt henni lengi uppi þar til sjúk-
dómurinn náði yfirhöndinni og
fyrir rúmu ári fluttist hún á elli-
heimilið Grund þar sem hún naut
góðrar aðhlynningar.
Hulda frænka var mörgum
hjálparhella og hélt hún móður
sinni og Kristjáni bróður sínum
heimili lengi vel. Einnig bjó hjá
henni um tíma Kristján, systur-
sonur hennar, og hefur hann verið
henni sem sonur og hefur tryggð
hans við Huldu frænku verið
ómetanleg í veikindum liðinna ára.
Við systurnar kveðjum elsku
Huldu frænku okkar með þakk-
læti fyrir allar skemmtilegu
stundirnar og minnumst hennar
sem einstakrar konu sem gæddi líf
okkar ógleymanlegum litum.
Hulda Kristín, Jóhanna
og Lotta.
tHulda Krist-
jánsdóttir var
fædd 22. maí 1924.
Hún lést á Elli-
heimilinu Grund
26. maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Kristín Þor-
kelsdóttir, f. 8.
ágúst 1891, d. 9.
desember 1982, og
Kristján Jónsson, f.
1. júní 1870, d. 5.
október 1946.
Hulda átti átta al-
systkini en þau eru
Sigríður, f. 3. júlí
1920, Magnús, f. 22. nóvember
1921, d. 5. júní 1997, Kristján,
f. 5. júlí 1925, Valgerður, f. 3.
nóvember 1926, Sveinn, f. 7.
aprfl 1929, Helga, f. 4. október
1930, Guðríður, f.
20. aprfl 1933, og
Magnea, f. 10. des-
ember 1934. Hulda
átti einnig fjögur
hálfsystkini sem öll
eru látin: Jón
Magnús, sam-
mæðra, og Stein-
unni, Magneu og
Kjartan, samfeðra.
Hulda starfaði
sem ung kona hjá
Sundhöll Reykja-
víkur en inest alla
sína starfsævi vann
hún við skrifstofu-
störf hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
títför Huldu fer fram frá
Grensáskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VALTÝR GUÐJÓNSSON,
Suðurgötu 12,
áður Suðurgötu 46,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 5. júní kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjúkrahús
Suðurnesja.
Emil Valtýsson,
Guðrún Valtýsdóttir,
Gylfi Valtýsson, Áslaug Bergsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Langt fram eftir aldri héldum
við systurnar að hún Hulda
frænka, móðursystir okkar, héti
Hulda Frænka Kristjánsdóttir,
svo sterkur var frænkutitillinn.
Hulda frænka var okkur alltaf
mjög góð og mikið þótti okkur hún
skemmtileg. Hún hafði áhuga á
öllu og gat allt. Ef hún fékk ein-
hverja hugmynd var hún fram-
kvæmd, hvort sem það var að
flísaleggja baðherbergið, yfir-
dekkja sófasett, setja kók út á
rjómaís, hekla eldhúsgardínur eða
grilla hangikjöt og okkur stelpun-
um hefði ekki þótt skrítið þó að
Huldu frænku hefði tekist að
breyta bókahillu í svefnsófa, slíka
óbilandi trú höfðum við á hæfileik-
um hennar!
Okkur þótti hún líka svo falleg.
Hún átti fullt af fötum, skóm og
skartgripum og alltaf máttum við
gramsa í öllu hjá henni og ef okk-
ur fannst eitthvað flott var það
henni svo sjálfsagt að gefa okkur
það; þvílík var gjafmildi Huldu
frænku. Það var sjaldan sem við
fórum tómhentar fi-á henni. Við
erum henni einnig þakklátar fyrir
þá fyrirmynd sem hún var okkur;
að vera óhræddar við að takast á
við hvaða verkefni sem er, hvort
sem það er álitið „karlmanns- eða
kvenmannsverk“.
Vegna þess hve Hulda frænka
var sterkur „karakter" var þeim
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
HAFLIÐI MAGNÚSSON
kjötiðnaðarmeistari,
Bergþórugötu 59,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn
5. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Guðrún Beinteinsdóttir,
Margrét Hafliðadóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn og stjúpfaðir okkar,
BALDVIN MAGNÚSSON,
Rofabæ 47,
Reykjavfk,
lést sunnudaginn 24. maí.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að hans
eigin ósk.
Við þökkum samúðarkveðjur og vinarhug. Sér-
stakar þakkir til hjúkrunarfólks lungnadeildar Vífilsstaðaspítala fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Anna Hjálmarsdóttir,
Jón Örn Árnason, Sigurgeir Árnason,
Einar Árnason, Kristín Árnadóttir
og fjölskyldur.
r
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
UNNUR LEA SIGURÐARDÓTTIR,
Kleifarhrauni 1d,
áður til heimilis að Miðstræti 25,
Vestmannaeyjum,
er lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugar-
daginn 30. maí sl., verður jarðsungin frá
Landakirkju föstudaginn 5. júní kl. 16.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast
bent á Hjartavernd.
Viktor Berg Helgason,
Sigríður E. Helgadóttir,
Rósa Helgadóttir,
Sigrún Birna Helgadóttir,
Sólrún Helgadóttir,
Stefanía Þorsteinsdóttir,
Páll H. Kristjánsson,
Oddur Thorarensen,
börn og barnabörn.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
DÓRU SÆMUNDSDÓTTUR,
Botnahlíð 33,
Seyðisfirði,
fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn
5. júní kl. 15.00.
Þorvaldur Jóhannsson,
Sigurbjörg Baldvinsdóttir,
Hafdís Baldvinsdóttir,
Þorsteinn Þórir Baldvinsson,
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir,
Inga Þorvaldsdóttir,
Jóhann Þorvaldsson,
Olav Jacobsen,
Gunnar K. Gunnlaugsson,
Björn Sigfinnsson,
Þorsteinn Arason,
Hrafnhildur Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
GÍSLI SKARPHÉÐINN SIGURÐSSON,
Stapa,
Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju föstu-
daginn 5. júní kl. 14.00.
Sigurður Sigurbergsson
og aðrir vandamenn.
Lokað
Vegna útfarar starfsfélaga okkar, ÖNNU BRYNJÓLFSDÓTTUR,
verður skrifstofan lokuð eftir hádegi föstudaginn 5. júní.
Hönnun hf. verkfræðistofa.
+
Elskuleg systir okkar,
SYSTIR MARIE GABRIELLE,
andaðist á heimili okkar 2. júní sl.
Jarðarförin fer fram frá Kristskirkju,
Landakoti, mánudaginn 8. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Systrasjóð St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
St. Jósefssystur.