Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ MÁLEFNABARÁTTA EÐA FELULEIKUR? UM helgina 3.-4. júlí næstkomandi verður haldinn í Reykjavík aukalandsfundur Al- þýðubandalagsins. Á þeim fundi getur ráðist, hvort Alþýðubandalag- ið lifir áfram sem sjálf- stætt þjóðmálaafl eða hverfur af sjónarsvið- inu. Til fundarins er boðað af flokksforyst- unni til að leggja mat á afrakstur viðræðna um aukið samstarf við Al- þýðuflokkinn og það sem eftir stendur af Kvennalistanum. Á fundinum verður að lík- indum tekist á um það hvort Al- þýðubandalagið eigi að standa að sameiginlegu framboði með þessum flokkum í alþingiskosningum vorið 1999. Ákvörðun um slíkt framboð mun í reynd hafa í fór með sér enda- lok Alþýðubandalagsins. Undirritaður átti sæti í einum af fjórum „málefnahópum" sem nú hafa skilað af sér til formanna flokk- anna. Eftir situr að störfum hópur um utanríkismál sem væntanlega skilar af sér fyrir landsfundinn. Á sviði utanríkismála hefur sérstaða Alþýðubandalagsins verið skýr frá upphafi. Ég starfaði í hópi um um- hverfis-, atvinnu- og efnahagsmál og sldlaði þar séráliti. Sammæli var í hópnum um ýmsa þætti, sem engum kemur á óvart, og endurspeglast það með svipuðum hætti og á Al- þingi. Um mörg önnur atriði greindi mig á við fulltrúa hinna flokkanna, eins og vikið er að í þessari grein. Hér er einnig rætt nokkuð um af- leiðingar þess ef Alþýðubandalagið fellir merki sitt og ákveður að bjóða ekki fram í alþingiskosningunum 8. maí 1999. Ólíkar forsendur og þröngur rammi Viðræður fulltrúa Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Kvennalista til að kanna möguleika á auknu sam- starfi þessara flokka í landsmálum hófust ekki fyrr en í lok mars 1998. Var þannig ætlaður afar knappur tími til starfa. Hópurinn sem ég átti sæti í kom fyrst saman 26. mars 1998 og lauk störfum 10. júní 1998. Ég sat flesta fundi hópsins og tveggja undirhópa og lagði þar fram talsvert efni. Engin skrifleg leiðsögn eða erindisbréf var lögð fram í upp- hafi hópstarfsins. Fijótlega varð mér Ijóst, að fulltrúar flokkanna gengu til þessara viðræðna á afar ólíkum forsendum. Umboð fulltrúa Alþýðuflokksins var einskorðað við að um yrði að ræða sameiginlegt framboð flokkanna í næstu alþingis- kosninum en af hálfu Alþýðubanda- lagsins skyldi litið á þetta sem könnunar- viðræður án skuldbind- inga fyrirfram um sér- stakt form á samstarfi. Forysta Alþýðu- bandalagsins hefur sett flokkinn í mikinn vanda með því að fara út í könnunarviðræður sem þessar fyrst Alþýðu- flokkurinn gerði fyrir sitt leyti sameiginlegt framboð í komandi al- þingiskosningum fyrir- fram að skiiyrði. Margt í kringum vinnu þess- ara málefnahópa ber líka vott um að af hálfu forystumanna flokkanna sé ekki mikið lagt upp úr starfi þeirra. Þau fyrirmæli fylgdu til hópsins sem ég starfaði í að álit hans skyldi ekki fara fram úr 2-3 blaðsíðum! Þegar um er að ræða stóra málaflokka eins og hér um ræðir leiðir svo þröngur rammi óhjákvæmilega til þess að af- urðin verður í símskeytastíl og ekki er kostur á að greina mál og skýra eins og þörf hefði verið á. Ágreiningur um ýmis grundvallarmál í málefnahópnum lagði undirrit- aður fram allítarlegar hugmyndir og tillögur um umhverfis- og efnahags- mál og um atvinnumál og atvinnu- þróun. Var um þær tillögur fjallað í undirhópum. Um mörg atriði var skýr ágreiningur, þar á meðal um nokkra grundvallarþætti efnahags- mála, sem jafnframt hafa áhrif á umhverfismál og atvinnuþróun. Um aðra þætti tókst allgóð samstaða með fulltrúum flokkanna. Af ágrein- ingsefnum má nefna afstöðuna til Evrópusambandsins og EES, einka- væðingu, auðlindagjald, fjárfesting- ar í sjávarútvegi, orkumál og land- búnaðar- og byggðamál. Þetta þarf ekki að koma á óvart miðað við stefnu flokkanna og afstöðu á Al- þingi. Gjörólík afstaða til Evrópusam- bandsins og EES Það atriði á verkefnaskrá mál- efnahópsins sem vegur þyngst í ágreiningi Alþýðubandalags og Al- þýðuflokks er afstaðan til Evrópu- sambandsins og samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Aiþýðu- flokkurinn hefur fylgt þeirri stefnu að ísland eigi að stefna að aðild að ESB, en Alþýðubandalagið er því andvígt. Þennan ágreining viður- kenna allir og hann ristir djúpt í sýn manna til flestra þjóðmála. Tals- maður Kvennalistans í hópnum seg- ir skiptar skoðanir um þessi mál innan Kvennalistans, en meirihluti þar muni nú geta tekið undir Ég fæ ekki séð, segir Hjörleifur Guttorms- son, að milli Alþýðu- flokks og Alþýðubanda- lags sé að fínna þá snertifleti í þjóðmálum sem gerðu slíkt samlag trúverðugt, hvað þá endingargott. stefnumið Alþýðuflokksins, einnig að því er varðar EES-aðild. I hópnum höfnuðu fulltrúar Al- þýðuflokks og Kvennalista m.a. hug- myndum sem ég setti þar fram þess efnis að lögleiða hér framvegis ekki ESB-tilskipanir sem ganga gegn mikilsverðum þjóðarhagsmunum eða skerða frekar en orðið er full- veldi okkar og að ekki komi til greina að óska eftir samningum um aðild íslands að Evrópusambandinu. Ákvæði EES-samningsins um fjórfrelsi, óskoraðan rétt til fjárfest- inga og kaupa á fasteignum og land- areignum með þeim réttindum sem fylgja, geta fyrr en varir orðið af- drifarík. Sjávarútvegur Alþýðubandalag og Alþýðuflokk hefur greint á um mörg atriði sjáv- arútvegsmála og nægir þar að minna á tillögur krata um veiðileyfa- gjald. Við gerð EES-samningsins fékk ísland undanþágu að þvi er varðar rétt annarra EES-aðila til fjárfest- inga í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. Sett voru lög hérlend- is í krafti þessara undanþáguá- kvæða, en Aiþýðuflokkurinn og Þjóðvaki vilja fella þau úr gildi. Hafa þingmenn jafnaðarmanna flutt á Al- þingi beinar tillögur um að afhema með öllu takmarkanir á fjárfestingu útlendinga í fiskvinnslu. I málefna- hópnum fékkst ekki stuðningur við tillögu mína um að rýmka ekki laga- ákvæði um fjárfestingu útlendinga í veiðum og frumvinnslu sjávaraf- urða. Landbúnaður Ýmis ágreiningur kom upp í tengslum við landbúnaðar- og byggðamál. Ég tel að ekki eigi að ganga lengra í innflutningi hefð- bundinna landbúnaðarvara en nauð- syn krefur vegna samningsskuld- bindinga samkvæmt GATT-samn- ingum, en um það voru fulltrúar Al- þýðuflokks og Kvennalista mér ósammála. Ekki var heldur fallist á tillögu mína „að tryggja sem best félagsleg réttindi fólks í dreifbýli, þar á meðal sveitakvenna" né heldur var veitt rúm fyrir hugmynd mína um „að auðvelda samskipti þéttbýlis og dreifbýlis á sem flestum sviðum og nýta menningu og aðstæður sveit- anna til uppeldis og lífsfyllingar". Byggðamál í atvinnumálum byggðanna tóku fulltrúar hinna flokkanna undir margar af þeim tillögum sem ég lagði fram. Nokkur mikilsverð atriði mættu hinsvegar andstöðu, þar á meðal: ,Að við allar efnahagsað- gerðir og samningslegar skuldbind- ingar séu höfð í huga áhrif þeirra á dreifbýlið og þess gætt að Island af- sali sér í engu rétti til jöfnunarað- gerða í þágu byggðar.“ Þá var ekki fallist á að það væri hlutverk hins opinbera „að reka fjarskipti og póstþjónustu og tryggja jöfnuð í grunnþjónustu um allt land“ né heldur „að tryggja fjöl- þætta heilsugæslu og bráðaþjónustu sjúkrahúsa í öllum landshlutum án aðkomugjalda og sjúklingaskatta“. Ekki var heldur fallist á tillögu mína „að tryggður sé jöfnuður í flutnings- kostnaði á olíuvöram þannig að bensín og hráolía sé í boði á sama verði um allt land“. Þá hlaut ekki undirtektir sú hugmynd „að taka til athugunar að skipta landinu í fylki (nýtt stjómsýslustig) til að treysta byggð, samvinnu stórra svæða og æskilega dreifingu í stjómsýslu rík- isins“. Ferðaþjónusta í ferðaþjónustu lagði undirritaður til í samræmi við ferðamálastefnu sem mótuð var á vegum stjómskip- aðrar nefndar 1990 „að ríkið veiti þróunarmiðstöðvum ferðaþjónustu á landsbyggðinni stuðning og tryggt verði með samvinnu hins opinbera (ríkis og sveitarfélaga) og samtaka ferðaþjónustuaðila að ferðamálafull- trúar starfi í öllum landshlutum". Á þetta var ekki fallist né heldur til- lögu um „að móta langtímastefnu um markaðsstörf og kynningu á Is- landi sem ferðamannalandi og um val á markaðssvæðum“. Einnig féll fyrir borð sú hugmynd mín „að stór- efla rannsóknir í þágu ferðaþjónustu með stuðningi sérstakrar rann- sóknastofnunar og bæta upplýsinga- grandvöll til að auðvelda stefnu- mörkun". Iðnaður og orkumál Nokkrar tillögur sem undirritað- ur lagði fram hlutu ekki undirtektir meirihlutans, þar á meðal um þró- unarátak í málmiðnaði og rafiðnaði, nýja sókn í textíliðnaði, nýtingu orkulinda til stuðnings ylrækt og fiskeldi, vistvænni matvælafram- leiðslu, tómstundalífi og íþróttum. Þótt Alþýðuflokkurinn sýni nú viðleitni til að endurmeta afstöðu sína tU „hefðbundinnar stóriðju" er langt frá því að menn þar á bæ séu samhljóma í áherslum. Verður fróð- legt að fylgjast með þeirri stefnu- mörkun til enda og undirtektum meðal annars frá forystu ASÍ, en menn þar á bæ virðast leggjast ein- dregið á sveif með sameiginlegu framboði. Þannig var allnokkur munur á tillögu minni um að hverfa frá hefðbundinni stóriðju og um- skrift þeirrar tillögu í útgáfu meiri- hlutans. Opinber þjónusta Ekki var falUst á tillögu undirrit- aðs um „að hætta einkavæðingu op- inberra þjónustufyrirtækjá'. Þá var talið of sterkt að orði kveðið með til- lögunni: ,Að undirstöðu þjónustu- fyrirtæki sem búa við fákeppnisað- stæður eins og fjarskipti (landssími sem eigandi grunnnets), póstþjón- usta, orkuframleiðsla og orkudreif- ing séu í eigu og undir forræði hins opinbera og tryggður sé jöfnuður í verðlagningu hvar sem er á land- inu.“ U mh verfisvemd Þótt ekki reyndist bera mikið í milli um einstök stefnumið í um- hverfismálum, kom fram skýr ágreiningur um vægi umhverfismála í samhengi við stefnu í efnahagsmál- um. Ég lagði fram sérstaka greinar- gerð um það efni, þar sem sett era fram ákveðin „græn“ sjónarmið og meðal annars staðhæft að „efna- hagskerfi sem ekki lagar sig að strangri umhverfisvernd er ekki sjálfbært og endar með ósköpum“. Niðurlagsorð greinargerðarinnar era svohljóðandi: „Jafnframt því Hjörleifur Guttormsson sem stutt skal við alla viðleitni til að styrkja stöðu umhverfismála, stað- bundið og hnattrænt, þarf að þrengja svigrúm alþjóðlegs fjár- magns og leitast við að endurheimta eitthvað af þeim lýðræðislegu stjórntækjum þjóðríkja [Islands] sem kastað hefur verið fyrir róða síðasta áratuginn." Það er í samræmi við sldptar skoðanir um grandvallarviðhorf til umhverfismála að fulltrúar Alþýðu- flokks og Kvennalista höfnuðu til- lögu minni um „að lög og reglugerð- ir [ákvarðanir] um umhverfismál gangi framar reglum á viðskipta- sviði, meðal annars um frjálst vöru- flæði, fjármagnsflutninga og fjár- festingar". Ágreiningsefni og sammæli Eins og sjá má af framansögðu era þau mál mörg sem ágreiningur var um í málefnahópnum. Leiddi það. til þess að undirritaður varð ekki samferða meirihluta hans. Mörg þessara ágreiningsefna snerta stórmál, sem skipta þjóðinni í fylk- ingar og stjómmálaflokkar hljóta að þurfa að taka afstöðu til. Þarna er meðal annars um að ræða ágreining um grandvallarviðhorf eins og til umhverfismála og hlutverks hins op- inbera í þjónustu við þegnana. Önn- ur mikilsverð atriði sem ágreiningur er um snerta undirstöðuþætti efna- hagsmála og helstu atvinnuvegi landsmanna. Ýmis atriði eru afar óljós eftir vinnu hópsins, meðal ann- ars vegna afar naums tíma sem hon- um var ætlaður og kröfunnar um símskeytastíl í framsetningu. Margt af því sem meirihluti hópsins setti fram sem sínar tillögur er raunar sótt í hugmyndir sem undirritaður lagði fram og rætt var í málefna- hópnum. Sameiginlegt framboð = endalok Alþýðubandalagsins Undirritaður hefur oftsinnis var- að við hugmyndum um að leggja saman spilin á vettvangi landsmála með stjómmálaflokkum sem standa fyrir allt aðra stefnu en Alþýðu- bandalagið í mikilsverðum þjóðmál- um og á heildina litið. Slíkt jafngildir því að hverfa frá stefnumiðum flokksins og fella merki hans. í starfi málefnahópsins komu berlega í ljós afleiðingar af „aðferðafræði hins minnsta samnefnara". Sérmál flokkanna, ekki síst Alþýðubanda- lagsins sem hefur til þessa haft skýra sérstöðu, eru gerð ósýnileg og verður sópað undir teppið. Verði fallist á kröfu Álþýðuflokks- ins um sameiginlegt framboð í næstu alþingiskosningum jafngildir það því að flokkamir sem að slíku framboði standa séu lagðir niður. Það verður þá aðeins formsatriði að ganga frá útförinni. Undirritaður er því algjörlega andvígur að fella merki og málstað Alþýðubandalags- ins og telur að störf í málefnahópn- um hafi berlega leitt í Ijós hvað sam- eiginlegt framboð hefði í för með sér. Ég fæ ekki séð að milli Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags sé að finna þá snertifleti í þjóðmálum sem gerðu slíkt samlag trúverðugt, hvað þá endingargott. Eins og gerist með stjómmála- flokka era ekld skörp skil í afstöðu þeirra á öllum sviðum. Það á ekki aðeins við um Alþýðubandalag, Al- þýðuflokk og Kvennalista, heldur einnig um núverandi stjómarflokka, ekki síst að því er varðar Framsókn- arflokkinn og bakland hans. Stjómmálaflokkamir era ásamt fjöldasamtökum almennings kjöl- festa lýðræðis í landinu. Flokkarnir þurfa að hafa skýrar áherslur í meg- inmálum en ekki ástunda feluleik. Til að lýðræðið fái notið sín þurfa stjómmálin að endurspregla þá meginstrauma sem til staðar era á hverjum tíma. Ef Alþýðubandalagið hyrfi af vettvangi væri komin eyða í litróf stjómmálanna og horfinn málsvari sjónarmiða sem safnað hef- ur kjörfylgi sem oft hefur legið á bil- inu 15-20% síðustu ár og áratugi. Menn geta lagt niður flokka að formi til en málstaður hverfur ekki svo lengi sem hann hefur hljóm- grann meðal almennings. Höfundur er þingmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.