Morgunblaðið - 21.06.1998, Side 25

Morgunblaðið - 21.06.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 25 reglur um alla hluti. Mönnum er trúað fyrir miklu vegna þess að þeim er treyst." - Nú segir líka í Biblíunni að þeim sem er trúr í hinu smáa verði treyst fyrir miklu. „Jú, ég tek undir það.“ Trúað fyrir miklu - Þá er kannski komið að spurn- ingunni um hvers vegna þér var trú- að fyrir formennsku í bankaráði Landsbanka Islands hf.? „Það er kannski erfítt að svara því öðruvísi en að þeir sem það gerðu þekkja mig og hafa gert í mörg ár. Ég var fyrst þingkjörinn í bankaráð- ið 1995, formaður Framsóknar- flokksins, Halldór Ásgrímsson og þingflokkurinn studdu mig. Þegai- Finnur Ingólfsson tók við viðskipta- ráðuneytinu tók hann þá ákvörðun að setja mig í formennskuna. Hann þekkir mig vel og treystir mér. Hann þekkir til minna starfa.“ Helgi segir að til að gegna for- mennsku í bankaráði Landsbankans þurfi maður að hafa dómgreind og innsæi, vera reiðubúinn að hlusta á sjónarmið annarra og nýta sér reynslu þeirra; hafa víðtæka þekk- ingu á mannlífinu og reynslu úr við- skiptalífínu. Þá telur hann mjög gott að hafa starfað í pólitík, sem sé mik- il lífsreynsla. Helgi segist hafa starf- að í Framsóknarflokknum í 30 ár og gegnt þar mörgum trúnaðaremb- ættum. M.a. situr hann í landsstjórn flokksins. þetta að mér, hefði ég vitað þetta, ég svara því hiklaust játandi.“ - Hefur þú gaman af átökum? „Ég get nú ekki sagt það, en ég hef gaman af að leysa verkefni. Ég lít á þetta sem verkefni - eins og líf- ið sjálft. Ég vil forðast að tala um vandamál, þetta eru verkefni og ég er tilbúinn í þetta verkefni.“ - Nú liggur fyrir skýrsla Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. um málefni fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Það liggur fyrir að bankaráðið hyggst ekki aðhafast frekar í málinu. Var farið offari gegn bankastjórunum fyrrverandi? „Það má ekki gleyma því hvernig þetta kemur til,“ segir Helgi. „Það er frekar leiðinlegt að vera að rifja það upp, en ég skal reyna það. Það koma fram fyrirspumir í þinginu um kaup bankans á laxveiðileyfum. Það kemur fram í skýrslu Ríkisendur- skoðanda að bankinn hafði keypt veiðileyfi af fjölskyldufyrirtæki eins bankastjórans. Þetta var mjög gagnrýnt í fjölmiðlum. Þessi sami bankastjóri óskaði eftir því að Ríkis- endurskoðandi færi yfir sín mál, sem hann gerði. Þá kemur í ljós að laxveiðileyfi, sem keypt voru á veg- um bankans, vora ekki öll talin þeg- ar viðskiptaráðherra voru gefnar upplýsingar. Þá kemur þetta upp. Ég veit ekki hver hefur farið offari!" - Er búið að setja punkt við mál- ið? „Það er aldrei hægt að fullyrða neitt um það. Þetta er niðurstaða „Það er grund- völlur betra lífs og þroska að geta fyrir- gefið og eiga kærleika.“ „Ég hefði aldrei tekið þetta starf að mér ef ég hefði ekki treyst mér til þess. Það skiptir líka máli að það er gott fólk með mér í bankaráðinu. Ég leita til manna ef það er eitthvað sem ég þarf að vita betur og á mína ráðgjafa. Menn þurfa að geta starf- að með fólki og kunna að virða skoð- anir annarra. Fagmennirnir eru til staðar í bankanum ef við þurfum upplýsingar um sérstök málefni.“ Helgi segist ekki munu festa sig í neinu öðru starfi á meðan hann gegnir embætti bankaráðsformanns. „Það er ekki hægt að bjóða atvinnu- rekanda upp á að ætla sér að vera í fullu starfi með þessu. Þetta er fullt starf.“ Ekki vandamál, heldur verkefni Það hefur mikið gengið á frá því að Helgi tók við embætti bankaráðs- formanns. Hefði hann tekið þetta starf að sér ef hann hefði vitað hvað biði hans? „Ég tók við sem formaður stjóm- ar Landsbanka Islands hf. hinn 10. september 1997 og formbreytingin varð um síðastliðin áramót," segir Helgi. „Nánast frá því ég tók við hefur mikið verið fjallað um bank- ann í fjölmiðlum. Frá aðalfundi 6. mars sl. er ég búinn að heyra í fjöl- miðlamönnum nær alla daga, og oft mörgum á dag, um málefni bankans og það sem hefur komið upp á. Þetta gat ekki nokkur maður séð fyrir að mundi gerast og á sér enga hlið- stæðu. Þú spyrð hvort ég hefði tekið bankaráðsins, að gera þetta með þessum hætti. Bankaráðið hefur all- an tímann vandað sig í þessu erfiða máli. Ég fullyrði að ég talaði aldrei við fréttamenn á þessu tímabili um það sem gerðist með ásökun. Ég sagði alltaf að ég tryði því og vonaði að þessum tveimur bankastjórum, sem ekki voru þá búnir að útskýra tiltekna risnu, tækist að gera það. Ég gaf aldrei neitt annað í skyn. Þess vegna varð ég mjög undrandi þegar fyrrverandi bankastjóri hóf að skrifa ærumeiðandi um mig.“ - Var þér misboðið með þeim ski-ifum? „Já. Það á enginn von á að maður sem hefur gegnt mikilvægum emb- ættum fyrir íslenska þjóð, þar á meðal verið menntamálaráðherra, leggist svo lágt sem hann gerði.“ - En hefur þú fyrirgefið þessum fyrrverandi bankastjóra? „Ég er að vinna í því.“ Glæsileg framtíð Helgi segist nú horfa til framtíðar og telur Landsbanka íslands hf. eiga góða tíma fyrir höndum. „Það er mikil stefnumótunarvinna í gangi hér. Það er tiltölulega stutt síðan nýr bankastjóri, Halldór J. Krist- jánsson, kom hér að. Hann hefur verið að vinna með sínum mönnum að því að móta stefnu til framtíðar. Bankaráðið fylgist með og tekur þátt í því eftir atvikum. Hann mun kynna það mjög fljótlega." En dregur Helgi einhvem lær- dóm af þeirri umræðu sem verið hefur um Landsbankann? „Það er eitthvert uppgjör í þjóðfé- laginu. Sumir kalla það siðvæðingu. Ég vona að þetta leiði til góðs og menn hafi að leiðarljósi miskunn og mildi. Það sem hræðir mig mest er að það er engin stjórn á þessari at- burðarás, það veit enginn hvar hún endar. Hvað varðar Landsbankann þá tel ég að hann sé að mestu búinn að hrista þetta af sér og eigi glæsi- lega framtíð sem fjármálafyrirtæki.“ SUMARSMELLUR ‘98 Okkar árlegi heimilisvöru-sumarsmellur er hafinn með hreint ótrúlegu verði. Allt nýjar vörur. Dæmi: Gæðasæng blönduð dún og fiðri 140x200 cm. Verð kr. 3.500 Fiðurkoddi 50x70 cm. Verð kr. 530 Vönduð bómullarsængurverasett, Verð kr. 1.270 Teygjulök 90x200 cm. Verð kr. 550 Teygjulök 150x200 cm. Verð kr. 730 Teygjulök 180x200 cm. Verð kr. 920 Jaquard ofið baðhandklæði, Verð kr. 540 Gæða viskastykki, verð kr. 100 Úrval af borðdúkum, verð frá kr. 425 og margt fleira. Ath. aðeins á meðan birgðir endast. Sængurfatagerðin, Reykjavík Mozart, Vestmannaeyjum Kaupf. A-Skaftf. , Höfn Hornafirði Kaupf. Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði Lækurinn Neskaupstað Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum Kaupf. Vopnfirðinga, Vopnafirði K.Þ. Esar, Húsavík Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkrók Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi Kaupf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi Kaupf. Steingrímsfjarðar, Hólmavik Nýja Línan, Akranesi Paloma, Grindavík Samkaup, Keflavík Tekur þú 4 á móti gestu m ísumarfríinu? Auð hús eru auðfengið fé í augum innbrotsþjófa! Öryggismiðstöð (slands er starfrækt allan sólarhringinn. Par fylgast sérþjálfaðir öryggisverðir með boðum frá öryggiskerfum, brunaviðvörunarkerfum, neyðarkallskerfum og öðrum viðvörunarkerfum. Farandgæsla okkar til eftirlits með húsnæði og tækjabúnaði er sérsniðin að óskum hvers viðskiptavinar. Hafðu | samband við öryggisráðgjafa okkar. Síminn er533 2400 s | Ekki spilla sumarleyfínu með óþarfa áhyggjum! Knarrarvogi 2,104 Reykjavík simi 533 2400, fax 533 2412

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.