Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðgerðum að ljúka á áburðarvélinni Páli Sveinssyni
Reynt að hefja dreifíngu
áburðar um helgina
FLUGVÉL Landgræðslunnar,
Páll Sveinsson, sem varð að lenda á
Selfossflugvelli vegna elds í öðrum
hreyflinum fyrir réttum mánuði, er
nú að komast í gagnið á ný. Stefnt
er að því að áburðarflug geti hafist
á Auðkúluheiði um helgina.
Flugvirkjar hafa undanfarið ver-
ið að leggja lokahönd á verkið á
þar sem vélin er á Selfossflugvelli.
Stefán H. Sigfússon, sem sér um
skipulagningu áburðarflugs Land-
græðslunnar, segir að mestur tími
hafa farið í að útvega varahluti og
bíða eftir að fá þá til landsins. Von
var á síðustu varahlutunum til
landsins í gær en það eru flöskur
með slökkviefni sem eru við mótor-
inn. Þegar þær eru komnar á sinn
stað verður vélinni reynsluflogið og
komi ekkert upp á segir Stefán
þeim ekkert að vanbúnaði að hefja
áburðarflugið á ný. Hann áætlar
kostnað við viðgerðina vera kring-
um 2,5 milljónir. Dreifa á um 400
tonnum á Auðkúluheiði og segir
Stefán það taka fimm daga ef veð-
ur eða annað truflar ekki verkið.
Hann segir hægt að dreifa áburð-
inum allt fram til mánaðamóta en
stefnt verður að því að ljúka verk-
inu sem fyrst. Það mun meðal
annars ráðast af því hvernig
gengur að manna vélina en fyrra
skipulag hefur riðlast vegna
tafarinnar
Morgunblaðið/Golli
KARL Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn með búnað piltanna
sem var gerður upptækur.
Tveir piltar teknir fyrir veggjakrot
Voru með marga brúsa
og myndamöppu
Flugvalla-
skattur
436 millj-
ónir í fyrra
TEKJUR af flugvallargjaldi
vegna millilandaflugs námu 436
milljónum á síðasta ári. Eins og
fram kom í frétt Morgunblaðsins í
gær telur framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins að innheimta
flugvallarskatta hér á landi brjóti
gegn 36. gr. samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið þar sem
hærri skattur sé greiddur í milli-
landaflugi en innanlandsflugi.
Heildartekjur vegna flugvallar-
skatts árið 1997 námu 498,3 millj-
ónum. Þar af voru 436 milljónir
vegna millilandaflugs en 62,3
milljónir vegna innanlandsflugs.
Árið áður, árið 1996, voru tekjurn-
ar heldur lægri, 479,6 milljónir,
þar af 423 milljónir vegna milli-
landaflugs og 56,6 milljónir innan-
lands.
Innheimta flugvallarskatts
byggist á lögum nr. 31/1987 um
flugmálaáætlun og fjáröflun til
framkvæmda í flugmálum. Sam-
kvæmt 14. gr. laganna rennur féð
sem innheimtist til framkvæmda í
flugmálum og rekstrar flugvalla.
LÖGREGLAN í Reykjavík stóð tvo
drengi 16 og 17 ára að verki við
veggjakrot í vikunni. Voru þeir nýbún-
ir að mála tvær stórar myndirá hvítan
vegg við leiksvæði í vesturbænum.
Drengirnir voru handteknir og
færðir til yfirheyrslu og kom þá í ijós
að þeir voru með meðferðis 19 máln-
ingarbrúsa í tveimur töskum ásamt
myndamöppu með fyrirmyndum.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar
verður farið með málið rétta boðleið,
þar sem um eignarspjöll er að ræða
samkvæmt hegningarlögum, og við
þeim geta legið þó nokkuð þungar
refsingar.
Lögreglan vill beina því til þeirra
sem verða varir við veggjakrotara að
þeir láti vita, þar sem um skemmdar-
verk er að ræða.
Faðir rapsolíunnar af íslenskum ættum
Þróaði endur-
bætta olíu úr
fræjum repju
Baldur Stefánsson
NÝLEGA var
rapsolía til um-
ræðu hér á síðum
Morgunblaðsins þar sem
hún fer nú sigurför um
heiminn sakir hollustu
sinnar.
Rapsolíuna þróaði
Baldur Stefánsson, fyrr-
verandi prófessor við
Manitoba háskóla úr
repjufræjum, en repja er
skyld rófu og fóðurkáli.
Baldur er af íslenskum
ættum, búsettur í Winn-
epeg í Kanada.
„I Kanada hafði repja
verið ræktuð lengi en
ekki komið að notum
sem skyldi þó repjuolía
væri t.d. notuð í vélabún-
að flotans í síðari heims-
styrjöldinni. Nóg land-
rými var í Kanada til ræktunar
en mestöll olía til manneldis var
innflutt. Við reyndum að rækta
ýmislegt, sólblóm, soja og ýmsar
aðrar tegundir með olíufram-
leiðslu í huga. Eina tegundin
sem virtist þrífast á kaldari
svæðum I Kanada var repja.“
„Á þessum árum starfaði ég
við plöntuvísindadeild Manitoba
háskóla og við fengum það hlut-
verk að hrinda af stað verkefni
með það að leiðarljósi að finna
jurt sem hægt væri að rækta og
myndi nýtast til manneldis."
- Gekk það vel?
„Um skeið var framtíð repju-
olíunnar teflt í tvísýnu því rann-
sóknir sýndu að hún innihélt
mikið magn af óæskilegri fitu-
sýru og þótti því ekki hagstæð
sem matarolía."
Baldur hóf í kjölfar þeirra nið-
urstaðna víðtæka rannsókn á
repjufræjum víðsvegar frá og
leitaði að afbrigði sem innihéldi
minna magn af fitusýrunum.
Eftir að hafa tekið um 4.000 sýni
og notað gasskilju við að efna-
greina fræin fann hann afbrigðið
Liho sem plöntuvísindadeildin
við Manitobaháskóla undir hans
stjóm vann með áfram. í kring-
um 1970 kynnti hann endur-
bætta repjuolíu þar sem búið var
að útiloka fitusýruna að mestu
leyti og gera aðrar breytingar.
„Ef hugmyndin hefði ekki ver-
ið að þróa olíuna til matargerðar,
hefðum við jafnvel haft hana alit
öðruvísi samsetta og notað aðrar
fitusýiur. Rapsolían inniheldur
litla mettaða fitu, mikið af einó-
mettaðri fitu og mun meira af
Omega-3 fitusýrunni en í nokk-
urri annarri algengri jurtaolíu.
Olían fékk í kjölfarið nýtt nafn,
Canola en hún dregur nafn sitt
af orðunum Kanada og olía.
Canola olían kom á markað í
Kanada áratug áður en aðrir
fóru að framleiða hana með
þessum hætti. „
- Var rapsolíunni
strax vel tekið í
Kanada?
„Já. Við kynntum
hana árið 1974 og að
fjórum árum liðnum
voru 4 milljón ekrur lands lagð-
ar undir repjurækt. í dag er
repja ræktuð á 12 milljón ekrum
í Kanada. Hún er næstvin-
sælasta tegundin til ræktunar í
Kanada, fylgir fast á hæla hveit-
isins.“
Baldur segir að olían sé notuð
til matargerðar í Kanada en
einnig seld til annarra landa og
aðallega til Austurlanda.
- Er notkun rapsolíu útbreidd
►Baldur Stefánsson er fæddur í
Vestfold f Manitoba árið 1917.
Hann lauk doktorsprófi frá
háskólanum í Manitoba árið
1956.
Hann starfaði lengstum sem
prófessor við University of
Manitoba og vann aðallega að
rannsóknum á olíu til manneld-
is.
Hann er kominn á eftirlaun.
Baldur er kvæntur Sigríði Stef-
ánsson en hún er einnig fslensk
og er dóttir Helgu Sveinsdóttur
Westdal og Páls Jónssonar
Westdal. Þau eiga tvo syni og
eina dóttur.
á kanadískum heimilum?
„Um 70%-80% neytenda í Kan-
anda nota rapsoliu til matargerð-
ar. Hún er mjög hagstæð til mat-
argerðar og hefur verið vinsæl í
Bandaríkjunum. Nú virðist hún
vera að vinna mikið á í Evrópu.“
-Þu hefur hlotið ótal viður-
kenningar fyrir störf þín hjá
Manitoba háskóla?
„Ég hef fengið 19 viðurkenn-
ingar og þar af eru nokkrar al-
þjóðlegar. Á þessu ári veitti ég
síðast viðtöku 50.000 dollara
landbúnaðarverðlaunum sem
veitt voru af stofnun í Israel sem
kennd er við vísindamanninn
Ricardo Wolf og þau verðlaun
voru veitt fyrir þróun repjuolíu í
rapsolíu en repju er hægt að
rækta til manneldis á frekar
köldum svæðum. „
-Gætum við ræktað repju á
íslandi?
Það hefur verið reynt að ein-
hverju leyti en vandamálið við
slíka ræktun á íslandi er að það
verður kannski ekki nógu heitt á
sumrin.“
-Hefur þú komið til Islands
nýlega?
„Nei það eru næstum þrjátíu
ár síðan ég heimsótti landið.
Foreldrar mínir voru íslenskir.
Faðir minn, Guð-
mundur Stefánsson,
var úr Þistilfirði og
hann flutti vestur um
haf 10-12 ára gamall.
Móðir min, Jónína
Sigurbjörg Jónsdótt-
ir, er fædd í Winnepeg."
Baldur skilur íslenskuna og
segist tala íslensku eins og Vest-
ur-Islendingur. Þegar hann er
spurðui’ hvort hann líti á sig sem
íslending segist hann vita að fólk-
ið sitt sé frá íslandi en bætir við
að uppruninn sé keltneskur. Hann
segir bömin sín hafa áhuga á ís-
landi, tvö af þremur hafa heimsótt
landið og þau halda tengslum við
skyldmenni sín hér á landi.
19 viðurkenn-
ingar fyrir
þróun rapsolí-
unnar