Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 36
)36 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HAUKUR REYNIR PÁLSSON + Haukur fæddist á Hvassafelli á Biönduósi hinn 20. desember 1949. Hann lést á Land- spítalanuni 3. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Páll Eyþórsson, f. 3.6. 1919, og Torf- hildur Kristjáns- dóttir, f. 28.8. 1924, d. 13.10. 1997. W* Systkini Hauks eru: Anna, f. 24.9. 1943, Óskar, f. 16.2. 1946, Ingvar, f. 10.8. 1951, Vigdís, f. 27.8. 1957, og Lovísa, f. 12.2. 1960. Eftirlifandi eiginkona Hauks er Astrós Reginbaldursdóttir, f. 28.7. 1952. Þau giftu sig 31.12. 1970 og eiga þau fjögur börn. Þau eru: Svanur Freyr, f. 3.2. 1970, Baldur Reynir, f. 16.1. 1972, Sólveig Mar- ía, f. 16.8. 1975, og Anna Kristín, f. 21.2. 1980. Barna- börnin eru fimm. Haukur ólst upp á Blönduósi til 17 ára aldurs, en flutt- ist hann þá til Reykjavíkur. Hann bjó þar í tvö ár en fluttist þá til Gr- indavíkur og þar kynntist hann konu sinni Ástrósu. Haukur vann hjá Hópsnesi í Grinda- vík í 20 ár og keyrði þar af vörubíl fyrirtækisins í 17 ár. Þau fluttust svo til Reykjavíkur í febrúar 1994 og hafa búið þar síðan. Útför Hauks fer fram frá Gr- indavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Nú er minn ástkæri faðir lagður af stað í þá löngu ferð sem bíður okkar allra. Hann kvaddi okkur sæll á svip á Landspítalnum í Reykjavík. ”"nans kall var komið en það kom alltof fljótt. Ég vil minnast hans með nokkrum orðum og kveðja hann hinni hinstu kveðju. Pabbi var hörkuduglegur á sínu sviði. Hann vann hörðum höndum á vörubílnum frá Hópsnesi í heil 17 ár og lét aldrei deigan síga. Og ekki sló hann slöku við þegar heim var kom- ið. Hann vildi allt fyrir alla gera. Hann var alltaf glaðlyndur og hress og aldrei heyrðust kvartanir af hans munni. Dk Pabbi var mikil félagsvera og skemmtilegast þótti honum að fara í útilegur með fjölskyldunni. Hann var söngmaður mikill, stundaði fjóra kóra og hafði afbragðs tenór- rödd. Ég gæti talið upp margt fleira, betri fóður væri ekki hægt að hugsa sér. Og ég var svo heppin að eiga slíkan föður. Kveðjustundina bar skjótt að eft- ir að hann var búinn að berjast í rúman mánuð. En pabbi var bæði með sterkt hjarta og sterka sál og barðist eins og hetja til lokadags. Elsku pabbi, þakka þér íyi'ir allar þær dásamlegu og dýrmætu stundir sem við áttum saman og voru ófáar. Ég sakna þín sárt en minningin um dásamlegan föður sem alltaf stóð mér sterkur við hlið lifir í mínu hjarta. Og hjarta mitt verður ávallt þitt. En við getum huggað okkur við það að amma tekur við honum núna. Elsku pabbi, Guð blessi þig og varð- veiti og gefi þér frið. Og elsku mamma, Guð gefi þér styrk í sorg- inni og öllum sem um sárt eiga að binda. Ykkar dóttir, Anna Kristín. Föstudaginn 3. júlí kom höggið eftir baráttu í heilan mánuð. Það var sárt, en lífið heldur áfram og við lifum áfram og eigum góðar minn- ingar um þig, elsku pabbi minn. Pabbi var lífsglaður, brosmildur og alltaf var stutt í spaugið, þótt pabbi væri veikur í fótunum sínum. Pabbi var nýbúinn að kaupa sér fellihýsi sem hann var afar montinn af og átti hann eftir að sýna mér það, en hann fékk aldrei tækifæri til þess. Hann komst samt í eina útilegu í sumar á Laugarvatn með fellihýsið sitt og með þremur systk- inum sínum í síðasta sinn. Engan óraði fyrir því. Það er mér minnis- stætt frá því í fyrrasumar þegar pabbi og mamma komu í heimsókn til mín í fyrsta skipti. Við fórum með pabba í jeppaferð og þá var hjartað ekki stórt í honum pabba mínum. Um kvöldið settist pabbi í leðurstól fyrir framan sjónvarpið og stóllinn brotnaði undan honum og stóllinn ofan á hann. Það var hlegið mikið að þessu í marga daga á eftir. Pabbi minn var tekinn allt of fljótt frá okkur, hann ætlaði að gera svo margt, en svona er lífið, Drottinn gefur og Drottinn tekur. Ef ég á að lýsa pabba lauslega þá var hann ALLRA. Ég þakka bara allar þær stundir sem ég fékk með fóður mínum. Það er mikill söknuð- ur og sorg, en svona er þetta, sorg- in er búin að vara í fjölskyldunni síðustu átta mánuði, því að við misstum ömmu okkar (mömmu Hauks) í október. Elsku mamma og allir í fjölskyld- unni, við stöndum saman í sorginni og styðjum hvert annað. Elsku pabbi minn, ég bið Guð að geyma þig og varðveita. Þín dóttir, Sólveig María. Ef fólk ber í sér ljós leggur birtu frá þvi. Þannig var okkar ástkæri bróðir Haukur Reynir Pálsson sem er látinn eftir stutta legu aðeins fjörutiu og átta ára gamall úr ill- kynja sjúkdómi, aðeins níu mánuð- um eftir að við misstum móður okk- ar. Hauki munum við fyrst eftir þegar við vonim smápattar í bíla- leik uppi í gröf heima á Hvassafelli á Blönduósi, þar sem við ólumst upp, þrír bræður og þrjár systur, með foreldrum okkar. Haukur var alla tið veikur í fótunum sínum, átti erfitt með gang og gat lítið hlaupið, en hann lét það ekkert á sig fá því hann komst vel áfram með dugnaði og óþrjótandi vilja í lífi sínu þó stundum hafi verið erfitt. Um tvítugt kynntist Haukur eft- irlifandi eiginkonu sinni Ástrósu Reginbaldursdóttur og eiga þau fjögur uppkomin börn, Svan Frey, Baldur Reyni, Sólveigu Maríu og Onnu Kristínu og barnabömin eru fimm. Haukur og Asta hófu búskap sinn í Grindavík, fluttust svo um tíma á Blönduós en fóru svo aftur til Grindavíkur þar sem þau bjuggu lengst af eða þar til Haukur varð að hætta vinnu vegna heilsubrests. Hann var bílstjóri hjá Hópsnesi og vann oft langan vinnudag. Þá lá leið þeirra til Reykjavíkur, þar bjuggu þau síðast. Haukur og Asta voru mjög sam- rýnd og héldu börnum sínum gott heimili. Haukur var barngóður og hlúðu þau hjónin vel að börnum sínum til dauðadags hans og alltaf var hann tilbúinn að hjálpa öðrum er leitað var til hans. Haukur var mikill söngmaður og hafði fallega tenórrödd, og söng i mörgum kór- um. Á okkar árlegu fjölskyldumótum sem móðir okkar kom á var mikið sungið og farið í leiki saman enda hápunktur sumarsins hjá okkur fjölskyldunum að koma saman. Farið var að styttast í mótið í sumar og tilhlökkunin orðin mikil þegar kallið hans kom. Ég var svo heppinn að vera með Hauki ásamt fleiri úr fjölskyldu okkar fyrir stuttu og óraði engan þá fyrir að þetta væri síðasta útilegan hans þótt lasinn væri orðinn. Haukur var hógvær drengur, trúr og tryggur vinum sínum. Nú bið ég góðan Guð að styrkja fjölskyldu þína og aldraðan fóður okkar í hinni miklu sorg sem dunið hefur yfir. Minningu þína munum við varðveita vel í hjörtum okkar. Vertu sæll, elsku bróðir, og far í friði. Þínir bræður Oskar og Ingvar. Mig setti hljóða er ég fékk þær fréttir að Haukur Reynir Pálsson, vinur minn og faðir vina minna, væri dáinn. Það er einhvern veginn svo erfitt að trúa þeirri staðreynd, eins mikill fjörkálfur og hann var. Haukur var þannig persóna að hvar sem hann kom ríkti mikil gleði og fógnuður og erfitt var að hemja í sér hláturinn, svo fyndinn var hann. Það er ekki laust við að upp komi bros er maður minnist sagnanna sem maður heyrði af honum, svo skondnar og skemmti- legar voru þær. Mér er sérstaklega minnisstæð ferð okkar Hauks og fjölskyldu í Heiðmörk fyrir um tveimur árum. Þótt ekki hafi verið sól og blíða, var samt svo gaman að ég hef ekki farið í skemmtilegri útilegu, svo mikið er víst. Hann átti yndislega konu og börn og skemmtilegheit og tónlistargleði einkenndi heimili þeirra og gaman að hlusta á þau syngja og spila. Haukur var mjög söngelskur og söng í Húnakórnum og hafði gam- an af. I fyrra eignaðist Haukur nafna, sem Anna Kristín færði hon- um, og það var svo gaman að sjá hversu stoltur hann var af honum, afastráknum. Haukur, þú hefur nú kvatt þetta líf og vil ég kveðja þig með versi úr sálmi eftir Valdimar Briem: Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefúr hér hinn síðsta blund. Elsku Ástrós, Baldur, Svanur, Sólveig, Anna Kristín og fjölskyld- ur, ykkur öllum votta ég mína dýpstu samúð. Megi Guð blessa og varðveita ykkur, sem og minningu Hauks. Hún mun ætíð lifa í hjörtum okkar. Sigurrós Einarsdóttir. OLAFUR ARNARS + Ólafur Arnars fæddist í Reyk- javík 21. september 1946. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 27. júní síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Háteigskirkju 6. júlí. Elsku pabbi. Ekki grunaði mig að ég þyrfti að kveðja þig svona fljótt. Það er erfitt að skilja af hverju þú þurftir að fara svona snöggt en ég reyni að hugga mig við það að þér líði vel þar sem þú ert núna. Sárast er að hafa ekki fengið að gera meira fyrir þig. ^jíðastliðna daga hef ég rifjað upp góðar minningar um þig. Ég man t.d. eftir þér að elda jólamatinn og þegar þú og mamma vöktuð okkur krakkana með heitu kakói og jóla- kökum og færðuð okkur í rúmið á jóladagsmorgun. Sunnudagsbíltúr- Sérfræðingar í blómaskreytingum við óll tækifæri Skólavörðustíg 12. á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 arnir voru ófáir og oft- ar en ekki fórstu með okkur niður að höfn að sýna okkur skipin. Stundum fórum við bara tvö og fengum okkur pylsu og kók að ógleymdu prins pólói. Eftir að ég varð eldri og fluttist að heiman töluðumst við oft við í síma og ræddum um daginn og veginn. Við vorum ekki alltaf sam- mála en þú hlustaðir alltaf og virtir mínar skoðanir. Bæði þú og mamma hafið alltaf stutt mig og hin bömin ykkar í því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Ég man að þegar ég var að velta því fyrir mér síðasta sumar hvar ég ætti að fara að kenna fóruð þið með mig í bíltúr um allt Suðurland að mér fannst og sýnduð mér alla skólana. Ég aftur á móti kaus að fara norður og þá studduð þið mig og hjálpuðuð mér að flytja norður. Svona varstu, pabbi, komst með ótal hugmyndir en leyfðir mér að velja. Það er aðeins rúmur hálfur mán- uður síðan ég hringdi í þig og spurði þig um ráð. Þú sagðir ná- kvæmlega það sem ég vildi heyra og auðvitað fór ég eftir þínum ráð- um og hafði gaman af! Vonandi Slómabuðm öarSsKom v/ PossvogsUifUjngarð Sími: 554 0500 heldur þú áfram að gefa mér ráð og hjálpa mér að velja rétt. Síðast þegar ég var heima hjá ykkur mömmu varstu að spila tón- list sem þér fannst svo skemmtileg og þú spilaðir ekkert lægra en við unga fólkið! Það var svo gaman að sjá hversu ánægður þú varst og þú naust augnabliksins alveg út í ystu æsar. Þessari stund gleymi ég aldrei. Ég veit að stundum fannst þér þú ekki standa þig nógu vel sem pabbi en ég vil að þú vitir að ég hefði ekki viljað hafa þig neitt öðruvísi og þótti mjög vænt um þig eins og þú varst, það er ekkert sem breytir því. Þú áttir ekki alltaf auð- velda ævi en þú gerðir allt sem þú gast fyrir þá sem þér þótti vænt um og oft meira en það. I síðasta skiptið sem við vorum saman keyrðum við mömmu út á flugvöll því hún var að fara til Stein- unnar að sjá nýja afastrákmn þinn. Þú varst ánægður fyrir hennar hönd en það er leitt að þér auðnaðist ekki að sjá Gunnar litla. Ég trúi því að þú hafir séð núna hvað hann er fallegur og hvað Ámi Bragi er orðinn stór. Elsku mamma, pabba þótti svo undurvænt um þig og þú stóðst ávallt sem klettur við hlið hans. Missir þinn er mestur en við eigum öll minningar um góðan mann sem við skulum yþa okkur við. Elsku pabbi, ég sakna þín sárt og ég vona að þú sért búinn að hitta ömmu og ömmu Gauju sem reyndist þér svo vel. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú íylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Takk fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir mig. Þín Hildur ÞORSTEINN SVANLA UGSSON + Þorsteinn Jónas Öxndal Sv- anlaugsson fæddist á Akur- eyri 6. ágúst 1920. Hann lést á Akureyri 2. júlí siðastliðinn og fór útför hans fram frá Akur- eyrarkirkju lO.júlí. Þorsteinn Svanlaugsson einn dyggasti félagi okkar í Félagi hjartasjúklinga er látinn. Hann lést þar sem hann var í daglegri göngu- ferð sinni en hann var mjög dugleg- ur útivistarmaður og fór í göngu- ferðir á hverjum degi. Hjartasjúk- lingar í félagi okkar koma til með að sakna hans. Göngustjóri var hann í gönguferðum okkar sem farnar hafa verið á hverjum laugar- degi frá stofnun félagsins. Ævin- lega fór Steini, en það kölluðum við hann alltaf, að morgni laugardags til að huga að því hvert skyldi halda með hópinn, hvernig göngufæri væri á þessum og hinum staðnum því ekki vildi hann ana út í hálku og ófærð með hópinn sinn. Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæði var stofnaði í september 1990. Þor- steinn var kosinn í stjórn félagsins á stofndegi þess. Ég tel að á engan sé hallað þótt sagt sé hér að erfitt verði að fylla skarð hans í félagi okkar. Gaman er að skoða bók sem Steini skrifaði í allar þær gönguferðir sem farnar hafa verið og þar er skráður fjöldi göngumanna, hvar gengið var og vegalengd. Ég ætla ekki að rekja lífshlaup Þorsteins, það munu aðrir og mér færari gera. Á þessum tímamótum vil ég fyrir hönd Félags hjartasjúklinga þakka Lissý Sigþórsdóttur fyrir lánið á eig- inmanni hennar en vegna slæmsku í fótum hefur hún ekki getað verið með okkur í gönguferðum. Þá viljum við einnig votta Lissý og öðrum að- standendum samúð um leið og við kveðjum góðan vin. Þótt líkaminn falli að foldu og felist sem stráið í moldu, þá megnar Guðs miskunnarkraftur af moldum að vekja hann aftur. (Sbj.E.) Þökkum þér af heilum huga og vit- um að þú færð góða heimkomu á öðru tilverustigi. Fyrir hönd Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæði. Geirlaug Sigurjónsdóttir. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær birtist innan hins tiltekna skilafrests.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.