Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 29
irnir láti sér ekki kveðjur af þessu
tagi í léttu rúmi liggja - þeir leika
fyrst og síðast fyrir sína þjóð og
þurfa víst ekki að óttast að hún snúi
við þeim baki á örlagastund. Síðast
unnu þeii- í vítaspyrnukeppni og
landar þeirra erfa það ugglaust ekki
við þá þótt þeir ljúki ætlunarverkinu
ekki fyrr en við sömu aðstæður að
þessu sinni.
Þjóðin krefst þess að lið hennar
fari með sigur af hólmi, hvað sem
það kostar! Ekki er spurt um
skemmtanagildi leiksins, aðeins úr-
slit, og telji þjálfarinn að markmiðinu
verði helst náð með því að leika af
festu og varfæmi - þá það.
„Þetta er bara knattspyma!" Eitt-
hvað á þessa leið vom ummæli Loga
Olafssonar, knattspymusérfræðings
sjónvarps, þegar vítaspymukeppnin
milli Brasilíu og Hollands var að
bresta á í undanúrslitunum, svona
eins og til að róa taugar þeirra sem
sátu við skjáinn. Þvílíkur misskiln-
ingur! I Brasilíu er ekkert til sem
heitir „bara knattspyrna" - þar um
slóðir er knattspyrna lífið. Andleg
heilsa þjóðarinnar veltur á úrslitum í
leik sem þessum - tap er eins og að
missa ástvin. Svo einfalt er málið!
kappar voru skemmtikraftar í orðs-
ins_ fyllstu merkingu.
I seinni tíð hittir maður þó æ færri
sem styðja Brasilíumenn enda hafa
þeir, þrátt fyrir að leika nú í annað
sinn í röð til úrslita á HM, að margra
dómi bmgðist skyldum sínum - að
skemmta áhorfendum. Það er vissu-
lega rétt, Brasilíumenn em
komnir nokkuð langt frá
uppmna sínum, samba-
takturinn seiðandi hefur að
mestu vikið fyrir festu og
stöðugleika. Ætti svo sem
engan að undra - þjóðin sættir sig
ekki við annað en heimsmeistaratitil.
Og hvað unnu Zico, Sókrates og þeir
marga slíka? Engan!
Fáir, ef nokkur, hugsuðu á hinn
bóginn til þeirra eins og góður vinur
minn, prúður maður og vel upp alinn,
hugsar til mannanna sem etja munu
kappi við Frakka á morgun. „Ég trúi
því ekki að þessir helv... Brasilíumenn
verði heimsmeistarar aftur,“ sagði
hann á dögunum og talaði eflaust fyr-
fr munn margra knattspymuunn-
enda. „Þeir era svo leiðinlegir!"
En ætli brasilísku landsliðsmenn-
Stuðning, takk!
I Frakklandi er þessu öfugt farið.
Knattspyrna er að vísu vinsælasta
íþróttin í landinu en það er allt sem
hún er - íþrótt. „Við þekkjum
franska alþýðu," segir Aime Jacquet
landsliðsþjálfari, „hún samanstendur
af fólki sem fylgist með en ekki
stuðningsmönnum. Fólk hefur beðið
þess að sjá hvernig okkur myndi
ganga en nú þegar við emm komnir
alla leið í úrslit verður það að gjöra
svo vel að styðja við bakið á okkur!“
Ef marka má andrúmsloftið á Þjóð-
arleikvanginum þegar heimamenn
öttu kappi við Króata í undanúrslitum
á miðvikudag á Jacquet aftur á móti
ekki von á góðu. „Þetta var eins og í
jarðarför,“ segir fyrirliðinn
Didier Deschamps. „Ég
kom auga á sveit spari-
klæddra manna sem fylgd-
ist með leiknum þegjandi
og hljóðalaust. Þetta stafar
af því að fólkið sem vii-kilega kærir
sig um okkur, hinir raunvemlegu
stuðningsmenn, höfðu ekki efni á að
kaupa miða á leikinn. Það er synd og
skömm - við þurfum á þessu fólki að
halda!“
Heimavöllurinn er því ef til vill
ekki eins drjúgur og hann ætti að
vera. Á því græða Brasilíumenn.
Þegar allt kemur til alls ráðast úr-
slitin eigi að síður hvorki á áhorf-
endapöllunum né fyrir framan sjón-
varpið - heldur á vellinum sjálfum.
Og þar hafa þjóðirnar jafn mörgum
mönnum á að skipa.
„Þetta var
eins og I
jarðarför“
Skemmdairerk í Hvalfiarðargöngum
Morgunblaðið/Golli
SKEMMDARVARGARNIR óku á hlið sem lokaði göngunum og brutu það.
i «5
STARFSMAÐUR Fossvirkis sópar upp glerbrotum úr bíl sem mennirnir óku á og skemmdu inni í göngunum.
Tveir menn eru grun-
aðir um verknaðinn
KEMMDIR vora unnar í
Hvalfj arðargöngunum
snemma í gærmorgun, bæði á
veggjum ganganna sjálfra, merking-
um og lokunum fyrir göngin, og öku-
tækjum meðal annars. Skemmdar-
vargarnir tæmdu einnig úr tveimur
slökkvitækjum inni í göngunum og
unnu tjón á þeim.
Lögreglan handtók tvo menn í
gær sem eru grunaðir um verknað-
inn. Að sögn Sigfúsar Thorarensen
hjá Fossvirki var umsvifalaust farið
í að laga það sem skemmt var, eftir
að lögregla hafði rannsakað
verksummerki, og síðdegis í gær var
lagfæringum að mestu lokið. Að
hans sögn tefja skemmdarverkin
ekki fyrir opnun ganganna í dag.
Ljósavél, bflar og
húsnæði skemmt
Lögreglan í Reykjavík telur að
tjónið skipti hundraðum þúsunda.
^Tjónið talið
skipta himdruð-
um þúsunda
Að sögn lögreglunnar komu
mennirnir að gangamunnanum
Reykjavíkurmegin og bmtust inn í
vinnuskúr þar sem þeir stálu lykli
að bíl sem stóð fyrir utan skúrinn.
Þeir óku síðan bílnum á milli vinnu-
vélar, sem stóð við gangaopið og
átti að loka fyrir umferð, og vegriðs
með þeim afleiðingum að vegriðið
bognaði og vinnuvélin færðist úr
stað. Um leið varð nokkurt tjón á
bílnum.
Inni í göngunum keyrðu
skemmdarvargarnir á lítinn vörubíl
og skemmdu ljósavél, rafmagns-
töflu og slökkvitæki, eins og sagt
var frá hér á undan. Bíllinn var síð-
an skilinn eftir við gangaopið Akra-
nesmegin og þar var tekin vinnuvél
og henni ekið til baka inn í göngin.
Gæsla var inni og úti í nótt
„Þetta er með ólíkindum. Það er
ljóst að tjónið skiptir hundruðum
þúsunda," sagði Geir Jón Þórisson
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík í samtali við Morgunblaðið.
Skemmdarverkin vom unnin á
sjötta tímanum í gærmorgun en tO-
kynning um þau barst lögreglu um
klukkan sjö í gærmorgun. Lögreglan
hafði nýlega yfirgefið göngin eftir
bmnaæfingar sem þar höfðu farið
fram og vaktmaður sem var á staðn-
um varð ekki var við skemmdarvarg-
ana. Ekki var gæsla inni í göngunum
á þeim tíma þegar tjónið var unnið.
Lögreglan var með gæslu við
göngin og inni í göngunum í nótt til
að tryggja að allt yrði með ró og
spekt nóttina fyrir opinbera opnun
þeirra.