Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 27
HESTAR
, Morgunblaðið/Ásdís
LINDA Rún Pétursdóttir og Fasi frá Nýjabæ kampakát og tilbúin í
úrslitakeppnina á sunnudaginn.
Skiptast á
skin og skúrir
ÞAÐ skiptast á skin og skúrir í
barnakeppninni eins og / öðru.
Eftir forkeppni í barnaflokki
var Linda Rún Pétursdóttir
langefst, en þegar milliriðli var
lokið kom babb í bátinn og ljóst
var að þrátt fyrir að hafa
hækkað í einkunn var hún kom-
in niður í fímmta sæti.
Linda Rún er þó ekki af baki
dottin. Hún sagði í samtali við
Morgunblaðið að í úrslitunum,
sem fara fram á sunnudag,
mundi hún bara reyna að gera
sitt besta og sjá hvernig færi.
Linda Rún keppir á hestin-
um Fasa frá Nýjabæ sem er í
eigu móður hennar, Kol-
brúnar K. Ólafsdóttur. „Ég
á svona pmulítið í honum,“
segir Linda Rún. „Mér fínnst
Fasi mjög góður hestur og
hann er svolítið öðruvísi en
aðrir hestar. Hann er svolítið
frekur því eflaust er ég búin
að dekra of mikið við hann.
En ég held mikið upp á hann,“
segir hún.
Linda Rún segist hafa undir-
búið sig vel eftir að ákveðið var
að hún tæki þátt í úrtökukeppni
fyrir Landsmótið hjá Hesta-
mannafélaginu Herði í vor. Hún
segist hafa æft sig á hveijum
degi og það gerði bróðir hennar,
Guðmar Þór Pétursson einnig,
en hann keppir í Ungmenna-
flokki og er kominn í úrslit þar.
„Ég var svolítið taugaóstyrk
þegar ég vissi að ég kæmist á
Landsmótið. Þegar ég byijaði
svo í forkeppninni hér var ég
líka spennt, en reyndi bara að
gera mitt besta. Ég var mjög
hissa að ég skyldi verða efst.
Og það urðu auðvitað líka von-
brigði að falla niður í fímmta
sæti í dag, en Fasi stökk upp
þegar ég var að sýna yfírferð-
ina. En ég er a.m.k. inni í úrslit-
um og maður veit aldrei hvern-
ig fer.“
Morgunblaðið/Ásdís
KAREN Líndal Marteinsdóttir er efst í unglingaflokki á hestinum Manna frá Vestri-Leirárgörðum.
Sviptingar í
yngri flokkunum
MIKLAR sviptingar urðu í keppni í
milliriðlum í barna- og unglinga-
flokki á Landsmótinu í gær.
Þeir sem keppa til úrslita í ung-
mennaflokki eru Davíð Matthías-
son, Fáki, á Prata frá Stóra-Hofi
með 8,65, Guðmar Þór Pétursson,
Herði, á Háfeta frá Þingnesi með
8,59, Sigurður Halldórsson, Gusti, á
Krapa frá Kirkjuskógi með 8,55,
Marta Jónsdóttir, Mána, á
Rrumma frá Geldingalæk með 8,54,
Gunnhildur Sveinbjömsdóttir,
Fáki, á Náttfara frá Kópareykjum
með 8,54, Ragnheiður Kristjáns-
dóttir, Fáki, á Dára frá Keldudal
með 8,51, Kristín Þórðardóttir,
Geysi, á Glanna með 8,45, Ásta
Dögg Bjamadóttir, Gusti, á Eldi
frá Hóli með 8,41, Garðar Hólm
Birgisson, Herði, á Ónari frá
Breiðabólsstað með 8,40 og Agnar
Snorri Stefánsson, Hring, á Toppi
frá Hömluholtum með 8,38.
I unglingaflokki skaust Karen
Líndal Marteinsdóttir, Dreyra, á
Manna frá Vestri-Leirárgörðum
upp í fyrsta sætið með 8,69. Aðrir í
úrslitum era Daníel I. Smárason,
Sörla, á Seið frá Sigmundarstöðum
með 8,60, Hinrik Þór Sigurðsson,
Sörla, á Val frá Litla-Bergi með
8,58, Silvía Sigurbjömsdóttir, Fáki,
á Djákna frá Litla-Dunhaga með
8,56, Sigurður S. Pálsson, Herði, á
Rimmu frá Ytri-Bægisá með 8,55,
Guðmundur Ó. Unnarsson, Mána, á
Mósa frá Múlakoti með 8,55, Ing-
unn Birna Ingólfsdóttir, Andvara, á
Sprengju frá Kálfholti með 8,53,
Viðar Ingólfsson, Fáki, á Grímu
með 8,51, Þórdís Erla Gunnarsdótt-
ir, Fáki, á Stirni frá Kvíarhóli með
8,49 og Árni Pálsson, Fáki, á Fjalari
frá Feti með 8,47.
Elva Björk Margeirsdóttir,
Mána, á hestinum Svarti frá Sól-
heimatungu, fór úr 11. I 1. sæti og
hækkaði sig úr 8,25 í 8,66. Maríanna
Magnúsdóttir, Fáki, á Ekkju frá
Hólum, hækkaði sig úr 18. sæti í 2.
sæti með 8,55 og Vala Dís Birgis-
dóttir, Gusti, fór úr 19. sæti í það 3.
með 8,54. Aðrir í úrslitum era þau
Fanney D. Indriðadóttir, Þyt, á
Nátthrafni frá Grafarkoti með 8,51,
Linda Rún Pétursdóttir, Herði, á
Fasa frá Nýja-Bæ með 8,45, Laufey
G. Kristinsdóttir, Geysi, á Kosti frá
Tókastöðum með 8,44, Gunnhildur
Gunnarsdóttir, Mána, á Skugga frá
Skeljabrekku með 8,44, Daði Erl-
ingsson, Herði, á Nökkva frá Sauð-
árkróki með 8,44, Sigurþór Sigurðs-
son, Fáki, á Erli frá Leifsstöðum
með 8,44 og Freyja Amble Gísla-
dóttir, Sleipni, á Muggi frá Stangar-
holti með 8,43.
EUMENIA
EUMENIAX
Euronova þvottavél
• 3 kg af þvotti
• vinduhraði 600 snún./mín.
eða 800 snún./mín.
• til í ýmsum litum
• mál 67 x 46 x 45 cm
Verð frá
kr. 59.900 stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
Fáðu þér
10 raða
lottómiða með Jóker
og þú getur tekið þátt
í sumarleik lottósins.
í vinning er glæsileg
TOYOTA Avensis bifreið.
Tvöfaldur
/. vumingur