Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 13
FRÉTTIR
Afköst
GSM-kerfis-
ins í Eyja-
firði aukin
AFKASTAGETA GSM kerfisins á
Sámsstöðum í Eyjafirði sem sinnir
meðal annars Melgerðismelum hefur
verið tvöfölduð.
Starfsmenn Landssímans hafa
fylgst með álagi á kerfið og um leið
og ljóst var að kerfið annað ekki
álaginu var ákveðið að tvöfalda af-
kastagetuna.
OLÍUMÁLVERK úr Þórsmörk frá 1927 eftir Jóhannes Kjarval.
Kjarvals-
myndin úr
Þórsmörk
Sverrir Hermannsson boðar fund
á fsafírði um fískveiðimál
Kvótakerfínu sagt
stríð á hendur
SVERRIR Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri, hefur boðað til
fundar um stjómmálaviðhorfið og
fiskveiðimál á ísafirði næstkomandi
mánudag. Verður fundurinn hald-
inn í Stjórnsýsluhúsinu og hefst
klukkan 20.30.
Fundurinn hefst með ræðu
Sverris og síðan verða leyfðar fyrir-
spurnir. Fundarstjóri verður
Matthías Bjamason, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra. „Þama
verður núverandi fiskveiðikvóta-
kerfi sagt stríð á hendur,“ sagði
Sverrir í samtali við Morgunblaðið.
Með þessum fundi segist hann hefja
baráttu sína fyrir stofnun nýrra
stjómmálasamtaka sem ætla að
beita sér gegn núverandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi og frjálshyggju.
Sverrir kvaðst hafa viljað fyrst
bera niður á tveimur stöðum, ann-
ars vegar þar sem hann á rætur sín-
ar og hins vegar í sínu gamla kjör-
dæmi á Austfjörðum og ráðgerir
næsta fund á Egilsstöðum síðar í
sumar. „Á haustdögum byrjar at-
lagan í fundahöldum og skipulags-
vinnu víða um land,“ segir Sverrir
og heldur áfram: „Hér er komið að
því að menn una ekki lengur við
þetta kerfi þar sem verið er að færa
aðaleign og auðlind þjóðarinnar á
örfárra manna hendur með öllu því
ótrúlega braski og svívirðu sem
þessu hefur fylgt.“
ÖNNUR Kjarvalsmyndin úr lista-
verkaeign Vestmannaeyja, sem
sagt var frá í Morgunblaðinu í gær
að hefði fundist í Þjóðminjasafni 25
árum eftir gos, var samkvæmt
númeri í gjafabrófi Sigfúsar M.
Johnens og merkimiða á myndinni
sögð heita Frá Dyrfjöllum, þó efa-
semdir væru um að það væri rétt.
Nú er komið í ljós að myndin er
Úr Þórsmörk. Næsta mynd við,
númer 14, í gjafabréfinu heitir
raunar Þórsmerkurrani og er lík-
legt að númerin hafi ruglast í asan-
um þegar málverkin voru í gosinu
flutt í land.
Gunnar Hjaltason listmálari
þekkti myndina og staðinn, enda
var hann mjög kunnugur Kjarval,
móðir hans systir mikUs stuðnings-
manns hans, Ragnars Ásgeirssonar,
og hann á sjálfur 10 myndir eftir
Kjarval frá því fyrir 1930. Hann
segir myndina frá 1927, málaða í
Húsadal, horft í vest-suðvestur.
Nýju sveitarstjórnarlögin
Bráðabirgða-
lög sett vegna
réttaróvissu
í GÆR voru gefin út bráðabirgða-
lög um gildistöku sveitarstjórnar-
laga til að eyða réttaróvissu sem
myndast hafði vegna þess að und-
irritun forseta fslands og auglýs-
ing laganna í Stjómartíðindum fór
fram eftir gildistöku laganna eins
og hún var tiltekin í þeim sjálfum.
Skrifstofa Alþingis sendi félags-
málaráðuneytinu lögin undirrituð
af forseta Alþingis 2. júní, degi síð-
ar rituðu forseti og félagsmálaráð-
herra undir þau og 5. júní vom þau
auglýst í Stjórnartíðindum. Sam-
kvæmt ákvæði í sveitarstjórnar-
lögunum sjálfum áttu þau að taka
gildi 1. júní.
Efasemdir um gildistöku
í fréttatilkynningu frá félags-
málaráðuneytinu segir að vegna
þessa misræmis hafi komið fram
efasemdir á síðustu dögum um að
lögin hafi raunverulega öðlast
gildi. í því sambandi er vitnað til
dóms Hæstaréttar frá 25. septem-
ber 1997 í máli nr. 136/1997.
í ofangreindu máli úrskurðaði
Hæstiréttur að ákvörðun Héraðs-
dóms um refsingu byggða á nýj-
um lögum ætti ekki við, því þau
hefðu ekki verið auglýst í Stjórn-
artíðindum fyrr en 9. mars 1995,
en samkvæmt ákvæði í lögunum
sjálfum hefðu þau átt að taka gildi
1. janúar sama ár. Taldi Hæsti-
réttur því að um gildistöku lag-
anna ættu að gilda ákvæði 7.
greinar laga frá nr. 64/1943 um
birtingu laga og stjórnarerinda,
þar sem kveðið er á um almennan
gildistökufrest eftir birtingu laga.
Urskurður Hæstaréttar sam-
kvæmt því var að lögin hefðu ekki
tekið gildi fyrr en 1. júlí 1995, og
refsiákvæði eldri laga hefðu því
átt við um brot sem framin voru
fram að þeim tíma.
------♦♦♦-------
■ LANDSSAMTÖK hjólreiða-
manna hafa sent lögreglunni
áskorun þar sem segir meðal ann-
ars:
Stjóm Landssamtaka hjólreiða-
manna skorar á lögregluna í
Reykjavík að hefja nú þegar átak
til þess að fjarlægja bifreiðar af
gangstéttum borgarinnar. Þær
koma í veg fyrir eðlilega umferð
gangandi fólks og hjólreiðamanna,
hindra fólk sem kemur, barna-
vagna og fólk í hjólastólum og
hrekja það út á akbrautimar.
íWÍMMWUMIIIlfMMMBaWaMai
mmmMi
Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans;
svipsterkur og glæsilegur bíll á góðu verði.
Hyundai er breiður og rúmgóður eóalvagn
með 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega
lipur og mjúkur í akstri. Tveir liknarbelgir,
ABS bremsukerfi, styrktarbitar i huróum o.fl.
tryggir öryggi farþeganna.
N Ú E R LAG - S0NATA
- til framtiðar
ÁrmúLa 13 • SLmi 575-1220 - 575 1200 Fax 568 3818 • bl@bl.is • www.bl.is
Á EINSTÖKU TILB0ÐI í N0KKRA DAGA