Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 3 Hátíðardagskrá í Hvalfirði í dag Kl. 14:00 við suðurmunna Hvalfjarðarganga: • Lúðrasveit Akraness leikur frá kl. 13:40. • Páll Sigurjánsson, stjórnarformaður Fossvirkis sf., og Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar ehf., flytja ávörp. • Davíð Oddsson, forsætisráðherra, flytur ávarp og opnar Hvalfjarðargöng. • Lúðrasveit Akraness leikur. • Langferðabílar aka með boðsgesti í gegnum göngin. Kl. 14:45 við norðurmunna Hvalfjarðarganga: • Karlakór Reykjavíkur syngur. • Anton Ottesen, oddviti Innri-Akraneshrepps, býður gesti velkomna norður fyrir. • Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, flytur ávarp. • Halldór Blöndal, samgönguráðherra, flytur ávarp. • Karlakór Reykjavíkur syngur. Kl. 16:00 Hvalfjarðargangahlaup: Hvalfjarðargangahlaup í umsjón Reykjavíkurmaraþons hefstvið suðurmunna kl. 16:00. Þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynnast göngunum hlaupandi, gangandi, hjólandi eða á línuskautum. Þeim er síðan boðið að synda í Jaðarsbakkalaug á Akranesi og njóta veitinga í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum. Kl. 19:00 Hvalfjarðargöng opnuð fyrir almennri umferð. Veggjald verður elcki innheimt fyrr en 20. júlí nk. Óskum þjóðinni tii hamingju með daginn! Hugmynd um jarðgöng undir Hvalfjörð var fyrst hreyft fyrir um þremur áratugum. Mörgum þótti slíkt fjarlægur draumur eða hrein fásinna. í dag er þetta einstæða og glæsilega mannvirki tekið í notkun, átta mánuðum fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir. Færustu sérfræðingar á sviði tækni og fjármála komu að verkinu og úttekt bendir til að Hvalfjarðargöng séu hagkvæmasta stórframkvæmd í samgöngumálum hér á landi til þessa. Spölur ehf. byggir og rekur Hvalfjarðargöng. Gert er ráð fyrir að veggjöld standi undir endurgreiðslu lána og rekstri ganganna. Þegar lánin hafa verið greidd upp, innan 20 ára, verða göngin afhent íslenska ríkinu endurgjaldslaust. Fossvirki sf. er aðalverktaki við gangagerðina. Fyrirtækið er sameignarfélag Istaks hf., sænska félagsins Skanska AB og danska fyrirtækisins E. Pihl & Son A/S. Fyrirtækið og eigendur þess voru ábyrgir fyrir allri fjármögnun á framkvæmdatímanum og tæknilega ábyrgir fyrir framkvæmd verksins. Göngin verða afhent Speli ehf. í september nk., að loknum tveggja mánaða reynslutíma. Fjármögnunarþáttur verksins er sérkapítuli enda voru samningar þar að lútandi þeir fyrstu sinnar tegundar á Norðurlöndum. Hér taka höndum saman íslenskir og erlendir bankar, íslenskir lífeyrissjóðir og bandaríska líftryggingafélagið John Hancock. Hvalfjarðargöng marka ekki aðeins tímamót í samgöngumálum heldur einnig í sögu framkvæmda í landinu og í byggða- og atvinnumálum þjóðarinnar. Við þökkum öllum, sem að málinu hafa komið, fyrir árangursríkt samstarf og óskum íslendingum til hamingju með daginn. siQpr FOSSVIRKIsf v 5KAN5KA jJlhl Þjóðvegur I 1 I undir Hvalfjörð opnaður kl. 19:00 í kvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.